Morgunblaðið - 30.01.2005, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2005 51
DAGBÓK Erum með alla línuna í
Art to heart og Benartex.
Alla línuna í
Jinny Beyer Thimbleberries,
Lynette Jensen og
Moda efni.
Erum að fá ný efni í barnateppi o.fl.
Bækur og snið í úrvali.
Gott verð
Eyravegi 15, 800 Selfoss S:
4822930
Skólabraut 37, Akureyri
Spilakvöld Varðar
sunnudaginn 6. febrúar
Hið árlega og geysivinsæla spilakvöld
Varðar verður haldið í Súlnasal Hótels
Sögu sunnudaginn 6. febrúar kl. 20.30
Glæsilegir spilavinningar að vanda, Meðal annars:
Utanlandsferðir, bækur, matarkörfur o.fl.
Gestur kvöldsins: Sólveig Pétursdóttir,
alþingismaður.
Aðgangseyrir er 800 krónur
Allir velkomnir
Vörður – Fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
Skógarhlíð 18, sími 595 1000
www.heimsferdir.is
Verð kr. 69.990*
Flugsæti báðar leiðir með sköttum. Netverð.
Verð kr. 89.990*
Innifalið í verði: Flug, gisting á Hotel
Arenas Doradas, morgunverðarhlaðborð,
skattar, fararstjórn, ferðir til og frá flugvelli.
Netverð.
* Ekki innifalið í verði: Vegabréfsáritun og
brottfararskattur á Kúbu.
Úrval hótela í boði
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Kúbuveisla
6. - 13. mars
frá 69.990
Sérflug Heimsferða
7 nætur – Varadero - Havana
Ótrúlegt tækifæri til að kynnast þessari stórkostlegu eyju Karíbahafsins.
Þú velur hvort þú vilt dvelja viku í Havana, viku á Varadero ströndinni
eða skipta dvölinni á milli beggja staða. Þú velur milli góðra hótela hvort
sem er í Havana eða í Varadero. Ferð til Kúbu er ævintýri sem lætur
engan ósnortinn, því ekki aðeins kynnist maður stórkostlegri náttúrufeg-
urð eyjunnar, heldur einnig þjóð sem er einstök í mörgu tilliti. Gamla
Havana er ein fegursta borg nýlendutímans, lífsgleði eyjaskeggja er ein-
stök og viðmótið heillandi. Að upplifa Kúbu nú er einstakt tækifæri, því
það er ljóst að breytingar munu verða í náinni framtíð.
Tónlist
Safn | Jóhann Jóhannsson – Tónlistar-
innsetning. Stephan Stephansson – sýning.
Myndlist
Anddyri Suðurlandsbrautar 4 | Rafn Sig-
urbjörnsson – Fjölskyldan. Tíu olíumálverk.
Árbæjarsafn | Í hlutanna eðli – Stefnumót
lista og minja.
Gallerí Dvergur | Efrat Zehavi – Fireland.
Gallerí I8 | Finnur Arnar sýnir ýmis mynd-
verk.
Gerðuberg | Rosemarie Trockel sýnir ljós-
myndir, skúlptúra, teikningar og myndbönd.
Gerðuberg | Sigríður Salvarsdóttir í Vigur
sýnir listaverk úr mannshári í Boganum,
Gerðubergi frá 21. janúar– 13. mars. Sjá nán-
ari upplýsingar á www.gerduberg.is.
Grafíksafn Íslands | Rut Rebekka sýnir
vatnslita- og olíumálverk.
Hafnarborg | Rafmagn í 100 ár – sýning í til-
efni af 100 ára afmæli fyrstu almennings-
rafveitunnar. Svart á hvítu, þrívíð verk, mál-
verk, teikningar og grafík eftir íslenska og
erlenda listamenn í Sverrissal og Apóteki.
Sigrún Guðmundsdóttir er myndhöggvari
janúarmánaðar.
Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný olíu-
málverk í forkirkju.
Hrafnista Hafnarfirði | Tryggvi Ingvarsson,
rafvirkjameistari og heimilismaður á Hrafn-
istu, sýnir útsaum og málaða dúka í Menn-
ingarsalnum á fyrstu hæð.
Kaffi Sólon | Sigríður Valdimarsdóttir –
Snjókorn.
Kling og Bang gallerí | Heimir Björgúlfsson
– Alca torda vs. rest.
Listasafn ASÍ | Valgerður Guðlaugsdóttir –
Á skurðarborði augans.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Birgir
Snæbjörn Birgisson – verk úr tveimur mynd-
röðum, Snertingar og Ljóshærðar starfs-
stéttir. Elías B. Halldórsson – Olíuljós. Verk
úr einkasafni Þorvaldar Guðmundssonar og
Ingibjargar Guðmundsdóttur á neðri hæð.
Listasafn Reykjanesbæjar | Kristín Gunn-
laugsdóttir – …mátturinn og dýrðin, að ei-
lífu…
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið – yfirlitssýning á verkum
Ásmundar Sveinssonar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Þórður
Ben Sveinsson – Borg náttúrunnar. Bjargey
Ólafsdóttir – Láttu viðkvæmt útlit mitt ekki
blekkja þig. Erró – Víðáttur. Brian Griffin –
Áhrifavaldar.
