Eintak - 01.11.1993, Page 38
1967
Appelsínustríðið með stofnun matvönudeildar í kjöl-
farið.
Lilja Sigurlína Pálmadóttir fædd 10. desember.
1969
Pálmi stofnar Loðskinn hf. á Sauðárkróki og á
tæpa 3/4 hlutabréfa.
1970
Miklatorgsverslunin flyst í Skeifuna 15.
1973
Pálmi tekur þátt í endurskipulagningu Kaupfélags-
ins Hafnar á Selfossi, sem verður Höfn hf., síðar
Höfn-Þríhyrningur hf.
1974
Helmingur jarðhæðar Kjörgarðs tekinn á leigu.
Sykurstríðíð. Fullur sigur.
1976
Allsherjar endurskipulagning hefst undir handleiðslu
Stanley Carter.
Rekstur hefst á kjúklingabúi að Skeggjastöðum í
Mosfellssveit, lýkur 1978.
1980
Stórmarkaður opnaður á Akureyri,
Hagkaup breytt um sumarið úr einkafyrirtæki Pálma
í hlutafélag.
1981
Ikea-deildin opnuð í Skeifunni 15.
Bóksölustríðið í desember. Hálfur sigur.
1983
Jógurtstríðið hefst í maí. Sigur í júní.
Samvinna um sumarið við franskt flugfélag um
leiguflug milli Reykjavíkur og Parísar.
Stríðið um opnunartíma hefst í október. Sigur 17.
nóvember.
Stórmarkaður opnaður í Njarðvík í júlí.
1984
Gleraugnastríðið hefst um vorið.
Lagalegur ósigur, en nýsett lög óvirk.
Kartöflustríðið hefst um sumarið. Fullur sigur,
Bygging Kringlunnar hefst.
1985
Miklatorg sf. stofnað í kringum rekstur Ikea.
1986
Ikea-búðin í Húsi verslunarinnar opnuð í ágúst.
Jari sf. stofnað af Hagkaup, Vífilfelli og Skúla Þor-
valdssyni á Holtinu.
1987
Opnun Kringlunnar í ágúst.
1988
Hagkaup kaupir í janúar spildu í Smárahvamms-
landi ásamt Byko.
1989
Þróun og ráðgjöf hf., síðar Þor hf., stofnað í júní af
Hagkaup ásamf Hagvirk. og Ragnari Atla Guð-
mundssyni.
1990
Þórsbrunnur hf. stofnað í desember af Hagkaup,
Vífilfelli og Vatnsveitu Reykjavíkur.
1991
Eignarhaldsfélagið Hof sf. stofnað í nóvember og er
alfarið í eigu fjölskyldunnar.
Þyrping hf. stofnað í desember af Hagkaupsfjöl-
skyldunni sem eignarhalds- og fasteignafélag.
Pálmi Jónsson deyr.
1992
Jörðin Skeggjastaðir seld.
Álfheimar hf. stofnað í júlí utan um verslunina Kosta
Boda.
Hof kaupir óvænt helminginn í Bónus í ágúst.
1993
Þarfaþing hf. stofnað í janúar utan um viðhalds-
þjónustu og aðra verktakastarfsemi.
Futura hf. stofnað í janúar utan um Dómínós-pizzur.
Hagkaup á þriðjung á móti Skula Þorvaldssyni og
Sigurjóni Sighvatssyni.
Baugur sf. stofnað í mars utan um innkaup og
dreifingu Hagkaups og Bónus.
Hagkaup/Hof leigir húsnæði Miklagarðs.
JÓN ÁSBERGSSON
Frændinn sem hætti og réð sig til Útflutings-
ráðs.
lögðum hrúgum, en nú var farið að raða þeim
skipulega í hillur, um leið og vöruúrval jókst og
þjónustan hatnaði.
A næstu árum var meðal annars gerð tilraun
með rekstur kjúklingabús að Skeggjastöðum í
Mosfellssveit, en það entist aðeins í þrjú ár.
Árið 1980 gerist það að stofnað var sérstakt
hlutafélag fjölskyldunnar utan unt fyrirtækið,
sem fram að þeirn tíma var einkafyrirtæki Pálma.
Um leið hætti Pálmi að vera skattakóngur
Reykjavíkur, en það hafði hann verið nokkur ár á
undan. Sama ár opnaði Hagkaup svo stórmarkað
á Akureyri og þar með nýja víglínu í samkeppn-
inni við SÍS-risann. Hið nýja hlutafélag hélt
áfram að bæta við sig og 1981 hófst innflutningur
og sala á Ikea- húsgögnum, sem strax varð mikil-
vægur hlekkur í keðjunni. 1983 var opnaður stór-
markaður í Njarðvík og um sama leyti var að
hefjast fyrir alvöru undirbúningurinn undir
stærsta stökkið af mörgum stórum; byggingu
Kringlunnar.
