Morgunblaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 27.01.2005, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNING B ragi byrjar á því að segja, hvað það hafi komið honum á óvart að verða fyrstur myndlist- armanna í kynningu Skóla- vefjarins og Þjóðmenning- arhússins. Myndlistarmennirnir Hjörtur Hjartarson og Þóroddur Bjarnason eru mennirnir á bak við verkefnið og Hjörtur hefur sagt í viðtali, að þegar þeir Þóroddur hafi farið að ræða, hvaða listamaður væri til verkefnisins fallinn, hafi þeim strax dottið Bragi Ásgeirsson í hug. „Fyrir utan það hvað hann er frábær listamaður hefur hann verið lengi í bransanum – allt frá stríðs- lokum í raun og veru. Það er því auðvelt að skoða listasöguna meðfram ferli hans og tengja ákveðin tímabil við vissa ein- staklinga. Síðan hefur hann alltaf verið virkur í umræðu um myndlist, og hefur líka kennt hana. Það lá mjög vel við að velja hann.“ Á Skólavefnum er æviágrip listamanns- ins, yfirlit yfir verk hans og viðtalsbútar, þar sem Bragi fjallar um myndir sínar og hugmyndir um myndlist og listsköpun. Hugmyndin er svo að bæta við grunninn með tíð og tíma eftir því sem verkum og sýningum Braga fjölgar. „Þetta er hugsað þannig að vera eins konar lifandi íslensk listasaga, sem myndlistarmennirnir sjálfir geti jafnvel haldið áfram að þróa eftir að hinni formlegu umfjöllun um þá lýkur. Þannig getur orðið til mjög öflugur gagna- grunnur um íslenska listasögu.“ „Skólavefurinn mjög merkileg og þörf framkvæmd,“ segir Bragi. „Ég bind miklar vonir við hann til framgangs listunum. Á vefnum eru allir hlutir gegnsæir, en mynd- listin á Íslandi er yfirmáta ógagnsæ, fólk á þar af leiðandi erfitt með að átta sig á því, hvað er að gerast og hvað hefur gerzt, það skortir heildarsýn. Á skólavefnum fær ungt fólk verkefni og kynnist þar með skáldum og myndlist- armönnum. Þarna er tæknin notuð á réttan hátt til stuðnings listunum. Ég sé í hendi minni, að þetta á eftir að verða stórkostlegt framtak, þegar menn hafa áttað sig á öllum möguleikum þess.“ Það sem helzt hann varast vann Til áherzluauka er svo sýning á myndum Braga Ásgeirssonar í Þjóðmenningarhúsinu; í veitingabúð og sýningarsal í kjallara. Þarna eru 27 verk; það elzta frá 1951 og þau yngstu frá síðasta ári. „Sjáðu til,“ segir listamaðurinn. „Ég lagði á það áherzlu, að þessi sýning í Þjóðmenn- ingarhúsinu yrði ekki yfirlitssýning, heldur valdi ég til hennar samtíning og sitt hvað frá upphafi ferils míns fyrst og fremst og svo frá síðustu árum. Hér skilur hálf öld.“ – Eiga þessi verk eitthvað sammerkt? „Þótt langur tími sé í milli þeirra má sjá með þeim skyldleika, aðallega í lit og í blæ- brigðum. Formin eru svolítið önnur og fjöl- þættari. En miðað við aðstæður má telja þetta mjög eðlilega þróun.“ – Af hverju þín elztu verk og þau yngstu og fátt þar í milli? „Verkin eru frá tveimur tímabilum, þegar ég hef getað einbeitt mér til fulls að mál- verkinu; þau elztu málaði ég áður en brauð- stritið helltist yfir mig og síðustu mynd- irnar eru málaðar eftir að ég hætti að kenna og minnkaði mikið við mig gagn- rýniskrifin.“ – Finnurðu mikinn mun á þessum tveim- ur tímaskeiðum og svo þeim tíma, þegar þú sinntir öðrum störfum með listinni? „Það er mikill munur á þessu tvennu. Ég hefði auðvitað viljað ganga að mál- verkinu til reglulegrar og fullrar vinnu á hverjum degi, en varð þess í stað að láta mér lengi vel nægja helgar og stórhátíðir til slíks. Aðra daga tók brauðstritið sinn toll. En ég er vel að skrokki kominn og hef allt- af getað unnið tvöfalda og þrefalda vinnu og fór á vinnustofuna á hverjum degi eftir kennslu. En útkoman verður eðlilega einhvern veginn önnur, þegar hugurinn er dreifður.