Morgunblaðið - 30.01.2005, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
Heilsukoddar
Heilsunnar vegna
EIGENDUR 66º Norður áforma að opna tugi
verslana í Skandinavíu og víðar í Evrópu á næstu
tveimur árum. Að sögn Marinós Guðmundsson-
arsonar, forstjóra fyrirtækis-
ins, er unnið að því að ráða um
100 starfsmenn í Lettlandi í
tengslum við opnun nýrrar
verksmiðju sem tekur til starfa
á næstu vikum. Um 150 manns
starfa við verksmiðju fyrirtæk-
isins sem þar er fyrir, og er
áætlað að um 250 manns starfi
hjá fyrirtækinu í Lettlandi
undir lok þessa árs.
Að sögn Marinós er hug-
myndin að breikka vörulínuna og eru ýmsar nýj-
ungar væntanlegar frá fyrirtækinu strax næsta
sumar og haust, ný snið, litir og efni. Markmiðið
sé að auka söluna á erlendum mörkuðum og á inn-
anlandsmarkaði.
Á forsíðu The Wall Street Journal
Greint er frá útrás fyrirtækisins á Bandaríkja-
markaði á forsíðu viðskiptahluta bandaríska dag-
blaðsins The Wall Street Journal á föstudag. Þar
eru vörur fyrirtækisins til sölu í á þriðja tug
verslana og stefnt að því að fjölga sölustöðum um-
talsvert í gegnum dreifingaraðila í Bandaríkjun-
um.
Að sögn Marinós er umfjöllun blaðsins gríðar-
góð auglýsing og kynning á fyrirtækinu ytra.
„Við höfum verið að vaxa mjög mikið undanfar-
in tvö ár á Bandaríkjamarkaði og erum að selja
mikið þangað og ætlum okkur að styrkja stöðu
okkar bæði á Íslandi og á erlendum mörkuðum.“
Að sögn hans snýr rekstur fyrirtækisins bæði
að framleiðslu á vinnufatnaði og sjófatnaði ásamt
útivistarfatnaði. Fyrirtækið hafi t.a.m. að und-
anförnu gert stóra samninga við innlend verk-
takafyrirtæki varðandi framleiðslu á vinnufatn-
aði. Í útivistarfatnaði sé fyrirtækið vel
samkeppnishæft við erlend merki á borð við The
North Face, bæði í gæðum og verði. Lágt gengi
dollara að undanförnu setji þó strik í reikninginn.
Fyrirtækið rekur nú 5 verslanir á Íslandi og
tvær í Riga í Lettlandi. Varðandi opnun nýrra
verslana segir Marinó að fyrirtækið vinni nú að
því að nútímavæða vörustýringar- og birgða-
stjórnunarkerfi fyrirtækisins og framleiðslu-
stjórnun, til að vera vel í stakk búið að sinna auk-
inni eftirspurn í framtíðinni.
66º Norður opnar nýja 100 manna verksmiðju í Lettlandi á næstu vikum
Áforma að opna tugi
verslana í Evrópu
Marinó
Guðmundsson
BJARNI Þorgeirsson og Sigríður
systir hans, bændur á Hærings-
stöðum í Flóa, bera heybagga í úti-
ganginn, um 30 hross sem öll eru
rauð eða rauðskjótt. „Þessi tvö
brúnu eru þaðan frá Holti,“ sagði
Bjarni og benti til næsta bæjar.
Haginn var allur á floti enda hef-
ur hlánað hratt síðustu daga,
skurðir sem venjulega eru nokkuð
sakleysislegir eru eins og vænir
lækir. Þau Bjarni og Sigríður fögn-
uðu hlýindunum, enda mun hægara
um vik að sinna skepnunum þegar
jörð er auð.
Líklegt má telja að skepnunum
líki aukin hlýindi bara bærilega og
vona þær eflaust að versti vetrar-
kuldinn sé nú að baki.
