Morgunblaðið - 30.01.2005, Side 36
36 SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Jón bóndi í Ölfusi veit hvað
hann syngur þegar kemur að
sölu bújarða
Ef þú ert að leita að bújörð
þá ertu í traustum höndum
með Jón þér við hlið
Til þjónustu reiðubúinn
í síma 896 4761
Jón tekur á móti viðskiptavinum Hóls
samkvæmt samkomulagi á Skúlagötu 17.
Franz Jezorski, hdl. og lögg. fasteignasali
Hóll er landsþekkt fyrir fagleg vinnubrögð og úrvalsþjónustu í á annan
áratug. Taktu enga áhættu með þína fasteign. Skiptu við heiðarlega
og ábyrga fasteignasölu sem hefur hagsmuni þína að leiðarljósi.
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
La gavegur 182 • 105 Rvík • Fax 53 481 • i r idborg.is
94,4 fm glæsileg 3ja herbergja íbúð á
fyrstu hæð með sérinngangi á eftirsóttum
stað í miðbæ Reykjavíkur. Íbúðin skiptist í
anddyri, eldhús sem er opið inn í hol.
Glæsileg HTH viðarinnrétting er í eldhúsi
og vönduð AEG tæki. Í þvottahúsi er stál-
vaskur. Hol og geymslur. Baðherbergi
verður flísalagt með sturtuklefa. Stofan er
björt og rúmgóð með mikilli lofthæð og
halogen lýsingu. Tvö björt svefnherbergi eru í íbúðinni. Íbúðin afhendist fullbúin án
gólfefna nema flísar á baðherbergi. Búið er að endurnýja allar lagnir undir gólfplötu 1.
hæðar. Hreinsibrunnur í gangstétt. Allar heimæðar eru endurnýjaðar og settar í tækni-
rými sem gengið er í að utan. Hitalagnir eru í gangstétt meðfram allri framhlið húsins.
Hitalagnir fyrir 1. hæð settar í gólf, svokallað gólfhitakerfi. Allar gamlar lagnir hafa ver-
ið fjarlægðar og lagt nýtt rör í rör fyrir hreinlætistæki 1. hæðar. Nýjar mælagrindur og
sérmælir fyrir hverja íbúð. Ný heimæð, ný aðaltafla, sérmælir og nýjar raflagnir í íbúð.
5210. Verð 20,9 millj. Kristján sýnir, sími 694 3622.
Opið hús í dag frá kl. 14-16
Grettisgata 16
FERÐAÞJÓNUSTA SKAGAFIRÐI
Til leigu rekstur ferðaþjónustubýlisins Lónskots. Hér er um að ræða ferða-
þjónustu í mjög áhugaverðu umhverfi. Gott tækifæri fyrir rétta aðila. Nánari
uppl. á skrifstofu FM í síma 550 3000 (Magnús). Sjá einnig myndir á fmeign-
ir.is og mbl.is. 18182
FYRIR LANDIÐ ALLT
133 BÚJARÐIR/LANDSPILDUR
72 SUMARHÚS
Til sölu hjá okkur er nú fjöldi áhugaverðra jarða, m.a. hlunnindajarðir, jarðir
með greiðslumark í sauðfé og mjólk, einnig jarðir fyrir garðyrkju, skógrækt,
hrossarækt, svínarækt, frístundabúskap og ferðaþjónustu. Jarðir þessar eru
víðs vegar um landið. Erum einnig með á söluskrá fjölda sumarhúsa og
hesthúsa. Fáið senda söluskrá í pósti eða nálgist eintak á skrifstofu. Einnig
er oft til á sölu hjá okkur sauðfjár- og mjólkurframleiðsluréttur. Nánari upp-
lýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar sem er alhliða fasteignasala
og selur fasteignir jafnt á landsbyggðinni sem á höfuðborgarsvæðinu. Sölu-
menn FM aðstoða. Minnum einnig á fmeignir.is og mbl.is.
STÝRIMANNASTÍGUR -
EINSTAKT HÚS Höfum fengið í
einkasölu eitt af virðulegustu einbýlishúsum í
gamla vesturbænum. Húsið, sem er um 240
fm, er teiknað af Einari Erlendssyni og byggt
af Jóni Eyvindarsyni árið 1906 og stendur
það á 408,5 fm fallegri hornlóð. Húsið var
gert upp af Leifi Blumenstein fyrir ca 10 ár-
um og er í mjög góðu ástandi. Húsið skiptist
þannig: 1. hæð anddyri, húsbóndaherbergi,
eldhús og tvær stofur. Í kjallara eru þrjú her-
bergi, baðherbergi, snyrting, þvotta-
hús/geymsla, góð lofthæð og auðvelt að út-
búa séríbúð. Í risi eru fjögur herbergi, bað-
herbergi og eldhús. Í efra risi er opið alrými
með þakgluggum og fallegu útsýni. V. 59 m.
