Morgunblaðið - 06.02.2005, Page 11

Morgunblaðið - 06.02.2005, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2005 11 dugir í mörgum tilvikum að færa gufuöflunina örlítið um set og síð- an mun svæðið jafna sig aftur á einhverjum tíma. Það eru því kostir og gallar. Annað sem hafa ber í huga er að jarðvarmavirkjanir eru að jafnaði minni en vatnsaflsvirkj- anir, þannig að byggja þarf fleiri virkjanir til að ná fram sömu orkunni. Í rammaáætluninni er til dæmis gengið út frá því að á hverju jarðhitasvæðanna sem koma til álita sé hægt að virkja um 120 megavött (MW), eða 840 gígavattstundir á ári (GWst/ár). Það má spyrja sig hvort það sé betra að reisa fimm til sex slíkar jarðvarmavirkjanir eða eina virkj- un á borð við Kárahnjúka, sem talin er munu gefa af sér 4.670 GWst/ár.“ Þorkell tekur undir það að- spurður að heppilegt sé að geta bæði unnið orku úr jarðvarma og vatnsafli, enda lúti þessar tvær tegundir virkjana ólíkum lög- málum. „Jarðvarmavirkjanir eru náttúrulega óháðar veðurfari, en geta vatnsaflsvirkjana breytist hins vegar eftir árstíðum. Þess- vegna er þörf á þessum stóru miðlunarlónum, til að jafna á milli sumars og vetrar. En vatnsafls- virkjanirnar hafa jafnframt þann kost að það er tiltölulega ódýrt að hanna þær fyrir drjúgt hámarks- afl og auðvelt að keyra þær á há- marksafli, þannig að þær geta tekið á sig toppa í orkunotkun, eins og á veturna, og þær láta betur að stjórn til að bregðast við sveiflum. Þá má geta þess að jarðvarmavirkjunum verður að loka í einhverjar vikur á ári vegna viðhalds. Það er því af- skaplega hentugur kostur að geta nýtt bæði vatnsaflið og jarðvarm- ann, og helst vildi maður ekki þurfa að reiða sig eingöngu á annaðhvort. Norðmenn eru reyndar svo til eingöngu með vatnsaflsvirkjanir, en það er ólíku saman að jafna, því þeir eru tengdir við hið stóra orkukerfi Evrópu.“ Möguleikar í djúpborunum Í niðurstöðum fyrsta áfanga rammaáætlunarinnar kemur fram að sú heildarorkugeta sem menn vænta í orkulindum landsins sé um 67.000 GWst/ár. Þar af hefur hag- kvæm nýtanleg vatnsorka verið metin um 37.000 GWst/ár, en á árinu 2003 nam raforkuvinnsla úr vatnsafli um 7.000 gígavatt- stundum. Raforkuvinnsla úr jarð- hita nam alls um 1.400 gígavatt- stundum árið 2003. Meiri óvissa er um tæknilega hagkvæma orkugetu jarðhita til raforkuframleiðslu, en hún er talin að lágmarki um 30.000 GWst/ár. Því má gera ráð fyrir að svipuð orka sé nú ónotuð af mögu- legum virkjunarkostum í vatnsafli og jarðvarma, þó nýting vatnsafls- ins sé mun meiri enn sem komið er. Margir binda vonir við að með svokölluðum djúpborunum megi stórauka raforkuframleiðslu með jarðvarma. Þrjár stærstu orkuveit- ur landsins, Landsvirkjun, Orku- veita Reykjavíkur og Hitaveita Suðurnesja, auk Orkustofnunar, hafa í sameiningu staðið að for- athugun í samstarfi við Íslenskar orkurannsóknir á því hvort orku- öflun úr háþrýstum 5 km djúpum borholum, þar sem hitastigið er á bilinu 400-600 gráður, geti verið álitlegur virkjanakostur. Orkumálastjóri segir að þær borholur sem nú eru í notkun nái mest niður á um 3 km dýpi og úr þeim fáist gufa sem er 250-300 gráða heit. En útreikningar sýni að ef borað verði niður á 4-5 km dýpi megi vænta um tvöfalt hærri hita. Aukningin í orkugetu við slík- ar djúpboranir ætti þó að verða margföld. „Þessar síðustu gráður eru af eðlisfræðilegum ástæðum óskaplega verðmætar,“ segir Þor- kell. „Þegar hitastigið tvöfaldast, og þá um leið þrýstingurinn sem því fylgir, er orkugetan um það bil að tífaldast. Ef rannsóknir ganga að óskum og kostnaðurinn við að bora svona djúpar holur er ekki óheyrilegur gæti hlutfall jarð- varma til raforkuframleiðslu farið langt fram úr vatnsaflinu. Þá vær- um við líka að tala um virkjanir þar sem hægt væri að virkja mikið á sama stað, og þar með væru um- hverfisáhrifin miðað við landflöt tiltölulega lítil. Þessi áform eru því óhemju spennandi.“ Þorkell segir að verkefnið sé einnig afar áhugavert í vísinda- legum skilningi, enda hafi erlendir sérfræðingar sýnt því mikinn áhuga. Hann varar þó við ofurtrú á að djúpboranir geti leyst orku- mál Íslendinga í einni svipan og bendir á að tilraunaboranir séu ekki enn hafnar, en þær muni væntanlega taka mörg ár. vatnsafl?                    