Eintak - 01.11.1993, Page 24
Hemmi
Gunn er
ekkert
fífl...
Sigurður Pálsson skáld
ræðir hér við Hermann
Gunnarsson, Hemma
Gunn, manninn sem
hefur haldið rúmlega
hálfri þjóðinni víð
skjáínn í tæp sjö ár
Hann er á sjöunda ári. Þátturinn hans Hemma. Á tali.
Sjöunda ári í beinni útsendingu. Virðist verða vinsælli með
hverjum þætti. Þeim mun meira sem íslenska þjóðin fær af
Hemma Gunn, þeim mun meira vill hún. Á fyrstu árunum
var einstaka líffæri þjóðarlíkamans sem fúlsaði við
honum. Núna æpir nánast hver einasta fruma hins
íslenska þjóðarlíkama í kór á hálfsmánaðar fresti: Við
viljum Hemma, við viljum Hemma. Sem betur fer held ég
að þáttur sé ekki fíkniefni þó hann virðist vera vanabind-
andi fyrir áðurnefndan þjóðarlíkama. En hann er örvandi
eins og sterkt expresso-kaffi eða hressileg tjúttsyrpa. Er
það ekki í góðu lagi? Dauðaskammtur af honum er
óhugsandi.
Mig minnir að undirtitill útvarpsþáttarins Þjóðarsálin sé:
þjóðfundur í beinni útsendingu. Þáttur Hemma ætti þann
titil skilinn ekki síður og kannski öllu fremur. Eða hvað?
Skoðum þessa tvo þætti. Þjóðarsálin í útvarpinu gefur til
kynna að íslenska þjóðin sé smámunasöm, lífsleið, þreytt,
heimsk, árásargjörn, öfundsjúk, kvörtunarþyrst. Það sem
verra er: það er engu líkara en þessir eiginleikar séu á
sjúklegu stigi. Von um bata nánast engin.
í þætti Hemma kemur fram hin
hliðin á sömu þjóð: bjartsýn, glaðvær,
gassafengin svo á köflum verður létt-
leiki tilverunnar óbærilegur. Ég verð sí-
fellt sannfærðari um þá skoðun mína að
ómögulegt sé að skilja þessa þjóð án
þess að líta á hana sem geðbrigðasjúka,
maníó-depressíva á læknamáli. Það er
tæplega nokkur hlutur í jafnvægi hér
fremur en hjá geðbrigðasjúklingi.
Birtan sveiflast til dæmis milli ólm-
hugabirtu júnímánaðar og ar-
mæðumyrkurs skammdegisins;
efnahagskerfið er auðvitað geðbrigðasjúkt og sjálfsmynd
þjóðarinnar líka. Eitt sönnunargagn af mörgum mögu-
legum: það er sama þjóðin sem hittir sjálfa sig í Þjóðarsál og
Á tali hjá Hemma.
En hver er þessi Hermann bak við Hemma? Mig langaði
til að skoða hann aðeins. Taka nokkrar svipmyndir af
manninum sem fær athygli ótrúlega mikils hluta
þjóðarinnar í bráðum sjö ár! Hlutfallstala áhorfenda er svo
há samkvæmt könnunum að enn eitt höfðatöluheimsmetið
er slegið. Svipmyndir. Nokkur orð. Fá kannski nokkrar
myndir úr fortíðinni sem varpa hugsanlega Ijósi.
Mosagrænt Sjónvarpshúsið Laugavegi 176. Ég spyr kon-
una í símavörslunni hvar Hermann Gunnarsson haldi
sig. Eitt augnablik ríkir spurning í andliti hennar. Hún ætlar
að fara að spyrja í hvaða deild hann vinnur. Þá rofar til. Áttu
við Hemma Gunn? segir hún og fer að hlæja. Hann er hérna
á þriðju hæð.
Þetta er lýsandi. Hemma þekkja allir og hann kallar fram
bros. En í hvaða deild er þessi Hermann?
Hann stendur á miðjum ganginum á þriðju hæð og bíður
eftir mér. Lítur á glæsilegt úr sitt.
- Hvar eigum við að spjalla saman? Við höfum ekki alltof
mikinn tíma, segir hann. Hvað segirðu um kaffistofuna á
efstu hæð. Það er rólegt þar núna. Svo byrja æfingar og
undirbúningur niðri í stúdíói rétt bráðum.
Við skeiðum af stað. Hann gengur hvatlega. Tekur stig-
ann í nokkrum stökkum. Ég dregst aðeins aftur úr.
íþróttamaður.
Á leiðinni inn ganginn dettur mér í hug að til þess að
botna í Hemma sé trúlega nauðsynlegt að gera sér grein fyrir
því að hann nálgast veröldina eins og íþróttamaður. Hefur
sterka Iíkamlega tilfmningu. Iþróttamaður á leið inn á
leikvang. Alltaf á Ieið í kappleik. Finna fyrir trylltri nærveru
24