Morgunblaðið - 30.01.2005, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2005 39
FRÉTTIR
smáauglýsingar mbl.is
Gott nýlegt um 160 fm raðhús með bílskúr við Maríubaug fæst í skipt-
um fyrir rúmgóða 4ra herbergja íbúð. Skilyrði að hún sé sem næst
Ingunnarskóla. Bein sala kemur að sjálfsögðu einnig til greina.
Vilt þú stækka við þig?
Grafarholt - Skipti á
4ra herbergja íbúð fyrir raðhús
Björn Daníelsson,
hdl. lögg. fasteignasali
Vinsamlegast hafið samband við
Jón Víking á Hóli, sem veitir allar
nánari upplýsingar í símum
892 1316 eða 595 9032.
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
Laugavegur 182 • 105 Rvík • Fax 53 idborg@midborg.is
Fallegt 294 fm raðhús á þremur hæðum með innb. bílskúr. Á miðhæð
er flísalögð forstofa, hol, snyrting, parketlagt eldhús með beyki-inn-
réttingu, parketlögð stofa með arni og borðstofa. Á efri hæð eru 4
parketlögð herbergi og baðherbergi. Í risi er parketlögð skrif-
stofa/herbergi. Í kjallara er sjónvarpshol, 2 geymslur, baðherbergi og
þvottahús með innréttingu. Góður garður með verönd. V. 46 millj.
Frostaskjól
SUÐURGATA 7, 101 REYKJAVÍK, • www.hibyli.is • hibyli@hibyli.is
Hofteigur 6 - OPIÐ HÚS
Vorum að fá í sölu fallega og
mikið endurnýjaða 4ra
herbergja 110,4 fm neðri
sérhæð í þríbýlishúsi. Á
hæðinni er forstofa, rúmgott
hol, stórar samliggjandi
skiptanlegar stofur og tvö
svefnherbergi, gott eldhús
með nýlegri harðviðarinnrétt-
ingu og baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf. Eikarparket
og linoleum-dúkar á gólfi. Gler og gluggar nýlegt. Stutt í
Laugarnesskóla. Húsið stendur við opið svæði, rétt við
Laugarneskirkju. Tilvalin íbúð fyrir barnafólk. Einstakt tækifæri.
Halla sýnir íbúðina í dag, sunnudag, frá kl. 13-15.
Ingibjörg Þórðardóttir lögg. fasteignasali
w w w . h i b y l i o g s k i p . i s
Þuríður Halldórsdóttir hdl., lögg. fasteignasali
Ítalía
Höfum fengið einkaumboð frá fasteignasölu á Ítalíu.
Bjóðum til sölu eða leigu allar gerðir og stærðir
eigna víðs vegar á Ítalíu
Vegna mikillar sölu undanfarið vantar allar gerðir eigna á söluskrá.
Við getum boðið mjög sanngjarna söluþóknun fyrir fulla þjónustu.
Nánari upplýsingar, sími sölustjóra 893 3985.
Þuríður Halldórsdóttir hdl.,
lögg. fasteignas.,
Aðalsteinn Torfason múraram.,
sölustjóri, gsm 893 3985.
Samanlagðir kraftar fólks, annars
vegar með sérþekkingu á fasteign-
um og hins vegar sérþekking
lögmanns. Þjónusta alla leið.
Bílaþvottastöð í eigin húsnæði
Höfum til sölu bílaþvottastöð í fullum rekstri í eigin
húsnæði á góðum stað í Reykjavík.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu.
Sími 511 4004
SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæð-
isins (SHS) hefur samið við
66° Norður um framleiðslu vinnu-
fatnaðar starfsmanna til næstu fjög-
urra ára. Samningurinn var gerður
að undangengnu útboði og nær til
alls vinnufatnaðar nema eldgalla,
eiturefnagalla og búninga kafara
liðsins. Verðmæti samningsins nem-
ur um 13 milljónum króna á ári.
Starfsmenn SHS eru 155 talsins
og sinna flestir þeirra störfum í út-
kallsdeild. Þeir nota margvíslegan
fatnað við vinnu sína og gilda um það
ákveðnar reglur. 66° Norður mun
framleiða fyrir þá sjúkraflutn-
ingagalla, fatnað fyrir liðsmenn
landflokksins, hátíðareinkennisföt,
sérstök vinnueinkennisföt yfir-
manna og vinnueinkennisföt varð-
liðs, dagvinnumanna og kvenna í
skrifstofustörfum.
