Eintak - 17.03.1994, Page 5
Q íslenskt Extrablað
Q Lögregluþjónn situr heima á
fullum launum Q Kokkur forsetans
faxar uppskriftir á Bessastaði
Undir lok mánaðarins lítur
dagsins Ijós nýtt blað
sem útvarpsstöðin X-ið
og hljómplötuverslunin Hljóma-
lind ætla að gefa út í samein-
ingu. Blaðinu hefur verið gefið
nafnið Extrablaðið og á það að
koma út á tveggja mánaða
fresti. Verður efni þess dægur-
mál í víðustu merkingu orðsins.
Mesta áherslan verður þó lögð
á efni sem tengist tónlist og er
stefnt að því að ein íslensk
hljómsveit verði kynnt sérstak-
lega í hverju blaði, einnig verður
rætt við dag-
skrárgerðar-
menn, plötur
dæmdar og
fleira í þeim
dúr. Eiður
Snorri og
Einar Snorri
sjá um útlits-
hönnunina og munu þeir að
sjálfsögðu mynda eitthvað í
blaðið líka.
Þetta mun vera
nokkuð vegleg
útgáfa en blað-
ið verður með
ferningslagi,
níu tommur á
kant og til
helminga í lit.
Extrablaðið
verður ókeypis en áhugasamir
lesendur munu þurfa að bera
sig eftir því...
Guðmundur Jónsson, yfir-
lögregluþjónn í Kópa-
vogi, hefursetið heima
hjá sér á fullum launum frá því
síðastliðið haust eða síðan
hann hætti að leysa af í starfi
yfirlögregluþjóns á Siglufirði um
sumarið. Ástæðan er sú að
ákveðnir yfirmenn hafa hótað
því að ganga út ef hann kemur
aftur til starfa. Dómsmálaráðu-
neytið beygir sig undir það og
ákvað að Guðmundur sæti
heima á fullum launum þangað
til ákveðið hefði verið um fram-
tíð hans. Ekki bólar enn á þeirri
ákvörðun. Þess má geta að í
kjarasamningi yfirlögregluþjóna
eru ákvæði um 80 aukavinnu-
tíma á mánuði sem þeir fá
greidda án tillits til þess hvort
sú vinna er unnin eður ei...
Hilmar B. Jónsson, mat-
reiðslumeistari forseta
íslands og fyrrum ritstjóri
Gestgjafans, er nú á sjö vikna
ferðalagi um Bandaríkin á veg-
um lcelandic Seafood Corpor-
ation. Hann heldur námskeið til
að kenna matreiðslumönnum
að elda íslenskan fisk og hefur
fengið mjög góðar viðtökur.
Þessa dagana er Hilmar á Bost-
on Seafood kaupstefnunni sem
er stærsta sýning á sjávarafurð-
um í Bandaríkjunum. Á meðan
sér eiginkona hans, Elín
Káradóttir, um pottana á
Bessastöðum og nýtur til þess
fulltingis kokkanna af veitinga-
staðnum Óðinsvéum. Þegar
mikið liggur við hjá VigdIsi faxar
Hilmar uppskriftir að ýmsu góð-
gæti yfir hafið...
Heimsending á fs
Keyptu 15
pizzuog 1
fáðu flrfan
llftra af
súkkulaði
eða vanillu
rj öma fs
Dominos Pizza kynnir
nýjung á fslandi
□ V) ö Z<
S N O N Q 0.
HÖNNUN: PRENTMET HF.