Eintak - 01.11.1993, Side 114
LEIKHUS
Nemendaleikhúsið
Draumur á Jónsmessunótt
Gíó Pedersen stendur í nánu ástar-
sambandi viö William Shakespeare.
Og þótt honum takist ekki alltaf að
láta leikarana sína fara fullkomlega
með texta skáldsins - það er helsti
veikleiki Shakespeare-uppfærsla Gíós
- verður því ekki neitað að honum
lánast að blása lífi í verkin. Og það
gerir hann af ágætri hugkvæmni.
Hann hikar ekki við að skera textann
niður við trog og nota ýmsar brellur til
að gera leikinn hraðari, stinnari. Út-
koman er í hæsta máta lífleg og fjör-
ug. Og svo, alveg burtséð frá Gíó og
ágætum útskriftarhópi leiklistar-
skólans - þetta er fjári skemmtilegt
leikrit.
Þjóðleikhúsið
Þrettánda krossferðin
Sýning sem er á einhvern hátt
einkennilega útblásin og uppbelgd.
Öllu er ofgert; það er of mikið af
orðaflaumi, of mikið af leikmunum, of
mikið af leikurum sem flækjast um.
Yfirskinið yfir þessu öllu er að hér sé
að finna djúpar heimspekilegar
vangaveltur um vegferð mannsins;
það er þvælst um milli landa og
tímaskeiða í einhverju andlegu alls-
leysi sem á líklega að skírskota til
meintrar tómhyggju nútímans. Þegar
á reynir verður þetta þó allt hálfkjána-
legt og vandræðalegt og maður getur
ekki varist þeirri tilhugsun að hið
djúpa heimspekilega ívaf sé ekki ann-
að en fimmauralífspeki, kornfleiks-
pakkaheimspeki. Hin ytri umgjörð er
svosem nógu glæsileg og einhverjum
þykir hún sjálfsagt gott leikhús. En
verkið rís ekki undir henni; hún er
aðallega órækt vitni um peningana
sem var eytt í uppfærsluna.
Frú Emilía
Afturgöngur
Nú flæða yfir leíkrit sem á einn eða
annan hátt fjalla um alnæmi eða
tengjast því. Og hvað er umfjöllunar-
efni Afturganga Ibsens nema alnæmi,
þótt leikritið sé skrifað löngu áður en
sá sjúkdómur fór að grassera og hinn
ógurlegi leyndardómur leikritsins sé
sá að aðalpersónan er sýkt af sýfilis.
Verkið skírskotar semsagt til
nútímans, eins og sagt er. En er það
nóg? Nei. Einhverja vitsmunalega leið
þarf að finna til að setja verkið á svið,
og þá líklega annað hvort að setja
það upp á ógn hefðbundinn hátt og
sýna hvílík völundarsmíð leikritið er
eða að freista þess að endurskapa
það með eínhverju móti. Hér hefur
verið farinn einhver millivegur sem
leiðir út í ógöngur.
útland
snyrtibuddunnar. Mikilvægi hennar liggur ekki í
stærðinni. Innihaldið þarf að vera jafnútspekúlerað
og innihald stóru töskunnar. [ hana má ekkert
vanta og það sem í henni er þarf að duga á
áfangastaðnum. Sólarstrandar-snyrtidót í stór-
borg er álíka vondur kostur og bermúdabuxur á
Ráðhústorginu. Og ef sólarvarnarkremið gleymist í
Kanaríferðinni er álíka illa komið fyrir konu og
Hreggviði Jónssyni skíðalausum á vetrarólympíu-
leikunum.
En til að gera flókið mál einfalt eru hér dæmi um
þrjár haganlegar snyrtibuddur, hverri á leið í sína
utanlandsferð.
Helgarferð ti! Hamborgar
andlitssápa Guerlain 2 augnhreinsír 3 andlítsvatn
4 augnkrem (dag- og næturkrem) 5 varalitur rosé
intense 6 svartur maskari 7 blautur augnblýantur
8 púöurmeik 9 Terracotta Dore sólarpúður 10
augnskuggi 11 augnabrúnablýantur (svartur
og blár) og varablýantur chataigne 12 Terr-
acotta varalitur no 8 13 Samsara ilmvatn.
Það er þraut að pakka niður. Og það er kúnst að
gera það vel. Og mikil raun ef eitthvað gleymist.
Ef einhver heldur að það sé léttara eftir því sem
taskan er minni ætti viðkomandi að hugsa til
Helgarferð til Amsterdam
1 naglalakk no 5 2 varalitur no 18 3 vatnsheldur maskari 4 augn
skuggi no 4 5 augnhreinsir 6 varablýantur no 4 7 varalitur no 11 8
hreinsigel fyrir andlit 9 brúnn augabrúnablýantur 10 dagkrem 11
mattur andlitsfarði no 1 12 púður no 5 13 púðurkvasti.
©
Sólarferð til Kanarí
@1 kölnarvatn frá Clarins 2 líkamssprey 3 dag-
krem fyrir allar húðtýpur í túpu eða dós (vörn
gegn sól fyrir viðkvæm svæði) 4 sólarvarnar-
krem (vörn 6 til 8 gefur fallega brúnku)
5 rakakrem (eftir sólböð) 6 gullkrem (gefur
bronsblæ ofan á sólarvarnarkrem),
|V. ©
WKfjEXL: s"f"‘
©
1 14
E I N T A K
N Ó V E
M
B E
R