Morgunblaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 16
H S S F K H K Helgin 28. - 30. janúar föstudag, laugardag og sunnudag Sérstakur matseðill alla helgina Sjávarréttasúpa Rauða Hússins VAL UM AÐALRÉTT: Katalónskur saltfiskréttur með rótargrænmeti og fersku salati eða Fylltar kjúklingabringur með Camembert og kryddjurtum Heimalagaður ís og ávaxtasalat Kaffi Verð kr. 2.900,- Einnig er humar, kjöt og fiskréttir á matseðli. Eyrarbakka Sími 483 3330 raudahusid@raudahusid.is Höfuðborgin | Akureyri | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Hundaskítur stingur upp kollinum | „Ekki er allt jafn geðslegt sem undan snjónum kemur í þíðunni,“ segir á vef Skarps á Húsavík en hann hafði fengið kvartanir vegna hundaskíts sem víða sting- ur upp kollinum þegar snjórinn hörfar. Bent er á að lög um hundahald séu í gildi og hundaeigendum „beri að hafa með sér þar til gerða poka undir saur sinna bestu vina þá þeir spássera saman um bæinn. Þetta virðist ganga þolanlega yfir sumarið, en menn virðast slaka á klónni (ef hægt er að orða það svo) yfir veturinn þegar skíturinn hverfur snimmendis í drifhvíta mjöllina og er því ekki að þvælast fyrir hunda og manna fótum um sinn. En nú eru sem sé þessar afurðir vetrartíðar að koma í ljós og því miður all víða,“ að sögn viðmælenda Skarps. Hálf milljón vegna aukatíma | Bæj- arstjórn Vesturbyggðar hefur samþykkt að veita sérstöku viðbótarfjármagni, vegna verkfalls kennara, allt að kr. 500.000, til að mæta nauðsynlegum aukatímum í náms- greinum til samræmdra prófa í 10. bekk Grunnskóla Vesturbyggðar. Leitað verði hagkvæmustu leiða sem kostur er á til að ná þeim markmiðum sem að er stefnt innan hverrar námsgreinar, m.a. skoðað sér- staklega hvort Dreifmenntaverkefnið geti nýst í þessu skyni. Skólabúðirnar íKiðagili í Bárð-ardal hafa nú opn- að vef þar sem finna má allar helstu upplýsingar um starfsemina. Skóla- búðirnar hafa fengið gríðarlega góðar við- tökur, segir í frétt. Á síðunni bardardalur.is má finna margvíslegar upplýsingar um búðirnar og geta áhugasamir kynnt sér þar hvað í boði er. Í skólabúðunum er fengist við fjölbreytt við- fangsefni, val er um gistináttafjölda og þang- að geta komið grunn- skólanemendur á öllum aldri. Búðirnar eiga sér ekki hliðstæðu hérlendis svo vitað sé. „Dvöl þar er einstök upplifun og móttóið er: Já, ekkert mál!“ Skólabúðir í Bárðardal Hátíðartónleikar voru haldnir í skólahúsinu áKópaskeri í tilefni af því að Aðalheiður Árna-dóttir frá Bakka hefur gefið íbúum Kópaskers og nágrennis nýjan flygil. Þessi höfðinglega gjöf er til minningar um foreldra Aðalheiðar, Ástfríði Árnadóttur og Árna Ingimund- arson og einnig ömmu hennar Sabínu Jónsdóttur. Þau Ástfríður og Árni voru fyrstu ábúendur á Kópaskeri. Aðalheiður Þorsteinsdóttir afhenti flygilinn fyrir hönd nöfnu sinnar og frænku. Fram komu 14 hljóðfæraleik- arar og söngvarar, heimafólk, brottfluttir og aðrir gestir, en tónleikarnir þóttu takast í alla staði mjög vel. Um 150 manns mættu, fleiri en íbúar Kópaskers. Að hátíðinni lokinni bauð Kvenfélagið Stjarnan við- stöddum upp á kaffi og tertu. Morgunblaðið/Kristbjörg Gaf flygil Friðrik Stein-grímsson yrkir útaf formannsslag Samfylkingarinnar: Össur hress var ekki par með ýmsar formanns hreyfingar Gylfi Arnbjörns allur