Morgunblaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2005 27 FYRIR hönd samstarfsmanna minna í bandaríska sendiráðinu vil ég óska landsmönnum góðs og hamingjuríks nýs árs. Nú í upphafi ársins 2005 lang- ar mig til að nota þetta tækifæri til að benda á nokkuð af þeim árangri og atburðum sem gerðu árið 2004 svo far- sælt hvað varðar víð- tæk, vaxandi og lofs- verð samskipti Bandaríkjanna og Ís- lands. Persónulegt sam- band milli fólks er enn kjarninn í samskiptum okkar. Árið 2004 ferð- uðust þúsundir Íslend- inga til Bandaríkjanna sem ferðamenn, námsmenn, tíma- bundnir starfsmenn eða innflytjendur. Þá tóku Íslendingar á móti rúmlega 50.000 bandarískum ferðamönnum auk kaupsýslumanna og fræðimanna. Á síðasta ári hafið þið ykkar sem hafið ferðast til Bandaríkjanna geng- ist undir nýjar öryggisreglur við kom- una til landsins sem nauðsynlegar eru í kjölfar árásanna 11. september. Ég veit að sumir Íslendingar hafa áhyggj- ur af því að þessir nýju starfshættir (sem fela í sér stafrænar myndatökur, skönnun á fingraförum og notkun öruggari tölvutækra vegabréfa) geti torveldað lögmætar ferðir til Banda- ríkjanna. Raunin er sú að þessar starfsreglur seinka ekki ferðum og í framtíðinni munu þær greiða fyrir þeim. Þótt borgarar sumra þjóðlanda hafi orðið fyrir töfum á úrvinnslu um- sókna um vegabréfsáritanir til Banda- ríkjanna eftir 11. september eru Ís- lendingar ekki þar á meðal. Íslendingar sem sækja um áritun til að ferðast til Bandaríkjanna geta pantað tíma á vefsíðunni okkar, www.usa.is, valið tíma fyrir viðtal og fengið pappírana til baka á innan við viku. Markmið okkar er ekki að hindra ferðalög heldur viljum við tryggja öryggi Íslendinga og Banda- ríkjamanna þegar þeir ferðast. Ef þið hafið ekki komið til Bandaríkjanna ný- lega mun sterk staða krónunnar gera heimsókn þangað núna sérlega ánægjulega. Annað dæmi um hið breiða sam- band þjóðanna eru fjölmargar gagn- kvæmar heimsóknir á sviði menning- ar, stjórnmála og vísinda sem við höfum skipulagt á síðasta ári. Íslend- ingar sem starfa við löggæslu, blaða- mennsku, innflytjendamál, menntun, samfélags- og varnarmál hafa tekið þátt í skipulögðum heimsóknum til Bandaríkjanna á vegum sendiráðsins. Hundruð íslenskra námsmanna og aðrir hópar hafa heimsótt okkur í sendiráðið til að hitta starfsmenn okk- ar og skiptast á skoðunum um lönd okkar og umheiminn. Við fögnum fleiri slíkum heimsóknum – látið okk- ur vita! Margir Íslendingar tóku einnig þátt í uppákomum á vegum sendiráðs Bandaríkjanna á síðasta ári, atburð- um allt frá djass-, gospel- og klass- ískum tónleikum til list- og sögusýn- inga, fyrirlestra í stjórnmálafræði og fjölmennrar kosningavökunnar sem við héldum í Hafnarhúsinu. Við höfum notið þess að sjá um þessar samkomur og verið þakklát fyrir tækifærið til að eiga samskipti við ykkur, þróa vináttu okkar í samfélaginu og sýna mismun- andi hliðar á lífi Bandaríkjamanna. Á vísindasviðinu hefur forysta Ís- lendinga í orkumálum, sérstaklega hvað varðar vetni, einnig vakið mikinn áhuga bandarískra stjórnvalda, fræði- manna og athafnamanna auk embætt- ismanna víðsvegar um Bandaríkin. Í ágúst tók íslenska utanríkisráðuneytið á móti sendinefnd frá Öldungadeild Bandaríkjaþings, þar á meðal áber- andi leiðtogum eins og John McCain og Hillary Clinton öldungadeild- arþingmönnum, til að kynna þetta efni. Samvinna okkar á vísindasviðinu hefur aukist með þeim mikla áhuga sem NASA hefur sýnt á því að gera formlegan og víðtækan samning um rannsókn- arsamvinnu við Ísland, samning sem við vonum að muni líta dagsins ljós á komandi ári. Efnahagslegt samband landanna heldur áfram að blómstra. Viðskipti