Morgunblaðið - 30.01.2005, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 30.01.2005, Qupperneq 14
Karlmaður sem dæmdurvar í hálfs árs fangelsi ífyrrasumar vegna hót-ana, húsbrota og nálgun-arbannsbrota í garð fjöl- skyldu í Reykjavík hefur verið kærður tvívegis fyrir áframhaldandi áreiti frá því hann lauk afplánun síð- astliðið haust. Maðurinn er sakhæf- ur, þótt hann hafi verið greindur af geðlækni með alvarlega persónu- leikaröskun, m.a. af andfélagslegri gerð. Hann hefur valdið miklum ótta hjá fjölskyldunni og hefur verið sak- felldur fyrir líkamsárásir og kærður vegna einnar slíkrar gegn fjöl- skylduföðurnum Helga Áss Grétars- syni. Sambýliskona hans bjó áður með manninum og eignaðist þrjú börn með honum sem búa hjá henni og Helga. Saman eiga þau Helgi svo eitt barn auk þess sem Helgi á eitt barn frá fyrri sambúð. Í geðrannsókn sem lögð var fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í fyrra kom m.a. fram að hugsanagangur manns- ins væri stöku sinnum á mörkum geðrofs og ofstækis, en samt væri ekki hægt að fá fram víðtækar rang- hugmyndir eða ofskynjanir. Var það mat Tómasar Zoëga geðlæknis að maðurinn væri að öllu leyti fullkom- lega ábyrgur gerða sinna. Að mati héraðsdóms báru brot mannsins gagnvart fjölskyldunni merki um ofsa í garð þeirra og einbeittan brotavilja. Hefðu brotin valdið fólk- inu miklum ótta og vanlíðan. Sem dæmi um það sem fólkið mátti þola voru líflátshótanir sem settar voru inn í talhólf Helga, en auk þess hótanir af öðrum toga. Í eitt skiptið króaði hann barnsmóður sína af inni í sorpgeymslu við heimili hennar og hótaði henni lífláti. Var hann ákærður og sakfelldur fyrir þetta og meira til. Frá því maðurinn losnaði úr fang- elsi síðla september 2004 hefur Hæstiréttur dæmt hann í nálgunar- bann, þó ekki eins víðtækt bann og lögreglustjórinn í Reykjavík gerði kröfu um. Var hann handtekinn snemma í desember og úrskurðaður í gæsluvarðhald og ákærður á ný fyrir ætluð brot á nálgunarbanni. Hinn 3. janúar var gæsluvarðhaldið framlengt í héraðsdómi uns dómur félli í máli hans, þó ekki lengur en til 24. janúar. Úrskurðurinn var kærð- ur til Hæstaréttar sem vísaði málinu frá þar sem fyrra gæsluvarðhaldið var útrunnið þegar framlengingar- krafan var sett fram. Því hefur mað- urinn gengið laus frá 7. janúar og verið í felum. Hefur hann látið Helga og fjölskyldu hans í friði frá því í des- ember. Álít mig ekki fórnarlamb Þrátt fyrir að Helgi telji út af fyrir sig ástæðulaust að fjalla um einkalíf sitt í blöðunum ákvað hann að ræða reynslu sína nú til að styrkja þá sem hafa lent í klóm óttans á svipaðan hátt og hann og fjölskylda hans hafa mátt þola frá árinu 2003 og maki hans enn lengur. „Það kann að vera að einhverjir álíti mig vera fórnarlamb ofsókna af hálfu geðsjúks manns, en ég lít ekki þannig á málið,“ segir hann. „Vissulega er maðurinn haldinn geðveilu og hefur valdið okkur mik- illi þjáningu, en ég hef enga þörf fyr- ir að vera álitinn fórnarlamb. Það sem ég þarfnast fyrst og fremst eru varanleg úrræði til að fjölskylda mín fái að vera í friði. Það verður ekki gert með sex mánaða fangelsisdómi eða nálgunarbanni. Það gefur okkur í besta falli tímabundinn frið þangað til hann byrjar aftur. Hann á hvergi heima innan geðheilbrigðiskerfis- ins.“ Helgi segist hafa gengið í gegnum tímabil ótta og vonleysis vegna of- sókna mannsins, en tekur fram að þau viðbrögð séu þau auðveldustu en um leið óskynsamlegustu sem hægt Þarf varanleg úrræði svo fjölskyldan fái frið Líflátshótanir, líkamsárásir og húsbrot. Hvað er hægt að gera þegar fjölskylda verður fyrir slíkum árásum? Kerfið virðist bjóða upp á fáar lausnir jafnt fyrir brotaþola sem fórnarlömb. Örlygur Sigurjónsson ræddi við Helga Áss Grétarsson, en fjölskylda hans hefur sætt áreiti manns sem á við geðraskanir að stríða. Morgunblaðið/ÞÖK „Smám saman hætti ég að upplifa mig sem fórnar- lamb, heldur virkan þátttakanda sem væri að fást við erfitt úrlausnarefni,“ segir Helgi Áss Grétarsson. 14 SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ SVEINN Magnússon, framkvæmda- stjóri Geðhjálpar, segir barnsföður sambýliskonu Helga Áss Grétarssonar mjög illa haldinn og á barmi þess að brotna. Hann kalli á hjálp sem hann fær hvergi. „Manninum er ekki sinnt af lögbærum yfirvöldum þegar fyrir ligg- ur úrskurður af hálfu geðlækna um ýmsar geðraskanir hans,“ segir Sveinn. „Hann fær ekki inni á heil- brigðisstofnunum og það leiðir til þess að hann missir alla kjölfestu í fé- lagslegu tilliti. Þessi maður hefur verið vistaður bak við lás og slá en þar á hann ekki heima. Ég dreg ekki úr því að geðsjúkir eigi að sæta ábyrgð eins og aðrir en það verður þá að gera þeim kleift að sæta þeirri ábyrgð. Hann er hins vegar ekki í stakk búinn til þess vegna sjúkdóms síns. Það er búið að senda erindi til félagsmála- ráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis og Landlæknis og óska aðkomu þeirra til að sinna þessum manni en þeim erind- um hefur ekki verið sinnt.“ Sveinn heyrði það jafnframt frá skjólstæðingi sínum að geðvanda- málum hans hefði ekki verið sinnt meðan á fangelsisafplánun hans stóð. Að sögn Sveins er staða geðsjúkra afbrotamanna verri en afbrotamanna án geðsjúkdóma og geðsjúkra sem ekki eru afbrotamenn. „Ef viðkomandi hefur báða stimplana, þ.e. geðsjúkur og afbrotamaður, þá á hann hvergi heima í kerfinu.“ Fær ekki hjálp við geðvandamálum sínum Helgin öll … á morgun
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.