Morgunblaðið - 06.02.2005, Síða 8

Morgunblaðið - 06.02.2005, Síða 8
8 SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Húrra, húrra, ég var ekki mesti krimminn. Í október árið 2002 varfélagið „Læknargegn tóbaki“ stofnað og er félagið opið öllum læknum sem hafa áhuga á tóbaksvörnum. Markmið félagsins er tvíþætt. Í fyrsta lagi að vinna að því að gera öllum sem nota einhvers konar tóbak auð- veldara að hætta því. Í öðru lagi vinna að forvörn- um gegn hvers konar tób- aksnotkun, meðal annars með markvissu starfi gegn áróðri tóbaksfram- leiðenda. Eitt af því sem félagið hefur verið að berjast gegn og hefur verið í um- ræðunni að undanförnu er óbein- ar reykingar. Lilja Sigrún Jóns- dóttir, formaður félagsins, segir það koma sífellt betur í ljós hversu skaðlegar óbeinar reyk- ingar séu. Hún segir íslenska lækna fylgjast með og hafa fylgst vel með rannsóknum sem sýnt hafa skaðleg áhrif óbeinna reyk- inga á heilsu fólks. Hún segir lækna hafa sýnt hug sinn til þessa viðfangsefnis á Reyklausa daginn árið 2003 þegar á þriðja hundrað lækna sendi Jóni Kristjánssyni heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra áskorun um að tryggja rétt fólks til reyklauss umhverfis, og gera þ.a.l. almenn rými á veit- inga- og skemmtistöðum reyk- laus. Í áskoruninni fólst einnig að tryggja í sessi góð meðferðarúr- ræði fyrir þá sem vilja hætta að reykja. Á Læknadögum sem stóðu yfir nú í janúar sl. sagði sænski lungnalæknirinn Göran Boethius að það væri vitað með vissu að þrír af hverjum fjórum reykinga- mönnum vildu hætta að reykja og þeim yrði að hjálpa. Boethius benti á að það væri fyrir löngu ljóst að óbeinar reykingar væru skaðlegar. Staðreyndirnar lægju fyrir en hinsvegar væri mikilvægt að upplýsa fólk um hætturnar. Hann segir að árlega mætti rekja um 500 dauðsföll í Svíþjóð til óbeinna reykinga. Lilja segir að á Íslandi sé talið að um á ári hverju látist 400 einstaklingar sem reykja eða hafa reykt, af völdum sjúkdóma sem hafa veru- leg orsakatengsl við reykingar og aðra tóbaksnotkun. Það megi því gera ráð fyrir að 30–40 einstak- lingar látist af sjúkdómum sem hafi orsakatengsl við óbeinar reykingar. Samkvæmt rannsóknum Tób- aksvarnarráðs, sem mælir tíðni reykinga árlega, reyktu tæp 20% fólks árið 2004 á aldrinum 15-89 ára (21,1% fyrir karla og 18,6% fyrir konur). Veitingafólk í hættu Kristinn Tómasson, yfirlæknir Vinnueftirlitsins, sagði í fyrir- lestri sínum á Læknadögum, að óbeinar reykingar væru án efa einn öflugasti krabbameinsvaldur sem fólk yrði fyrir í vinnu sinni. Hann benti á að lögum sam- kvæmt eigi að stuðla að því að starfsmenn séu verndaðir gegn hvers konar heilsuvá eða heilsu- tjóni sem stafa kann af vinnu þeirra eða vinnuskilyrðum. Ljóst sé að starfsmenn sem starfi á veitinga- eða skemmtistöðum séu í sérstökum áhættuhópi vegna óbeinna reykinga. Pétur Heimisson, formaður Tóbaksvarnaráðs, segir óbeinar reykingar vera fyrst og fremst vinnuverndarmál og beri að nálg- ast þær sem slíkt. Hann segir „Þeir sem í dag búa við óbeinar reykingar við vinnu sína verða að segja stopp, hingað og ekki lengra! Alþingi okkar allra, bæði þeirra sem reykja og ekki reykja, verður að tryggja þau sjálfsögðu mannréttindi og vinnuverndar- sjónarmið að daglegt starfsum- hverfi fólks ógni ekki lífi þess og heilsu,“ segir Pétur í grein sem birtist í Morgunblaðinu sl. sumar. 9. greinin tímaskekkja Í fyrirlestri sínum á Lækna- dögum furðaði hann sig á 9. gr. tóbaksvarnalaga. Þar er almennt kveðið á um að reykingar í þjón- usturými séu óheimilar, að und- anskildum veitinga- og skemmti- stöðum. „Í raun býr því nær allt vinnandi fólk, nema starfsmenn veitingahúsa (m.a. skemmtikraft- ar), við þann lögbundna rétt að loft á vinnustað er ekki mengað tóbaksreyk,“ segir Pétur. Hann bendir á það að sumir rekstrarað- ilar hafi sjálfir bannað reykingar á sínum veitingastað og tryggt starfsfólki sínu vinnuvernd, og það sé lofsvert. Hann er hinsveg- ar þeirrar skoðunar að ofangreind undanþága eigi ekki heima í tób- aksvarnalögum. Níels S. Olgeirsson, formaður