“ – Ertu bitur vegna þessa hlutskiptis þíns? „Ég er ekki bitur, bara raunsær. Ég hefði ekki átt að koma heim svona snemma. En mér var ekki sjálfrátt og svo festist ég í lífsrútínunni. Ég stefndi að því að verða vel menntaður myndlistarmaður og var orðinn það með sex ára nám við þrjár listaakademíur og þar áð- ur tveggja og hálfs árs nám við Hand- íðaskólann. Það lá flest opið fyrir mér. Það var einkum þrennt sem ég stefndi ekki að að verða; fjölskyldumaður, kennari og gagnrýnandi. En allt í einu var ég orðinn fjölskyldumaður og þá fylgdi brauðstrið með; kennsla og myndlistargagnrýni! Til kennslunnar gekk ég skuldbundinn Lúðvíg Guðmundssyni á sérstakan hátt, ég gat ekki neitað honum um að koma og kenna. Hins vegar neitaði ég að koma aftur, en þá tóku nemendurnir til sinna ráða og seiddu mig í kennsluna aftur. Síst hafði mér dottið í hug að fara að skrifa rýni um aðra. Ég hef aldrei haft hneigð til þess að vera á þann hátt átorítet. En Valtýr Pétursson togaði mig inn á Morgunblaðið. Svona fór þetta nú allt saman. Það sem helzt hann varast vann, varð þó að koma yfir hann! En auðvitað var þetta í það heila mikil lífsreynsla, sem ég bý að. Ég sakna sárlega samverunnar við unga fólkið í skólanum. Hún gat verið svo frísk- andi. Hins vegar sakna ég ekki skólans sjálfs! Og ekki sakna ég gagnrýninnar! Reyndar var mjög lærdómsríkt að skrifa list- gagnrýni, sem er hérumbil óframkvæm- anlegt í svona litlu landi þar sem sjónheim- urinn er ekki námsfag í menntakerfinu. Hér kunna fáir að taka gagnrýni, enda engir upplýstir um það svið né sértækt gildi hennar. Gagnrýn umræða er hvergi þróuð. Það er með listina eins og taflmennskuna; sumir eru svo hræðilega tapsárir, að það er nánast ekki þorandi að vinna þá! Ég tefldi mikið í gamla daga, en gafst upp, í og með fyrir þá sök, að mótherjarnir og meistarar þar með taldir kunnu margir ekki þá list að tapa. Það er óskaplega vont veganesti í skák eins og lífinu sjálfu að kunna ekki að tapa. Nú er ég minna virkur sem gagnrýnandi, skrifa helzt greinar. Það er að mörgu leyti erfiðara, en um leið skemmtilegra starf og þakklátara. Minni þörf á að ganga í skot- heldu vesti!“ Listin er blóðrás – Hvað ertu að segja okkur með mynd- unum þínum? „Það verður sérhver að skoða málverkin eftir sínu höfði og vega þau og meta eins og þau koma honum fyrir sjónir. Það er oft furðulegt að fylgjast með fólki skoða mál- verkin og með ólíkindum, hvað sumir segj- ast lesa út úr þeim. En ég er ekki að mála fyrir fólk. Ég var ekki nær tíu ár í listaskólum til þess að mála svo vínarbrauð með glassúr fyrir óupplýstan almenning.“ – Heldur hvað? „Ég hef málað samkvæmt grunni mennt- unar minnar og lífsreynslu. Það er stórt orð að standa við; að vera málari. Það hefur verið takmark mitt.