Nýlistasafnið | Hlynur Helgason – Gengið
niður Klapparstíg. Ævintýralegir feministar
– Carnal Knowledge.
Safn | Stephan Stephensen – AirCondition.
Jóhann Jóhannsson – Innsetning tengd tón-
verkinu Virðulegu forsetar. Á hæðunum
þremur eru að auki ýmis verk úr safneign-
inni, þ.á m. ný verk eftir Roni Horn, Pipilotti
Rist og Karin Sander.
Slunkaríki | Ívar Brynjólfsson, Bardagavellir.
Suðsuðvestur, Reykjanesbæ | Magnús
Pálsson sýnir innsetningu.
Thorvaldsen Bar | Kristín Tryggvadóttir
sýnir samspil steina, ljóss og skugga.
Tjarnarsalur Ráðhúss Reykjavíkur | Sören
Solsker Starbird – Er sálin sýnileg? Ljós-
myndasýning.
Þjóðmenningarhúsið | Bragi Ásgeirsson (f.
1931), grafíklistamaður, listmálari, myndlist-
arkennari og listgagnrýnandi er myndlist-
armaður mánaðarins í samstarfi Þjóðmenn-
ingarhússins og Skólavefjarins. Í
Þjóðmenningarhúsinu er yfirlitssýning á
verkum Braga, bæði í veitingastofu og í
kjallara.
Leiklist
Borgarleikhúsið | Lína Langsokkur er sterk-
asta stelpa í heimi og birtist á sviði Borg-
arleikhússins ásamt bestu vinum sínum,
Tomma og Önnu, apanum Níels og hestinum
sínum. Hún syngur og dansar og ræður við
bófa, löggur, kennslukonur og barnavernd-
arnefndina. Og allir elska hana.
Híbýli vindanna er leikgerð Bjarna Jóns-
sonar á vesturfarasögum Böðvars Guð-
mundssonar, Híbýli vindanna og Lífsins tré.
15 leikarar Borgarleikhússins eru í þessari
sýningu undir leikstjórn Þórhildar Þorleifs-
dóttur.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | Sýningaröðin Tón-
listararfur Íslendinga. Kynntar eru nýjar
rannsóknir á tónlistararfinum og útgáfa efn-
is á geisladiskum. Fyrsta sýningin fjallar um
Silfurplötur Iðunnar sem Kvæðamanna-
félagið Iðunn og Smekkleysa gaf nýlega út á
4 geisladiskum ásamt veglegu riti.
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning Þjóð-
minjasafnsins, Þjóð verður til –menning og
samfélag í 1200 ár. Opið frá kl. 11–17.
Fréttir
Fuglaverndarfélag Íslands | Fuglavernd
stendur fyrir garðfuglaskoðun í dag. Nánari
upplýsingar á vef félagsins á www.fugla-
vernd.is/.
Fundir
Félagsheimilið Mikligarður | Sjálfstæð-
isflokkurinn heldur stjórnmálafund í Félags-
heimilinu Miklagarði á Vopnafirði, mánudag-
inn 31. janúar kl. 20. Yfirskrift fundarins er:
Með hækkandi sól – lægri skattar – aukin
hagsæld. Framsögumenn: Árni M. Mathie-
sen sjávarútvegsráðherra og Halldór Blön-
dal, forseti Alþingis.
Grunnskólinn í Bakkafriði | Sjálfstæð-
isflokkurinn heldur stjórnmálafund á morg-
un kl. 16.30. Yfirskrift fundarins er: Með
hækkandi sól – lægri skattar – aukin hag-
sæld. Framsögumenn: Árni M. Mathiesen
sjávarútvegsráðherra og Halldór Blöndal,
forseti Alþingis.
Kvenfélag Fríkirkjunnar í Hafnarfirði | Að-
alfundurinn verður þriðjudaginn 1. febrúar kl.
20.30.
Námskeið
Mímir–símenntun ehf. | Námskeiðið síms-
vörun á ensku á vegum Útflutningsráðs og
Mímis–símenntunar, verður haldið 1. feb. kl.
14–16. Nemendur læra algengan orðaforða,
að taka á móti skilaboðum og að veita upp-
lýsingar á ensku. Námskeiðið er ætlað ein-
staklingum með nokkurn grunn í ensku.
Verð: kr. 3.700 kr. Kennari: Caroline Nichol-
son. Skráning á www.utflutningsrad.is.
Útivist
Ferðafélagið Útivist | Dagsferð á Stóra-
Hrút í dag og er farið frá BSÍ kl. 10.30. Stóri-
Hrútur er keilulaga fjall við rætur Fagradals-
fjalls. Farið verður frá Skála–Mælifelli við
veginn á milli Grindavíkur og Krýsuvíkur.
Göngutími 4–5 tímar. Verð 2.100/2.500 kr.
