Eintak - 17.03.1994, Blaðsíða 32
Fimmtudagur
P O P P
Borgardætur leika á Ommu Lú f kvöld. Húsiö
opnar kl. 21:00 en þær hefja sönginn um kl.
22:30. Dæturnar hata fengiö fáeina Borgarsyni
til liös viö sig. Það eru þeir: Þórður Högnason,
Björgvin Ploder og Pálmi Sigurhjartarson. Leik-
in veröa lög af plötunni sem kom út fyrir síðustu
jól sem og nýtt efni. Prógrammiö er um Weggja
tima langt. Andrea, Berglind og Ellen lofa
miklu gríni og miklu gamni.
Viridian Green er á Hressó I kvöld. Hljóms-
veitin leikur framsækiö sýrurokk en sækir líka
áhrif aftur I tímanm til sveita á borö viö Pink
Floyd og annarra eidri fyrirmynda úr rokksög-
unni.
2001 debúteraði meö glans síöasta fimmtu-
dagskvöld á Tuttugu og tveimur. I kvöld halda
þeir sína aöra tónleika aö þessu sinni i norður-
kjallara Menntaskólans viö Hamrahlíö. Að auki
koma fram hljómsveitirnar Tjalz Gissur og hiö
spánnyja band Wool. Tónleikarnir hefjast
klukkan 21.30 og standa til klukkan 1.00. Er að-
gangur ókeypis og öllum heimill.
Hvers vegna eru þing-
menn, sveitarstjórnar-
menn og prestar einu
opinberu starfsmennirn-
ir sem ráðnir eru eftir
kosningar? Og það er
meira að segja búið að
takmarka kjörgengi við
prestkosningar. Egill
Jónsson efaðist um dag-
inn um að Jón Baldvin
Hannibalsson hefði um-
boð til að framfylgja
stefnu sinni í landbún-
aðarmálum þar sem Al-
þýðuflokkurinn hafði svo
takmarkað fylgi. Ég
spyr. Hvaðan hefur
kennari barnanna minna
umboð sitt, löggan sem
ákveður að stoppa alla
bfla og athuga hemlun-
arútbúnaðinn eða póst-
og sfmamálastjóri sem
hefur búið svo um hnút-
ana að það er sjaldan
hægt að hringja frá
Austurstræti og upp á
Laugaveg? Eða útvarps-
stjóri? Hver kaus Heimi
Steinsson? Ekki ég. Og
enginn sem ég þekki.
____________________________
Þú ert stígur I tyrsta skiptið á sviö opinberlega
á Tveimur vinum. Hljómsveitin spilar alhliða
rokk.
BAKGRUNNSTÓNUST
Halli Reynis er hann kallaður trúbadorinn sem
syngur fyrir gesti Fógetans í kvöld. Á efri hæð
staðarins er leikinn léttur djass.
sýning sem þjóðin heíur beðið eftir.
UPPÁKOMUR
Músíktilraunir Tónabæjar og ITR eru I full-
um gangi þessa dagana. í kvöld hefjast leikar
klukkan 20.00. Hljómsveitirnar sem leika eru:
Opus Dei, Mar, Empty Mound, Embrace,
Burp, Corpse, Insol, Maus, Vocal Pharos,
og Kaos. Gestahljómsveit kvöldsins er hin
geöþekka Ham.
F U N D I R
Ole 2,0 (Object linking and embedding) - for-
ritaskil I Windows heitir námskeiö sem verður á
vegum Endurmenntunarstofnunar milli kl. 8:30
og 12:30. John Toohey þróunarstjóri hjá Tölvu-
samskiptum er leiðbeinandi á námskeiöinu.
í P R Ó T T 1 R
Körfubolti I kvöld klukkan 20.30 hefst leikur
ÍA og Snæfells I (þróttahúsinu á Akranesi. Það
lítur allt út fyrir aö þetta veröi hreinn úrslitaleik-
ur milli liöanna um eina sætið sem eftir er I úr-
slitakeppninni og verður örugglega troðið hús
al áhorfendum og geysigóð stemmning. Skaga-
menn hala komið mikið á óvart I úrvalsdeildinni
I ár en liöiö spilaði I fyrstu deildinni I fyrra. Það
gekk ekki gælulega hjá Skaganum til að byrja
með en eftir síðustu vikur hafa þeir komið sterk-
ir upp og tippar íþróttafréttaritari EINTAKS á að
þeir vinni leikinn gegn nágrönnum sínum af
Snæfelli I kvöld. Það er kannski annaö sem má
koma fram I sambandi við úrslitakeppnina en
það er að bæði Snæfell og ÍA, sem eru I A-riðli,
eru með færri stig en Haukar og KR sem urðu I
þriðja og fjórða sæti B-riðilsins og komust þar
al leiðandi ekki í úrslitakeppnina. Það sýnir best
hve mikil styrkleikamunur er á riðlunum að ÍA
og Snæfell eiga ekki einu sinni möguleika á að
ná liðunum Weimur úr B-riðli aö stigum.
