Morgunblaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þetta hefur ekkert með rétt eða rangt að gera, Davíð minn. Þetta er bara eðlið að velta sér upp úr leðju. Íbúum í Vestmannaeyj-um hefur fækkað áumliðnum árum eins og víðar á landsbyggðinni. Ef litið er yfir tölur Hag- stofunnar yfir mannfjölda- þróun sést að þeir voru 4.926 í Vestmannaeyjabæ árið 1990, fjölgaði reyndar um sjö árið eftir, en hefur síðan fækkað hægt og bít- andi og voru við árslok 2004 4.227 samkvæmt bráðabirgðatölum Hag- stofunnar. Tæplega 100 voru á skrá yfir atvinnulausa við árslok 2004, samkvæmt tölum frá Vinnu- málastofnun. Bæjarbúar eru margir uggandi um stöðuna og nefna einkum bætt- ar samgöngur sem lausn á vand- anum og horfa til jarðganga. Jarð- göng yrðu „bylting“ fyrir Eyja- menn og myndu treysta sam- keppnisgrundvöll fyrirtækja þar og á fastalandinu, m.t.t. til flutn- inga segja margir. Í ályktun sem Eyverjar, félag ungra sjálfstæðismanna í Eyjum, sendi frá sér á dögunum eru þing- menn flokksins og ráðherra sjáv- arútvegsmála hvattir til að opna augun fyrir því bága ástandi sem nú ríkir í atvinnumálum í bæjar- félaginu. Fullyrt er að 8–10 fjöl- skyldur flytjist frá Eyjum í jan- úarmánuði og ekki ólíklegt að fleiri fylgi í kjölfarið ef ekkert verður að gert. Þeir sem rætt var við sögðust engar forsendur hafa til að taka undir fullyrðingar í þessa veru. Líta bæri til þess að á móti sneri fólk til baka. Tölurnar bæru þó vitni um þróunina. Í ályktun Ey- verja segir einnig að í tíð núverandi sjávarútvegsráðherra hafi sífellt verið vegið að hagsmunum Eyja- manna, álögur á sjávarútveg hafi hækkað með upptöku auðlinda- gjalds og ekkert gert til að auka veiðiskyldu skipa. Þá hafi þjónusta, líkt og sú sem Rannsóknamiðstöð fiskiðnaðarins veiti, minnkað um- talsvert. Bergur E. Ágústsson, bæjar- stjóri Vestmannaeyjabæjar, segir þetta vandamál sjávarbyggða, í hnotskurn. „Við skulum gera okk- ur grein fyrir því að sjávarútvegur- inn hefur farið í gegnum gríðarlega hagræðingu sem hefur verið nauð- synleg til að auka samkeppnis- hæfni greinarinnar á erlendum mörkuðum. Þetta er kostnaður sem fyrst og fremst sjávarbyggðir eins og Vestmannaeyjar hafa þurft að gjalda fyrir,“ segir hann. Það sé til hagsbóta fyrir þjóðina í heild en á móti hafi störfum í kringum sjáv- arútveg fækkað verulega á lands- byggðinni en fjölgað í Reykjavík. Dæmin sanni þetta. Um 130 störf eru í Landhelgisgæslunni, 80 í Rannsóknastofu fiskiðnaðarins, 120 í Fiskistofu, 25 í Vaktstöð sigl- inga, 68 í Siglingastofnun og um 170 í Hafrannsóknastofnun, sam- anlagt 593 störf, þar af eru 2½ stöðugildi í Vestmannaeyjum. „Og þetta er sá staður sem er með 10,6% af aflaheimildum lands- manna,“ bendir Bergur á Bergur segir að þrátt fyrir að reynt hafi verið að horfa til nýsköp- unar og fleiri atvinnugreina verði ekki horft framhjá sérstöðu Vest- mannaeyja og þar gegni sam- göngur lykilhlutverki og miklar vonir bundnar við jarðgöng. Þess má geta að nýlega samþykkti rík- isstjórnin að veita 20 milljónir króna í rannsóknir á setlögum næsta sumar svo hægt verði að meta raunverulegan kostnað. Að sögn Bergs bendir ýmislegt til að hægt sé að grafa og fullvinna göng milli lands og Eyja fyrir 16–18 milljarða króna. „Frá mínum bæj- ardyrum séð yrði þetta algjör bylt- ing fyrir samfélagið í Eyjum og samfélagið á fastalandinu.