4691
KAMBASEL Fallegt raðhús á tveimur
hæðum með innb. bílskúr. Á neðri hæð eru
forstofa, forstofuherb., gangur, hjónaherb.,
tvö barnaherbergi, bað og þvottahús. Á efri
hæð eru tvær samliggjandi stofur og eru
svalir út af annarri þeirra, snyrting, herbergi,
eldhús og búr. Yfir allri efri hæðinni er gott
geymsluloft. Bílskúr er með hita, vatni og
rafmagni. V. 28 m. 4732
FROSTASKJÓL Vorum að fá í sölu
mjög fallegt 184 fm raðhús á tveimur hæð-
um í vesturbænum. Húsið var byggt árið
1982. Húsið skiptist m.a. í stofu, arinstofu,
borðstofu og þrjú herbergi. Mjög falleg sér-
hönuð lóð með timburverönd. Innbyggður
bílskúr (innangengt). 4723
BRÁVALLAGATA - HÆÐ Vor-
um að fá í sölu 105 fm íbúð á 1. hæð í fal-
legu 3-býlishúsi við Brávallagötu (ein íbúð á
hæð). Íbúðin skiptist m.a. í tvær stofur og
tvö herbergi. Auk þess er herbergi og
geymsla í kjallara. Mikil lofthæð er í íbúðnni.
Skrautlistar í loftum. V. 17,3 m. 4720
STÓRAGERÐI - M. BÍL-
SKÚR Falleg, björt og rúmgóð 4ra herb.
íbúð á 3. hæð. Eignin skiptist í hol, geymslu/
fataskáp, eldhús, baðherbergi, tvö herbergi,
stofu og borðstofu (auðvelt að breyta í her-
bergi). Svalir til suðurs. V. 19,9 m. 4726
LAUGATEIGUR - LAUS
FLJÓTLEGA Falleg og vel skipulögð
4ra herb. risíbúð á góðum stað á Teigunum.
Íbúðin skiptist í hol, eldhús, baðherbergi, 2-
3 svefnherbergi, stofu og geymsluris. Suður-
svalir. Íbúðin er skráð 67 fm en er um 80 fm
að gólffleti. V. 14,9 m. 4708
SMIÐJUVEGUR - GLÆSI-
LEGT ATVINNUHÚSNÆÐI
Vandað 930 fm atvinnuhúsnæði, sem hýst
hefur starfsemi Tengis í Kópavogi. Eignin
skiptist í verslunarrrými, lagerpláss með inn-
keyrsludyrum og skrifstofurými með kaffi-
stofu o.fl. Góð lofthæð í lagerhlutanum. Milli-
veggir eru léttir og því auðvelt að breyta
skipulagi. Frábært útsýni frá skrifstofum og
þekkt staðsetning. Húsið er í góðu ástandi
að utanverðu. Eignin hentar vel fyrir ýmiss
konar starfsemi, s.s. verslun, iðnað og hvers
kyns þjónustu. V. 95 m. 4725
SKÚLATÚN Glæsilegt 190 fm skrif-
stofuhúsnæði við Skúlatún á 2. hæð. Eignin
skiptist m.a. í móttöku, fundarsal, skrifstofu,
snyrtingar og opin vinnurými. Innfelld haló-
gen-lýsing í lofti. Trérimlagardínur. Einstak-
lega falleg skrifstofuhæð. Laus fljótlega. V.
23 m. 4724
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
DEILDARÁS - GLÆSILEGT
Vorum að fá í sölu glæsilegt 330 fm einbýl-
ishús á tveimur hæðum. Húsið stendur á
einstökum útsýnisstað í Selásnum, niður við
Elliðaár. Húsið skiptist m.a. í stofu með arni,
borðstofu, arinstofu og 4-5 herb. Á jarðhæð
er 2ja herb. íbúð með sérinngangi (einnig
innangengt). Húsinu hefur verið vel viðhald-
ið. Garðurinn er hannaður af Pétri Jónssyni.
Göngufæri í Elliðaárdalinn og Árbæjarlaug-
ina. V. 49 m. 4718
Laugavegur - Til leigu
Rauðhetta og úlfurinn - gott
atvinnuhúsnæði við Lauga-
veg 7 til leigu.
Góð lofthæð, bjartir stórir
gluggar.
