Morgunblaðið - 30.01.2005, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2005 29
Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs eru árlega veitt vísindamanni
sem snemma á ferli sínum þykir hafa skarað framúr og skapað vænt-
ingar um framlag í vísindastarfi er treysti stoðir mannlífs á Íslandi.
Verðlaunin voru fyrst veitt árið 1987 í nafni Rannsóknarráðs
ríkisins, á 50 ára afmæli atvinnudeildar Háskóla Íslands.
Verðlaunin eru tvær milljónir króna.
Tilnefningar mega koma frá öllum sviðum vísinda, tækni
og fræða og eru ætlaðar vísindafólki sem starfar
við háskóla á Íslandi, rannsóknastofnanir,
fyrirtæki eða eru sjálfstætt starfandi.
Almennt er miðað við 40 ára
aldur, en tekið er tillit til tafa
sem kunna að hafa orðið á
ferli vísindamanns vegna
umönnunar barna.
Við mat á tilnefningum
til verðlaunanna er einkum
tekið tillit til námsferils, sjálf-
stæðis, frumleika og árangurs
í vísindastörfum að loknu námi.
Litið er til ritsmíða, einkaleyfa og
framlags í störfum á alþjóðavettvangi
svo og annarra vísbendinga um líklegan
árangur af störfum viðkomandi. Sérstaklega
er litið til brautryðjendastarfs í vísindum.Faglegt
framlag til starfsfélaga á vinnustað og miðlunar
þekkingar til samfélagsins vegur einnig þungt.
Tilnefning til verðlaunanna er opin öllum sem eru
í aðstöðu til að meta störf einstakra vísindamanna.
Með tilnefningu skal fylgja ferilsskrá vísindamannsins.
Dómnefnd er valin úr hópi fyrri verðlaunahafa og í
henni sitja eftirtaldir aðilar: Áslaug Helgadóttir aðstoðar-
rektor rannsóknamála Landbúnaðarháskóla Íslands, Jakob K.
Kristjánsson forstjóri Prokaria, Jón Atli Benediktsson prófessor,
Ástráður Eysteinsson prófessor og Ingibjörg Harðardóttir dósent.
Frestur til að skila inn tilnefningum er 15. mars 2005.
Tilnefningar og upplýsingar um feril vísindamanns sendist til
Rannís Laugavegi 13, 101 Rvk, eða á netfangið rannis@rannis.is
hvatningarverðlaun
vísinda- og tækniráðs
óskað eftir tilnefningum
c
o
n
c
e
p
t
Sængurfataverslun,
Glæsibæ • Sími 552 0978 • www.damask.is
• Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16.
GRÍPIÐ TÆKIFÆRIÐ!
Tilboðsdagar hefjast
20-60% afsláttur
20% kynningarafsláttur af Lyocell satíni
Vissulega væri ákjósanlegt aðekki væri þörf fyrir slíka starf-
semi, að opinber félagsaðstoð sam-
félagsins í einhverju formi sæi um
slík mál á þann veg að ekki væri frek-
ari aðstoðar þörf. En meðan svo er
greinilega ekki þá
væri hægt að veita
ýmsa aðstoð án
þess að það kosti
mikil peningaútlát.
Til dæmis gætu
félög sem eiga sum-
arbústaði látið eina
viku af hendi t.d. til
þeirra aðila sem
veita fátæku fólki fyrirgreiðslu, t.d.
Mæðrastyrksnefnda Reykjavíkur og
Kópavogs. Tannlæknar, sérfræðing-
ar og sjúkraþjálfarar gætu hver og
einn veitt einum einstaklingi aðstoð
ókeypis á ári. Hárgreiðslustofur
gætu gert slíkt sömuleiðis, flugfélög
og langferðabílar og þannig mætti
lengi telja. Þetta myndi ekki kosta
viðkomandi mikil fjárútlát en gæti
vegið þungt fyrir þá sem fátækir eru.
Það geta allir staðið skyndilega í
þeim sporum að vera eignalausir og
hjálparþurfi, – það sýna t.d. hamfar-
irnar miklu fyrir mánuði, þá sópuðust
burtu miklar eignir. Einnig geta
hlutabréfamarkaðir sprungið eins og
bóla og skilið fólk eftir bláfátækt sem
áður taldi sig efnað, það sýna dæmin
svo ekki verður um villst. Samhjálp
manna í milli hefur að því er virðist
heldur minnkað í samfélaginu þótt
alltaf séu margir tilbúnir að gera
náunganum greiða, það sést ef efnt er
til safnana af ýmsu tagi. En margir
eiga um sárt að binda þótt ekki sé
efnt til safnana fyrir þá. Þeir aðilar
gætu haft mikil not af því að komast
t.d. í sumarleyfi í viku með börn sín,
til tannlæknis eða í nudd eða fá aðra
fyrirgreiðslu sem þeir hafa ekki pen-
inga til þess að kaupa meðan efna-
hagurinn er bágborinn. Þetta væri
vert fyrir félagasamtök og einstak-
linga að hafa í huga, ýmsir vilja gera
öðrum gott ef vettvangur til þess
skapast.
Hitt er svo annað mál að auðvitað
væri, eins og fyrr sagði, best að koma
málum svo fyrir að samfélagið sæi
þeim sem illa eru á vegi staddir fyrir
sómasamlegri fyrirgreiðslu.
Sumarleyfi
og læknishjálp!
Þótt félagsþjónustu af ýmsu tagi
hafi fleygt mikið fram er greinilega
ekki nóg að gert, það sýnir ásókn
fólks í fyrirgreiðslu hjá þeim líkn-
arfélögum sem slíkt veita.
eftir Guðrúnu
Guðlaugsdóttur
Þjóðlífsþankar / Væri ekki hægt
að gera betur?
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
mbl.is
smáauglýsingar
Fyrir
flottar
konur
Bankastræti 11 sími 551 3930