Eintak - 01.11.1993, Síða 110

Eintak - 01.11.1993, Síða 110
VDEOORGÍA Eins og það er gott að borða rækilega yfir sig á jólunum, keyra á ofsahraða um miðja nótt þegar enginn sértil eða sofa rækilega út á fyrsta sumarleyfisdeg- inum, þannig er líka gott að leigja sér fimm vídeómyndir á hryssingslegu vetrar- kvöldi og horfa á þær allar í einum rykk. Það er ekki bara óhófið sem freistar, heldur felast í þessu mótmæli - með oftúlkaðri gandhískri aðferð. Ekki bara án ofbeldis, heldur með algjöru aðgerðaleysi. Mótmæli gegn veðurguðunum sem eru vísir til að dreþa mann á milli húsa og mótmæli gegn bévítans landnáms- mönnunum sem hefðu vel getað drattast eitthvað suður á bóginn í rétt tæplega hálfnumdum heimi. En svona vídeóorgía þarf að að vera útspekúleruð ef þátt- takendumir eiga ekki að sofna í miðri annarri mynd. Og snakkið, snarlið og nas- lið má ekki þrjóta. Hér er okkar tillaga að vídeóorgíu fyrir nóvembermánuð. GROUNDHOG DAY Rök: Best er að byrja á gamanmynd. Efni: Önugur og hrokafullur sjónvarps- fréttamaður lendir í því að vakna alltaf klukkan sex að morgni sama dagsins og upplifa hann aftur og aftur. Bill Murray er ægilega skemmtilegur og myndin sveiflast á milli þess að vera óborganlega fyndin og ofurraunsæ lýsing á lífí okkar flestra; sífelldri endurtekningu á sama stefi. Nasl: Örbylgjupopp og nóg af ís- köldu kóki. Best er að hafa poppið í einni stórri skál sem margir þurfa að deila saman og deila um. NIGHT ON EARTH Rök: Heldri myndir eru bestar þegar búið er hita áhorfendur upp og áður en þá syfjar. Efni; Nokkrar stuttar sögur sem gerast í leigubílum víða um heim, í New York, Los Angeles, París, Róm og Helsinki. Lág- stemmd og mannleg kímni Jim Jarmush heldur myndinni saman, en Wynona Ryder stelur senunní í hlutverki ungrar stúlku sem ekur ieigubíl og keðjureykir og talar út í eitt. Næstbestur er Armin Múller-Stahl sem leik- ur uppflosnaðan Austur-Þjóðverja sem vinnur sem leigubílstjóri í New York án þess að kunna að keyra bíl. Nasl: Ekkert popp frekar en á kvikmyndahátíð, heldur rauðvín, ostar og mikið af sígarettum (vegna Wynonu). UNDER SIEGE Rök: Ef áhorfendur vilja halda lengra þurfa þeir aðstoð; sprengingar, manndráp, kyrk- ingar, alheimssamsæri og alvöru illmenni. Efni: Tommy Lee Jones er greindari en flestir menn og líka verr innrætur. Hann ætl- ar sér heimsyfirráð og alls engan dauða, en lendir í þeirri ólukku að ræna flugmóðurskipi þar sem kokkurinn heitir Steven Seagal. Þeir sem hafa séð til kappans í fyrri mynd- um vita að i honum hitta allir fjandar ömmu sína. i stuttu máli: fimmtíu morð, tvær geir- vörtur og sjö einræður heljarmennis um vanda þess að vera hvort tveggja kokkur og sláturhús. Nasl: Eitthvað karlmannlegt, gróft, staðgott og óhollt. Til dæmis: prins póló, harðfiskur og smér, reyktur rauð- magi eða jafnvel staur. DAMAGE Rök: Kominn nótt og því tími fyrir erótík. Efni: Jeremy Irons er rola sem hefur látið undan metnaði konu sinnar, leiðst út í pólit- ík og endað sem minniháttar ráðherra. Hann fyrirlítur það líf sem hann hefur látið þröngva sér í og sjálfan sig fyrir að vera sá maður að láta bjóða sér það. Þegar tilvon- andi tengdadóttir hans gefur honum undir fótinn gleypir hann agnið og það má segja að hann ríði á henni út úr því lífi sem var að kæfa hann. En honum hefnist fyrir syndina og endar sem fáskiptinn sérvitringur í týndu þorpi í Portúgal. Nasl: Aðrir áhorfendur - þó ekki að hætti Guðjóns Þórðarsonar. BAD LIEUTENANT Rök: Eftír að fjórar bíómyndir hafa valtað yf- ir heilann á áhorfendum eru þeir vel mót- tækilegir fyrir einhverju spilltu og Ijótu. Efni: Þeir sem