Nokkrar breytingar verða gerðar
á fatnaði starfsmanna með samn-
ingnum við 66° Norður. Þannig
verða vinnueinkennisföt varðliðs nú
úr eldþolnu efni og fatnaður sjúkra-
flutningamanna verður fjölbreyttari
en áður og tekur meira tillit til að-
stæðna sem unnið er við.
Fulltrúar SHS og 66° Norður undirrituðu samninginn nýverið. Frá vinstri:
Bjarni Kjartansson, framkvæmdastjóri forvarnadeildar, og Jón Viðar
Matthíasson, slökkviliðsstjóri SHS, Marinó Guðmundsson forstjóri og Sig-
urður Magnússon, sölustjóri 66° Norður.
66° Norður fram-
leiðir fatnað fyrir
starfsmenn SHS
NÝKOMNIR eru út á vegum Lýð-
heilsustöðvar tveir fræðslubæklingar
um áfengi undir heitinu: Hvað veistu
um áfengi? Annar bæklingurinn er
ætlaður fullorðnum en hinn ungu
fólki.
Bæklingarnir eru gefnir út til að
bregðast við skorti á aðgengilegu
fræðsluefni um áfengi, áhrif þess og
skaðsemi. Í stuttu máli eru þar gefnar
upplýsingar um mismunandi áhrif
áfengis á fólk eftir aldri þess, kyni og
stærð sem og eftir því magni sem
drukkið er, styrkleika áfengisins,
hversu hratt það er drukkið og við
hvaða aðstæður. Einnig hversu lang-
an tíma það tekur að losna við áfengið
úr líkamanum.
Bæklingurinn fyrir fullorðna liggur
m.a. frammi í öllum Vínbúðunum og
heilsugæslustöðvum en bæklingnum
fyrir ungt fólk verður dreift til allra
framhaldsskólanema auk þess sem
hann mun liggja frammi á heilsu-
gæslustöðvum og menningarhúsum
ungs fólks.
Með honum er ekki verið að hvetja
til unglingadrykkju heldur þvert á
móti; miðla staðreyndum um áfengi
sem auðveldar fólki að taka upplýsta
ákvörðun um það hvort það ætli að
drekka áfengi, hvers vegna, hvenær
og þá hvar, segir í fréttatilkynningu.
Bæklingarnir voru unnir af Lýð-
heilsustöð með aðstoð fagráðs og eru
gefnir út í samvinnu við ÁTVR og eru
liður í forvarnastarfi stofnananna.
Bæklingana er hægt að skoða og
panta á heimasíðunni: www.lydheilsu-
stod.is
Fræðslu-
bæklingar
um áfengi
BÆJARSTJÓRN Akureyrar
samþykkti á fundi sínum að
lækka vatnsgjald á fasteignir
um tæp 6% og holræsagjald um
tæp 5%. Einnig var samþykkt
að hámarksafsláttur af fast-
eignaskatti til efnalítilla elli- og
örorkulífeyrisþega hækki í
40.000 krónur árið 2005 en af-
slátturinn var að hámarki
30.000 krónur á síðasta ári.
Vatnsgjaldið var áður 0,17% en
verður 0,16%. Holræsagjaldið
nam áður 0,21% en er nú 0,20%.
Á vefsíðu Akureyrarbæjar
kemur fram hjá Dan Jens
Brynjarssyni sviðsstjóra
stjórnsýslusviðs að lækkunin sé
ákveðin til að koma til móts við
hækkun fasteignamats nú um
áramótin en fasteignamatið
hækkaði þá um 13%. Lækkunin
á álagningarprósentu vatns-
gjalds og holræsagjalds þýðir
um 20 milljóna króna tekju-
lækkun fyrir Akureyrarbæ árið
2005 miðað við það sem verið
hefði með óbreyttri álagning-
arprósentu. Álagningu fast-
eignagjaldanna lýkur nú á
næstu dögum og verða álagn-
ingarseðlar sendir til fasteigna-
eigenda.
Akur-
eyrarbær
lækkar
álögur