Morgunblaðið/Einar Falur
Haginn
á floti í
hlákunni
RAUNÁVÖXTUN eigna Lífeyris-
sjóðs verslunarmanna (LV) var
12,1% í fyrra, sem er sama raun-
ávöxtun og var á eignum sjóðsins ár-
ið 2003. Síðustu tvö ár eru bestu
rekstrarárin í nærfellt 50 ára sögu
sjóðsins. Sjóðurinn er næststærsti
lífeyrissjóður landsins og er fyrstur
til að birta afkomutölur vegna síð-
asta árs, en almennt er reiknað með
að afkoma lífeyrissjóða hafi verið af-
ar góð á síðasta ári
Eignir LV námu 150,7 milljörðum
í árslok 2004 og hækkuðu um 27
milljarða á árinu eða um 22%. Nafn-
ávöxtun á eignum sjóðsins var
16,4%. Bestu ávöxtun eignaflokka
sýndu innlend hlutabréf en nafn-
ávöxtun þeirra var 79,1% á árinu og
raunávöxtun 72,5%. Til samanburð-
ar hækkaði Úrvalsvísitala Kauphall-
arinnar um 58,9% á árinu. Ávöxtun
erlendra verðbréfa sjóðsins í Banda-
ríkjadölum var 13,4% en á móti
styrktist íslenska krónan á árinu
gagnvart dal um 14,0%. Raunávöxt-
un innlendra skuldabréfa var 7,8% á
liðnu ári.
Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri LV,
sagði að góð afkoma sjóðsins á liðnu
ári skýrðist að stærstum hluta af
hagstæðri þróun á innlendum hluta-
bréfamarkaði.
„Eignasamsetning hlutabréfa-
eignar sjóðsins var hagstæð þar sem
bankarnir voru yfirvigtaðir í eigna-
safninu en þar urðu mestar hækk-
anir sem skýrir umframávöxtun
sjóðsins miðað við Úrvalsvísitöluna.
Aftur á móti dró óhagstæð gengis-
þróun úr arðsemi erlendu verðbréf-
anna,“ sagði Þorgeir.
Aðspurður taldi hann að árið 2005
gæti orðið hagfellt lífeyrissjóðunum
á hlutabréfamarkaði en vart með
sama hætti og á síðustu tveimur ár-
um.
Á árinu 2004 greiddu 45 þúsund
sjóðfélagar til Lífeyrissjóðs verslun-
armanna og námu iðgjaldagreiðslur
alls 9 milljörðum króna. Þá greiddu
6.600 fyrirtæki til sjóðsins vegna
starfsmanna sinna. Á árinu 2004
nutu 7 þúsund lífeyrisþegar lífeyr-
isgreiðslna frá sjóðnum að fjárhæð
2,6 milljarðar króna.
12,1% raunávöxtun var
hjá LV annað árið í röð
Tvö bestu árin í nærfellt 50 ára sögu
Lífeyrissjóðs verslunarmanna
VIÐSKIPTAHÁSKÓLINN á Bifröst
mun frá og með næsta háskólaári
bjóða nemendum upp á heilsárshá-
skóla þannig að stúdentar sem það
vilja geti lokið BS-gráðu á tveimur
árum í stað þriggja með því að
leggja stund á
nám allt árið.
Þetta kom fram
hjá Runólfi
Ágústssyni, rekt-
or háskólans, við
útskrift frá skól-
anum í gær.
Í samtali við
Morgunblaðið
sagði Runólfur að
íslenskir háskól-
ar nýttu nú skólaárið ekki sem
skyldi og að stúdentar væru að
jafnaði 22 vikur í fríi á ári hverju.
Með þessari nýjung yrði há-
skólanám að fullri vinnu og efna-
hagslegur sparnaður nemenda af
þessari breytingu væri verulegur
þar sem þeir gætu útskrifast ári
fyrr en í hefðbundnu kerfi og þar
með lengt starfsævi sína um ár.
Útskrifist á sama aldri og
nemendur í nágrannalöndum
Þessi breyting væri einnig í fullu
samræmi við þá samfélagsumræðu
sem nú á sér stað um menntun hér-
lendis, m.a. varðandi styttingu
náms til stúdentsprófs og myndi
ásamt þeirri breytingu gera ís-
lenskum háskólanemum kleift að
útskrifast með fyrstu háskólagráðu
á sama aldri og tíðkast víða í ná-
grannalöndum okkar. Eftir breyt-
ingu verða þrjár kennsluannir á ári
á Bifröst og fá nemendur og kenn-
arar fimm vikna sumarfrí á ári, líkt
og tíðkast á almennum vinnumark-
aði. Að sögn Runólfs er fyrirhugað
að bæta í kennaralið skólans vegna
þessara breytinga.
Aðspurður telur Runólfur að
margir nemendur muni nýta sér
þennan nýja valkost því þær kann-
anir sem gerðar hafa verið meðal
núverandi nemenda skólans bendi
til þess að 75% nemenda hafi veru-
legan áhuga á að nýta sér sumar-
önnina til náms./6
Boðið verður upp á
heilsársskóla á Bifröst
BS-nám
á tveim-
ur árum
Runólfur
Ágústsson