á milli landanna jukust mynd- arlega á árinu 2004. Ríkisstjórnir okkar leita nú leiða til að auka við- skipti á milli landanna með því að ryðja úr vegi viðskiptahindrunum. Ís- land er í auknum mæli að verða vin- sæll kostur hjá bandarískum fjár- festum, og þá ekki aðeins í stórum verkefnum eins og Alcoa og Norður- áli. Bandarísk fyrirtæki eru einnig í auknum mæli að fjárfesta í líftækni-, hátækni- og hugbúnaðariðnaði. Ís- lensk fyrirtæki líta enn til Bandaríkj- anna eftir viðskiptalegum innblæstri og þróun sem hægt væri að beita í kraftmiklu og hraðvaxandi efnahags- lífi Íslands. Þegar bandarískir og ís- lenskir kaupsýslumenn koma saman tala þeir sama málið – leggja áherslu á yfirburði hins frjálsa markaðar og að afskiptum stjórnvalda sé haldið í lág- marki – og deila sama frum- kvöðlakrafti og vilja til að taka áhættu til að ná viðskipta- legum hagnaði. Hvað varðar öryggi og varn- ir Íslands eru Bandaríkin enn að fullu skuldbundin til að verja Ísland í samræmi við tvíhliða varnarsamn- inginn frá 1951. Á árinu 2004 jukum við samvinnu á sviði löggæslu og bar- áttu gegn hryðjuverkastarfsemi. Á þessu ári munu ríkisstjórnir landanna halda áfram nánu samráði í þessum málum, eins og í svo mörgum öðrum, til að tryggja að aðgerðir okkar séu í samræmi við breytilegar aðstæður í heiminum. Öryggismál sendiráðsins hafa einn- ig vakið athygli á árinu 2004. Öryggis- áætlun okkar miðar ekki aðeins að því að gera Laufásveginn öruggari fyrir íslenska og bandaríska starfsmenn sendiráðsins heldur einnig fyrir ná- granna okkar og gesti. Þessar aðgerð- ir, sem framkvæmdar hafa verið í samráði við íslensku lögregluna og borgaryfirvöld, hafa komið samfélag- inu til góða án þess að almenningi sé það alltaf ljóst. Árvakrir öryggisverðir okkar hafa stöðvað ýmis afbrot sem verið var að fremja í nágrenninu á síð- asta ári og einnig tekið þátt í björg- unarstörfum við eldsvoða í nærliggj- andi húsi. Uppsetning nýrra hindrana fyrir framan sendiráðið hefur gert það kleift að opna Laufásveginn fyrir gegnumumferð á ný. Við höfum skiln- ing á því að erfitt sé að búa í nágrenni önnum kafins sendiráðs og við þökk- um nágrönnum okkar fyrir þolinmæði þeirra og skilning. Þegar við horfum til næsta árs er ég mjög spenntur yfir þeim tækifærum sem bíða okkar þegar við höldum áfram að byggja á þeim styrkleika sem fylgir samskiptum Bandaríkj- anna og Íslands. Ég trúi því stað- fastlega að sambandið á milli landa okkar, samband sem byggist á marg- víslegum, gagnkvæmum hagsmunum og síauknu samstarfi, sé fordæmi fyrir hagkvæma samvinnu á milli þjóða. Þakka ykkur fyrir að leggja ykkar af mörkum til þessa samstarfs árið 2004 og við hlökkum til jafnvel enn meiri framfara árið 2005. Mikil samskipti Bandaríkjanna og Íslands James I. Gadsden fjallar um samskipti Íslendinga og Bandaríkjamanna ’Persónulegt sambandmilli fólks er enn kjarninn í samskiptum okkar.‘ Höfundur er sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. James I. Gadsden læra, er að jafnvel sjaldgæfir ast. Þegar þeir verða geta þeir egum usla,“ sagði Páll. Hann ð þyrftum athuga hvaða fyr- grenni okkar gætu hrundið af gjum af þessu tagi. Nú þyrfti imavinnuna og reikna út líkön stu atburði sem talið er að geti kurnar á að þeir verði. Þessi nast ekkert hafin hér á landi. ist hafa tekið saman lista yfir ulega atburði sem geta valdið , sem væri nánast eins og Fyrst nefndi hann skriður á úr landgrunnshlíðum, svipað toregga-skriðunni undan Nor- i eru að koma í ljós um að önn- ða kunni að hafa fallið úr land- m norðan Færeyja. Þá ræddi em varð í kjölfar jarðskjálfta á a við Nýfundnaland 1929. t alla