Morgunblaðið - 30.01.2005, Page 1
HALLDÓR Ásgrímsson
forsætisráðherra segir að
frumvarp viðskiptaráðherra
um endurskipulagningu
Samkeppnisstofnunar og
lög um hringamyndun verði
vonandi lagt fyrir Alþingi á
næstu dögum.
„Málið bíður afgreiðslu í
öðrum stjórnarflokknum, en
ég vona að því ljúki næstu
daga þannig að það geti far-
ið inn í þingið. Ég tel að stærstu atriðin í þeim
efnum séu eftirlitsþátturinn og viðurlagaþáttur-
inn. Það hafa komið upp spurningar milli Sam-
keppnisstofnunar og lögreglunnar sem þarf að
skýra. Við þurfum að hafa þetta umhverfi frjálst
en að hafa eftirlitið sem öflugast. Okkur er það
ljóst að við þurfum að efla Samkeppnisstofnun
og það er gert ráð fyrir því á fjárlögum,“ segir
Halldór.
Markaður fyrir íslenskar afurðir
Halldór segist telja að mikil útrás í íslensku
efnahagslífi muni skila sér miklu betur inn á við
þegar fram líða stundir. Bakkavör, sem vonandi
kaupi stórfyrirtækið Geest, muni hafa í för með
sér að fyrirtækið verði stærsti framleiðandi
tilbúinna rétta í heiminum. „Þeir hafa verið að
skoða kaup á íslenskum afurðum eins og fiski og
landbúnaðarvörum,“ nefnir Halldór.
Hann segist ljóst að sala Símans muni styrkja
fjárhag ríkisins og gera ríkissjóð hæfari til að
standa undir mikilvægum verkefnum. „Það bíða
mjög stór verkefni í samgöngumálum næstu 10
árin. Þessi verkefni eru að verða brýnni vegna
breyttra þjóðfélagshátta. Það er mikil uppbygg-
ing í þjóðfélaginu. Flutningarnir eru komnir
meira og minna á vegina og þess vegna þurfum
við að taka betur á þeim málum. Við höfum
ákveðið að hægja á framkvæmdum 2005–2006
vegna annarra framkvæmda, en í framhaldi af
því verðum við að auka þessar framkvæmdir á
ný,“ segir Halldór.
Áhugi á byggingu álvers á Norðurlandi
Um nýjar stóriðjuframkvæmdir í framhaldi af
yfirstandandi álvers- og virkjanaframkvæmdum
fyrir austan segir Halldór óljóst um framhaldið.
„Það liggur hins vegar fyrir að það er áhugi á
að stækka álverið í Straumsvík. Það er einnig
áhugi á því að ráðast í byggingu álvers á Norður-
landi. Sá áhugi hefur komið fram hjá nokkrum
aðilum. Hvort af því verður er erfitt að segja til
um,“ segir forsætisráðherra.
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að frumvarp um
hringamyndun verði vonandi lagt fyrir Alþingi á næstu dögum
Við erum stoltir/10–11
Halldór
Ásgrímsson
Stærstu atriðin varða
viðurlög og eftirlit
STOFNAÐ 1913 28. TBL. 93. ÁRG. SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Yfirburðir
Hollywood
Bandarískar framhaldsmyndir
röðuðu sér í efstu sætin | Menning
Tímaritið og Atvinna í dag
Tímaritið | Leikmyndahönnun er lausn vandamála Fagurkeri fram í fing-
urgóma Hörkutólið sem söng gegnum tárin Atvinna | Fleiri nýskráningar
hlutafélaga Staða miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði verði styrkt
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
KONUNGURINN í Bhutan í Himalajafjöll-
um, Jigme Singye Wangchuk, segist ætla
að halda áfram að reykja þótt allar reyk-
ingar og sala á
reyktóbaki hafi
verið bönnuð í
landinu í síðast-
liðnum mánuði.
„Ég er reyk-
ingamaður. Ég er
að reyna að draga
úr sígarettureyk-
ingunum,“ sagði
konungurinn á blaðamannafundi í Nýju
Delhí í Indlandi í gær er sex daga opin-
berri heimsókn hans lauk. Hann neitaði að
segja frá því hve margar sígarettur hann
reykti á dag og skýrði ekki frá því hve
marga pakka hann tæki með sér heim frá
Indlandi. „En ég á fjórar eiginkonur og
ætti þess vegna að hætta að reykja,“ sagði
hann.
Hans hátign Jigme
reykir samt
Nýju Delhí. AFP.
