Morgunblaðið - 06.01.2005, Page 32
32 FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Guðbjörg Einars-dóttir fæddist á
Kárastöðum í Þing-
vallasveit 20. mars
1928. Hún varð bráð-
kvödd á heimili sínu í
Reykjavík á aðfanga-
dag jóla. Foreldrar
hennar voru Einar
Halldórsson bóndi og
hreppstjóri á Kára-
stöðum, f. 18. nóv.
1883, d. 19. des. 1947,
og kona hans Guðrún
Sigurðardóttir hús-
freyja, f. 7. júlí 1892,
d. 25. febr. 1955.
Systkini Guðbjargar eru: 1) Hall-
dór, f. 6. des. 1913, d. 15. des.
1981, kvæntur Margréti Jóhanns-
dóttur, f. 29. des. 1918, d. 10. apríl
1996. 2) Sigurður, f. 2. ágúst 1915,
d. 25. júní 1992, kvæntur Ellen
Svövu Stefánsdóttur, f. 24. mars
1922. 3) Jóhanna, f. 21. nóv. 1916,
d. 1. júlí 1978, gift Pétri Ottesen
Ámundasyni, f. 22. sept. 1911, d.
28. des. 1999. 4) Guðbjörn, f. 2.
nóv. 1918, d. 17. jan. 2000, kvænt-
ur Elínu Steinþóru Helgadóttur, f.
19. okt. 1916. 5) Björgvin, f. 8. maí
1921, d. 16. des. 1985, kvæntur
Guðrúnu Guðlaugsdóttur, f. 7.
okt. 1926. 6) Elísabet, f. 8. júní
1922, gift Jóhannesi Arasyni, f.
15. mars 1920. 7) Guðbjörg, f. 10.
maí 1925, d. 7. maí
1927. 8) Geir, f. 9.
jan. 1927, d. 8. sept.
1942. 9) Hallfríður, f.
18. nóv. 1930. 10)
Stefán Bragi, f. 12.
mars 1933, kvæntur
Hallveigu Þorláks-
dóttur, f. 29. sept.
1934. Fósturbróðir
Guðbjargar var Árni
Jón Halldórsson, f.
23. des. 1923, d. 21.
maí 2004, kvæntur
Grétu Maríu
Ámundadóttur, f. 12.
júní 1926.
Guðbjörg lauk gagnfræðaprófi
frá Héraðsskólanum á Laugar-
vatni 1947.
Hún stundaði nám við hús-
mæðraskóla í Sorø í Danmörku
veturinn 1949–1950 og starfaði
síðan í Kaupmannahöfn til 1951.
Hún var organisti í Þingvalla-
kirkju 1943–1949 og 1951–1952.
Guðbjörg starfaði á Reykjalundi
1954–1962 og var lengst af gjald-
keri þar. Árið 1962 hóf hún störf
við Búnaðarbanka Íslands og var
lengi deildarstjóri í stofnlánadeild
landbúnaðarins. Hún lét af störf-
um árið 1992.
Útför Guðbjargar verður gerð
frá Neskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Hún Guðbjörg frænka hefur verið
stór partur af mínu lífi frá því löngu
áður en ég man eftir mér. Margt af
því sem ég „man eftir“ frá barnæsku
eru í rauninni sögurnar sem hún og
Halla systir hennar sögðu þegar við
sátum við eldhúsborðið hjá ömmu
Betu á Þórsgötu og þær rifjuðu upp
til skiptis sögur af mér og öðrum
skreyttar öllum smáatriðum sem
flestir voru löngu búnir að gleyma.
Frásagnarstíllinn var svo skemmti-
legur og grípandi að ég sat og hlust-
aði á sögur af mér í London þegar ég
var smákrakki eins og væri verið að
lesa upp úr bók um persónu sem ég
rétt kannaðist við. Ég sá þetta allt
fyrir mér á einn eða annan veg og
þannig má segja að ég muni eftir
mörgum af þessum skemmtilegu
sögum úr æsku minni: ekki eins og
ég man eftir þeim sjálfur heldur eins
og ég sá þær fyrir mér þegar hún
sagði frá. Alltaf voru sögurnar
skemmtilegar eða sprenghlægilegar
og alltaf þegar maður var búinn að
hlusta á þær leið manni vel og var
þess fullviss að hafa verið góður og
skemmtilegur krakki.
Það er erfitt að koma henni fyrir á
einhverjum ákveðnum hefðbundn-
um stað innan fjölskyldunnar. Hún
var systir ömmu en fyrir pabba var
hún miklu líkari systur eða bara
skemmtilegri vinkonu. Hún kom
alltaf með okkur pabba og fleirum í
hina árlegu útilegu þar sem við ferð-
uðumst vítt og breitt um landið á
græna Volvóinum hans sem Halldór
bróðir hennar hafði átt og kónga-
bláa Volkswagen Passatinum henn-
ar. Ýmist var farið hringinn í kring-
um landið eða vestur á Snæfellsnes
og oft var komið við á Þingvöllum
þar sem hún fæddist og ólst upp.
