Eintak - 01.11.1993, Side 98

Eintak - 01.11.1993, Side 98
Hér skrifar Egill helgason um hina glötuðu kynslóð íslenskra sósíalísta, hína ungu forystusveit sem fór tíl náms í kommúnistaríkjum á Asjötta áratugnum, þeir sem sáu kúgun, lygar og ógnarstjórn kommúnísmans en gættu þess að segja engum frá, Haustið 1954 sátu tveir íslenskir stúdentar, rétt um tvítugt, í járnbrautarlest sem þokaðist yfir finnsku landamærin áleiðis til Moskvu, inn í ríki ráðstjórnarinnar. Jósef Stalín var nýdauður og enn tvö ár í að Krúsjoff fiytti leyniræðuna sem varð til þess að Stalín var á endanum lýstur æru- laus og jarðneskar leifar hans bornar út úr graf- hýsi Leníns. Sovétríkin voru enn hið mikla móð- urland kommúnismans; þar töldu jábræður að væri í uppsiglingu hið fullkomnasta form mann- legs samfélags sem hafði þekkst og var hugsan- legt. Stúdentarnir voru þeir Árni Bergmann sem ætlaði að læra rússnesku og bókmenntir við Moskvuháskóla og Arnór Hannibalsson sem hugðist leggja stund á heimspeki. Þeir voru fyrstu námsmennirnir frá Vestur-Evrópu sem fóru til langrar námsdvalar í Sovétríkjunum eftir að síð- ari heimstyrjöld lauk. Síðar rifjaði Arnór upp þennan dag: Ég horfði út um gluggann með athygli og eftir- væntingu. Nú átti ég að fá að sjá þetta sovétland, sem ég hafði heyrt svo mikið gumað af heima. Mér tókst að stafa mig fram úr áletrun, sem skrifuð stóð stórum stöfum á stöðvarbygginguna: „Da zdrzstvúj- et sovétskí narod - strolítélj kommúnizma." Með hjálp orðabókarinnar fann ég út, að þetta myndi þýða: „lengi lifi sovétþjóðin, uppbyggjandi komm- únismans". Þeir félagarnir fundu fljótt að handan járn- tjaldsins beið þeirra framandlegur heimur, gjör- ólíkur myndum af hraustum verkamönnum og blómlegum mjólkurbússtýrum sem hafði birst þeim á áróðursmyndum heima. Arnór skrifaði í dagbók sína að fólk væri „klætt í larfa“ og stæði í biðröðum eftir því að kaupa brauð. Hús væru „hrörleg - sum að niðurfalli komin. Fólkið eins og fuglahræður. Allt ósköp gamaldags.“ Ekki tók betra við á næsta viðkomustað lestarinnar sem fékk þá einkunn í dagbókinni að hann væri „fá- tækranýlenda“. Námsmenn frá Vesturlöndum voru sjaldséðir fuglar eystra og það var ekki auðvelt að ná trún- aði skólasystkinanna sem vissu að lögregluríkið átti viðeigandi refsingar við lausmælgi. Samt heyrðu þeir félagarnir á skotspónum sögur sem bentu til þess að ekki væri allt með felldu í verka- mannaríkinu. Tveimur árum áður en Krúsjoff flutti leyniræðuna sagði skólafélagi Árna Berg- mann nýkomnum undir rós frá þrælabúðunr í Sí- beríu, óhóflegri refsigleði og atferli Berias lög- reglustjóra sem lét menn sína fara um Moskvu og grípa fallegar stúlkur sem hann svo nauðgaði, ef þær höfðu ekki Iátið af mótspyrnu fyrir hræðslu sakir. Hann frétti að sveitirnar væru í niður- níðslu, að þar lægju allir í fylleríi. Samstúdent hans var úthrópaður fyrir að leyna því að faðir hans var stórbóndi, af hinni hundeltu stétt kú- lakka. Stúdentar frá Eystrasaltsríkjum sögðu frá því hvernig farið var að því að innlima ættlönd þeirra í Sovétríkin, frá valdníðslu, fjöldahandtök- um og nauðungarflutningum. Hann komst í vin- fengi við fjölskyldu; þar í húsinu bjó kerling sem á tíma Stalínsógnarinnar stundaði þá iðju að klaga nágranna sína