“ – Og standa vörð um listina. „Listin er blóðrás. Hún er grunnurinn sem allt hvílir á; við köllum það mannauð og hugkvæmni. Ef við ættum ekki formtilfinningu og ef ekki bærðust með okkur kenndir fyrir skap- andi atriðum, þá værum við enn á árabáta- stiginu. En þetta kemur ekki af sjálfu sér. Það er ekki almenningur sem finnur upp hlutina, heldur einstaklingar. Listamenn eru eins konar uppfinningamenn og margir í eðli sínu afbragðs kokkar! Þeir uppgötva og upplifa. Það er þessi skynræna tilfinning; þessar skapandi kenndir. Hundar hafa tvö þúsund sinnum næmara lyktarskyn en maðurinn. Þeir þekkja ekki aðeins húsbónda sinn á lyktinni, þegar hann kemur heim, heldur vita þeir líka hvað hann hefur verið að gera og hvar. Á líkan hátt þyrftum við að skynja listina, öll skynfæri mannsins má þroska. En að skynja hlutina er ekki kennt í skólum hér á landi. Sjónheimurinn er því svo mörgum sem lokuð bók. Almenningur kaupir þannig aðallega myndefni, ekki málverk.“ – Hvað segir þú um þá umsögn, að þú gangir nú í endurnýjun listadaganna? „Ekki endurnýjun. Það er langt ferli að baki. Maður hefur þetta í sér, en nær ekki að þróa það fullkomlega. Mér finnst ég ekki hafa gengið í endurnýjun lífdaganna, heldur má orða það svo, að ég sé aftur kominn í þau spor, þar sem ég stóð í kringum 1960. Þess vegna má líkast til sjá skyldleika með myndum mínum frá þeim tíma og svo þeim sem ég hef gert á síðustu árum. Þetta eru að hluta ósjálfráð og meðvituð tengsl, en ég bý nú að stórum meiri yfirsýn og gagnvirk- ari reynsluheimi.“ – Og nú ertu aftur frjáls í málverkinu. „Já! Ég er sloppinn úr Gúlaginu! Ég hef drjúgar væntingar til komandi ára í ljósi samfelldari vinnubragða. Það er svo margt að gerast í myndlist- inni. Og ég fylgist með af fremsta megni. Þetta eru spennandi tímar.“ – Hvað er sérstakt? „Það er eitt sem ég er stöðugt að reka mig á; því meira sem ég sé af nútímaverk- um, þeim mun betur kann ég að meta verk frá eldri tímaskeiðum. Það sem ég á við er að samfara því sem nýjungar yfirtaka sviðið í æ ríkara mæli veitist okkur sýn á eitt og annað í eldri verkum sem fyrrum var hulið. Þannig opnar nútíminn og ekki sízt tæknin okkur sýn til eldri tíma. Gott dæmi um þetta eru nútímahögg- myndirnar, sem seint á sjöunda áratug síð- ustu aldar spruttu upp út um borg og bý. Þær urðu með tímanum til þess að það var líka gott og gaman að rekast á eldri félaga þeirra; þessar gömlu höggmyndir, sem voru taldar úrkynjun í gamla daga, en urðu lif- andi og moderne á ný. Þetta finnst mér ákaflega gefandi og upplífgandi tilfinning!“ – Hvað er þá sízt í samtímanum? „Það tel ég stóran meinbug á hlutunum, hvað nútíminn er á leið með að verða lítið fjölhverfur; allir eru að nudda sér upp við sjálfhverfuna, samhæfinguna og heims- þorpið. Margur heldur sig nafla alheimsins! En þessu er þveröfugt farið; því lengra sem maður leitar út frá eigin sjálfi, því nær kemst maður uppruna sínum.“ Minni þörf á skotheldu vesti Morgunblaðið/Jim Smart Bragi Ásgeirsson: „Verkin eru frá tveimur tímabilum, þegar ég hef getað einbeitt mér til fulls að málverkinu; þau elztu málaði ég áður en brauðstritið helltist yfir mig og síðustu myndirnar eru málaðar eftir að ég hætti að kenna og minnkaði mikið við mig gagnrýniskrifin.“ Fyrsti myndlistarmaður mánaðarins hjá Skólavefn- um og Þjóðmenningarhúsi er Bragi Ásgeirsson. Frey- steinn Jóhannsson ræddi við Braga af þessu tilefni. Veggspjald Skólavefjar og Þjóðmenningar- húss. Myndina til vinstri tók Zannucoli via Taranto 1954 og hina tók Jim Smart 2003. Bragi segir að sá ítalski hafi stillt myndinni út í glugga hjá sér á milli mynda af tenór- unum Giuseppe di Stefano og Mario del Monaco. „Þetta hef ég komizt lengst í söng- listinni,“ segir Bragi. freysteinn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.