Minningar mínar úr þessum ferðum
eru dásamlegar – skemmtilegar
ökuferðir um þetta magnaða og
stórbrotna land, langar sumarnætur
þar sem kvöldmaturinn var oft grill-
uð murta eða silungur, sem við
veiddum sjálf, rauðvínstár fyrir þá
fullorðnu, ávallt fjöldinn allur af
sögum og mikið hlegið langt fram á
nótt. Fullkomið frelsi og yndisleg
tilvist í faðmi fjölskyldunnar og
náttúrunnar. Þegar ég rifja þetta
upp nú sé ég kannski í fyrsta sinn
skýrt hve mikið þessar stundir hafa
mótað mig sem persónu.
Í hvert sinn sem ég hugsa til Guð-
bjargar fæ ég sömu mynd í hugann.
Það bregst ekki að þegar hún birtist
mér þá er hún skellihlæjandi, nýbú-
in að segja eitthvað sniðugt og smita
gleði út frá sér. Hún er á besta aldri,
með dökkbrúna hárið fallega lagt, í
dökkblárri peysu og með kóngabláa
Passatinn í bakgrunninum. Ég
þakka fyrir samverustundirnar og
fyrir það að þegar ég hugsa til þín
með sorg þá enda ég alltaf brosandi.
Daði Einarsson.
Hvað er það sem hvetur mig til að
skrifa um látinn ástvin? Að kveðja,
deila minningum með öðrum, eða
sorgin? Ég veit það varla, en ég hef
svo mikla þrá til að minnast hennar
Guðbjargar Einarsdóttur, móður-
systur minnar.
Líf mitt og barna minna hefði orð-
ið allt annað og mun fátækara ef við
hefðum ekki átt því láni að fagna að
hún sinnti okkur af slíkri alúð og
ástúð. Hún, ásamt yngri systur sinni
Hallfríði, bætti eldri syni mínum
söknuðinn eftir föður. Ég var ein
með hann og þar sem hann var
fæddur hjartveikur þurfti hann mik-
illar umönnunar við.
Það myndaðist sterkt kærleiks-
band á milli hans og Guðbjargar við
fyrstu sýn. Hún talaði oft um að þeg-
ar hún leit hann fyrst augum hefði
ég verið með hann á handleggnum,
höfuð hans hvíldi á öxl minni, hann
var grár af súrefnisskorti, með hönd
undir kinn. Og við urðum báðar svo
GUÐBJÖRG
EINARSDÓTTIR
✝ Kristbjörg LukkaJónsdóttir fædd-
ist í Hólalandshjá-
leigu í Borgarfirði
eystra 8. mars 1925.
Hún lést í Neskaup-
stað 26. desember
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru
Guðný Þórólfsdóttir,
f. 26. júlí 1889, d.
1979, og Jón Ísleifs-
son, f. 7. júlí 1893, d.
1964. Lukka var
þriðja elst af sjö
systkinum, hin eru
Þórólfur, d. 8. des.
2004, Guðgeir, Snorri, Egill,
Kristmann og Sæbjörg. Þegar
Lukka var tveggja ára fluttist hún
ásamt foreldrum sínum í Hjalta-
staðaþinghá og er þar til ársins
1952, lengst af í Grænuhlíð.
Eiginmaður Lukku var Harald-
ur Guðmundsson, d. 1985. Börn
þeirra eru: 1) Ásta, búsett í Kópa-
vogi, gift Sigurði Guðmundssyni,
þau eiga þrjú börn og eitt barna-
barn. 2) Líneik búsett í Neskaup-
stað, sambýlismaður Svavar
Björnsson, þau eiga tvær dætur
og hann á eina dóttur, barnabörn-
in eru fimm. 3) Guðmundur Ingi
búsettur á Egilsstöðum, sambýlis-
kona hans er Elísabet Ósk Sigurð-
ardóttir.
Dóttir Lukku er Guðjóna Bryn-
dís Albertsdóttir, búsett á Brekku
í Hróarstungu, gift
Stefáni Jónassyni,
þau eiga tvo syni, en
misstu dóttur,
barnabörnin eru tvö.
Sonur Lukku er
Unnar Brynjarsson,
f. 3. apríl 1951, d. 8.
maí 1981.
Á unglingsárun-
um vann Lukka ýmis
störf, meðal annars
á Hallormsstað,
Egilsstöðum og
Kirkjubæ. Veturinn
1945–1946 var hún
við nám í Hús-
mæðraskólanum á Akureyri. Árið
1952 fluttist hún í Geirastaði í
Hróarstungu og hóf þar búskap
með Haraldi mannsefni sínu.
Lukka og Haraldur bjuggu í Hró-
arstungunni, fyrst á Geirastöðum
en síðar á Hrærekslæk þar til árið
1978 að þau hættu búskap og
fluttust í Eiða, þar sem þau störf-
uðu bæði við Alþýðuskólann. Ári
eftir að Haraldur lést fluttist
Lukka ásamt Guðmundi syni
þeirra á Faxatröð 4 á Egilsstöð-
um, en húsið höfðu þau byggt áð-
ur en Haraldur dó. Þar bjó Lukka
síðan ein frá árinu 1996.
