Morgunblaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FITUBRENNSLA a u k i n b r e n n s l a v a t n s l o s a n d i m e i r i o r k a m i n n k a r n a r t Easy body Burner hylki er frábær lei› til a› tapa flyngd á árangursríkan og skynsaman hátt. Hylkin innihalda m.a koffín, H‡droxísítruss‡ru, króm pikkólant og L-Carnitine. sérhanna› fyrir konur Sölusta›ir: og Heilsuhúsi› ingi öðru vísi en við og launanefnd sveitarfélaga myndum samþykkja hann. Það er algjörlega á hreinu.“ Eiríkur segir alveg ljóst að sér- samningur sem þessi yrði aldrei samþykktur af hálfu Kennarasam- bandsins nema að með honum fái kennararnir „verulega hærri laun en verið er að greiða í dag. Það ligg- ur alveg fyrir að slíkir samningar yrðu aldrei samþykktir af okkar hendi, þ.e. að gera breytingar á vinnutímanum, öðruvísi en að gera Formaður Kennarasambandsins um hugsanlega sérsamninga Garðabæjar við kennara Sjálandsskóla Ekki samið án verulegrar hækkunar grunnlauna SÉRSAMNINGAR sveitarfélaga við kennara í einstökum skólum koma ekki til greina af hálfu Kenn- arasambands Íslands (KÍ) nema að um sé að ræða „verulega hærri laun en verið er að greiða í dag“ . Þetta sagði Ei- ríkur Jónsson, formaður KÍ, er Morgunblaðið innti hann eftir viðbrögðum við hugmyndum bæjaryfirvalda í Garðabæ um að gera sérsamning við kennara Sjá- landsskóla. Þá segir Eiríkur að bæði launanefnd sveitarfélaga og Kennarasambandið verði að sam- þykkja samninginn. Í frétt blaðsins í gær kom fram að sérsamningar af þessu tagi falli undir bókun sem gerð var við kjara- samning grunnskólakennara á síð- asta ári. Þar segir: „Samningsaðilar eru sammála um að skapa tækifæri á samningstímabilinu fyrir grunn- skóla að taka upp í tilraunaskyni til eins skólaárs í senn, hliðstæð vinnu- tímaákvæði og gilda hjá öðrum há- skólamenntuðum starfsmönnum sveitarfélaga, þ.e. á bilinu 8–17 og innan þeirra tímamarka sé öll vinnuskylda kennara.“ Eiríkur segir að sérsamningar sem þessir séu heimilaðir sem til- raunaverkefni, „en það er ekkert um að ræða samning milli sveitarfé- laga og einstakra kennara. Það gætu komið drög að samningi frá Garðabæ en þau yrðu ekki að samn- grundvallarbreytingar á launum.“ Eiríkur rifjar upp að þeir sem voru að ræða hugmyndir um sér- samninga meðan kjaradeila kenn- ara stóð sem hæst, t.d. bæjarstjór- inn á Akureyri, hafi verið að tala um 320 þúsund króna grunnlaun. „Það er alveg á hreinu að það verður ekk- ert af svona samningum nema að menn séu að tala um mörgum tug- um þúsunda hærri grunnlaun en verið er að greiða í dag,“ segir Ei- ríkur. Eiríkur Jónsson „Við viljum ræða þetta betur við Kennarasambandi áður en lengra er haldið og gera þetta í samráði við þá.“ Runólfur segir að sérsamn- ingarnir yrðu líkari almennum kjarasamningum háskólafólks en kjarasamningar grunnskóla- kennara eru nú. „Starfsfólkið verður í heildarvinnu, í stað ákveðinna vinnuþátta, og fær þá vonandi líka betri laun.“ En hvernig getur borgin greitt hærri laun en nú er gert samkvæmt kjarasamningum? „Við þurfum að skoða hvaða peningar eru inni í kerfinu og hvort það sé hægt að taka inn í þetta alls konar aukagreiðslur. En við eigum eftir að sjá þetta betur fyrir okkur. Þetta er á byrjunarreit.