Upplýsingar í síma
511 4004 og 822 7991.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Í SEINNI fréttum sjónvarps hinn
24. janúar sl. var Gísli Már Gíslason,
prófessor við Háskóla Íslands, tek-
inn tali. Hann lýsti mörg hundruð
ára skaða Mývatns sem Kísiliðjan
hefur valdið. Fréttamaðurinn óskaði
ekki eftir rökum fyrir fullyrðingum
Gísla. Ekki var innt eftir rann-
sóknum eða skýrslum sem Gísli hef-
ur sjálfur tekið þátt í eða staðið fyr-
ir. Þar á meðal þeirri sem Gísli
skrifaði undir um að starfsemi Kís-
iliðjunnar í Ytriflóa hefði ekki áhrif í
Syðriflóa, né heldur að áhrif auk-
innar ákomu köfnunarefnis og
fosfórs sæju sér stað í vatninu.
Málflutningur prófessorsins og
framganga fréttamannsins eru ekki
til þess fallin að skapa Háskóla Ís-
lands traust né fréttastofu sjón-
varps.
Eftirhreytur lokunar Kísiliðj-
unnar eru minni en við mátti búast.
Verksmiðja er tekin af lífi og at-
vinnusögu lýkur. Gildir einu hvaða
áhrif starfsemin hafði á Mývatn.
Með því að hætta að nema botnfallið
á brott eru örlög þess ráðin. Botn-
fallið heldur áfram og vatnið fyllist.
Mývatn verður ekki sú perla sem við
þekkjum í dag og skiptir þá ekki
máli hversu langt er í dauðastríðið.
Það verður að segja hverja sögu
eins og hún gengur. Ég hef þekkt
Gísla Má Gíslason lengi. Við störf-
uðum saman um áraraðir í stjórn
Náttúrurannsóknarstöðvarinnar við
Mývatn og í sérfræðinganefnd um
Mývatnsrannsóknir. Ég hef ekki
þekkt Gísla að sannsögli. Þar á bæ
helgar tilgangurinn meðalið.
Þar sem ég sat í hægindinu og
þessi ótrúlega frétt skall framan í
mig komu mér þau fleygu orð í hug:
„Því betur sem ég kynnist mönn-
unum, þeim mun vænna þykir mér
um hundinn minn.“
SIGURÐUR R. RAGNARSSON,
Ásgarðsvegi 22, Húsavík.
Mývatn – Gísli Már Gíslason
og bláeygir fréttamenn
Frá Sigurði R. Ragnarssyni
Á AUGLÝSINGASKILTUM borg-
arinnar er þessa dagana auglýsingin
„Umferðin snýst um líf“. Sannarlega
er það virðingarvert og góðra gjalda
vert, hvað mikið er gert til þess að
vekja athygli á tillitslausum og
hættulegum ökuhætti og ekkert
nema gott um það að segja, hins veg-
ar er sú auglýsingaherferð sem fram
fer á sjónvarpsskjám landsmanna,
undir sama kjörorði, frekleg og gróf
mistök. Þar eru saklaust barn og sak-
laus kona, sem eiga sér einskis ills
von, auglýst sem fórnarlömb. Vel get-
ur verið að auglýsingabrellur ráði
ferð og vel getur verið að dauðsföll
eigi sér stað við árekstur í stiga (?),
en það breytir engu um það að upp-
stillingin er hræðileg! Barnið verður
skelfilega hrætt og samkvæmt
orðanna hljóðan deyr konan, að
minnsta kosti er hún ekki látin rísa á
fætur! Hvers eiga konur og börn að
gjalda? Það er ekki langt síðan að
dagbók fyrir árið 2005 var fyllt með
niðrandi og niðurlægjandi „máls-
háttum“ um konur. Dagbókin var
tekin úr umferð og beðist afsökunar á
mistökunum, hið sama þarf að gerast
nú.
Það er nefnilega þannig að það er
ekki aðeins umferðin sem snýst um
líf, það er svo ótal margt annað, svo
sem heimilisofbeldi og ill meðferð,
tala nú ekki um konurnar allar, sem
beinlínis eru neyddar til að ganga
ekki meðgöngu sína til enda, vegna
óhagstæðra kringumstæðna, og
börnin öll, um eitt þúsund að tölu ár-
lega á litla Íslandi, sem aldrei fá tæki-
færi til að spreyta sig á lífinu. Þau
slys skilja eftir sár því „fóstureyðing
snýst um líf“. Förum með gát í nær-
veru sálar og stöndum vörð hvert um
annað frá getnaði til grafar.
HULDA JENSDÓTTIR,
fv. yfirljósmóðir.
Um auglýs-
inguna
„Umferðin
snýst um líf“
Frá Huldu Jensdóttur
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111