Eintak - 01.11.1993, Page 16
Röddín hennar Ellenar
hefur verið allt í kringum
okkur í ein fimmtán ár. Hún
hefur hljómað úr óteljandi
óskalagaþáttum, við
þekkjum hana án þess að
hugsa okkur um; kvenlega
og seiðandi, dálítið við-
kvæma - stundum næstum
brothætta. Þessi rödd hefur verið
hljóðrituð og sett á ótal plötur, hún
hefur sungið með fleiri hljómsveitum en
Ellen hefur tölu á. En hún segist alla tíð hafa
verið gestur, á plötum og í hljómsveitum. Nú er
hún í fyrsta skipti farin að gera eitthvað sjálf, segir
hún. Það sem hún vill.
Ellen er búin hóa saman mönnum í hljómsveit. Hún segir
að það sé í fyrsta skiptí sem hún stofni hljómsveit upp á eigin
spýtur. Sveitin heitir einfaldlega Kombó Ellenar Kristjánsdótttur.
Með henni spila Eðvarð Lárusson gítarleikari, Þórður
Högnason bassaleikari og Birgir Baldurson trommari. Allt vanir
menn og hæfileikaríkir, Þau spila tónlist sem er svolítið á skjön við
hið háværa rokk sem er víðast hvar, eða eins og Ellen orðar það:
„Við erum svo pínulítil og lágvær.11 Músíkin ætti samt að kveikja í
mörgum, ef ekki flestum, því þetta eru að dtjúgum hluta blíð og
þægileg lög eftir tónmæringa á borð við Burt Bacharach. Og svo
eru í bland lög sem hljómsveitin semur sjálf, og Ellen. Þau eru að
prófa sig áfram með þessi lög; sumum er hent þegar hljómsveitin
finnur að lögin eru kannski ekkert sérstaklega skemmtileg, sum
slípast til og endurnýjast smátt og smátt þegar þau finna að þau
geta bætt við og snurfusað.
Kombóið hennar Ellenar er rétt að fara á stjá. Þau ætla að gefa
út plötu, en varla fyrr en undir páska. Jólahasarinn má eiga sig. En
Ellen er full af krafti og lætur sér ekki nægja að syngja með
hljómsveitinni sinni. Hún hefur stofnað söngsveit í félagi við
vinkonur sínar, Andreu Gylfadóttur og Berglindi Björk Jónas-
dóttur, Þær klæða sig upp í tísku stríðsáranna og kalla sig
Borgardætur; lög sem þær
syngja enduróma Andrews-systur
og árin þegar vatnsgreiddir liðsforingjar í
gljáburstuðum skóm og stífpressuðum buxum
svifu í dansi um sali Hótel Borgar með íslenskar
draumadísir í fanginu. Það á að gefa út plötu sem kemur út
bráðum; lögin eru útlend, en textarnir íslenskir.
En hvernig var það? Var ekki búið að gefa einhvern ádrátt um
að Ellen syngi inn á plötu með bróður sínum, honum KK?
„Við vorum komin hálfa leið með að vinna hana," segir Ellen.
„Svo áttaði ég mig á því að þetta yrði varla annað en KK-plata með
minni rödd. Þá ákváðum við að bíða með þetta. Það er gaman að
vinna með Kristjáni, en hann er bara að fást við allt aðra hluti en
ég.“
Þú ert ekkert að flýta þéh?
„Það væri gaman að geta skilað frá sér sólóplötu, sérstaklega
núna þegar ég veit hvað ég vil“
Þú veist það þá núna?
„Að mínnsta kosti veit ég nokkurn veginn hvað ég víl ekki eftir öll
þessi ár"