Morgunblaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 47
Nýr og betri www.regnboginn.is Hverfisgötu ☎ 551 9000 QUEEN LATIFAH QUEEN LATIFAH JIMMY FALLON GISELE BÜNDCHEN ÍSLANDSBANKI  Sýnd kl. 4. Ísl tal.Sýnd kl. 8. B.i. 16 ára VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ 20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI I I I I Í I I   ... „séríslenskt Fönn, fönn, fönn!“  SV MBL ... í l , , ! "...bráðvel heppnuð skemmtun, grín og fjör..."  ÓHT rás 2 ... l t , rí fj r... r Sýnd kl. 6, 8 og 10. Ókeypis krakkaklúbbur www.myndform.is, krakkaklubbur@myndform.is  Sýnd kl. 6. B.i. 10 ára.  Birth Stórstjarnan Nicole Kidman var tilnefnd til Golden Globe verðlauna fyrir leik sinn í myndinni Nicole Kidman Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 5.40 og 10.10. B.i. 16 ára H.j. Mbl. Kvikmyndir.com Ó.Ö.H. DV Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40. B.i. 14 ára Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. Frá þeim sem færðu okkur X-Men kemur fyrsta stórmynd ársins Svakalega flott ævintýraspennumynd með hinni sjóðheitu og sexý Jennifer Garner Fædd til að berjast Þjálfuð til að drepa Áður en hún finnur frið verður hún að heyja stríð FRUMSÝND Sendu SMS skeytið JA EBIO á númerið 1900 og þú gætir unnið miða og varning á myndina. 9. hver vinnur. Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið Á MORGUN !!! SIDEWAYS „skylduáhorf fyrir bíófólk, ekki spurning!“ T.V. Kvikmyndir.is   J.H.H kvikmyndir.com "...þegar hugsað er til myndarinnar í heild, er hún auðvitað ekkert annað en snilld" J. . kvik yndir.co "... r s r til y ri r í il , r vit rt s ill " ATH. miðaverð kr. 400.  „Fullkomlega ómissandi mynd“ S.V. MBL. I    MMJ kvikmyndir.com  Ó.Ö.H. DV SV Mbl. Óskarsverðlauna Tilnefningar til Óskarsverðlauna þ.á.m. besta mynd, leikstjóri og handrit „Ein snjallasta mynd ársins... Ógleymanleg...ljúf kvikmyndaperla“  tilnefningar til Óskarsverðlauna þ.á.m. besta mynd, leikari og handrit7 5 SÝND Í GLÆNÝJUM A SAL. klukkan. 4.30, 8 og 11.10. LEONARDO DiCAPRIO Tilnefningar til Óskarsverðlauna þ.á.m. Besta mynd, besti leikstjóri, besti leikari-Leonardo Dicaprio, bestu aukaleikarar-Cate Blanchett og Alan Alda. 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2005 47 RAGNAR Jónsson, sem jafnan var kenndur við Smára, er fyr- ir margt löngu goðsögn í ís- lensku þjóðlífi, varð það sjálf- sagt á meðan hann lifði. Engum einum manni ber jafn mikið að þakka það blómlega menningarlíf sem við búum við og þessari hamhleypu sem lyfti Grettistaki í menningarmálum á síðustu öld og heimild- armyndin sem ber nafn hans, kemur svo skilmerkilega frá sér. Hér er hvergi kastað til höndum, kvikmyndagerðarfólkið hefur farið vel og gaumgæfilega í gegnum mikið efni sem til er um líf og starf þessa hornsteins menning- arelítu 20. aldarinnar; Myndasafn Sjónvarpsins, Lofts Guðmunds- sonar, Óskars Gíslasonar o.fl., ljós- myndasafn fjölskyldunnar, útvarps- upptökur, blaða- og tímaritsgreinar og vinnan skilar sér í heilsteyptu portretti sem nú er til staðar um alla framtíð. Leikstjórinn, Guðný Halldórs- dóttir, fetar slóðir Ragnars, á köfl- um í bláum Willys-jeppa, sem var vörumerki og e.k. skrifstofa manns- ins. Sviðsetur atburði með stuðn- ingi Björns Jörundar sem er áþekk- ur Ragnari og lífgar mikið upp á hefðbundið myndefnið. Gylfi Gísla- son, Jón Þórarinsson, Kristján Dav- íðsson, Matthías Johannessen og Thor Vilhjálmsson, greinargóðir listamenn sem gjörla þekktu Ragn- ar eru teknir tali og þeir bæta lif- andi dráttum í svipmyndina. „Hann var fullhugi,“ segir Matthías um Ragnar, sem ungur kynntist menn- ingarlífi á bernskuslóðunum á Eyr- arbakka en fluttist síðan ungur bú- ferlum til