Útför Lukku fer fram frá Egils-
staðakirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 14.
Jarðsett verður í Kirkjubæjar-
kirkjugarði í Hróarstungu.
Elsku amma, mig langar að minn-
ast þín með nokkrum orðum.
Það var að morgni annars dags jóla
sem mamma hringdi í mig og sagði að
þú værir dáin. Mér hefði aldrei dottið
í hug, þegar ég kvaddi þig á Þorláks-
messukvöld, að það yrði okkar síð-
asta stund. Ég og mín fjölskylda ætl-
uðum að koma og hitta þig þennan
annan jóladag.
Elsku amma þegar ég horfi til
baka streyma fram allar góðu minn-
ingarnar um þig, allar góðu stund-
irnar sem við áttum saman frá því ég
var lítil stelpa að koma í Eiða og þar
til ég var orðin fullorðin að koma á
Faxatröðina með mína fjölskyldu.
Allar stundirnar sem við áttum
saman á Faxatröðinni undanfarin ár
eru mér efst í huga, og þar á meðal
helgin í sumar sem við vorum hjá þér
þegar Anton Bragi var í fótboltaskól-
anum. Okkar síðasta stund sem var
skötuveislan hjá mömmu og pabba á
Þorláksmessukvöld og svo ótalmargt
sem ég geymi með sjálfri mér og mun
aldrei gleyma. Það er margt sem fer í
gegnum huga lítilla barna þegar
langamma deyr. Anton Bragi spurði
mig hvort hann gæti ekki farið þegar
hann vildi í kirkjugarðinn og talað við
þig. Amelía Rún er búin að búa til
kort handa þér sem hún ætlar að gefa
þér þegar þú lifir aftur.
Elsku amma það er erfitt að sætta
sig við orðinn hlut, þín er sárt saknað.
Amelía Rún segir að nú sért þú
komin til afa og guðs og að guð sé
svona pössunarpía og því verðum við
að trúa.
Þín
Heiða.
KRISTBJÖRG LUKKA
JÓNSDÓTTIR
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Góði guð viltu láta ömmu
mína lifna við, amen.
Amelía Rún.
HINSTA KVEÐJA
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
DAVÍÐ KR. JENSSON
byggingameistari,
Langagerði 60,
sem andaðist að morgni nýársdags, verður
jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn
7. janúar kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hans, er vinsamlegast bent á Styrktarfélag vangefinna.
Jenný Haraldsdóttir,
Valborg Davíðsdóttir, Ragnar B. Ragnarsson,
Kristrún Davíðsdóttir, Ásgeir Eiríksson,
Inga Davíðsdóttir, Jóhann Bjarnason,
Jenný Davíðsdóttir, Ólafur Einarsson,
Hildur Davíðsdóttir, Hreinn Hafliðason,
Elsa María Davíðsdóttir, Þórhallur Matthíasson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
PÁLL LÚÐVÍKSSON
verkfræðingur,
Álfheimum 25,
lést á Landspítalanum í Fossvogi 31. desember.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn
7. janúar kl. 13.00.
Ása Fanney Þorgeirsdóttir,
Þorgeir Pálsson, Sesselja Benediktsdóttir,
Hildur Alexía Pálsdóttir, Eyjólfur Unnar Eyjólfsson,
Páll Reynir Pálsson, Margrét Þorsteinsdóttir,
afabörn og langafabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
ÓLAFUR STEFÁNSSON,
Engihjalla 1,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstu-
daginn 7. janúar kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en
þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið.
Soffía M. Sigurjónsdóttir,
Bragi Ólafsson, Sigrún Pálsdóttir,
Helga Ólafsdóttir, Helgi Björn Kristinsson,
Sigurjón Ólafsson, Arna Kristjánsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
LILJA MAGNÚSDÓTTIR,
Staðarbakka 30,
Reykjavík,
sem lést föstudaginn 31. desember, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn
7. janúar kl. 15.
Guðmundur Ástráðsson,
Magnús Guðmundsson, Nína Pálsdóttir,
Guðmundur Örn Guðmundsson, Auður Inga Einarsdóttir,
Ástráður Karl Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
HALLDÓRU G. MAGNÚSDÓTTUR,
Hávarðarkoti,
Þykkvabæ,
fer fram frá Þykkvabæjarkirkju laugardaginn
8. janúar kl. 13.00.
Blóm afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast
hennar, er vinsamlegast bent á Þykkvabæjarkirkju.
Gíslína Sigurbjartsdóttir, Hafsteinn Einarsson,
Hjördís Sigurbjartsdóttir, Páll Guðbrandsson,
Guðjón Ólafur Sigurbjartsson, Guðrún Barbara Tryggvadóttir
og fjölskyldur.