24 stundir - 09.07.2008, Side 25
24stundir MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2008 25
Eftir Þorkel Gunnar Sigurbjörns-
son
thorkell@24stundir.is
„Við flytjum út til Bandaríkjanna
fimm dögum eftir að við komum
heim frá Kína. Það er rosalega
spennandi að við munum búa
saman og standa saman á eigin
fótum,“ sagði Erla Dögg en þau
Árni Már hefja nám við Nort-
hfolk-háskólann í Virginíu í ágúst.
Þar verða þau á fullum skólastyrk
og hafa skrifað undir eins árs
samning sem verður svo endur-
skoðaður í lok skólaársins.
„Þetta leggst rosalega vel í okk-
ur. Aðstæður eru til fyrirmyndar
og svo verður gaman að ferðast
um gjörvöll Bandaríkin til að
keppa við aðra háskóla. Það er
mjög spennandi,“ sagði Árni Már
um búferlaflutning parsins vestur
um haf í lok sumars.
„Mér líst líka mjög vel á þjálf-
arana þarna. Þeir virtust mjög al-
mennilegir þegar ég spjallaði við
þá þegar við fórum að skoða að-
stæður um daginn. Þeir eru líka
vinir manns, ekki bara einhverjir
þjálfarar sem setja manni fyrir og
eru svo roknir,“ sagði Erla.
Ástin blómstrar
Árni og Erla kynntust í gegnum
sundið og eru búin að vera saman
núna í fjögur ár. Erla er úr Kefla-
vík en Árni Már frá Mosfellsbæ.
Það hefur þó ekki komið í veg fyr-
ir að ástin blómstri hjá parinu.
„Ég var í námi í Fjölbrautar-
skóla Suðurnesja eins og Erla þar
sem ég byrjaði í Íþróttaakademí-
unni í Reykjanesbæ á sínum tíma,
sundsins vegna. Það var reyndar
frekar þreytandi að keyra á milli
Mosfellsbæjar og Keflavíkur tvisv-
ar á dag alltaf. Sérstaklega þar sem
ég æfði með Ægi á þeim tíma og
þar af leiðandi hófst dagurinn á
morgunæfingu hjá Ægi eld-
snemma um morguninn og síðan
keyrt til Keflavíkur. Svo keyrði ég
alltaf aftur eftir skóla í bæinn.
Fyrir tveimur árum ákvað ég að
skipta yfir í ÍRB og síðan þá hef ég
nú búið bara að miklu leyti hjá
Erlu,“ sagði Árni Már.
Dúxaði í stúdentsprófunum
Erla Dögg útskrifaðist sem
stúdent frá Fjölbrautarskóla Suð-
urnesja í vor sem dúx. Spurð út í
hvort hún hafi nokkurn tíma í
annað en sundið og námið segir
Erla að fátt annað komist að. „Ég
hef reynt að vera bara með vin-
konum mínum í skólanum og tala
við þær þar. Það þýðir lítið að
draga mig út á lífið á kvöldin því
þá er ég orðin svo þreytt eftir
langan og erfiðan dag sem byrjar
á morgunæfingu um klukkan sex.
En það er hentugt að eiga kærasta
sem hefur sömu áhugamál og ég.
Auk sundsins þá liggur áhugi okk-
ar á svipuðum stað í náminu. Við
erum því bæði skráð í almennt
nám fyrsta árið með meiri áherslu
á raungreinar. Hugur okkar
beggja stefnir síðan á verkfræðina
í kjölfarið og vonandi getum við
lagt stund á hana þarna úti.“
Árna finnst gott að eiga svona
klára stelpu að. „Það er gott þegar
maður er í vandræðum með eitt-
hvað í náminu að eiga Erlu að. Ef
ég er í einhverjum vanda hjálpar
hún mér alltaf. Ég hef nú verið í
góðum málum hvað nám varðar
og ennþá betri málum síðan Erla
Dögg kom til skjalanna.“
Keppa bæði í Peking
Bæði Árni og Erla Dögg verða
meðal fulltrúa Íslands á Ólympíu-
leikunum í Peking í ágúst. Erla
keppir í 100 m bringusundi og
200 m fjórsundi. Árni Már keppir
hins vegar í 50 m skriðsundi. Þessi
misserin æfa íslensku sundmenn-
irnir átta sem fara til Peking einir
og sér og hjá sínum félögum. Ól-
ympíuhópurinn heldur svo saman
til Singapúr 25. júlí og verður þar
við æfingar þar til farið verður til
Kína í byrjun ágúst.
„Við stefnum bæði að því að
bæta persónulegan árangur í þess-
um greinum á Ólympíuleikunum.
Ég verð samt ánægð ef ég bæti Ís-
landsmet á leikunum,“ sagði Erla
Dögg.
Spennandi
Ævintýri á Ólympíuári hjá sundparinu Erlu Dögg og Árna Má ÓL í Peking og háskólanám
í Bandaríkjunum Ekkert mál að sameina afreksíþróttir og nám
Það eru spennandi tímar
framundan hjá kærustu-
parinu Árna Má Árnasyni
og Erlu Dögg Haralds-
dóttur. Bæði verða þau
meðal fulltrúa Íslands á
Ólympíuleikunum í Pek-
ing í ágúst þar sem þau
keppa bæði í sundi. Eftir
leikana munu þau svo
flytja saman til Banda-
ríkjanna þar sem þau
verða við nám.
Erla Dögg Haraldsdóttir
➤ Erla Dögg Haraldsdóttir á 5Íslandsmet í 50 metra laug.
50 m, 100 m og 200 metra
bringusundi, 200 metra flug-
sundi og 200 metra fjórsundi.
Öll þessi met setti Erla á
þessu ári.
➤ Örn Arnarson á flest Íslands-met í karlaflokki – alls 11 Ís-
landsmet.
ERLA Á 5 ÍSLANDSMET
Árni Már Árnason
24stundir/JAK
tímar
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Við stefnum bæði að því að bæta persónu-
legan árangur í þessum greinum á Ólympíu-
leikunum. Ég verð samt ánægð ef ég bæti Ís-
landsmet á leikunum.