Eintak - 01.11.1993, Side 8

Eintak - 01.11.1993, Side 8
höfundar Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur dvaldi á Akureyri í æsku og hefur ekki borið þess bætur. Hér gerir hann upp sakirnar við Akureyringa, kemst að þeirri niðurstöðu að þeir séu mestu Skandínavar Islands, en um leið að Akureyri sé eini staður á Islandi sem rísi undir því nafni að heita borg. Linda Vilhjálmsdóttir skáld skrifar um reiði í umfjöllun EINTAKS um sjö dauðasyndir. Kveðskapur Lindu hefur vakið mikla athygli undanfarin ár, reyndar svo mikla að nú er hún á ferðalagi erlendis þar sem hún les upp ljóð eftir sig. Matthías Viðar Sæmundsson dósent í bókmenntafræði skrifar um eina dauðasyndina, lostann. Þessi synd er ekki alveg framandleg Matthíasi, því í fyrra tók hann saman bókina Galdrar á íslandi, en þar komu ýmisleg lostabrögð mjög við sögu. Þórarinn Eldjárn rithöfundur skrifar um letina sem er allra lasta móðir. Þórarinn er aftur á móti faðir fimm sona og býr í Vesturbænum. Mörður Árnason íslenskufræðingur er Reykvíkingur sem þarf að sætta sig við að atkvæði hans er margfalt minna metið en atkvæði frændfólks hans vestur í Dölum. Mörður veltir því fyrir sér hvort þetta sé eitthvert náttúrulögmál og spáir í hugmyndir um nýja skipan, landslista og einmenningskjördæmi. Bragi Ólafsson er vísast kunnastur fýrir að hafa leikið á bassagítar í hljómsveitunum Purrki Pilnik og Sykurmolunum. En það er þó varla nema aukageta frá ritstörfum, því Bragi er í hópi bestu Ijóðskálda af yngri kynslóð og löngu hættur að vera bara efnilegur. Á hljómleikaferðum hefur Bragi kynnst mörgu dramb- sömu fólki, enda skrifar hann um útbreidda dauðasynd - dramb. Páll H. Hannesson félagsfræðingur skrifar umbörn Pálma Jónssonar, Hagkaupsveldið og endurskipulagningu þess. Páll starfaði um árabil sem blaðamaður, en var til skamms tíma skólastjóri Bankamannaskólans og þekkir því gjörla innviði viðskiptalífsins. Guðlaugur Arason rithöfundur varð frægur á svipstundu þegar hann sendi frá sér skáldsöguna Eldhúsmellur fyrir rúmum áratug. Undanfarin ár hefur verið heldur hljótt um Guðlaug, en á næstu vikum kemur út eftir hann skáldsagan Hjartasalt. Guðlaugur skrifar um öfundina, eina af dauðasyndunum sjö. Dóra Einarsdóttir hefur hannað búninga fyrir íjölda bíómynda og leik- sýninga. Hún er einnig hagvön á fjölmiðlum og hefur hvort tveggja starfað á blöðum og á ljósvakanum. Dóra hefur farið víða um lönd með litlu kassamynda- vélina sína og tekið myndir af ótal vinum og kunningjum. Hún opnar ljósmyndaalbúmið sitt í fyrsta tölublaði EINTAKS. Sigurður A. Magnússon rithöfundur skrifar um græðgi í greinasafni EINTAKS um dauðasyndirnar. Sigurður er ekki óvanur því að skrifa í tímarit, því á sínum tíma ritstýrði hann Samvinnunni sem þá vakti forvitni almennra lesenda en gremju samvinnumanna. Sigurður er að ljúka við þýðingu sína á seinni hluta Oddyseifs eftir James Joyce. Guðbjörg Guðmundsdóttir tekur viðtöl við foreldra sem hafa orðið að sæta því að hið opinbera hefur svipt þá forræði barna sinna. Guðbjörg hefur viðað að sér efni um þessi mál undanfarin misseri, haft persónuleg kynni af einstaklingum sem hafa mátt sjá á bak börnum sínum og séð að á tíðum virðist nokkur skortur á skiningi og mannúð hjá .barnaverndaryfirvöldum. Sigurður Pálsson skáld hefur reyndar gert sitthvað fyrir sjónvarp, en þó ekki með sama árangri og Hermann Gunnarsson, enda er slíkt varla von. Sigurður tekur sér frí frá öðrum ritstörfum til að taka viðtal við Hemma, en það aftrar honum þó ekki frá því að senda frá sér ljóðabók og tvær þýðingar á næstu vikum. Friðrik Þór Guðmundsson er gamalreyndur blaðamaður og hefur starfað á Alþýðublaðinu, Helgarpóstinum og Pressunni. Friðrik er annar höfunda greinar um erfingja Hagkaupsveldisins og hamskiptin á fyrirtækinu. Ólafur Gunnarsson skrifaði einu sinni bók um mikla óhófsmenn, Milljónprósentmenn, eins og hann kallaði það. Einhvern tíma langaði hann líka að skrifa sagnaflokk sem byggði á dauðasyndunum sjö. I EINTAK skrifar hann þó aðeins um eina þeirra - óhófið. 8 HEINTA K nr. 1 1. tbl. 1. árg Gefið út af Nokknjm íslendingum hf. Ritstjóri og útgefandi Gunnar Smári Egílsson, ábm. Ritstjóri Egíll Helgason Ritstjóri Ijósmynda EJonni Útlitshönnuður Jón Magnússon Höfundar efnis í þessu hefti Bragi Ólafsson, Dóra Einarsdóttir, Friðrik Þór Guðmundsson, Glúmur Baldvinsson, Guðbjörg Guðmundsdóttir, Guðlaugur Arason, Guðmundur Andri Thorsson, Linda Vilhjájmsdóttir, Matthías Viðar Sæmundsson, Mörður Ámason, Ólafur Gunnarsson, Páll H. Hannesson, SígurðurA. Magnússon, Sigurður Pálsson og Þórarinn Eldjárn. Höfundar Ijósmynda Bonni, Jim Smart, Jói Dungal Myndskreytingar Jón Magnússon Gröf Andrés Magnússon, Kristján Karlsson Stílistar Anna Gulla, Bonni, Gunna Magga Förðun Laufey BirMsdóttir Hár Ari Alexander, Rut hjá Hárstofu Bigga Fyrirsætur Anna Gerður, Amý, Birna Bragadóttir, Halli Hólmgeirs, Harpa Hjartardóttír, Hlaðgerður íris, Hlín Mogensdóttir.Hrafnhildur Sigurðardóttir, Róbert Róbertsson og Steinunn Hauksdóttir Hljómsveit þessa heftis Páll Óskar og Milljónamæringamir Umsjón með matarþætti Rúnar Guðmundsson Nokkrir Islendingar Vatnstíg 4 101 Reykjavík sími 1 68 88 sími Ijósmyndara 2 38 01 Framkvæmdastjóri Níels Hafsteinsson Auglýsingadeild Lára Gyða og Tómas Ingi Tómasson Tímaritið Eintak kemur út mánaðarlega -tólf sinnum á ári. Verð hvers Eintaks er 599 krónur með virðis- auka. Áskrifendur fá 30 prósent afslátt. Óheimilt er að afrita eða ptalda etni tímaritsins án skriflegs leyfis ritstjóra. EINTAK UOVEMR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Eintak

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.