24 stundir - 09.07.2008, Blaðsíða 11
24stundir MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2008 11
ÁSTAND HEIMSINS
frettir@24stundir.is a
Svo virðist sem þessari röð spreng-
inga hafi verið ætlað að hrella og
hræða almenna borgara.
Babar Kahttak lögreglustjóri
Sex sprengingar kváðu á einni
klukkustund víðs vegar um Ka-
rachi, stærstu borg Pakistans, á
mánudag. Yfirvöld telja að 37
manns hafi særst í sprenging-
unum, þar af 8 börn. Daginn áð-
ur féllu 18 manns í sjálfsvígsárás í
höfuðborginni Íslamabad.
Babar Kahttak, lögreglustjóri í
Karachi, áætlar að hver sprengja
hafi vegið rétt undir 200 grömm,
svo ljóst sé að þeim hafi ekki ver-
ið ætlað að valda stórskaða. Þeim
var komið fyrir í íbúðahverfum
og við verslunargötur. „Svo virð-
ist sem þessari röð sprenginga
hafi verið ætlað að hrella og
hræða almenna borgara,“ segir
Kahttak.
Ofbeldi hefur verið títt í Karachi,
sem er hafnarborg í suðurhluta
Pakistans. Í október síðastliðnum
létust ríflega 140 manns í borg-
inni, í sprengingu sem ætlað var
að granda Benazir Bhutto, fyrr-
verandi forsætisráðherra. Atlagan
að Bhutto bar loks árangur þegar
hún var ráðin af dögum í desem-
ber. andresingi@24stundir.is
Röð spreng-
inga í Pak-
istan
NordicPhotos/AFPHert gæsla Lögreglumaður á varðbergi fyrir utan þing Punjabhéraðs eftir að 37 manns særðust í sex sprengingum í Karachi.
Sólskinshverfi Verkamenn leggja lokahönd á ljós í umhverfisvænu hverfi sem risið er í útjaðri Kalkútta á Indlandi. Í hverfinu eru 25
hús sem eru sjálfum sér nóg með orku – og gott betur. 60% raforkunnar sem myndast í sólarrafölunum er seld úr hverfinu.
Áttu maur? Tveggja mánuða mauraætuungi leitar að gómsæti í brjóstvasa dýrahirðis
í dýragarðinum í Berlín.
Beðið í Bagdad Írösk kona biðst fyrir við minnismerki um Abdel Karim Qassem í miðborg Bagdad. Qassem kom á fót fyrstu lýð-
ræðislegu ríkisstjórn landsins, eftir valdarán árið 1958. Fimm árum síðar var honum sjálfum steypt af stóli.
Upp í geim Geimvísindastofnun Evrópu, ESA, lánaðist að koma tveimur gervihnöttum
á sporbaug um jörðu í gær.