SJÓNVARP
RIKISSJONVARP 17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Tómas og Tim Sænsk leiknimynd um tvo
vini 18.10 Þú og ég Tveir krakkar lála dreyma
sig um ferðalög til fjarlægra landa 18.25 Flauel
Eiturgúður tónlistarþáttur fyrir fólk sem hefur
gaman aftónlist en ekki kynningum 18.55
Fréttaskeyti 19.00 Viðburðarríkið Voðaleiðin-
leg upptalning á menningarviðburðum. Engin
ástæða tilflösuþeytingarta.lS Dagsljós
20.00 Fréttir 20.30 Veður 20.40 Syrpan
íþróttir, íþróttir, íþróttirZi.UI Gettu betur
Spurningaþáttur sem á að vera í útvarpi.
22.05 Taggart getur betur 23.00 Ellefufréttir
23.15 Þingsjá
STÖÐ TVÖ 16.45 Nágrannar 17.30 Meö afa
19.1919.19 20.15 Eiríkur Hann helureflaust
gratið upp enn eitt fríkið sem sagt getur lífs-
reynslu sína af þvíað vera M.20.40 Systurnar
Reed-systurnar og Ijölskyldur þeirra I sorg og
gleði. 21.35 Sekt og sakleysi Framhaldsþáttur í
dómsal22.25 Svarti galdur Mynd um mann
sem er ofsóltur af vofu frænda síns. Sumir ætt-
ingjar láta sér ekki nægja að hitta mann í ferm-
ingarveislum. 00.00 Happening Ekta slxtís
gamanmyndmeð Faye Dunaway02.05 Kick-
boxer 2 Tómþvæla og vltleysa, ha-hú-Tja.
Bönnuð grisum.
Föstudagur
Örkin hans Núa sér um að halda uppi góðri
stemningu á Cafe Amsterdam.
K L A S S í K
Sinfúníuhljómsveit Islands leikur I Há-
skólabíói kl. 20:001 rauðri áskriftarröð undir
stjórn hins ítalskættaöa Bandaríkjamanns Rico
Saccani. Einleikari er aftur á móti hinn íslensk-
ættaði Erling Blöndal Bengtsson. Leikin veröa
verk eftir Berlioz, Schumann, Tsjajkovskíj og
Respighi.
L E I K H Ú S
Vörulyftan eftir Harold Pinter kl. 17:00 veröur
sýnd I Hinu húsinu sem áður hét Þórscafé. (s-
lenska leikhúsið sem einnig setti á svið Býr ís-
lendingur hér? er skemmtileg viðbót I leiklistar-
flóruna.
Sweeney Todd - Morðóöi rakarinn við Hafn-
argötuna sýnt af Herranótt kl. 20:001 Tjarnar-
bíói. Óskar Júnasson leikstýrir hópnum. Þetta
er ansi fjörug skemmtun með alls konar morð-
um og blóði.
Dónalega dúkkan eftir Dario Fo sýnd kl.
20:301 Héðinshúsinu. Jóhanna Jónas leikur
einleik undir leikstjórn Maríu Reyndal. Mikið
grln en líka mikil alvara.
Gauragangur á Stóra sviði
Þjóðleikhússins kl. 20:00.
Lag úr sýningunni I flutningi
Steinunnar dllnu er nú mjög vin-
sælt á útvarpsstöðvunum.
Eva Luna á Stóra sviði Borgarleik-
hússins kl. 20:00. Það er bara alltaf
uppselt! Þetta er auðsjáanlega
P O P P
Blúsmenn Andreu eru á Bóhem og er það
nokkuö örugg trygging fyrir góðri skemmtun. Á
elri hæð dunar sfðan diskóið látlaust.
