Morgunblaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 12
verkefni gæti verið að ræða. Stjórn Samganga hefur haft milli- göngu um að sveitarstjórnarmenn á Austurlandi kynni sér framkvæmdir við heilborunina og er fyrirhuguð Kostnaður sé því talinn lægri en al- mennt gerist og þannig sé skera- kostnaður t.d. talinn um einn $/m3 eða tíundi hluti þess sem gjarnan gerist erlendis. Algengt sé að skera- kostnaður sé á bilinu 10–15 $/m3. Dahl sagði reynslu af heilborun við gerð vegganga erlendis almennt góða og væri henni beitt í vaxandi mæli. Kæmi þar til skemmri fram- kvæmdatími og lægri kostnaður. Taldi hann af fenginni reynslu af borun í íslenska berginu að ætla mætti að hið sama gilti um gerð veg- ganga hérlendis og að kostnaður við gerð þeirra gæti orðið umtalsvert lægri. Áhrif þar á hefði þó lengd hverra ganga og að um samfelld stærri Austurland | Stjórn Samtaka áhuga- fólks um jarðgöng á Mið-Austur- landi, Samgöng, skoðaði nýverið framkvæmdir við heilborun jarð- ganga í Teigsbjargi ofan Fljótsdals. Í fréttatilkynningu frá Samgöngum segir að Edvard Dahl, norskur verk- fræðingur með áratuga reynslu af heilborun, hafi kynnt stjórn- armönnum stöðu og gang verksins svo og hvernig borarnir reynast. Segir að framvinda við borunina sé að jafnaði um 25–50 m á sólarhring, en hafi þó verið allbreytileg og farið upp í 83 m. Aðstæður í íslenska berginu teljist allnokkuð breytilegar en á heildina góðar og framvinda almennt hrað- ari en gengur og gerist erlendis. kynnisferð þeirra 5. febrúar nk. Stjórnin bendir sérstaklega á heil- borun á milli Eskifjarðar, Fann- ardals í Norðfirði, Mjóafjarðar, Seyðisfjarðar og Héraðs. Skoða nýja möguleika í gangagerð Heilborun vegganga beitt í vaxandi mæli Dæmigert þversnið í norskum heilboruðum göngum. 12 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Bílar á föstudögum á morgun  Sérblaðið Bílar sem fylgt hefur Morgunblaðinu á miðvikudögum mun eftirleiðis fylgja blaðinu á föstudögum. STYRKING krónunnar á undanförn- um mánuðum hefur ekki skilað sér í lægra verði á mörgum flokkum inn- fluttra vara. Alþýðusamband Íslands hefur borið saman breytingar á verð- lagi innfluttra vara og gengisþró- unina frá árinu 2000 og kemst að þeirri niðurstöðu að styrking krón- unnar hafi í mörgum tilvikum ekki skilað sér að fullu í vasa neytenda. Styrking krónunnar hefur skilað sér misjafnlega í verðlagi einstakra flokka innfluttra vara. „Markaðir, þar sem samkeppni hefur verið mikil í smásölu milli versl- ana hér á landi og auðvelt hefur verið fyrir neytendur að bera saman verð og flytja vörur milli landa s.s. fatnað og tæknibúnað, virðast frek- ar hafa haldið aftur af verðhækkun- um í kjölfar gengislækkunarinnar. Verð á þessum mörkuðum hafa ýmist lækkað eða nánast staðið í stað á tímabilinu,“ segir í greinargerð ASÍ. Vísitala mat- og drykkjarvöru hefur fylgt þróun gengis „Á öðrum mörkuðum, s.s. á öku- tækjum og húsbúnaði, hækkaði verð- lag mikið í kjölfar lækkunar krónunn- ar í upphafi tímabilsins. Hingað til hefur hins vegar ekki verið unnt að greina að þessi hækkun hafi gengið með sama hætti til baka eftir að gengi krónunnar tók að styrkjast á ný á árinu 2002 og raunar hafa vísitölur þessara vöruflokka hækkað stöðugt frá árinu 2000,“ segir þar ennfremur. Bent er á að krónan styrktist tals- vert á síðasta ári og lækkaði geng- isvísitalan um 8% frá desember 2003 til desember 2004. Það sem af er árinu 2005 hefur krónan enn haldið áfram að styrkjast. Tæplega 64% innflutnings 2003 kom frá EES-svæðinu, en rúm 7% frá Bandaríkjunum. Breyting á gengi Bandaríkjadals sem lækkað hefur mikið undanfarið hefur því fremur lít- il áhrif á verðlag á almennum neyslu- vörum hér á landi. Vísitala á innfluttum mat- og drykkjarvörum hefur fylgt nokkuð vel eftir þróun gengisvísitölunnar, að því er fram kemur í athugun ASÍ. Sjónvörp, myndbönd, tölvur o.fl. hækkuðu t.d. samfara gengishækk- uninni á árinu 2001, en talsvert minna, eða um 8%. Upp úr því fór vísi- tala þessara vara að lækka og hefur síðan haldið áfram að lækka allt tíma- bilið. Frá desember 2003 til desember 2004 lækkaði vísitala fyrir sjónvörp, myndbönd, tölvur o.fl. um 5,5%. Lítil