Ferðafélag Íslands | Göngugleði á sunnu-
dögum. Mæting við Mörkina kl. 10, með
nesti.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
STUTTMYNDIN Katla gamla verður frumsýnd í dag
kl. 13 í Laugarásbíói. Myndin, sem er tæpur hálftími að
lengd, er ætluð börnum og hér er um að ræða einu sýn-
ingu myndarinnar í bíósal, ef að líkum lætur.
Katla gamla, sem byggð er á smásögu eftir Iðunni
Steinsdóttur, fjallar um krakkana Ómar og Tinnu sem
er afar illa við hana Kötlu gömlu, sem er alltaf að
skamma þau. Þau ákveða því að hefna sín á henni með
því að gera at í henni. En þegar gamla konan verður
fyrir óhappi sjá krakkarnir að sér og koma henni til
hjálpar. Katla gamla er þeim þakklát og býður þeim
heim til sín í kakó og þá kynnast þau betur þessari
gömlu konu og skilja aðstæður hennar. Þau fá líka
góða hugmynd og vilja hjálpa Kötlu gömlu.
Leikstjóri myndarinnar er Sigurður Ingi Ásgeirsson,
sem áður hefur starfað að gerð fræðslu- og heimildar-
mynda. „Þetta er fyrsta leikna myndin sem ég leikstýri
ef frá er talin útskriftarmynd mín úr Kvikmyndaskól-
anum,“ segir Sigurður. „Ég vann handritið í samvinnu
við Iðunni Steinsdóttur, höfund sögunnar, og við hlut-
um góða styrki frá Kristnihátíðarsjóði og Menningar-
sjóði KB banka. Ástæðan fyrir styrknum frá Kristnihá-
tíðarsjóði er sú að myndin er með kristilegan boðskap,
án þess þó að hún sé í predikunartón. Ég vona að okkur
hafi tekist að gera skemmtilega mynd en jafnframt
komið á framfæri hollum boðskap.“
Í aðalhlutverkum í myndinni eru þau Guðrún Ás-
mundsdóttir, Margrét Ólafsdóttir, Gísli Þór Ingólfsson
og Rakel Tómasdóttir. „Ég á ekki síst Guðrúnu Ás-
mundsdóttur mikið að þakka fyrir hennar framlag,“
segir Sigurður. „Því ekki aðeins lék hún prýðilega, eins
og hennar er von og vísa, heldur kom hún með góðar
hugmyndir sem við gátum nýtt til að krydda handritið
með. Reyndar má segja það sama um börnin, þau voru
ákaflega hugmyndarík og gaman að vinna með þeim.“
Sjoppan í bíóinu verður opin á undan sýningunni og
eftir og þar verður hægt að kaupa eintak af myndinni.
Barnastuttmyndin
Katla gamla
Orðfæð
Á ENSKU og allmörgum erlendum
tungumálum öðrum, þegar rætt er
um æðsta yfirmann stórrar al-
þjóðastofnunar eða stjórn-
málaflokks, þá er starfsheiti hans
„Secretary General“, og varð
snemma til yfir þetta ágæt íslensk
þýðing, þ.e. orðið „aðalritari“, en á
þann hátt virðist orðið fyrst hafa
verið notað um yfirmann Þjóða-
bandalagsins sáluga, þvínæst yfir
höfðingja ýmissa kommúnistaflokka
austantjalds, en loks um yfirmann
Sameinuðu þjóðanna, þegar þau
samtök komu til skjalanna árið
1945.
Áratugum saman var svo aldrei
annað orð notað um þennan yfir-
mann en aðalritari. En fyrir um 10–
15 árum virðist einhver fávís eða fá-
kunnandi fjölmiðlungur hafa gripið
til þess í fljótfærni að nefna hann
„framkvæmdastjóra“ (orð sem feng-
ið er að láni úr fyrirtækjarekstri en
ekki stofnana) og er skemmst frá
því að segja að nú á dögum heyrir
það til algerra undantekninga að
rétt starfsheiti sé notað. Engan þarf
að undra þótt þar fari fjölmiðlungar
enn í fararbroddi, en hitt vekur
furðu að hámenntaðir menn á borð
við þá sem fara fyrir hinni svoköll-
uðu Þjóðarhreyfingu skuli ekki geta
farið rétt með starfsheitið, né held-
ur einhver margreyndasti blaða-
maður landsins, Elín Pálmadóttir, í
Morgunblaðsgrein sl. sunnudag.
Undirrituðum er aðeins kunnugt
um eina staðfasta undantekningu
frá notkun á þessari ambögu, en
það er Geir Haarde fjármálaráð-
herra sem í sjónvarpsviðtali fyrir
nokkrum mánuðum svaraði end-
urteknum spurningum fyrirspyrj-
andans um „framkvæmdastjóra“
Sameinuðu þjóðanna, með: aðalrit-
arinn hitt og aðalritarinn þetta. Á
hann fyrir það heiður skilinn en
samt er erfitt að verjast þeirri til-
hugsun að brátt verði hið mjög svo
þjála og hentuga orð aðalritari end-
anlega úr sögunni.
Björn Jónsson,
fyrrv. starfsmaður SÞ.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn