Morgunblaðið - 06.01.2005, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 06.01.2005, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNING D rög að dagskrá Vetrarhátíðar í Reykjavík liggja nú fyrir, en hátíðin verður haldin í borginni dagana 17.–20. febrúar næst- komandi. Verður upphafsatriði hátíðarinnar að þessu sinni haldið á Skóla- vörðuholtinu, en í fyrra var opnunaratriði hennar haldið á Miðbakka Reykjavík- urhafnar og árið 2003 við Tjörnina. Það er fjöllistahópurinn Norðan bál sem fram- kvæmir upphafsatriðið í ár, sem eru eins konar ljósatónleikar þar sem tvinnað er saman tónlistarflutningi og ljósasýningu. Hallgrímskirkja verður þar í aðalhlutverki, þar sem leikið er á orgelið, sem tengt er við hljóðkerfi og tónlistinni þannig varpað út úr kirkjunni. Þá mun ljósasýningin fara fram utan á framhlið kirkjunnar og í gluggum hennar, auk fjölmargra annarra atriða sem tengjast ljósum og myrkri. Að sögn Sifjar Gunnarsdóttur, verk- efnastjóra Vetrarhátíðar hjá Höfuðborg- arstofu, lítur hátíðin í ár glæsilega út. „Það er meira af stórum viðburðum en und- anfarin ár. Formið er eins – við byrjum á skemmtilegum útiviðburði fyrir augu og eyru, líkt og áður, og höldum svo áfram með viðburði innanhúss,“ segir hún. Einn af þeim er hagyrðingakvöld í Nasa, en meðal þeirra hagyrðinga sem fram koma þar eru Ómar Ragnarsson, Þórarinn Eldjárn, Hákon Að- alsteinsson og Ólína Þorvarðardóttir. Á fimmtudagskvöldinu verður ennfremur opn- uð sýning í Tjarnarsal Ráðhússins, sem á rætur að rekja til Vesturfarasetursins á Hofsósi. „Sýningin gefur bæði mynd af þró- un setursins sjálfs, með brotum úr þeim sýningum sem þeir hafa sett upp á und- anförnum árum, en síðan verður þar líka metnaðarfull dagskrá alla daga, meðal ann- ars með þátttöku leikara í sýningu Borg- arleikhússins, Híbýli vindanna,“ segir Sif. Safnanótt Stærsti viðburður föstudags hátíðarinnar er Safnanótt, sem nú verður haldin í fyrsta sinn í Reykjavík. Þá munu söfn um alla borg hafa opið til miðnættis og aðgangur verður ókeypis, auk þess sem boðið verður upp á ýmsar óvenjulegar uppákomur. Meðal safna sem taka þátt eru Listasafn Reykjavíkur, Listasafn Íslands, Borgarbókasafn, Ljós- myndasafn Reykjavíkur, Nýlistasafnið, Safn, Listasafn ASÍ, Árbæjarsafn, Þjóðminjasafn, Þjóðmenningarhúsið, Menningarmiðstöðin Gerðuberg og Rafheimar. „Ég upplifði sjálf svona Safnanótt í Berlín í sumar, þar sem hún var haldin í 16. sinn,“ segir Sif. „Það var mjög skemmtilegt og mig langaði strax að halda slíka nótt í Reykjavík. Það hentar mjög vel að hún eigi sér stað á Vetrarhátíð, þar sem þessi árstími er svo vel til þess fall- inn að heimsækja söfn. Ég hef grun um að þetta verði mjög skemmtilegt.“ Undanfarin ár hefur verið boðið upp á einn erlendan viðburð á Vetrarhátíð, og í ár er það bresk-indverska hljómsveitin DCS sem sækir hátíðina heim með tónleikum í Nasa á föstudagskvöld. Hljómsveitin leikur óvenjulega tónlist, byggða á hinni gömlu Bhangra-tónlistarhefð, sem varð til sem hluti af uppskeruhátíðum í Punjab-héraðinu á Indlandi fyrir nær 200 árum. Hljómsveitin er skipuð níu breskum hljóðfæraleikurum sem allir eiga indverska foreldra. Þeir leika indverska gleðitónlist á blöndu af hefð- bundnum indverskum ásláttar- og strengja- hljóðfærum og nýrri vestrænum hljóðfærum á borð við rafmagnsgítara og plötusnúð- agræjur. „Ég hef sjálf verið svo heppin að sjá þessa hljómsveit á sviði, og hún hefur mjög líflega sviðsframkomu. Það var ekki þurr þráður á fólki eftir tónleikana, það var búið að dansa svo mikið,“ segir Sif. Barði og Sinfónían Laugardagurinn 19. janúar verður við- burðaríkur í Reykjavíkurborg. Þá stendur Alþjóðahúsið fyrir svokallaðri Þjóðahátíð í Perlunni, en hátíð með svipuðu sniði var haldin á Vetrarhátíð í fyrra við góðar und- irtektir. Verður þar boðið upp á kynningar á mat og menningu fyrir alla fjölskylduna, af ólíku tagi, og í kjallaranum verða sýndar kvikmyndir, sem fjalla um ýmis fjölþjóðleg málefni. Sama dag mun Listvinafélag Hall- grímskirkju bjóða upp á óvenjulega tónleika til að kynna yngstu kynslóðinni hið stóra Klais-orgel kirkjunnar. Sænski organistinn Mattias Wager mun leika skemmtilega um- ritun á Pétri og úlfinum eftir Prokofiev á orgelið og hinn góðkunni leikari Örn Árna- son les ævintýrið. Síðdegis á