“ 15 þúsund tonn af bolfiski flutt óunnin úr landi Arnar G. Hjaltalín, formaður stéttarfélagsins Drífandi í Vest- mannaeyjum, tekur undir að al- mennt sé atvinnuástandið ekki gott og of einhæft. Skortur sé á léttari þjónustustörfum fyrir fólk sem ekki treystir sér til að vinna hefð- bundin fiskvinnslustörf. Þá spila samgöngumál inn í. Meðal annars hafi fyrirtækið Ís- lensk matvæli hætt starfsemi í Eyjum fyrir um tveimur árum og flutt sig um set. Ástæðan var sú að fyrirtækið þurfti að senda frá sér vörur daginn áður og geyma á lag- er í Reykjavík áður en hægt var að flytja þær á áfangastað. Þá bendir Arnar á að frá Vest- mannaeyjum eru flutt út um 15 þúsund tonn af óunnum bolfiski á ári en það samsvarar árskvóta stærsta vinnuveitandans í Eyjum, Vinnslustöðvarinnar hf. Án efa megi vinna hluta aflans í landi og fjölga þar með störfum. Atvinnurekendur í sjávarútvegi sem rætt var við segja engan skort á störfum í greininni. Magnús Kristinsson, framkvæmdastjóri út- gerðarfyrirtækisins Bergs-Hugins ehf., segir að fyrirtækið ráði í æ meira mæli til sín sjómenn af fasta- landinu. Fólk sem flytji sæki einfaldlega í önnur störf. Enginn samdráttur sé í vinnslunni. „Það er að verða meiri sérhæfing í öllum greinum þjóð- félagsins, þar með talið sjávarút- vegi.“ Sem dæmi hafi þurft um 2– 300 manns við síldarsöltun fyrir tíu árum en fáir starfsmenn fylli það skarð í dag. Fréttaskýring | Atvinnumál og mann- fjöldaþróun í Vestmannaeyjum Treysta á jarðgöng Vestmannaeyingum hefur fækkað um rúmlega 700 á rúmum áratug Lífið er fiskur í Eyjum. Starfstengt nám í viðburðastjórnun  Eitt af því sem Vestmanna- eyingar hyggjast koma á fót í haust er nám í viðburðastjórnun. Viðburðastjórnun er starfstengt nám á framhaldsskólastigi (fjórar annir) og háskólastigi (60 ein.). „Við erum auðvitað með þessu að nýta þá þekkingu og þann mann- auð sem við höfum í að halda stór- viðburði, ekki endilega í Vest- mannaeyjum, heldur líka á landsbyggðinni,“ segir Guðrún Erlingsdóttir, forseti bæjar- stjórnar, um nýja námið. kristjan@mbl.is LÖGREGLAN á Akranesi lagði hald á kókaín, amfetamín og hass í fyrrinótt og um síðustu helgi. Hafði hún afskipti af alls fjórum mönnum vegna málanna tveggja. Aðfaranótt laugardags var maður handtekinn á Akranesi vegna gruns um fíkniefnamisferli. Þegar hann sá lögreglumenn kast- aði hann frá sér tveimur litlum bögglum sem reyndust innihalda um tvö grömm af ætluðu kókaíni. Hann var handtekinn og í framhaldi fram- kvæmd húsleit heima hjá honum þar sem fundust um fjögur grömm af hassi. Í fyrrinótt stöðvuðu svo lögreglu- menn bifreið við umferðareftirlit. 160 grömm af hassi Í henni voru þrír ungir menn og þótti hegðun þeirra einkennileg. Ákveðið var að skoða nánar hvað þarna var á ferð og var framkvæmd lausleg leit á vettvangi. Fundust þá fjögur grömm af ætluðu amfetamíni sem einn þeirra hafði látið falla á jörðina. Í framhaldinu voru mennirnir færðir á lögreglustöð og fór þar fram ítarlegri leit og fundust þá í bifreið- inni 160 grömm af hassi. Mennirnir viðurkenndu við yfirheyrslur í nótt að eiga efnin saman og að hluti þeirra hafi verið ætlaður til sölu norður í landi. Fíkniefni tekin á Akranesi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.