Morgunblaðið - 30.01.2005, Side 48
Mímí og Máni
Kalvin & Hobbes
ÞETTA ER LÍTUR ÚT FYRIR
AÐ VERA GÓÐ MYND!
VAMPÍRU KLAPPSTÝRUR!
EN ÞAÐ STENDUR
HÉRNA AÐ HÚN SÉ
BÖNNUÐ INNAN
ÁTJÁN ÁRA...
EKKERT MÁL,
ÉG REDDA ÞVÍ!
DRÍFUM OKKUR
BARA...
ÞETTA ER
EITTHVAÐ
NÝTT...
ÉG ÆTLA
AÐ FÁ
2... ÉG
MEINA 1
MIÐA
Risaeðlugrín
© DARGAUD
BRRR! ÞAÐ ER
FREKAR KALT Í DAG
SUMA DAGA LANGAR MANN
BARA TIL ÞESS AÐ VERA UPP
Í RÚMI, UNDIR SÆNG
DAVÍÐ TÆKI ÞAÐ
EKKI Í MÁL VINNAN ER
NÚMER 1, 2
OG 3! SEGIR
HANN ALLTAF
EN....
HEY ÞÚ! ÉG ÞEKKI ÞIG! ÞÚ VARST Á
ÞESSUM SAMA STAÐ Í GÆR. EKKI
NEITA ÞVÍ, ÉG SÁ ÞIG!
LÖGIN ERU ÓTVÍRÆÐ. ÞAÐ ER
BANNAÐ AÐ STALDRA HÉRNA VIÐ Í
SVONA LANGAN TÍMA. ÉG SKIPA
ÞÉR AÐ FÆRA ÞIG Í NAFNI LAGNNA
EÐA ÉG NEYÐIST TIL ÞESS AÐ GERA
ÞAÐ MEÐ VALDI!!
ÞÚ NEITAR AÐ HLÝÐA LÖGUNUM!
ERTU MEÐ MÓTÞRÓA? Í SÍÐASTA
SKIPTI, ÉG TEL UPP Á ÖÖÖ EINUM
ÉG VARAÐI
ÞIG VIÐ!
EINN! HVAÐ? HVAÐ
GERÐIST?
TAKK FYRIR! ÁN ÞÍN HEFÐI ÉG DVALIÐ Í
KALKANUM TÍMUNUM SAMAN
ÞETTA ER ÉG! ÉG
VONA AÐ ÉG KOMI
EKKI OF SEINT
EN
EN...
...OG ÁÐUR EN ÉG NÁÐI AÐ ÁTTA MIG ÞÁ STÖKK
HANN Á MIG OG KYSSTI MIG!
ÞAÐ VERÐUR AÐ
LOKA HANN INNI!
ELSKAN! KOMDU
AFTUR! ÞETTA ER BARA
MISSKILNINGUR!!
Dagbók
Í dag er sunnudagur 30. janúar, 30. dagur ársins 2005
Víkverji hefur áhugaá hreyfingu, en
viðurkennir að hann
er latur að eðlisfari.
En þrátt fyrir dofna
útlimi og leti hefur
Víkverji veitt því at-
hygli að umræðan um
offitu og sjúkdóma
sem rekja má til
hreyfingarleysis er
mikil. Og á undan-
förnum misserum
hafa sérfræðingar
gert grein fyrir því að
íslenska þjóðin sé of
þung og skiptir þá
engu máli hvort rætt
er um börn, unglinga
eða fullorðna. En Víkverji er á þeirri
skoðun að mikið sé rætt um vanda-
málið, veggspjöld eru hönnuð,
nefndarstörf fara í gang, en grasrót-
in verður ekki vör við að verið sé að
„vinna“ í málunum.
Víkverji er alls ekki sáttur við þær
lausnir sem boðið er uppá af hálfu
stjórnvalda, forgangsröðunin er ekki
rétt. Þverfaglegt álit sérfræðinga er
í raun að allir ættu að borða minna
og hreyfa sig meira – Einfalt ráð!
Víkverji er á þeirri skoðun að lítið
sem ekkert sé hugað að því að auka
við hreyfingu barna á grunnskóla-
aldri. Flestar „áróðursherferðir“
gegn vágestinum snúa að mataræði
barna og unglinga.
Gott og vel. En á sama
tíma hefur heldur
dregið úr fjölda
íþróttatíma í grunn-
skólum.
Víkverji telur að
með sama áframhaldi
verði íþróttatími fram-
tíðarinnar í 7. bekk
með eftirfarandi
hætti: Íþróttakenn-
arinn (!) deilir út 64
púlsklukkum á nem-
endur. Kennarinn sest
niður fyrir framan
tölvuskjá og fylgist
með hjartslætti nem-
enda sem ýmist ganga
eða hlaupa á þar til gerðum hlaupa-
brettum. Eina markmið nemandans
í tímanum verður að ná 80% af há-
markspúlsi.
Víkverji er hinsvegar á þeirri
skoðun að íþróttakennarar landsins
vinni „kraftaverk“ á hverjum degi
með fjölbreyttum tímum, þar sem
leikur, ákefð og áreynsla er í fyrir-
rúmi. En slíkir tímar eru allt of
sjaldan á stundaskrá nemenda, sem
þurfa svo sannarlega á hreyfingunni
að halda. Íþróttakennarar hafa
margoft óskað eftir því að börn fái
fleiri tækifæri til þess að hreyfa sig.
En þess í stað eru skipaðar nefnd-
ir og bæklingar prentaðir.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Þorlákshöfn | Eftir kuldakast liðinna vikna er nýkomin hláka hið mesta
fagnaðarefni fyrir þá sem vinna útivinnu. Öll verk verða auðveldari og nota-
legt að vinna í hlýrri suðvestangolunni sem hefur borið með sér hlýja
strauma undanfarið. Þessir verkamenn unnu við uppsetningu á skilti frá Lýsi
hf. utan á iðnaðarhúsnæði í Þorlákshöfn þegar ljósmyndari átti leið þar hjá.
Morgunblaðið/Einar Falur
Framkvæmdaveður
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Og sólin rennur upp, og sólin gengur undir og hraðar sér til samastaðar
síns, þar sem hún rennur upp. (Préd. 1, 5.)