Morgunblaðið - 30.01.2005, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Budget bílaleiga: 2 verð
einfalt val.
Tíminn er dýrmætur, ekki flækja málin. Fólksbílar 3.900 krónur á dag frá Toyota Yaris
upp í Kia Magentis. Jeppar 6.900 krónur á dag frá Toyota Rav4 upp í Toyota Land Cruiser.
Innifalið í verði er ótakmarkaður akstur og kaskótrygging.
Budget bílaleiga, Sími 562 6060, Dugguvogi 10, 104 Reykjavík, www.budget.is
Budget bílaleiga er á eftirfarandi stöðum á landinu: Reykjavík, Keflavík, Akureyri,
Egilsstöðum, Reyðarfirði, Vestmannaeyjum, Þórshöfn, Þorlákshöfn og Bakka.
Ákvarðanir eru erfiðar. Þær eru auðveldari
þegar möguleikarnir eru bara 2.
C
o
nc
ep
t
NÚ er að líta dagsins ljós viðburða-
dagskrá fyrir Eiða. Sigurjón Sig-
hvatsson segir fyrirliggjandi að 3.–6.
júní fari fram ráðstefna náttúru-
fræðinga á Eiðum. Um miðjan júlí
verði haldið námskeið fyrir börn og
frá 24. júlí til 11. ágúst námskeið
Signýjar Ormarsdóttur menningar-
fulltrúa Austurlands með vestnor-
rænum listnemum. Á sama tímabili
mun verða annað barnanámskeið og
einnig námskeið með Mæðrastyrks-
nefnd. Dagana 11.–14. ágúst fer
fram árlegt listamannaþing Ólafs
Elíassonar.
Af myndlistarsýningum sem
áformaðar eru í sumar tiltekur Sig-
urjón sýningu á hringvegarmyndum
Dieters Roth í samvinnu við
Listahátíð og opnar hún í júníbyrjun
og fer svo hringferð um landið. Í
júlílok verður opnuð sýning á Jöklu-
myndum Ólafs Elíassonar í sam-
vinnu við Lesbók Morgunblaðsins
og KB banka. Á svæðinu við Eiða
sem helgað er útilistagarði, standa
vonir um að koma megi upp nýju
listaverki eftir franska listamanninn
Philippe Parreno og gert er ráð fyrir
viðburðum í kringum verkið Macy’s
eftir þá Paul McCarthy og Jason
Rhoades, sem sett var upp í
tengslum við Fantasy Island-
sýninguna í fyrra. Þá segir Sigurjón
að í sumar verði kynntar framtíð-
arteikningar af sviðslistahúsi og
endurbyggingu Rögnvaldarhúss,
ásamt heildarskipulagi fyrir Eiða-
svæðið.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Fyrirhugaðir eru viðburðir tengdir innsetningu þeirra Pauls McCarthys og Jasons Rhoades.
Eiðadagskrá tekur á sig mynd
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
LOKAÐ hefur verið á skíðasvæð-
um í Bláfjöllum og Hlíðarfjalli á
Akureyri undanfarna daga vegna
veðurs.
Mikinn snjó hefur tekið upp í
Hlíðarfjalli og þær upplýsingar
fengust að töluvert þurfi að kólna
til þess að hægt verði að vinna
með þann snjó sem eftir er.
Í Bláfjöllum var suðvestanátt
10–15 m/s og rigning og fjögurra
stiga hiti í gærmorgun. Lokað
var í Bláfjöllum alla vikuna og
áformað að lokað yrði áfram
meðan hlýindin vara. Þó var opið
tvö kvöld fyrir æfingar í síðustu
viku.
Í Oddsskarði var hvassviðri í
gær og óljóst hvort tækist að
opna skíðasvæðið en þar hefur
ein lyfta af þremur verið opin að
undanförnu, að sögn Rúnars Jó-
hannssonar, forstöðumanns skíða-
svæðisins í Oddsskarði. Lítil ofan-
koma hefur verið í Oddsskarði
það sem af er vetri og sagði Rún-
ar að lítinn snjó hefði tekið upp.
Að sögn Jóhanns K. Torfason-
ar, forstöðumanns skíðasvæðisins
í Tungu- og Seljalandsdal við Ísa-
fjörð, var mjög hvasst í gær og
var áformað að kanna með opnun
svæðisins upp úr hádegi. Mikinn
snjó hefði tekið upp á skíðasvæð-
um í Tungudal en nægur snjór
væri á göngusvæðinu í Selja-
landsdal.
