Eintak - 01.11.1993, Page 12

Eintak - 01.11.1993, Page 12
ástarinnar | Alvaro Texeira er 23 ára Portúgali sem segir að ástin hafi kallað sig til íslands. Hann var að vinna á næturklúbbi í Portúgal þegar hann kynntist íslenskri stúlku sem var í fríi í því heita og fagra landi. Það varð úr að Alvaro kom í humátt á eftir stúlkunni tíl íslands síðastliðið haust og hér hefur hann verið síðan, utan hvað hann brá sér stuttlega á heimaslóðir í sumar. Alvaro starfar nú sem þjónn á Sólon íslandus, hann stendur þar j bak við barinn fiest kvöld og hrokkið svart hárið I á honum, aðlúðlegt viðmót og góðlátlegt bros eru óneitanlega hluti af því sem gefur staðnum lit og sjarma. Alvaro segir að í upphafi hafi sér fundist kalt á íslandi, náttúrlega í veðri en líka í hjörtum eyjaskeggja. Svo hafi hlutirnir farið að breytast á betri veg: „Ég held að fólk hafi farið að sjá að það þyrfti að lifa með þessum manni. Það hefur líklega áttað síg á því að það ætti ekki annars úrkosta en að tala við mig." Alvaro segist heldur ekki hafa yfir neinu að kvarta á Fróni og er ekki á förum: „Hér hef ég félagsskap, skemmtanalíf, góða unnustu og vinnu - ég þarf ekki meira." AUir mínir synir og lengaaaoit Þótt Þjóðleikhúsið sverji sig i ætt við aðrar íslenskar stofnanir kemur fyrir að ný og ný andlit sjáist þar i stórum rullum á fjölunum í upphafi leikárs. í leikriti Arthurs Miller Allir synir mínir, sem er að hefja göngu sína á stóra sviðinu, fer Erla Ruth Harðardóttir með eitt af stærri hlutverkunum. Hún er svo- sem enginn nýgræðingur lengur, því hún hefur leikið sæmilega veigamíkil hlutverk bæðí á litla og stóra sviðinu. „í Madame Butterfly lék ég til dæmis Rene, danska stúlku sem átti vingott við aðalkallinn i leíkritinu,” segir hún. I Allir synir mínir leikur Erla stúlku sem hafði veríð trúlofuð yngri syni Joe Keller, en hans er saknað úr stríðinu. Leikritið fjallar einmítt um sögu Keller fjölskyldunnar og sálarkreppu sem hún lendir í undír lok seinni heimstyrjaldar- innar. Þetta er mikið drama og geysihagan- lega skrifað, eins og vænta má þegar Arthur Míller á í hlut. Þetta er stærsta hlutverk Erlu hingað til á ferlinum. „Það er mjög krefjandi og reynir á all- an tilfinningaskalann," segir hún, Erla er 32 ára og lauk leíklistarnámi frá Guiidford School ofActing and Dance í Bretlandi. Síðan þ'á eru liðin sex ár og á þeim tíma hefur Erla meðal annars leikið hjá Leikfélagi Akureyrar, leik- hópnum Þíbylju og í Borgarleikhúsinu, en þar kom hún fram í Ljósi heímsins sem var byggt á sögu Halldórs Laxness og í Gleðispili eftir Kjartan Ragnarsson Áður en hún fór til náms starfaðí hún reyndar í Stúdentaleikhús- inu og tók þár meðal annars þátt í þeirri marg- umtöluðu sýningu Láttu ekki deigan síga Guðmundur. Eftir það sótti Erla tvívegís um að komast í Leiklistarskólann hér heíma. ( bæði skiptin komst hún f sextán manna úrtakshóp, en ekki alla leið, Þá fór hún tíl Bretlands og lauk þar þriggja ára námi. Henni sóttist það nám vel. „Ég sótti um styrk úr sjóði sem er kenndur við leikarann fræga, Michael Redgrave, og fékk hann. Auk þess fékk ég tvenn verðlaun frá skólanum, bæðí á öðru og þriðja ári. ( seinna skíptið fékk ég „the principle award for acting", en það eru verðlaun sem eru veitt af skólastjórn," Að námi loknu fékk Erla umboðsmann í Bretlandi sem hvatti hana til að vera þar áfram. Hún ákvað þó að fara heim á vit fjöl- skyldunnar, en hún er gíft Jakobi Þorsteinssyni flugvirkja og á með honum sonínn Elfar Elí sem varð þriggja ára 23 október. Erla segir að þótt það sé heíllandi tílhugsun að komast eínhvern tíma út að leika, þá stefni hún ekki á það. „Hér vil ég vera sem mest. Það eru góðir hlutir að gerast í leikhúsinu á íslandi." 12 EINTAK NÓVEMBER
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Eintak

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.