neðansjávarsímastrengi hafið og því hægt að tímasetja hennar nákvæmlega. Skriðan tað sjávarbylgju sem gekk á fundnalandi. Heilu húsin og uðust út á haf og 37 manns fór- álftar geta orðið á flekaskilum d. á Azor-Gíbraltar skilunum. kill jarðskjálfti 1755 sem lagði rúst. Í kjölfarið urðu miklir rginni og hafnarbylgja gekk á miklu tjóni. Sama ár urðu stór- á Íslandi, Kötlugos og stór fyrir norðan. Í gömlum heim- esa bollaleggingar um hvort æri þarna á milli. úr landgrunnshlíðum sunnan a valdið flóðbylgjum við suður- Landgrunnsbrúnin sunnan við staklega varasöm því hún er ar hlaðast upp setbunkar við tlu og Vatnajökli. Hætt er við bunkar séu óstöðugir og geti tað, sérstaklega ef verða jarð- andgrunnsbrúnin er skjálfta- verða stundum innflekaskjálft- tu myndast flóðbylgjur við norðurströndina vegna skriðufalla í kjölfar jarðskjálfta. Líklegast að það gæti orðið við Tröllaskaga og Skjálfanda. Þar eru víða brattar fjallshlíðar og skriður á hreyf- ingu á jarðskjálftabeltum. Eins gætu orðið skriðuföll innan fjarðar í Eyjafirði sem gætu valdið flóðbylgju þar. Ekki eru margir staðir í Atlantshafi þar sem hætta er talin á mjög stórum jarð- skjálftum. Þeir eru þó til, líkt og við Antillueyjabogann í Karíbahafi. Þar gæti hugsanlega orðið risaskjálfti á borð við þann sem varð á annan dag jóla. Eldfjallahrun og flóðbylgjur Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlis- fræðingur hjá Jarðvísindastofnun HÍ, sagði að þegar horft væri á kort af jörðinni sæjust mörg eldfjöll. Stundum gerist að eldfjöll hrynji út í sjó og við það geta myndast stórar flóðbylgjur. Í því sam- bandi skipta mestu máli í Atlantshafi eyjar á borð við Kanaríeyjar, Azoreyjar og Grænhöfðaeyjar. Einnig má nefna Jan Mayen og eins eyjar í Karíbahafi. Nokkur dæmi eru um eldfjallahrun á síðustu áratugum, en ekki í haf út. Nefna má Mount St. Helens í Bandaríkjunum 1980 þar sem mikið efni hrundi niður sem skriða. Stærsta dæmið frá sögulegum tíma um hrun eldfjallaeyju er þegar Ritter-eyja í Papúa Nýju Gíneu hrundi í sjó fram árið 1888. Rúmmál skriðunnar er talið hafa samsvarað 5 km3. Vestrænir innflytjendur mældu 8 m háaflóðbylgju, sem myndaðist við hrun eyjarinnar, í nokkur hundruð km fjarlægð frá staðnum. Íslendingar þurfa að fylgjast með Kan- aríeyjum, Azoreyjum og Gænhöfðaeyjum, að mati Freysteins. Hann tók fram að at- burðir sem þessir séu mjög sjaldgæfir, ef til vill verði einn slíkur atburður á næstu 10 þúsund eða 100 þúsund árum. Því sé ekki víst að við þurfum að hafa mestar áhyggjur af þessari hættu. En ef eldfjall hrynur suður í hafi ferðast hröðustu bylgj- urnar um 700 km/klst. Það gefur tækifæri til að bregðast við atburðum sem verða langt í burtu. Þegar skriða fellur fram myndast mismunandi bylgjur að gerð og tíðni. Þessir atburðir verði gjarnan lengri í tíma en skjálftaflóðbylgjur. Menn hafa mestar áhyggjur af La Palma á Kanaríeyjum. Þar hafa fallið meira en tíu meiriháttar skriður á síðustu milljón árum. Endurkomutími er því 100 þúsund ár eða meira. Engu að síður eru jarðfræðilegar forsendur fyrir því að at- burður af þessu tagi verði á La Palma. Þar er óstöðugt eldfjall og gæti stór hlið á því, allt að 500 km3, hrunið í sjó út. Bylgja það- an gæti náð ströndum Íslands og skollið á allri austurströnd Ameríku. Slíkar bylgjur hér gætu í versta tilfelli orðið allt að 10 metra háar. Skriðuföll í hafinu eru einni stærðar- gráðu stærri en eldfjallahrun á Kanarí. Þannig er áætlað að í Storegga-skriðunni hafi runnið um 4.000 km3 af efni. Slík skriða er lengi að falla og veldur öldugangi um nær allt hafið í einu. Slíkir atburðir eru mjög fátíðir og taldi Freysteinn að ekki þyrfti