Hlýindin undanfarið hafa leikið skíðamenn grátt
Skíðasvæði víða lokuð
Morgunblaðið/Jim Smart
FRAMLEIÐSLA á kjöti dróst
saman um 4,4% á síðasta ári. Verð
á kjöti hækkaði hins vegar á síð-
asta ári um 11,8%. Mestur sam-
dráttur var í framleiðslu á svína-
kjöti, en svínakjötsverð hefur
einnig hækkað langmest. Það
hækkaði um 60% í fyrra, en árið
2003 varð algjört hrun í greininni.
Verð á svínakjöti er núna örlítið
hærra en það var í árslok 2002.
Samtals voru framleidd 24.116
tonn af kjöti í fyrra en 25.260 tonn
árið 2003. Framleiðsla í öllum kjöt-
greinum dróst saman, mest þó í
svínakjöti, 9,8% og kjúklingum
5,6%. Um 1,7% minna var framleitt
af lambakjöti í fyrra en árið 2003.
Framleiðsla og sala á svínakjöti
og kjúklingum hefur vaxið ár frá
ári síðustu ár, en árið 2004 sker sig
úr að því leyti að þá dróst neysla á
þessum vörum saman. Sala á svína-
kjöti dróst saman um 9% og sala á
kjúklingum dróst saman um 3,4%.
Hins vegar jókst sala á lambakjöti
um 12,3%. Samtals seldust 7.159
tonn af lambakjöti. Þetta er mesta
sala á lambakjöti á einu ári síðan
árið 2000. Markaðshlutdeild
lambakjötsins hefur vaxið mikið á
þessu eina ári. Hún var 32,7% um
síðustu áramót en var 29% fyrir
einu ári.
Eins og áður hefur komið fram
gekk kjötmarkaðurinn gegnum
mikla lægð á árunum 2001–2003.
Verð á kjöti lækkaði mikið vegna
offramboðs og framleiðendur töp-
uðu miklu fé. Nokkur stór fyrir-
tæki í greininni urðu gjaldþrota og
önnur afskrifuðu skuldir samhliða
fjárhagslegri endurskipulagningu.
Kjötverð hækkaði
um 11,8% í fyrra
Greinilegt er að minni fram-
leiðsla hefur haft mikil áhrif á
verðið því að verð á kjöti hækkaði
um 11,8% að meðaltali á síðasta
ári, en vísitala neysluverðs hækk-
aði um 3,9%. Mjög mismunandi er
milli kjötgreina hve hækkunin er
mikil. Samkvæmt tölum Hagstof-
unnar hækkaði verð á svínakjöti í
fyrra um 60%, en hafa verður í
huga að algjört verðhrun varð á
svínakjöti á árinu 2003. Verð á
svínakjöti er núna 7,4% hærra en
það var fyrir tveimur árum sem er
hækkun í samræmi við verð-
lagsþróun.
Kjúklingar hækkuðu á síðasta
ári um 8,8%, en þeir eru samt tals-
vert ódýrari en þeir voru í árs-
byrjun 2003. Lambakjöt og nauta-
kjöt hækkaði í verði til neytenda
um 14,4% í fyrra.
Framleiðsla
á kjöti dróst
saman um 4,4%
LÖGREGLUMENN á Akranesi
höfðu afskipti af manni á föstu-
dagskvöld sem reyndist hafa
fíkniefni í fórum sínum. Maður-
inn, sem áður hefur komið við
sögu lögreglunnar, reyndi að flýja
lögreglu og kastaði frá sér tveim-
ur litlum bögglum sem reyndust
innihalda 4 grömm af amfetamíni
og 11 grömm af sveppum.
Við leit á manninum á lögreglu-
stöð fundust 1,5 grömm af am-
fetamíni og í framhaldi af því var
farið í húsleit á heimili hans. Þar
fundust 25 grömm af hassi, 1,7
grömm af amfetamíni og 2,2
grömm af sveppum. Maðurinn
var í framhaldi af því yfirheyrður
og síðan sleppt. Málið er í rann-
sókn.
Tekinn með fíkni-
efni á Akranesi