Aggi Slæ og Tamlasveitin er húshljómsveit
Ömmu Lú þessa dagana. Þeir hafa haldið uppi
sjóðheitri sveitlu undanfarin föstudagskvöld og
verður varla breyting á því I kvöld. Stórgrínarinn
Örn Árnason skemmtir matargestum áður en
Aggi og félagar stíga á svið.
Lipstick Lovers eru á Akureyri um helgina, í
FYRIR BJARTSÝNA
Sparíð ykkur ómakið við að
koma ykkur upp kærustu og
nógu þykku veski til að geta
boðið henni í Períuna. Látið
nægja að kaupa ykkur Kókó,
rífið lakið af rúminu og prflið
upp á þakið á Períunni. Horf-
ið yfir salinn og veljið úr þá
sem ykkur lýst best á. Skrifið
tilboð ykkar á lakið og
veifið því framan f
hana. Um leið og
hún sér ykkur
mun hún skjótast
upp á þak til ykkur,
horfa á stjörnurnar og
drekka með ykkur
Kókó. Maturinn er
víst svo vondur
þarna í Perí-
unni.
nu
Nemendaleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi leikritið Sumargesti eftir byltingarskáldið Maxim Gorki, sem
Stalín dásamaði en drap síðan með eitri að því er talið er. Þetta er útskriftarverkefni hópsins og hefur verið
gerður góður rómur að uppfærslu hinna efhilegu leikara undir leikstjórn Kjartans Ragnarssonar. f sýn-
ingunni taka þátt sjö leikskólanemar og fjórir gestaleikarar úr Leikfélagi Reykjavíkur en þetta er samstarfs-
verkefni á milli þess og Nemendaleikhússins.
Benedikt Erlingsson fer með hlutverk gestgjafans Sergei Basoffs og fetar hér í spor föður síns Erlings
Gíslasonar sem fór með sama hlutverk í Þjóðleikhúsinu í leikstjórn Stefáns Baldurssonar fýrir mörgum
árum. Að sögn Benedikts segir verkið frá hópi fólks sem dvelur saman í sumarbústað um síðustu aldamót.
„Þetta er ný kynslóð menntafólks, sem eru börn verkamanna, og á hún því margt sammerkt með ‘68 kyn-
slóðinni margfrægu“, segir hann. „Þetta er umbótasinnað fólk sem er sest og nennir ekki að standa lengur í
neinu streði. Það hefur mestan áhuga á að éta og drekka vel, og fyrir mitt leyti finnst mér verk-
ið því eiga mikið erindi við samtímann. Fólkið lætur sér leiðast í sumarbústaðnum en
meðal gesta er hugsjónakona sem veldur samviskubiti og umróti i hugum félaga
sinna. f sýningunni blandast saman ástarævintýri, byssuskot, grátur og gnístr-
an tanna, og gleði og söngur fyrir afia fjölskyfduna.
Benedikt segir að því miður hafi gefist lítifl tími til að ræða verkið
við föður sinn vegna anna þeirra beggja á fjölunum. Erlingur kveðst
mjög hrifinn af þessari sýningu þótt hún sé á margan hátt öðruvísi
en þegar hann lék í Sumargestunum. „Mér líst vel á hópinn sem
setur verkið á svið“, segir hann „en það er merkilegt fyrir margra
hluta sakir. Gorkí var sporgöngumaður eftir tíma Tchekofs og
sýningin fjallar um þetta millistéttarfólk sem var farið að finna
fyrir eigin tOgangsleysi og á í tilvistarkreppu og veit ekkert hvað
það á við sig að gera.“
Önnur sýning á Sumargestum verður í Lindarbæ á föstudags-
kvöld og sú þriðja á sunnudag kl. 20. ©
Þesi hringlandi sjálfstæðismanna með
frambjóðendur sína sýnir vel hvert
stefnir í fslenskum stjórnmálum. Það var
nógu slæmt þegar stjórnmálamenn gátu
ekki horft lengra fram á veginn en til
næstu kosninga eða aldrei lengra en
fjögur ár í senn. Nú virðast þeir ekki
geta horft lengra en til næstu skoðana-
könnunar. Hvar er staðfest stjórnmála-
mannanna sem ég þekkti á mínum ung-
dómsárum? Þá fóru menn vel með völd
sín. Nýttu sér þau eftir eigin geðþótta
en voru ekki að hlaupa eftir minnstu
sveiflum hjá taugaveikluðum múgnum.