breyting hefur orðið á vísitölu fyrir fatnað og skó á tímabilinu. „Vísitala nýrra bíla og varahluta fylgdi þróun gengisvísitölunnar og hækkaði um 14,8% frá janúar 2000 til desember 2001. Lítilsháttar lækkun varð á vísitölunni í lok árs 2002, en hækkunin hefur verið stöðug síðan og var 1,8% milli desember 2003 og des- ember 2004. Vísitalan fyrir húsgögn, heimilisbúnað o.fl. hækkaði um 12,7% frá janúar 2000 til desember 2001. Frá þeim tíma hefur hækkunin verið stöðug og var 1,2% milli desember 2003 og desember 2004,“ segir í grein- argerð ASÍ. Þar er einnig skoðuð þróun á verði lyfja til neytenda og kemur í ljós að liðurinn lyf o.fl., sem samanstendur af vísitölu fyrir lyf, ásamt lýsi, vítamín- um, steinefnum og bætiefnum, hækk- aði um 8,2% frá janúar 2000 til desem- ber 2001. Mikil hækkun varð einnig á árinu 2002, eða 6%. Stöðug hækkun hefur verið á þessum lið síðan og nam hún 2,6% frá desember 2003 til des- ember 2004, að því er fram kemur í samanburði ASÍ. ASÍ kannar verðlag innfluttra vara og styrkingu á gengi Hefur ekki enn skilað sér í lægra vöruverði                                    !                 !"# $!%  ! & '!()  *!#  + SIGURÐUR Moritzson, fram- kvæmdastjóri Græns markaðar ehf., hefur sent Morgunblaðinu eftirfarandi yfirlýsingu: „Jónína Benediktsdóttir skrifar grein í Morgunblaðið í gær um „vonda“ menn í viðskiptalífinu. Þar fjallar hún m.a. um fyrirtækið Grænan markað ehf. sem undirrit- aður veitir forstöðu. Ekki verður hjá því komist að gera at- hugasemdir við dylgjur og ósann- indi í umfjöllum Jónínu um fyr- irtæki okkar. Grænn markaður ehf., sem er í eigu starfsmanna og garðyrkjubænda, selur blóm í um- boðssölu fyrir nokkrar íslenskar garðyrkjustöðvar. Í því felst sú þjónusta að annast daglega flutn- inga vörunnar frá garðyrkjustöðv- um ásamt markaðsstarfi, sölu og dreifingu vörunnar. Fyrir þessa þjónustu tekur félagið í umboðs- laun 18,75% af verði seldrar vöru. Miðað við þá þjónustu sem veitt er má fullyrða að þessi umboðs- laun eru í algjöru lágmarki, jafn- vel þó miðað sé við það lægsta sem gerist í nágrannalöndum okk- ar. Í umfjöllun sinni fullyrðir Jón- ína að fyrirtækið eigi og reki meg- inhluta blómaverslana á landinu. Hvaðan hún hefur þær upplýs- ingar er mér hulin ráðgáta og rétt að fram komi að Grænn markaður kemur hvergi að rekstri blóma- búða, hvorki beint né óbeint. Þó tekur steininn úr þegar Jónína ásakar félagið um umboðssvik gagnvart garðyrkjubændum að því er virðist með röngum uppgjörum vegna umboðssölunnar. Framleið- endur hafa frá upphafi átt stóran hlut í félaginu og fylgst vel með rekstri þess. Eftir því sem ég best veit bera þeir bændur sem með okkur starfa fullt traust til félags- ins. Því er illt að sitja undir upp- lognum sökum frá fólki útí bæ. Læt hér staðar numið þó fleiri rangfærslur sé að finna í grein- inni. Mér finnst leitt að blómasala dragist með þessum ómaklega, ósanna og neikvæða hætti inn í umfjöllun Jónínu. Við þurfum miklu fremur á jákvæðri umfjöllun að halda, við eigum frábæra fram- leiðendur sem framleiða gæðavöru við erfið rekstrarskilyrði, fagfólk í blómaverslunum um land allt sem er reiðubúið að þjóna í gleði og sorg. Blóm hafa um árabil verið sterk tækifærisgjöf enda fátt eins gleðilegt og fallegur blómvöndur, einnig hefur færst í vöxt að fólk gleðji sjálft sig með blómum, en verð blóma hefur lækkað verulega að raungildi undanfarin ár.“ Í heljargreipum Gróu á Leiti TUTTUGU og fimm ára Nígeríu- maður var úrskurðaður í sex vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í gær, eða til 9. mars næstkomandi. Hann var gripinn á Keflavíkurflugvelli með 678 grömm af kókaíni 14. desember sl. Tollverðir á Keflavíkurflugvelli fundu fíkniefni í fórum mannsins sem kom hingað gagngert í þeim til- gangi að flytja efnin til landsins. Hann var við svo búið sendur í röntgenskoðun og kom þá í ljós að hann hafði enn meira af fíkniefnum innvortis. Hann hafði bæði gleypt efnin og falið þau í endaþarmi. Maðurinn kom til landsins frá Kaupmannahöfn. Hluti efnanna gengu niður af honum, að líkindum meðan hann var í flugvélinni. Gæslu- varðhald framlengt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.