Eintak


Eintak - 01.11.1993, Qupperneq 106

Eintak - 01.11.1993, Qupperneq 106
Það þarf ekki mikið til að galdra fram eftir- minnilega veislu í heimahúsi. Það eina sem þarf er skelfiskur, mikið af brauði, mikið af hvítvini og mikið glatt fólk. Þegar þetta fer allt saman er víst að gestirn- ir uni glaðir við borðhaldið i tvo eða jafnvel þrjá tíma. Það tekur nefni- lega tímann sinn að borða sig mett- an af skelfiski. Það liggur við að helmingurinn af orkunni sem hann gefur fari í umstangið við að borða hann. En það er skemmtilegt stúss. Áður en gestirnir setjast að skel- fiskborðinu er rétt að hita þá upp með fordrykk. Við mælum með tvenns konar drykkjum. Annars vegar miðnesi eða stuttum gin og tónik. Þetta er einfaldur drykkur. Það eina sem þarf er vískíglas fullt af klaka, Gordon's gin og sletta af tónik. Ræma af sítrónuberki er látin ofan í drykk- inn. Þeim sem ekki vilja miðnes má bjóða upp á hélað Peachtree sem geymt hefur verið í frysti yfir nótt. Það er enginn galdur að eida skel- fisk. Hann felst helst í því að elda fisk- inn helmingi minna en maður heldur að eigi að gera. Allur skelfiskur verður seigur ef hann er látinn sjóða eða grillast of lengi. Humarinn er að sjálf- sögðu bestur af öllum skelfiski og langbestur léttgrillaður. Ofninn er stilltur á 180 gráður og humarinn lát- inn grillast í um 4 til 5 mínútur eða þar til hann er orðinn hvítur og stinn- ur. Auðveldast er að sjá hvort hann er orðinn góður með því að pota í hann. Þeir sem halda að það sé erfitt að þekkja rétt eldaðan humar frá hráum eða ofelduðum með þeim hætti ættu að reyna að pota sig áfram. Munurinn er svo auðfundinn að enginn ætti að ruglast. Rækjur þekkja allir. Til að fá til- breytingu í eldhúsið er hægt að kaupa kóngarækju. Hún er svört og er þeirr- ar náttúru að skipta litum þegar hún kemst í snertingu við heitt vatn. Þá verður hún rauð. Hún er því varla fyrir aðra gestgjafa en þá sem vilja hafa mestu skemmtunina hjá sjálfum sér inni í eldhúsi. Kóngarækja er alveg eins á bragð- ið og venjuleg djúpsjáv- arrækja. Gestirnir munu því varla þekkja muninn. Hörpuskelin er best marineruð í sítrónu eða lime. Hörpuskelin er bragðdauf og það er Grillaðir humarhalar 36 til 40 stórir humarhalar 250 gr. smjör 6 hvítlauksgeirar 40 gr. rasp salt og pipar Humarskelin er klofinn aftan frá og fiskurinn er settur ofan á skelina. Smjörið og hvítlaukurinn er brætt saman og hellt yfir humarinn. Þá er raspinu stráð yfir humarnn og kryddað vel með salti og pipar. Humarinn er settur í ofn og grillaður við 180 gráðu hita í um 4 til 5 mínútur eða þar til hann verður hvítur og stinnur. Skelfiskur í pernodsósu 400 gr. skelfiskur 4 dl. rjómi 1 dl. pernod 25 gr. gulrætur 25 gr. blaðlaukur salt og pipar fiskikraftur Skelfiskurinn er léttsteiktur á pönnu og kryddaður með salti og pipar. Síðan er hann tekinn af pönnunni og pernod hellt á pönnuna og það soðið niður. Þá er rjómanum bætt út í og soð- inn niður þangað til hann þykknar. Að endingu er grænmetinu bætt út í og smá fiskikrafti ef með þarf. Skelfiskurinn er settur í sósuna og hún hituð upp að suðu. Borið fram með hrísgrjónum og brauði. Marinering fyrir skelfisk 50 gr. gulrætur 50 gr. laukur 20 gr. perlulaukur 15 gr. sellerí 15 gr. steinseljustilkar 1 hvítlauksgeiri 1/4 tsk. timjan 1 /2 lítið lárviðarlauf 4 hvít piparkorn 1/2 lítri hvítvin 2 1/2 dl. sítrónusafi og börkur 1 1/4 olía salt Grænmetið er saxað og öllu kryddinu blandað saman við. Síð- an er vökvanum hellt út í. Blöndunni hellt yfir skelfiskinn. Látið marinerast í um 4 tíma á köldum stað. Krabbar eru sérlega góðir í súpur, en þá má einnig gratinera. Þá er skelin tekin ofan af og hreinsað vel í kringum fiskinn áður en hann er settur inn í ofn. Það er hins vegar heilmikil vinna að borða krabba þar sem fiskurinn er lítill og það þarf því æði marga krabba til að seðja með- almann. ígulker eru borðuð hrá. Hvert ígul- ker býður ekki upp á nema rétt tæp- lega hálfan munnbita og því ætti eng- um að detta í hug að bjóða upp á þau í aðalrétt. Þá er rétt að benda á að það er mikið mál að hreinsa ígulker, því þau eru fuli af sjó og alls kyns gumsi sem þarf að pilla burt áður en fólk kemst að matnum sjálfum. Ef fólk ætlar að bjóða til skelfisk- veislu ætti það að hafa hana óform- lega. Sleppa helst hnífapörum, en skipta þess oftar um skolskálar. Með fiskinum er nóg að bera fram mikið af hvítlauksbrauði og köldu hvítvíni, til dæmis Dry Pouilly Fuissé. Það er hvít- vín frá Búrgúnd, mjúkt og fremur þurrt. Það á sérstaklega vel við skel- fisk. Ef fólk býður gestum sínum humar ætti það að vera jafnhöfðing- legt í vali á víninu með. Þá er við hæfi að bjóða upp á freyðandi Veuve Clicquot Ponsandin brut kampavín. Borðhaldið getur dregist á langinn yfir góðu víni og öllu því ágæta veseni sem fýlgir því að borða skelfisk. Áður en gestunum fer að leiðast að sitja við borðstofuborðið er því ráð að leiða þá til stofu með gylliboðum. Til dæmis Napóleon koníaki frá Camus. Gestgjafarnir sem buðu upp á humar- inn komast varla upp með ófínna boð en það. V ástæðulaust að sætta sig við það. Það er hins veg- ar lítið vit að marinera hráefni eins og hum- Kræklinga verður að sjóða í kryddsoði. Ekki bara til að auka bragðið, heldur tii að flokka þá ónýtu frá. Nýr og góður kræk- lingur sekkur til botns í pottinum, en dauður og skemmdur flýtur upp. Hann er bæði vondur og eitraður. Soðið er kryddað með sítrónu, hvítvíni, lárviðarlaufum, heilum pipar, steinselju og hverju því bragðsterku grænmeti sem fólki dettur í hug. Kræklingur er rétt soðinn þegar skelin fer að opnast. Það sama gildir um öðuskel og krækling. Og hvort tveggja má borða hrátt eins og Japanir gera. Aðeins að kreista sítrónu yfir. 106 Rúnar Guðmundsson matreiðshi- meistari hefur umsjón með matarþáttum Eintaks og mun á nœslu mánuðum bjóða til sín ýmsum gestukokkum. Rúnar er matreiðslumeistari á Naustinu. EINTAK NÓVEMBER Allur borðbúnaður á myndinni fæst í versluninni Borð fyrir fvo í Borgarkringlunni
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.