var Ingibjargar Sólrúnar. Sigrún Haraldsdóttir yrk- ir: Hart um beinið bítast vargar, blóð úr sárum lagar. Undan brögðum Ingibjargar Össur særður klagar. Hjálmar Freysteinsson orti limru í fyrrasumar: Þótt veraldargæfan sé vís ei hún Veiga mín hér eftir frýs ei, hún er komin með mann, hún krækti í hann á kræklingahátíð í Hrísey. Nafni hans, Davíð Hjálm- ar Haraldsson, spreytir sig líka á limrum: Ragnheiður Kristleifs frá Rana var raungóð af hugsjón og vana, samt kom nú Jón með sérstakri bón svolítið flatt upp á hana. Hugsjón og vani pebl@mbl.is Akureyri | Það færist mjög í vöxt að skíðafólk lengi ferð sína í Hlíðarfjall og renni sér áleiðis niður í bæ að lokinni ferð í fjallið. Einkum og sér í lagi er þetta vin- sælt meðal barna og ungmenna sem fá langa aukaferð í lok úti- vistar í fjallinu. Sjálfsagt kemur þetta fyrirkomulag sér ekki síður vel fyrir foreldra og for- ráðamenn sem þurfa þá ekki að aka alla leið upp að skíðahóteli til að sækja börnin, heldur dugar að fara að bænum Hlíðarenda sem stendur við rætur Hlíðarfjalls. Morgunblaðið/Kristján Brunað í bæinn Skíðafólk Skagafjörður | Fulltrúar í meirihlutans í Sveitarstjórn Skagafjarðar, Sjálfstæðis- flokks og Vinstri grænna, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að samstarfið, sem staðið hafi í þrjú og hálft ár, hafi verið árangursríkt. „Á þeim tíma hefur tekist með margvíslegum hætti að treysta stoðir skagfirsks samfélags og gera héraðið að enn betri búsetukosti,“ segir í yfirlýsing- unni og einnig að stjórnsýsla hafi verið endurskipulögð og gerð markvissari ásamt því að tekið hefur verið á fjárhagsstöðu sveitarfélagsins. „Meirhlutaflokkarnir munu áfram starfa markvisst saman að málefnum sveitarfélagsins,“ segir í yfirlýs- ingu fulltrúa meirihlutaflokkanna. Þá kemur einnig fram í yfirlýsingu sveit- arstjórnarhóps Vg að hann beri fullt traust til allra sveitarstjórnarfulltrúa samstarfs- flokksins. Þá segir að samstarfið hafi í heild gengið vel og verið árangursríkt fyrir héraðið. „Fulltrúar Vg bera fullt traust til allra sveitarstjórnarfulltrúa samstarfsflokksins og harma að fréttaflutningur og óheppileg orð sem fallið hafa í garð Bjarna Marons- sonar í tengslum við nýlegan úrskurð fé- lagsmálaráðherra hafi valdið einhverjum vafa um slíkt. Niðurstaða sem Vg taldi þar nauðsynlegt að fá í álitamáli liggur nú fyr- ir,“ segir í yfirlýsingunni. „Það er sannfær- ing þeirra sem standa að sveitarstjórnar- starfi Vg að flokkarnir muni eins og áður í samstarfinu skilja að baki ágreining og vera áfram það sterka afl sem Skagfirð- ingar kusu til forystu í síðustu sveitar- stjórnarkosningum. Samstarf vinstri grænna og sjálfstæðismanna í sveitar- stjórn hefur í heild sinni gengið vel og verið árangursríkt fyrir héraðið. Fulltrúar Vg hafa ekki aðrar væntingar en þær að það farsæla samstarf haldi áfram af gagn- kvæmu trausti.“ Meirihluta- samstarfið verið árang- ursríkt Rjúpur í görðum | Rjúpur hafa ekki verið óalgeng sjón í byggðarlögum víða um Vest- firði undanfarnar vikur. Nú þegar þeim fer að fækka í frystikistum margra heimila eru rjúpur farnar að vera þaulsætnir gestir í görðum. Fram kemur á vef Náttúrustofu Vestfjarða að gott sé að gefa þeim kurlaðan maís og hveitikorn.      

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.