Matvæla- og veitingasambands Íslands, segir fyrirhugað á næst- unni að halda fræðslufund meðal félagsmanna sem vinna á veit- ingastöðum og lækna til þess að átta sig betur á skaðsemi óbeinna reykinga. Hann hafi rætt um þessi mál við Sigurð Bessason, formann Eflingar, og „Lækna gegn tóbaki“. Sigurður segir við- horf Eflingar vera skýr hvað þetta varði. „Við teljum að starfs- menn eigi ekki að þurfa að vinna í umhverfi þar sem þeir séu settir undir óbeinar reykingar,“ segir Sigurður og bætir því við að félag- ið styðji reykbann á veitinga- og skemmtistöðum. Fréttaskýring | Skaðsemi óbeinna reykinga Staðreyndirn- ar liggja fyrir Gera má ráð fyrir að 30–40 manns látist árlega vegna óbeinna reykinga Reykingum fylgir gjarnan talsverður óþverri. Bann hefur gefist vel í Noregi, Írlandi og á Ítalíu  Noregur, Írland og Ítalía eru þegar búin að banna reykingar á veitinga- og skemmtistöðum. Það hefur gengið mjög vel. Á Ír- landi var 6 mánuðum eftir laga- setninguna 94% fylgni á hótelum, 99% á veitingahúsum og 91% á börum og/eða skemmtistöðum. Í Svíþjóð hafa verið sett lög sem taka gildi 1. júní nk. Lögin kveða á um að reykingar verði bann- aðar í öllu rými þar sem starfs- fólki er ætlað að dvelja við störf. jonpetur@mbl.is Fjögurra daga ofurnámskeið með hvatningarþjálfaranum og metsöluhöfundinum Anthony Robbins í London 6.-9. maí 2005. Nánari upplýsingar og skráning á www.changeyourlife.is eða í síma 699-6617 & 517-5171. UNLEASH T H EPOWER WITHIN! A nt ho ny R ob b in s Laugavegi 71, sími 551 0424. Seyma Seyma Ú t s a l a 30%- 50% a f s l á t t u r GUNNAR Smári Egilsson, fram- kvæmdastjóri 365 prent- og ljósvaka- miðla, segir að eintökum af Frétta- blaðinu sem dreift er á Ísafirði hafi verið fækkað um 5%, en ekki 50% eins og sagt var frá á vefsíðu Bæj- arins besta á Ísafirði nýverið. Hann segir að reglulega sé dreifing blaðsins á landsbyggðinni endurskoðuð, stundum sé hún aukin, en nú í janúar hafi hún verið minnkuð um 5% á nokkrum stöðum á landinu. Enn sé dreift um 14.000 eintökum á lands- byggðinni og eru þá ekki talin með eintök sem fara inn í hvert hús á Ak- ureyri. „Við erum að gefa blaðið og kostum flutninginn vestur, austur, norður og suður,“ segir Gunnar Smári. „Það hljóta allir að sjá það í hendi sér að við getum ekki svarað eftirspurninni endalaust.“ Hann segir það vera stefnu að blað- ið klárist um hádegisbil í verslunum úti á landi. „Fjölmiðlar eru þannig að lífið í þeim er bundið ákveðnum tíma. Blað gærdagsins er lítils virði. Við teljum það því ekki eftirsóknarvert fyrir okkur, né nokkurn, að blöðin séu til á útsölustöðum langt fram eftir kvöldi.“ Gunnar Smári bendir á að dreifing blaðsins með flugi, til Vestfjarða og Austfjarða, sé dýrasta dreifingin. Færri eintök á landsbyggðinni nú séu ekki hluti af sparnaðaraðgerðum. Spurður hvort enn sé vilji til að þjón- usta þessi svæði segir Gunnar Smári: „Já, við höfum gert það en þetta er til skoðunar eins og hvað annað.“ Hann neitar því þó að til greina komi að hætta dreifingu blaðsins þar núna. Gunnar Smári segir að ekki komi til greina að selja Fréttablaðið á landsbyggðinni, forsvarsmenn blaðs- ins vilji ekki „bjóða fólki úti á landi að kaupa það sem höfuðborgarbúar fá ókeypis“. Dreifing Fréttablaðsins á landsbyggðinni 5% færri eintök til Ísafjarðar FERÐASKRIFSTOFAN Prima Embla, sem hefur sér- hæft sig í heimsreisum og sér- ferðum í litlum hópum, hefur gefið út nýjan ferðabækling. Verður hann kynntur á opnu húsi í Stangarhyl 1 í dag, sunnudag, frá kl. 14–17. Í frétt frá fyrirtækinu segir að mikið sé þegar bókað í æv- intýraferðirnar til Amasón og Galapagos, Kína og í heimsreis- una til Ástralíu, Nýja-Sjálands og Fiji-eyja. Á opna húsinu verður boðið upp á veitingar og kynningu á ferðum sem framundan eru. Einnig mun Ingólfur Guð- brandsson flytja pistil og sýna myndir frá Phuket-eyju en hann var þar á ferð nýverið. Gestir fá happdrættismiða og eiga kost á að vinna fría ferð út í heim. Opið hús hjá Prima Emblu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.