kannski að hafa sérstaka varúð á sér út af slíkum atburðum. En í kjölfar um- brotanna í Indlandshafi sé rétt að reikna þessar sviðsmyndir. Í öllum tilvikum berist áhrif fjarlægra atburða til Íslands með sama hraða og þota flýgur. Það eigi að gefa nokkurn tíma til viðbragða. Flóðbylgjur vegna Kötlugosa Ármann Höskuldsson jarðfræðingur sagði frá athugunum sem hann hefur gert á áhrifum flóðbylgna í tengslum við Kötlu- hlaup. Fyrstu heimildir eru um flóðbylgju sem fylgdi Kötlugosinu árið 1721. Þá er getið flóðbylgju sem kom í Vestmannaeyjar og olli þar skemmdum á hjöllum, bátum og tók lýsiskagga á haf út. Síðan fer litlum sögum af flóðum í sambandi við Kötlu- hlaup, þar til í gosinu 1918. Ármann segir að gosið sjálft hafi alltaf þótt áhugaverðast og jaðaráhrif á borð við flóðbylgju vakið litla athygli. Eina lýsingin á flóðbylgjunni sem fylgdi gosinu 1918 sé í vikuriti þar sem segir að í kjölfar Kötluhlaupsins hafi sjór hafi risið upp á Strandveg á Heimaey. Ármann segir að vegna sjávardýpis við Suðurland yrði bylgjulengd flóðbylgju 3,8 km á landgrunninu. Flóðbylgjan ferðast í öllum sjávarmassanum, ólíkt veðurbylgj- um sem eru í yfirborðinu. Flóðbylgjan er stefnuvirk nema þar sem hún nær að end- urkastast. Hraðinn er háður sjávardýpi og á landgrunninu fyrir Suðurlandi yrði hann um 160 km/klst. Kötluhlaup hafa þrjár meginframrásir, það er Markarfljót sem engar heimildir eru um frá sögulegum tíma, þá Sólheima- sandur þar sem komið hafa hlaup á sögu- legum tíma en engar sagnir af flóðbylgj- um. Flest hlaup hafa farið niður Múlakvísl og Mýrdalssand. Hlaupin 1721 og 1918 fóru bæði þar um. Ármann taldi tvo möguleika valda flóð- bylgju í kjölfar Kötlugoss. Annars vegar sem straumfræðilegt fyrirbæri vegna hins gríðarlega efnismagns jökulhlaupsins. Hlaupvatnið blandað jarðefnum og ís sé miklu þyngra en sjórinn og ryðji honum á undan sér. Hlaupvatnið virki eins og jarð- ýta. Þegar dragi úr hlaupinu flæði sjórinn til baka. Eitt sem styður þetta er að 1918 sáu menn á sker undan Vík sem aldrei hafði sést á áður. Hinn möguleikinn er að hrun verði í landgrunnsbrúninni sunnan landsins. Brúnin er brött, fer úr 200 metrum niður í 2.000 metra þar sem dýpst er á skömmu bili. Hugsanlegt er að allt setmagnið í hlaupvatninu myndi óstöðuga sethjalla sem síðan hrynji fram af brúninni og myndi flóðbylgju. Ármann telur mikilvægt að gera sér grein fyrir því hvort fyrirbærið er um að ræða til að geta sagt fyrir um hvenær vænta megi flóðbylgju. Sé sjórinn að leita til baka eftir hlaupið sé hægt að vara við flóðbylgju um leið og dregur úr hlaupi. Ef setið er að hrynja fram af brúninni er erf- iðara að segja fyrir um hvenær flóðbylgja myndast. Setbunkinn gæti verið stöðugur í marga daga og brostið svo. Miðað við hraða flóðbylgju 160 km/klst væri hún 27 mínútur frá Hjörleifshöfða til Vestmannaeyja, 51 mínútu til Þorláks- hafnar og 70 mínútur til Grindavíkur. Vestmannaeyjahöfn snýr beint á móti stefnu flóðbylgjunnar og sýndi Ármann myndir af hve flóð gæti náð hátt við höfn- ina við nokkrar flóðstöður. Við fimm metra flóðhæð færi allt athafnasvæði hafnarinn- ar á kaf. Ef bylgjan yrði tíu metrar myndi flóðið fara yfir Eiðið og ná upp á Stakka- gerðistún. Ármann taldi nauðsynlegt að menn gerðu viðeigandi ráðstafanir vegna þessara möguleika nú þegar. Einnig þyrfti að kanna möguleg áhrif flóðbylgju á önnur svæði á Suðurlandi. Fyrstu viðbrögð í Vestmannaeyjum yrðu væntanlega að bjarga öllum skipum úr höfninni, ella myndu þau mörg enda uppi á bryggjum. Morgunblaðið/Þorkellm hættur í hafinu var vel sótt.                    

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.