“ SKÓLASTJÓRNENDUR nokk- urra grunnskóla í Reykjavík hafa sýnt því áhuga að borgin semji sérstaklega við skólana, líkt og kveðið er á um í bókun við kjarasamning grunnskóla- kennara og sveitarfélaga frá því fyrir jól. Munu Fræðslu- miðstöð og Kennarasambandið funda um þessi mál á næstu dögum. Í fréttum Morgunblaðs- ins í gær kom fram að bæjar- yfirvöld í Garðabæ eru að skoða þessa leið fyrir kennara Sjá- landsskóla. „Okkur finnst þetta spenn- andi og höldum að þetta verði öllum til hagsbóta, ekki síst börnunum,“ segir Runólfur Birgir Leifs- son, forstöðumaður fjár- málasviðs Fræðslumiðstöðvar. Skólar í Reykjavík vilja líka sérsamninga FJARSKIPTAFÉLÖGIN OgVoda- fone, eMax ehf. ásamt INTER, sam- tökum aðila er veita netþjónustu, mótmæla fyrirhugaðri sölu ríkisins á grunnneti fjarskiptaþjónustu sam- hliða sölu Símans. Í tilkynningu sem ofangreindir aðilar hafa sent frá sér er þess krafist að einkavæðingar- nefnd og ríkisstjórn lýsi því yfir að grunnnetið verði undanskilið við sölu á Símanum. Eiríkur S. Jóhannsson, forstjóri OgVodafone, segist vilja að grunn- netið sé aðskilið til þess að sam- keppni í fjarskiptamálum hérlendis sé virk. „Ég trúi því að það sé meg- inmarkmið ríkisins að hér ríki frjáls samkeppni án viðskiptahindrana,“ segir Eiríkur og bætir því við að hon- um þyki vera skortur á umræðu af hálfu ríkisins hvernig menn ætli sér að tryggja þetta. Hann segir einföld- ustu leiðina að sínu mati vera að að- skilja grunnnetið frá Símanum. Það verði annaðhvort í eigu ríkisins eða þá annað eignarhald verði fundið til þess að reka það. Eiríkur nefnir Landsnetið sem dæmi um slíkt eign- arhald, en hlutverk fyrirtækisins er að annast flutning raforku og kerf- isstjórnun sem Landsvirkjun sinnti áður. Eigendur þess eru Landsvirkj- un, RARIK og Orkubú Vestfjarða. Tortryggni í garð Símans „Reynslan hefur sýnt að sam- keppnisyfirvöld og Póst- og fjar- skiptastofnun hafa ekki bolmagn til að standa vörð um að leikreglum sé fylgt í harðvítugri samkeppni á fjar- skiptamarkaði. Sú tortryggni sem ríkt hefur í garð Símans frá öllum frjálsum fyrirtækjum á þessum markaði hefur verið mikil og mun aukast enn verði af sölu grunnnets- ins. Samkeppnisyfirvöld hafa skil- greint fjarskiptamarkaðinn á Íslandi sem markað sem ekki er í forgangi. Þetta hefur leitt til þess að Síminn hefur, í krafti stærðar sinnar og að- stöðu til að beita tæknilegum við- skiptahindrunum, getað haldið aftur af eðlilegri samkeppni á fjarskipta- markaði. Sem handhafi grunnnets- ins hefur Síminn beitt mikilli hörku gagnvart keppinautum og alþekkt er að sú harka eykst þegar ríkisfyrir- tæki komast í eigu einkaaðila,“ segir í tilkynningu frá félögunum. Dreifbýli ekki samkeppnishæft Í tilkynningunni kemur ennfrem- ur að sala grunnnetsins muni leiða til þess að mörg byggðarlög og dreif- býli verði ekki samkeppnishæft um fólk eða fyrirtæki í framtíðinni. Ástæðan sé sú að ljóst þyki að einka- aðilar muni gera ríkari kröfur til arð- semi en hinn ríkisrekni Sími hafi gert. „Síminn hefur beitt verðlagn- ingu og tæknilegum hindrunum til að koma í veg fyrir að önnur fjar- skiptafélög geti boðið upp á þjónustu í dreifðum byggðum,“ segir í tilkynn- ingunni. Nokkuð sé í land með að uppbyggingu dreifikerfis fyrir GSM verði lokið og enn eigi mörg byggð- arlög og dreifbýli ekki kost á há- hraða nettengingum. Það er ljóst að einkaaðilar munu gera ríkari kröfur til arðsemi en hinn ríkisrekni Sími hefur gert. Félögin segja kröfu sína setta fram með því markmiði að gera sam- keppni á þessum markaði raunhæfa. „Með þessu er ekki verið að leggja mat á þá aðgerð að selja Símann, ein- ungis að hafna því að selja þessa auð- lind ásamt þjónustustarfsemi Sím- ans til þriðja aðila. Það mun ekki verða friður um þessa ráðstöfun,“ segir í tilkynningunni. Fara sömu leið og Landsnetið „Er ekki einfaldast að fara sömu leið og ríkið fór í raforkumálum, þar sem Landsnetið var stofnað,“ segir Eiríkur og bendir á að slíkt myndi jafna samkeppnisaðstöðu fjarskipta- fyrirtækja hérlendis. Hann segist ekki þekkja dæmi þess að grunnnetið hafi verið aðskil- ið hjá þeim símafyrirtækjum sem hafa verið einkavædd í Evrópu á undanförnum árum. Hann bendir aftur á móti á að smærri aðilar á fjar- skiptamörkuðum, þar sem ríkissím- inn hefur verið einkavæddur, kvarti mikið