laugardeginum mun Sinfón- íuhljómsveit Íslands flytja tónlist Barða Jó- hannssonar sem samin er við þöglu svart- hvítu kvikmyndina Häxan eftir sænska leik- stjórann Benjamin Christensen frá árinu 1922. Tónverkið var frumflutt í París í júní á síðasta ári af Barða sjálfum og tveimur fiðluleikurum. Það er finnski hljómsveit- arstjórinn Esa Heikkilä sem mun stjórna verkinu. „Við erum mjög þakklát Sinfón- íuhljómsveitinni fyrir að opna dyr sínar fyrir okkur með þessum hætti, og eins styrkt- araðilum tónleikanna, Kvikmyndamiðstöð Ís- lands og Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna,“ segir Sif, en ókeypis verður inn á tónleikana eins og flesta viðburði á Vetrarhátíð. Að mati kvikmyndafræðinga er Häxan merkileg kvikmynd, þar sem blandað er saman fróðleik um galdranornir og djöfulinn sjálfan og leiknum atriðum um sama efni, og er hún talin hafa haft heilmikil áhrif á seinni tíma kvikmyndagerðarmenn, einkum þá sem vinna innan hryllingsmynda. „Þetta er í raun sýn vel upplýsts menntamanns árið 1920 á miðaldir og kreddutrú miðaldamanna á djöfla og galdra, og þar af leiðandi galdra- ofsóknir. Þannig er maður að fá tvöfalda sögu í raun,“ segir Sif og bætir við að kvik- myndin hafi eflaust þótt mjög óhugnanleg á þriðja áratug síðustu aldar, þó ekki sé víst að hún hrelli eins marga nú í upphafi 21. aldarinnar. „En manni bregður nú stund- um.“ Sett hefur verið saman dagskrá í sam- starfi við Háskóla Íslands í tengslum við sýningu kvikmyndarinnar. Áður en myndin hefst heldur Guðni Elísson bókmennta- og kvikmyndafræðingur stutt kynningarerindi um myndina, en að henni lokinni geta áhugasamir gestir fært sig úr stóra sal Há- skólabíós í minni sal þar sem við tekur mál- þing um nornir, galdra og djöflatrú af nokkrum af helstu fræðimönnum Háskólans. Heimsdagur barnanna Á lokadegi hátíðarinnar, sunnudegi, er meðal annars ráðgert að halda Heimsdag barnanna í Hlíðaskóla, þar sem börnum er boðið að kynnast heiminum með því að prófa óvenjuleg hljóðfæri, læra framandi dans- spor, mála, leika og njóta handleiðslu lista- manna. „Okkur hefur þótt mikil fjöður í hatt hátíðarinnar að bjóða upp á eitthvað veru- lega skemmtilegt og fræðandi fyrir börn. Þessi heimsdagur barnanna verður þannig að börn geta kynnt sér ýmsar listgreinar, sem allar verða með fjölþjóðlegri tengingu. Alþjóðahúsið og Kramhúsið eru í samstarfi við okkur og Spron hefur styrkt þessa uppá- komu dyggilega,“ segir Sif. Hún segir hátíðina augljóslega ætlaða allri fjölskyldunni, þar sem nánast allar menningarstofnanir Reykjavíkurborgar taki þátt. „Þær ljúka upp sínum dyrum fyrir borgarbúum, til þess að við getum upplifað eitthvað óvenjulegt og skemmtilegt, segir hún. „Þetta er svolítil kraftaverkahátíð. Það er verið að bjóða upp á þessa menning- arhátíð í fjóra daga, án þess að það þurfi að taka í budduna. Markmiðið er fyrst og fremst að minna borgarbúa á hið gríðarlega öfluga menningarlíf sem hér fyrirfinnst og lyfta fólki dálítið upp og af stað á þessum tíma þegar jólin eru afstaðin og vorið hand- an við hornið.“ Menningarhátíðir | Margt um að vera á Vetrarhátíð sem verður haldin í Reykjavík dagana 17.–20. febrúar Morgunblaðið/ÓmarHallgrímskirkja spilar stóra rullu í opnunarviðburði Vetrarhátíðar í Reykjavík. Krafta- verkahá- tíð fyrir alla fjöl- skylduna Morgunblaðið/Ómar Árbæjarsafn er eitt þeirra safna sem opna dyr sínar fyrir borgarbúum á Safnanótt. Morgunblaðið/Árni Torfason Sinfóníuhljómsveit Íslands mun flytja verk eftir Barða Jóhannsson á Vetrarhátíð í Reykjavík, sem samið er við svart-hvítu kvik- myndina Häxan eftir Benjamin Christensen. ingamaria@mbl.is www.vetrarhatid.is Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • 562 8501 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is BIC Atlantis penni Verð 90 kr/stk BIC M10 penni Verð 1.680 kr/pk með 50 stk PILOT SUPER GRIP Verð 75 kt/stk Geisladiskar í 10-25-50 og 100 stk einingum Gatapokar 100 stk í pakka 486 kr/pk Vasar fyrir geisladiska. Passar í möppur. 10 stk. í pakka. Verð 890 kr/pakkningin sem tekur 40 diska. NOVUS B 80 Tengdamamma Verð 75 kr NOVUS B 10FC Heftar 15 blöð Verð 470 kr TILBOÐ Á EGLA BRÉFABINDUM - VERÐ 339 KR / STK. Tilboðið gildir til 31. janúar 2005 STABILO BOSS Verð 78 kr/stk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.