Reykjavíkur. Síðan rekur myndin ævintýri líkustum ferli ein- stakrar persónu sem virðist sam- ofin úr dugmiklum athafnamanni og menningarfrömuði sem lagði gjörva hönd á plóginn. Ragnar lauk versl- unarskólanámi og hóf síðan að vinna í smjörlíkisgerðinni Smára sem hann eignaðist síðar meir og rak alla sína starfsævi ásamt sápu- gerðinni Frigg. Myndin gefur okkur einnig inn- sýn í að öfugt við flesta aðra efna- og framkvæmdamenn á síðustu öld ávaxtaði Ragnar sitt pund í fögrum listum, og þá ekki síst sem bak- hjarl. Iðnaðarvörur fyrir- tækja Ragnars voru horn- steinninn að hagsæld og uppsveiflu fjölda af okkar bestu listamanna á öldinni sem leið og starfsemi tengdri menningarlífinu. Jafnframt hvernig hann var þess um- kominn að hefja umsvifin yfir pólitískar krytur. Standa af sér storma og hríðarveður af öllum áttum og náðu jafnvel inn í dómssalina. Ragnar stofnaði Heimskringlu ásamt félaga sínum, þeim fræga, rauða penna, Kristni E. Andréssyni, en gekk ekki í söfnuðinn heldur sneri við honum baki og setti sjálfur á fót merkisútgáfuna og menn- ingarstofnunina Helgafell og tók með sér Halldór Laxness og Þórberg Þórðarson. Eins og sjá má hafði Ragn- ar jafnan mörg járn í eld- inum; afskipti hans af mynd- list og tónlist eru ekki síður mikilvæg en hann var einn af stofnendum Tónlistarfélags- ins, gaf málverkasafn sitt Al- þýðusambandi Íslands, en það var eitt það stærsta og glæsi- legasta í einkaeign á Íslandi. Svona mætti lengi telja. Myndin sýnir okkur einnig inn í einkalíf Ragnars og konu hans, Bjargar Ellingsen, og ekki annað að sjá en að hann hafi verið sama hamhleypan við að rækta sinn eigin garð. Að sýningu lokinni getur maður ekki annað en tekið ofan í huganum fyrir þessum höfðingja; „Enn njót- um við ávaxtanna,“ segir Thor í við- tali við Guðnýju, afrek hans á menningarsviðinu munu lifa með okkur. Ragnar í Smára er vel gerð- ur bautasteinn og góður vegvísir fyrir komandi kynslóðir. Listvinurinn og athafnaskáldið KVIKMYNDIR Hótel Sögu Heimildarmynd. Leikstjóri: Guðný Halldórsdóttir. Handrit: Guðný Hall- dórsdóttir Halldór Þorgeirsson, Sig- urður G. Valgeirsson. Kvikmynda- taka: Hálfdán Theodórsson. Klipping: Halldór Þorgeirsson. Hljóð: Pétur Einarsson. Tónlist eftir Beethoven, Bach, Mozart o.fl. Þul- ur: Edda Heiðrún Backmann. Leik- ari: Björn Jörundur. Framleiðandi: Halldór Þorgeirsson. 55 mínútur. Kvikmyndafélagið Umbi. Ísland. 2005. Ragnar í Smára  Matthías Johannessen og Ragnar í Smára. Myndin var tekin þegar höggmynd af Páli Ísólfs- syni var afhjúpuð við Ísólfsskála á Stokkseyri. Sæbjörn Valdimarsson Ragnar í Smára verður sýndur í Sjónvarpinu á næstunni. MICHAEL Moore er án efa umdeildasti kvik- myndagerðarmaður í heimi í dag en um leið er hann trúlega farsæl- asti heimildarmynda- gerðarmaður bíósög- unnar. Áður en hann sendi frá sér Bowling for Columbine og Fahrenheit 9/11 vann hann nokkra sjón- varpsþætti fyrir bresku Channel 4- sjónvarpsstöðina sem heita The Awful Truth. Þættina gerði hann á árinum 1999–2000 en í þeim stingur hann á meintum kýlum í bandarísku þjóðfélagi á svipuðum nótum og hann gerir í myndum sínum víðfrægu; gagn- rýnum, óvægum og mjög svo háðsk- um. Skjár einn tekur þessa þætti til sýninga 6. febrúar og verða þeir á dagskrá kl. 19.30. Þá má geta þess að sýningar á tí- undu þáttaröðinni af Survivors hefjast 22. febrúar en að þessu sinni dvelja strandaglóparnir á eyjunni Palau í Kyrrahafi. Þá snýr CSI aft- ur 7. febrúar og ný þáttaröð af gamanþáttunum Malcolm in the Middle hefst 17. febrúar. Sjónvarp | Michael Moore á Skjá einum Michael Moore dregur upp sína mynd af sann- leikanum í The Awful Truth. Skelfilegi sannleikur Reuters

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.