undan þjónustunni sem þeir fá enda eigi þeir allt undir samkeppn- isaðilanum. Sama sé uppi á teningn- um hérlendis en Eiríkur segir fjölda kvartana liggja á borði Póst- og fjar- skiptastofnunar frá OgVodafone þar sem kvartað er undan aðgengi fyr- irtækisins að grunnnetinu, sem sé í eigu Símans. Vilja aðskilja grunn- netið frá Símanum Morgunblaðið/Kristinn BJÖRGÓLFUR Thor Björgólfsson situr heimsviðskiptaráðstefnuna, World Economic Forum, sem hófst í Davos í Sviss í gær. Þar hafði hann seturétt vegna þátttöku sinnar í verkefninu Forum of Young Global Leaders. Síðan á mánudag hefur hann verið í Davos og unnið þar í vinnuhópi ásamt 99 öðrum ungum athafnamönnum úr viðskiptalífi, fjölmiðlum, menningu og stjórn- málum um allan heim. Þegar Morgunblaðið náði tali af Björgólfi var hann að bíða eftir að hlýða á ávarp Tonys Blairs, for- sætisráðherra Bretlands, sem flutti erindi á ráðstefnunni í Davos. Björgólfur sagðist hafa reiknað með að þurfa að hlusta á marga fyr- irlestra en verkefni vinnuhópsins hefðu verið meiri en hann átti von á. Var þessum 100 skipt niður í tíu manna hópa og sagði Björgólfur sér líða eins og að vera kominn aftur á fjórða ár í háskóla. Með honum í vinnuhópnum eru m.a. dómsmálaráðherra Jórdaníu, forsætisráðherra Eistlands, land- búnaðarráðherra S-Afríku, fjár- málaráðherra Búlgaríu, borgar- stjóri San Francisco, stofnendur Google og Hákon krónprins Noregs. Áður höfðu úr hópi átta þúsund manna undir fertugu verið valdir 237 ungir stjórnendur til að taka þátt í verkefninu Forum of Young Global Leaders. Verkefnið er til næstu fimm ára og fer ráðstefna fram síðar á þessu ári. Úr þessum hópi var 100 svo boðið til verkefna- vinnu í Davos, auk þess að sitja heimsviðskiptaráðstefnuna. Björgólfur meðal krón- prinsa og ráðamanna MIÐSTJÓRN ASÍ fjallaði á fundi sínum í gær um viðbrögð félagsmála- ráðherra við greinargerð ASÍ um veitingu atvinnuleyfa til Impregilo og stefnu stjórnvalda í málefnum vinnu- markaðarins. Að sögn Grétars Þor- steinssonar, forseta ASÍ, gerði mið- stjórn alvarlegar athugasemdir við reglugerð sem félagsmálaráðherra hyggst gefa út á næstunni. Hefur ASÍ frest til morguns að skila þeim at- hugasemdum til ráðherra og vildi Grétar ekki fara efnislega út í þær. Hann segir að ASÍ geti sætt sig við suma þætti í reglugerðinni. Hluta þessara athugasemda má þó lesa í minnisblaði sem lagt var fyrir miðstjórn ASÍ í gær. Þar segir m.a. að félagsmálaráðherra hafi ekki brugð- ist við sjónarmiðum ASÍ um áhrif framgöngu Impregilo og ábyrgð stjórnvalda í þeim efnum. „Skortur á stefnumótun í framan- greindum efnum og gagnvart málefn- um vinnumarkaðarins almennt gerir síðan að verkum að framkvæmdin varðandi útgáfu atvinnuleyfa er enn sem fyrr í mikilli óvissu,“ segir í minn- isblaði ASÍ, sem lítur svo á að félags- málaráðherra eigi enn eftir að bregð- ast við mikilvægustu ábendingum og áherslum sínum gagnvart stjórnvöld- um. Félagsmálaráðherra geti ekki vikið sér undan ábyrgð og hann eigi næsta leik. Grétar Þorsteinsson vill minna á að verkalýðshreyfingin og atvinnurek- endur hefðu á síðasta ári tekið þátt í vinnu með félagsmálaráðuneytinu um gerð reglugerðar um atvinnuréttindi útlendinga. Sér vitanlega hafi sátt náðst um framkvæmdina en síðan hafi hann orðið fyrir vonbrigðum und- ir lok síðasta sumars er fregnaðist að reglugerðin hafi verið dregin til baka. Grétar segir að í reglugerðardrög- unum nú hafi verið gerðar breytingar í nokkrum veigamiklum atriðum. Vonast hann til þess að félagsmála- ráðherra muni taka tillit til þeirra at- hugasemda sem ASÍ muni skila á morgun. Alvarlegar at- hugasemdir ASÍ TENGLAR ..................................................... www.mbl.is/itarefni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.