fyrir leynilögreglunni og koma þeim þannig í fangabúðir. Einar Olgeirsson var helstur forgöngu- maður námsferðanna austur. Þar taldi hann að upprennandi forystumenn sósíaiista fengju við- hlítandi skóiun. Einar var stoltur af stúdentun- um sínum og sagði:, Dúxarnir koma til okkar." Allt þetta vakti spurningar sem fæstir áræddu að svara fyrr en eftir að farið var að afhjúpa Stal- ín, persónudýrkunina og ofsóknarbrjálæðið - og þá kannski ekki nema í hálfum hljóðum og alls ekki nema til hálfs. Þrátt fyrir himinhrópandi þversagnir og aug- ljósar lygar flökraði heldur ekki að íslensku námsmönnunum að gera upp sakir við sjálfan kommúnismann, sá tími var langt undan. Það var hentugra að finna skýringar en draga í efa sjálfa heimsmyndina. Skýringarnar voru líka margar og dugðu prýðilega: mistök höfðu vissu- lega verið gerð, en hvað var ekki hægt að réttlæta með öllum fórnunum sem höfðu verið færðar, ágangi fasismans, heimstyrjöldinni, leifununr af borgaralegum hugsunarhætti, fjandskap Vestur- landa, undirróðri og njósnum. I meginatriðum var allt á réttri leið í átt til hins fyrirheitna lands kommúnismans, hins stéttlausa þjóðfélags - með viðkomu í alræði öreiganna eins og kenningin mælti fyrir um. Reyndar væsti heldur ekki um stúdentana frá Islandi. Þeir fengu allrífleg námslaun og bjuggu á glæsilegasta stúdentagarði í Sovétríkjunum, ólíkt innfæddum samstúdentum sem margir urðu að sætta sig við að hírast í gömlum herbúðum. Þeir vöktu hvarvetna forvitni, en urðu samt ekki mjög varir við athafnir leynilögreglu, KGB. Hún átti það þó til að stinga upp kollinum þegar minnst varði. Árni Bergmann nefnir þess háttar dæmi: Nokkrar stúlkur voru í umferð sem stungu mjög í stúf við allan þorra forsjálla meyja. Ég þekkti eina þeirra, hún var um skeið í mínum námshópi og var kölluð Næturgalinn. Hún gekk gjarnan um garð á kvöldin með kennslubækur í ensku undir hendinni og lenti oftast inni hjá einhverjum útlendingi, gjarn- an araba, og var þar næturlangt. Heiftaraugu sóma- kærra meyja fylgdu henni norður og niður þegar hún kom út frá þeim á morgnana. Þær gerðu harða hríð að hcnni og öðrum bersyndugum stúlkum á fundum hjá ungkommúnistafélaginu Komsomol, en Næturgalinn lét sér hvergi bregða. Þetta stökk af henni eins og vatn af gæs. Næturgalinn barði upp hjá mér eitt kvöldið og spurði hvort ég ætti ekki almennilegt kaffi. Jú, það var rétt. Hún talaði háðslega um siðferðishræsnina sem tröllriði hér öllu, helst vildi þetta pakk koma á einhverju herskálaskipulagi. Hún dró ekkert úr því að hún væri lífsreynd kona. Næturgalinn dró amerískar sígarettur upp úr pússi sínu og bauð mér smók. Ég vildi gjarna taka sem mest upp vestræna siði, sagði hún hátíðlega. Það er ekki fyrr en seinna að Árni kemst að hinu sanna. Skólafélagi hans hvíslar því að hon- um: Auðvitað hlutu Næturgalinn og stallsystur hennar að vera með einhverjum hætti á mála hjá leynilögreglunni. Annarj hefði fyrir löngu verið búið að flæma þær úr skóla og hklega í vinnu- búðir. Heimatilbúinn kommúnismi Þótt samskipti íslenskra kommúnista við skoðanabræður í austurálfu hafi verið ríkuleg og 98 EINTAK NÓVEMBER
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Eintak

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.