Morgunblaðið - 30.01.2005, Blaðsíða 46
46 SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
Efast um að styttra nám sé betra
MARGIR rektorar og skóla-meistarar í
framhalds-skólum efast um að það
sé gott að stytta nám til
stúdents-prófs um eitt ár.
Sölvi Sveinsson er verðandi rektor
Verslunarskóla Íslands. Hann sagði í
fréttum RÚV að skólarnir hefðu ekki
beðið um þessa styttingu.
Stúdents-prófið sé gott og gefi
heim-sækja framhaldsskóla og ræða
þessi mál. Að hennar sögn er mikill
vilji í skóla-kerfinu að standa vel að
þessum breytingum.
Þorgerður segir að það sé aðeins
verið að nýta sveigjan-leikann í
skóla-kerfinu. Þess vegna sé engin
ástæða til að hafa áhyggjur af því að
nemendur verði ekki eins vel búnir
undir háskóla-nám.
nemendum tæki-færi til að kynnast
mörgum greinum.
Slæmt að minnka val
Margir skóla-meistarar og rektorar
eru sammála Sölva. Þeir segja að
það sé slæmt að skera niður
val-áfanga.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er
mennta-mála-ráðherra. Hún er að
JÓHANNES PÁLL II páfi hefur
skammað ríkis-stjórn Spánar
vegna breytinga sem eru á
næsta leyti. Til dæmis vill
forsætis-ráðherra Spánar að
samkyn-hneigðir fái að gifta
sig. Þá hvetja stjórn-völd
karla til að nota smokka.
Páfinn segir þetta grafa
undan sambandi ríkis og
kirkju. José Bono er
varnar-mála-ráðherra Spánar.
Hann segir að trúin ætti að
tilheyra fólki en ekki ríkinu.
Reuters
Jóhannes Páll II páfi í þungum þönkum.
Páfi gagn-rýnir Spán
Ríkið nær sér í 200 milljónir
Nú kostar 150 krónur að
ljós-rita eitt blað hjá ríkinu.
Það kostaði áður 100 kr. Fyrir
ára-mót var ákveðið að
opinberar stofnanir skyldu
hækka ýmis gjöld. Til dæmis
þinglýsingar-gjöld og gjöld
fyrir vottorð. Þetta eykur
tekjur ríkisins um 200
milljónir.
Stone kampa-kátur
Oliver Stone er hinn
ánægðasti með Íslendinga.
Myndin hans, Alexander
mikli, fór beint á topp
íslenska bíó-listans. Stone
var svo ánægður að hann
skrifaði þakkar-bréf til
eiganda Sam Film sem dreifir
myndinni hér á landi.
Samið sér við Sjálands-skóla?
Bæjar-yfir-völd í Garðabæ
vilja gera sérstakan samning
við starfs-menn
Sjálands-skóla. Það er nýr
skóli sem tekur til starfa í
haust. Starfs-mennirnir
myndu þá ekki ganga inn í
kjara-samninga kennara.
Sumir skólar í Reykjavík hafa
líka áhuga á þessu.
Bókmennta-verðlaunin afhent
Íslensku
bókmennta-verðlaunin voru
afhent í vikunni. Auður
Jónsdóttir fékk verð-laun fyrir
skáld-söguna Fólkið í
kjallaranum. Halldór
Guðmundsson fékk verðlaun
fyrir verkið Halldór Laxness –
ævisaga.
Róbert Marshall hættur
Róbert Marshall hefur sagt
starfi sínu lausu. Hann var
frétta-maður á Stöð 2. Þetta
er vegna fréttar sem Róbert
vann. Þar sagði að Ísland
hefði verið á lista viljugra
þjóða fyrir ríkis-stjórnar-fund
18. mars. Fréttin var röng og
frétta-stofan baðst
afsökunar.
Kóral-rif í hættu
Stór kóral-svæði gætu verið
horfin af Íslands-miðum.
Þetta kemur fram í nýrri
skýrslu
Hafrannsókna-stofnunar. Þar
er bent á að
djúp-sjávar-kórallar séu
viðkvæmir fyrir tog-veiðum.
Þeir brotni og drepist ef
veiðar-færi rekast í þá.
Rice verður utanríkis-ráðherra
Condoleezza Rice verður
utanríkis-ráðherra í
Banda-ríkjunum.
