24 stundir - 05.07.2008, Blaðsíða 22
Myndi staðfesta samvist.
Myndi ekki staðfesta samvist.
Hefur ekki tekið afstöðu eða neitar að gefa hana upp.
Á kortinu má sjá hvernig afstaða presta til staðfestrar samvistar skiptist eftir prófastsdæmum. Afstaða sjúkrahúspresta,
sérþjónustupresta og biskupa kirkjunnar - sem sumir heyra undir ákveðin prófastsdæmi - er sýnd í sérramma.
?
Árnesprófastsdæmi
9 1 0 ?
Austfjarðaprófastsdæmi
4 0 1 ?
Borgarfjarðarprófastsdæmi
2 1 2 ?
Eyjafjarðarprófastsdæmi
7 0 2 ?
Húnavatnsprófastsdæmi
4 0 1 ?
Múlaprófastsdæmi
4 0 2 ?
Rangárvallaprófastsdæmi
2 0 2 ?
Skaftafellsprófastsdæmi
2 0 2 ?
Skagafjarðarprófastsdæmi
5 1 0 ?
Snæfells- og Dalaprófastsdæmi
6 0 0 ?
Vestfjarðaprófastsdæmi
7 0 1 ?
Þingeyjarprófastsdæmi
3 1 1 ?
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra
15 3 2 ?
Reykjavíkurprófastsdæmi vestra
14 0 3 ?
Kjalarnesprófastsdæmi
12 1 6 ?
Biskup svaraði ekki
Vígslubiskupar 1 0 1
Sendiráðsprestar 3 1 0
Sjúkrahúsprestar 8 0 0
Afleysingaprestar 2 0 1
Sérþjónustuprestar 7 0 0
?
?
?
?
?
Afstaða presta þjóðkirkjunnar til þess að staðfesta
samvist samkynhneigðra para
22 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 24stundir
Hart hefur verið tekist á um
vígslu samkynhneigðra para innan
kirkjunnar. Á kirkjuþingi síðastlið-
ið haust náðist sátt um málamiðl-
unartillögu, sem leiddi til þess að
Alþingi veitti trúfélögum heimild
til að vígja sambúð para af sama
kyni.
Niðurstöður könnunar 24
stunda benda til þess að í presta-
stéttinni hafi stuðningi við stað-
festa samvist vaxið fiskur um hrygg
að undanförnu.
Fjörutíumenningarnir
„Við vorum um fjörutíu prestar
sem undirbjuggum mikið plagg í
fyrra,“ segir Yrsa Þórðardóttir,
prestur í Digraneskirkju. „Okkur
fannst ekki nóg að búa til eitthvað
sem mátti hvort eð er, en við höf-
um lengi mátt blessa samkyn-
hneigð pör.“
Yrsa vill helst að skrefið sé tekið
til fulls og ein hjúskaparlöggjöf
gildi fyrir alla, hvort sem um er að
ræða pör af sama kyni eða gagn-
stæðu. Ef ríkið setti slík lög telur
Yrsa líklegt að prestar myndu hlíta
þeim. „Hjónabandið er í raun
borgaralegur gjörningur í lútersk-
um skilningi. Sem stjórnarskrár-
vernduð þjóðkirkja hljótum við
þess vegna að fara gjörsamlega að
landslögum.
Auðvitað þætti mér líka mjög
smart ef kirkjan gengi sjálf á undan
með góðu fordæmi í þessu mann-
réttindamáli.“
Forsendur frá Guði
Guðmundur Karl Brynjarsson,
sóknarprestur í Lindasókn, er einn
þeirra presta sem sögðust ekki
mundu staðfesta samvist samkyn-
hneigðra para.
„Með fullri virðingu fyrir sam-
kynhneigðum, þá bara treysti ég
mér ekki til að ganga þessa leið
með þeim.
Mér finnst einfaldlega ekki vera
gefnar forsendur í Guðs orði til að
ég geti blessað þessi sambönd. Þar
eru hjón bara einn karl og ein kona
– ekki neitt annað. Ég á þessa bless-
un ekki sjálfur og verð að hlýða
því.“
Rennur blóð til skyldunnar
Önundur Björnsson, sóknar-
prestur á Breiðabólstað í Fljótshlíð,
setti sig gegn breytingunum við
umræður á kirkjuþingi í fyrra.
„Mér fannst ekki hægt að skylda
þetta frjálsa félag, sem þjóðkirkjan
er, til að gera þetta,“ segir Önund-
ur. „Guðfræðilega séð finnst mér
þetta ekki rétt.“
„Hins vegar tel ég mig ekki í
stakk búinn að synja fólki í mínu
prestakalli sem óskar eftir þjónustu
minni í þá veru. Við erum í þjón-
ustustörfum og það liggur fyrir
viljayfirlýsing um þessa þjónustu.
Ég ætla ekki að skorast undan að
takast á við þau verkefni sem
prestastefna, kirkjuþing og löggjaf-
arþing óska eftir að ég geri.“
Önundur bendir þó á að sá hóp-
ur presta sem gengið hefur fram
fyrir skjöldu til að þetta yrði heim-
ilað mætti fá að njóta þess – með
því að samkynhneigðir leituðu sér-
staklega til þeirra um staðfestingu
samvistar sinnar.
Hommar og lesbíur
ekki fyrir alla presta
➤ Lög um staðfesta samvisttóku gildi á alþjóðlegum bar-
áttudegi samkynhneigðra,
27. júní 1996.
➤ Frá árinu 1998 gátu samkyn-hneigð pör sem hlutu stað-
festa samvist hjá sýslumanni
fengið blessun í kirkju.
➤ Lögum um staðfesta samvistvar í ár breytt á þann hátt að
prestum varð heimilt að stað-
festa samvist. Þær breytingar
tóku gildi 27. júní síðastlið-
inn.
STAÐFEST SAMVIST
Andrés Ingi Jónsson
andresingi@
24stundir.is
FRÉTTASKÝRING
Lög um staðfesta samvist málamiðlun á milli afla sem togast á í þjóðkirkjunni Sumir
prestar grípa tækifærið fegins hendi Stangast á við trúarsannfæringu annarra
Eftir ítrekaðar tilraunir til að
leggja spurningu 24 stunda
fyrir Karl Sigurbjörnsson
biskup fengust þær upplýs-
ingar frá Biskupsstofu að Karl
hefði ekki tíma til að svara,
þrátt fyrir að erindi blaðsins
hafi legið ljóst fyrir.
„Þetta eru sérlega ánægjulegar
niðurstöður og bera glöggt
vitni um þær viðhorfsbreyt-
ingar sem hafa átt sér stað á
undanförnum misserum,“
segir Lárus Ari Knútsson,
framkvæmdastjóri Samtak-
anna 7́8. „Það sýnir sig að sá
hópur presta sem hefur tekið
samkynhneigðum opnum
örmum hefur unnið gott starf
og fer sífellt stækkandi.“
Lárus segir að þó þokist í rétta
átt megi enn bæta stöðu sam-
kynhneigðra. „Við vonumst til
þess að Íslendingar verði jafn-
framsýnir og Norðmenn, sem
á dögunum innleiddu eina
hjúskaparlöggjöf fyrir alla
fullveðja einstaklinga.“
Samtökin 7́8
„Ánægjulegt“
TÍMABUNDINN