hafa þol til að horfa á fimm vídeó- myndir í röð hafa sjálfsagt einnig þol gagn- vart hráslagslegum sóðaskap og ömurlegu vonleysi þessarar myndar. Hér er ekkert fyrir mömmur eða ömmur og alls ekki frið- arömmur. Harvey Keitel gengur fram af sjálfum sér og áhorfendum sem firrt, frúst- eruð, stórskuldug, kolrugluð, útúrdópuð lögga sem haldin er óslökkvandi sjálfstor- tímingarhvöt. Hann fær frið í lok myndarinn- ar eftir að hafa sokkið í gegnum öll ömur- legustu síldarplön mannlegrar tilveru. Nasl: Samloka eftir ítrustu sérvisku hvers og eins - jafnvel þær sem maður smyr aldrei nema einn heima. B/rir ofanx)q neðan- frostmark Rokk í Reykjavík loksins íslensk kúltmynd Að drekka rauðvín með fiski og brjóta svoleiðis reglur Klúrt tal og afgerandi, án þess að meina endilega neitt mikið með því Stórir menn á litlum bílum og litlar konur á stórum bílum Óreiðukenningin heimurinn er eitthvað svo miklu skemmtilegri staður ef allt er háð örsmáum tilviljunum og gjörsamlega óútreiknanlegt Risaeðlur við biðum í 65 milljón ár og fengum leið eftir tvo mánuði Yfirvaraskegg eins og bítlarnir voru með á Sgt. Pepper's-albúminu, það er bara tímaspursmál hvenær þau hrynja í tísku Listaverka- og bókasafn Seðlabankans að minnsta kosti þangað til einhver fær að koma þangað inn Kreppan meira að segja Davíð er orðinn leiður á henni og reynir að segja þjóðinni að hún sé eiginlega búin Rod Stewart ótrúlegur maður, hann er enn einu sinni að volgna, eftir að hafa verið úti i kuldanum, og sjálfsagt kólnar hann aftur, til þess eins að hitna á nýjan leik Minnihlutaflokkarnir í borgarstjórn þeir koma sér aldrei saman um kandídat og skíttapa kosningunum Ofbeldi í bænum þegar vetrar leyfir veðrið ekki ofbeldi Að vera ekki með afruglara og tala um það eins og í því felist skilaboð til samfélagsins Umræðuþættir um atburði vikunnar í útvarpinu eftir að svoleiðis þættir komu í sjónvarpið er það eins og að spila í annarri deild að lenda í svoleiðis prógrami Kvikmyndahátíð og menning sem er skipulögð af nefndum á vegum hins opinbera 1 Loðfóðraðir jakkar líka þótt gæran sé gervi Leikrit sem fjalla um alnæmi þau hafa flætt yfir Ameríku og nú líka yfir ísland KK maðurinn er svo afslappaður Fólk með sérkennilegt útlit stór nef, hátt enni, mikla kjálka, sterkan hökusvip, eða sjáið bara nýju módelin sem verið er að skipta inn á fyrir þau gömlu og sléttu og felldu Sólon íslandus fólkið þar inni er flest fallegt á svipinn og þar er bjart svo maður getur horft framan í þetta fallega fólki Landbúnaðarmálin þjóðin er búin að fá nóg og vill frekar borga en þurfa að heyra meira Teprulegir drykkir galliano, sambucca og svoleiðis sætt gums Galadansleikir á óperuballinu í Vín slæst lýðurínn við lögguna fyrir utan meðan snobbliðið skemmtir sér inni, en þar er þó að minnsta kosti fjör Stíf hægrimennska það eru orðnir of margir í þeim vagni og tími til að leita að öðru skipi og öðru föruneyti Afdráttariaus persónueinkenni það ber til dæmis ekki að lasta góðar sérviskur eða fóbíur Bíóbarinn unglingar á renneríi innan um harðnaða drykkjumenn, það er ekki góð blanda Spilakassar maður getur ekki stungið tíkalli í þá án þess að vera álitinn fársjúkur Skák eftir tvö óbærilega leiðinleg heimsmeistaraeinvígi Heilbrigðisráðuneytið eftir að Guðmundur Arni breyttist úr foringjaefni í fúlmenni á einu hausti er varla von að neinn pólitíkus hætti sér þangað inn framar Dagsljós ekki skánaði dægurmálaútvarpið við að lenda framan við kvikmyndavél 110 EINTAK NÓVEMBER
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Eintak

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.