Öldunga-deild þingsins hefur
samþykkt það. 85 þing-menn
voru með en 13 á móti.
Aðeins 1 utanríkis-ráðherra
hefur mætt eins mikilli
andstöðu. Það var árið 1825.
Stutt
LANDLÆKNIS-EMBÆTTIÐ
hefur gert athuga-semd við
vinnu-brögð á Hrafnistu.
Hrafnista er dvalar-heimili
fyrir aldraða.
Í nóvember varð slys þar.
85 ára gamall maður datt
aftur fyrir sig og vankaðist.
Hann var fluttur upp á
herbergið sitt. 9 klukku-tímar
liðu frá því að hann datt og
þar til hann var fluttur á
sjúkra-hús. Þar kom í ljós að
hann var höfuðkúpu-brotinn.
Hann komst ekki til
meðvitundar og lést nokkrum
dögum síðar.
Gagn-rýnir
vinnu-brögð
á Hrafnistu
VÍKTOR Jústsjenko er orðinn
forseti Úkraínu. Hann vill að
Úkraína gangi í
Evrópu-sambandið. Fyrsta verk
Jústsjenko var að fara til
Rússlands. Þar lofaði hann að
Úkraína og Rússland yrðu
banda-menn að eilífu.
Rússar ósáttir við Tímosjenko
Jústsjenko hefur ákveðið að
Júlía Tímosjenko verði
forsætis-ráðherra. Þingið á
samt eftir að sam-þykkja það.
Tímosjenko er ekki sérlega
vinsæl hjá Rússum. Hún er
eftir-lýst þar í landi fyrir mútur á
síðasta ára-tug. Mála-rekstri
gegn henni verður haldið áfram.
Jústsjenko loks
kominn til valda
Reuters
Júlía Tímosjenko er hin
ánægðasta með titilinn.
ÍRAKAR ganga til kosninga í
dag. Mörg þeirra sem eru í
fram-boði hafa ekki þorað
að gefa upp nöfn sín. Fólk
óttast að verða fyrir
árásum. Þó nokkrar
sprengingar hafa verið
undan-farið. Talið er að
margar konur bjóði sig fram
í leyni. Í lögum um
kosningarnar segir að þær
eigi að vera 25%
þing-manna.
Kúrdar í odda-stöðu?
Búist er við að Kúrdar
verði með odda-stöðu. Þá
geta þeir ráðið hverjir
komast til valda. Kúrdar eru
aðeins um 15% Íraka.
George W. Bush hefur
sagt að bandaríski herinn
fari frá Írak ef nýja stjórnin
vill það.
Írakar
kjósa
Reuters
Margar íraskar konur bjóða sig fram leyni-lega.
Ísland byrjaði ágætlega á
mótinu. Liðið gerði jafn-tefli
við Tékka. Tékkar voru 6
mörkum yfir í hálf-leik.
Íslenska liðið tók við sér og
átti góðan loka-kafla. Ekki
gekk eins vel á móti
Slóvenum. Ísland tapaði
með einu marki. Samt voru
Íslendingar 2 mörkum yfir í
hálf-leik. Í þriðja leiknum
sigraði Ísland Kúveit með 9
mörkum. Liðið stóð sig þó
ekki sérlega vel á móti
slöku liði Kúveita.
ÍSLAND tapaði fyrir
Rússlandi í hand-bolta
síðasta föstudag.
Leikurinn var á
heimsmeistara-mótinu í
Túnis. Leikurinn var
spennandi framan af. Í
hálf-leik var staðan 12-12.
Íslendingar misstu tökin í
seinni hálf-leik og leikurinn
fór 29:22. Þetta gerir að
verkum að ekki eru eins
góðar líkur á að Ísland
komist áfram. Sókn íslenska liðsins gengur ágæt-
lega en vörnin mætti vera betri.
Töpuðu gegn Rússum
Morgunblaðið/RAX
ÍSLAND hyggur á framboð
í öryggis-ráð Sameinuðu
þjóðanna. Einar Oddur
Kristjánsson segir að það
sé of dýrt. Hann er
vara-formaður
fjárlaga-nefndar og
þing-maður
Sjálfstæðis-flokksins.
Einar segir að það
myndi kosta Ísland
800–1000 milljónir króna
að reyna að ná kjöri.
Of dýrt
framboð?