Morgunblaðið/RAX Teikning/Landsvirkjun Myndin sýnir vinnsluferlið í jarðvarmavirkjun á borð við Kröflustöð Landsvirkjunar. adalheidur@mbl.is Tryggvi Felixson, framkvæmdastjóri Land- verndar, segir að vinnan við rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma bendi til þess að margir kostir séu í jarðhita sem hægt væri að virkja án þess að ógna verulegum nátt- úruverndarhagsmunum. „Það ræðst að verulegu leyti af því að mörg þessara jarðvarmasvæða liggja nærri byggð og á svæðum sem hefur þegar verið raskað að einhverju leyti. Eins af því að fram- kvæmdasvæðið, beint áhrifasvæði virkjunar- innar, er talsvert minna en þegar virkjaðar eru jökulár og búa þarf til stór uppistöðulón til þess að miðla,“ segir Tryggvi. Hann undirstrikar þó að ýmis jarðhitasvæði hafi hátt verndargildi, eins og Torfajök- ulssvæðið og Brennisteinsfjöll, sem ekki hefur verið raskað mikið. „Þegar menn skipuleggja vinnslu á jarðvarma þurfa þeir að gæta sín á því að hlífa verðmætustu svæðunum. Og þar sem segja má að ákveðin landvinninga- stemmning sé við lýði innan orkugeirans ótt- ast maður svolítið að einhver svæði verði lögð undir sem frekar ættu skilið að vera vernduð. En fram að þessu virðist sem það hafi tek- ist betur að ná sátt um jarð- varmasvæðin en mörg þeirra virkjunarsvæða þar sem jökul- árnar eru í húfi. Ég held að það sé til dæmis óhætt að segja að innan náttúruvernd- arsamtaka hafi menn fagnað því þegar jarðvarmavirkjanir á Reykjanesi og Hellisheiði komu inn sem orkugjafi fyrir stækk- un álversins á Grundartanga, í stað veitu úr Þjórsárverum. Einnig má segja að auðveldara sé að sætta sig við að jarð- varmaorkuöflun sé aukin á svæðum eins og Kröflu og Bjarnarflagi, sem þegar eru numin, í stað þess að gengið sé inn á ný svæði.“ Ekki klippt og skorið En Tryggvi bendir á að um leið sé verið að leggja undir ný svæði á Þeistareykjum og fleiri svæði komi til álita sem lítt hafi verið undir áhrifum mannvirkja. „Þannig að þetta er ekki klippt og skorið. Það er ekki unnt að segja afdráttarlaust að jarð- varmavirkjanir séu góðar og vatns- aflsvirkjanir slæmar. Við eigum líka nýleg dæmi um vatnsaflsvirkjanir sem ekki hafa verið svo umdeildar, eins og Búðarhálsvirkjun, sem er inni á svæði sem er þegar orðið nokkuð raskað og um hana var lít- ið deilt. Ísland sérstakt Ég veit að það eru margir hugsi yfir því hvort við séum of kæru- laus gagnvart jarðvarmavirkj- ununum. Sjónarmiðin eru sífellt að breytast og ný þekking að bætast við. Ég tel að það sé allavega brýnt að reyna að tilgreina þau jarðvarmasvæði sem hafa augljóslega afar hátt náttúruverndargildi, og rammaáætlunin er skref í þá átt. Almennt held ég að það séu meiri möguleikar á að koma til móts við um- hverfisverndarsjónarmið með jarðvarmavirkj- unum, en við þurfum að skoða hvert skref af- ar vel.“ Tryggvi segir að taka þurfi tillit til þess að þekking okkar á ýmsum lífverum sem tengj- ast jarðvarma, til dæmis hitakærum örverum, sé enn ekki nógu mikil. „Það kunna að leyn- ast einhverjar einstakar lífverur á þessum svæðum og við höfum ákveðnum skyldum að gegna hvað varðar alþjóðlega sáttmála um að vernda líffræðilega fjölbreytni. Íslensku jarð- hitasvæðin eru mjög sérstök og við berum ábyrgð á alþjóðavísu.“ Hann nefnir að talsmenn náttúruverndar bindi ákveðnar vonir við þá möguleika sem kunna að felast í djúpborunum eftir jarð- varma. „Með djúpborunum yrði hlutfallslegt áhrifa- svæði jarðvarmavirkjana minna en ella, þar sem úr hverri holu gæti náðst allt að tífalt meiri orka en við hefðbundnar boranir. Maður veltir því fyrir sér hvort djúpboranir hefðu getað komið í staðinn fyrir Kárahnjúkavirkjun til að mæta því sem menn töldu brýna orku- þörf á Norðausturlandi, ef þær væru komnar til og reyndust mögulegar á þessu svæði. Kárahnjúkavirkjun hefur afar mikil umhverfis- áhrif og meiri en nokkur framkvæmd sem við höfum ráðist í á Íslandi,“ segir Tryggvi Fel- ixson að lokum. Gæta þarf þess að hlífa verðmætum svæðum Tryggvi Felixson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.