Kringlan er sá biti sem komst næst því að
standa í Hagkaupsmönnum og sveimuðu gróu-
sögur urn allan bæ þess efnis að byggingin yrði
um leið minnismerki um rangar fjárfestingar og
Iegsteinn yfir moldum fyrirtækisins. En eftir að
Albert Guðmundsson, þáverandi fjármálaráð-
herra, gaf grænt ljós á opnun áfengisútsölu
ÁTVR og Birkir Baldvinsson, flugrekandi í
Luxemborg, fjárfesti í einingum í húsinu fór
boltinn að rúlla. Eða eins og einn af forystu-
mönnum Hagkaups orðaði það: „Peningamenn-
irnir í bænum vildu ekki sýnast minni menn en
Birkir."
SAMNINGAÞREF UM
KAUP Á HOLTAGÖRÐUM
Áður en byggingunni lauk var sameignarfé-
lagið Miklatorg stofnað utan um Ikea-umboðið
og verslun opnuð í Kringlunni 7. Það er einnig til
marks um útþenslustefnu þessara ára að í janúar
1988 keypti Hagkaup ásamt Byko 11,7 hektara af
landi Smárahvamms í Kópavogi, en SÍS hafði
haft augastað á sama landi. Ekkert hefur þó orðið
af uppbyggingu á því svæði, þótt afborganir
kaupverðsins, um 77 milljónir að núvirði, hafi
verið greiddar. Ætlunin var að reisa þar húsnæði
undir Ikea-verslunina, en nýlega var gengið frá
samningum milli Landsbanka og Hofs unt leigu á
Holtagörðum, sem áður hýstu Miklagarð. Kaup á
húsnæðinu komu til tals, en mikið bar á milli.
ÓSKARMAGNÚSSON
Honum er ætlað að vera andlit Hagkaups á
sama hátt og Jón.
Samkvæmt heimildum höfunda mun bank-
inn hafa viljað fá sem næst því verði sem hann
greiddi þrotabúinu fyrir, um 60 þúsund krónur á
fermetra, en Hagkaupsmenn töldu það verð ríf-
lega tvöfalt of hátt.
Nú mun vera farið að gæta talsverðrar óþolin-
mæði hjá stjórnendum Kópavogskaupstaðar
vegna tafa á framkvæmdum á Smárahvamms-
landi, og hafa Kópavogsmenn haft á orði að tími
sé koniinn til að grípa til ráðstafana. Spurning er
hins vegar hvort Kópavogskaupstaður hefur fjár-
hagslegt bolmagn til að kaupa landið aftur.
Næsta stóra ákvörðunin innan herbúða Hag-
kaups var að taka þátt í stofnun Þórsbrunns með
Vífilfelli og Vatnsveitu Reykjavíkur árið 1990.
Það fyrirtæki hefur síðan reynt að hasla sér völl í
Bandaríkjunum. Eftir tveggja ára tap er það nú
rekið réttu megin við núllið og er í þeirri aðstöðu
að geta staðið undir 50 milljóna króna auglýs-
ingaherferð vestra.
Pálmi Jónsson dó 1991 og síðan hefur staðið
yfir hin mikla uppstokkun fyrirtækisins sem
minnst var á í upphafi greinarinnar.
KEPPINAUTARNIR TÝNA TÖLUNNI
Fyrir utan þá uppstokkun hefur einkurn
tvennt gerst sem hefur gerbreytt stöðu Hag-
kaups. Annars vegar keypti fjárfestingafélag Hag-
kaups, Þor, helmingshlut í skæðasta keppinautn-
um, Bónusi, fýrirtæki sem á örskömmum tíma
var komið með veltu upp á 3 milljarða. Þessi
kaup voru og eru mjög umdeild og komu fram
miklar efasemdir unt réttmæti þeirra út frá sam-
keppnissjónarmiðum. Dalaði Hagkaup nokkuð á
listanum yfir vinsælustu fyrirtæki landsins í kjöl-
farið.
Ekki munaði minna um þegar Mikligarður
fór á hausinn síðastliðið suntar og hvarf þá af yf-
irborði jarðar stærsti keppinauturinn - og enn
dró úr samkeppninni. Telja menn að markaðs-
hlutdeild samsteypunnar í matvöru á höfuðborg-
arsvæðinu sé núorðið hið minnsta tæplega 40
prósent, en ýmsir viðmælendur nefndu tölu upp
á um eða yfir helming.
Rétt er síðan að bæta við stofnun innkaupa-
og dreifingarfyrirtækisins Baugs í Garðabæ, sem
þjónar bæði Hagkaupi og Bónus, og stofnun Fut-
ura hf. (Dómínós-pizza) ásamt Skúla Þorvalds-
syni á Holtinu og Sigurjóni Sighvatssyni, sem
markar innreið Hagkaups inn á skyndibitamark-
aðinn.
38
EINTAK NÖVEMBER