Jigme Singye Wangchuk
SJÁLFSMORÐSSPRENGJUMAÐUR varð
átta manns að bana við lögreglustöð í Khanaqin,
skammt frá írösku landamærunum í Kúrdahér-
uðum Íraks, í gær. Ráðist var á kjörstaði í a.m.k.
átta borgum í landinu í gærmorgun en fyrstu
frjálsu þingkosningarnar í hálfa öld í landinu
verða í dag, sunnudag. Rúmar fjórtán milljónir
manna eru á kjörskrá.
Víða ríkti mikill ótti við tilræði enda hafa
hryðjuverkamenn hótað þeim sem kjósa öllu illu.
Segjast þeir ætla að láta blóðið „fljóta í stríðum
straumum“ um götur Íraka.
Vélbyssugelt heyrðist á nokkrum stöðum í
miðborg Bagdad um hádegisleytið að þarlendum
tíma og miklar sprengingar urðu nokkru síðar.
Bandarískur herþotur flugu yfir borgina og ör-
yggisviðbúnaður var geysimikill um allt landið.
Íraskir lögreglumenn og hermenn settu upp um-
ferðartálma á götum Bagdad en fátt var af fólki. Í
ljós hefur komið að hundruðum lögreglubúninga
hefur verið stolið í borginni Basra í Suður-Írak
og er talið að hryðjuverkamenn hyggist nota þá
til að komast í gegnum varðstöðvar.
George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði í gær
að hermdarverkamenn myndu gera allt sem þeir
gætu til að spilla kosningunum. „Hermdarverka-
menn og þeir sem nutu góðs af harðstjórn Sadd-
ams Husseins vita að frjálsar kosningar munu
gera fólki ljóst að þeir boða enga framtíðarsýn
fyrir Írak,“ sagði forsetinn.
Reuters
Íraskir lögreglumenn og hermenn voru með mikinn viðbúnað í höfuðborginni Bagdad í gær, hér er einn þeirra við kosningaspjald.
Hóta blóðugum kjördegi
Bagdad, Washington. AP, AFP.
VÍSINDAMENN Heimskautastofnunar-
innar í Noregi óttast nú að nýjar gerðir eit-
urefna, mengun frá gömlum birgðastöðvum
og loftslagsbreytingar muni valda því að
setja verði af heilsufarsástæðum takmark-
anir á neyslu á fiski og kjöti frá Barentshaf-
inu, að sögn fréttavefjar Aftenposten í gær.
Blaðið segir framleiðendur benda á að þessi
tíðindi gætu valdið ótta hjá neytendum,
ekki síst á Frakklandsmarkaði sem hefur
orðið æ mikilvægari varðandi kaup á þorski
og ufsa frá Noregi.
„Eitt mikilvægasta tromp okkar Norð-
manna er hreinn fiskur frá köldu hafi langt í
norðri,“ segir Arne Hjeltnes sem er útflutn-
ingsfulltrúi í Hong Kong. „Við lifum á þessu
orðspori,“ segir hann.
Kåre Julshamn, sem stýrir rannsóknum
hjá stofnun er annast rannsóknir á sjávar-
afurðum, NIFES, gerir lítið úr hættunni.
Segir hann að umrædd eiturefni séu að
miklu leyti uppleysanleg í fitu og skipti því
litlu fyrir magran fisk á borð við þorsk, ufsa,
ýsu og keilu.
Fiskurinn í
Barentshafi
varasamur?
ÚTFÖR Zhaos Ziyangs, leiðtoga kínverska
kommúnistaflokksins 1987–1989, fór fram í
gærmorgun í Peking. Meðal viðstaddra var
að sögn breska ríkisútvarpsins, BBC, fjórði
valdamesti maður kommúnistaflokks Kína,
Jia Qinglin, en þekktum andófsmönnum og
embættismönnum, sem vitað er að voru
hlynntir hinum látna, var bannað að vera við
athöfnina.
Zhao sat í stofufangelsi síðustu 15 ár ævi
sinnar fyrir að sýna andófsmönnum á Torgi
hins himneska friðar árið 1989 skilning og
samúð en honum var vikið frá eftir blóðbaðið
á torginu.
„Félagi Zhao Ziyang lagði flokknum og
þjóðinni gott til á tímabili umbóta og opn-
unar,“ sagði ríkisfréttastofan Xinhua í gær.
„En í pólitísku umróti vorið og sumarið 1989
gerði félagi Zhao Ziyang alvarleg mistök.“
Kínverska ríkissjónvarpið skýrði stuttlega
frá útförinni og er það í fyrsta skipti sem
stofnunin minnist á nafn hans frá árinu 1989.
Zhao jarðsettur
Peking. AFP.
♦♦♦
♦♦♦