Og ég get ekki séð að hinir meyru
stjórnmálamenn nútímans hafi gert múginn glaðari. Ég j
ekki betur en hann hafi verið fullhress með þessa gömlu og
hörðu. Nú þegar hann grunar að hann geti steypt stjórnmála-
mönnum sem honum líkar ekki við í svipinn er hann aldrei
óánægður. Alveg eins og gömlu stjórnmálamennirnir áður vill
múgurinn nota völdin sem honum eru fengin.
kvöld leika þeir fyrir unglingana I félagsmið-
stöðinni Dynheimum.
BAKGRUNNSTÓNLIST
Utlagarnir eru I kántrýstuði á Feita dvergnum.
Þeir eru orðnir heimavanir þar og hafa ekki
klikkað hingað til.
Ólafur B. Ólafsson kreistir öll þessi góðu
gömlu lög úr nikkunni á Kringlukránni. í minni
salnum tekur trúbadorinn Hermann Arason lag-
ið eins og honum er lagið.
Þrettán spilar fyrir gesti Hressó milli klukkan
22.30 og 23.30.
Hress er hljómsveit sem spilar innlenda og er-
lenda slagara I bland. Þetta er tilvalin hljómsveit
fyrir þá sem drekka eingöngu bjór eða vodka I
kók. Hress er á Tveimur vinum.
Danssveitin ásamt Evu Ásrúnu Alberts-
dóttur spila undir dansi I Danshúsinu Glæsi-
bæ.
Örkin hans Nða er á Cafe Amsterdam.
Bara tveir er dúett frá bltlabænum Keflavík og
er á Fógetanum I kvöld.
L E I K H Ú S
Dónalega dúkkan sýnd I Héðinshúsi kl.
20:30. Leikritiö er eftir Dario Fo. Súsanna I
Mogganum finnst Jóhanna Jónas ein af okkar
betri leikurunum meðal ungu kynslóðarinnar.
Þetta er líka afskaplega skemmtileg sýning. Það
má hlæja sig alveg vitlausan.
Blóð og drulla heitir leikrit leikfélags MH sem
frumsýnt verður I kvöld kl. 20:00. Verkið er
spuni en Bubbi kóngur eftir Alfred Jarry er lagt
til grundvallar. 38 leikarar taka þátt I sýning-
unni. Tónlistin I verkinu er trumsamin al þremur
nemendum skólans.
Sweeney Todd - morðóði rakarinn við Hafn-
argötuna I Tjarnarbíói kl.23:00. Herranótt sýnir
leikritið. Fyndin og spennandi sýning.
Blóðbrullaup ettir Lorca á Litla sviði Þjóðleik-
hússins kl. 20:0,0. Vigdís Gunnarsdóttir og
Ragnheiður Steindórsdóttir er virkilega
skemmtileg íþessari sýningu.
Sumargestir ettir Gorki sýnt af Nemendaleik-
húsinu I Lindarbæ kl. 20:00. Útskriftarhópurinn
hefur sýnt og sannað á fyrri uppfærslum aö
hann er afskaplega fær. Fáir verða fyrir von-
brigðum með lokaverkefnið hans. Leikritiðfjall-
ar um hóp fólks sem hittist til að eyða saman
sumarleyfinu. Þetta er áhrifamikið og átakanlegt
verk sem situr lengi I manni.
Gleðigjafar á Stóra sviði Borgarleikhússins kl.
20:00. Bessi og Árni eru frábærir.
Gauragangur á Stóra sviði Þjóðleikhússins kl.
20:00. Ingvar E. Sigurðsson þótti bara hreinlega
fæddur I hlutverk sitt. Þá gat hann náttúrulega
ekki á sér setið lengur og lét hafa sig I helgar-
viðtal IDV.
Seiður skugganna eftir Lars Noren á Litla
sviði Þjóðleikhússins kl. 20:00. Þetta er slðasta
sýning þessa verks sem fékk (rábæra dóma I
blöðum.
F U N D I R
Flokkun og burðarþol fyllingarefna heitir
námskeið sem Endurmenntunarstotnun helur I
dag með þá Þorgeir Helgason jarðtræðing og
Harald Sigursteinsson tæknifræðing sem
leiðbeinendur. Námskeiðið helst kl. 8:15 og
stendur tilkl. 16:00.
32
FIMMTUDAGUR 17. MARS 1994