Morgunblaðið - 06.02.2005, Side 21

Morgunblaðið - 06.02.2005, Side 21
hvað sem öllum hagsmunum líður, geta menn ekki lengur horft fram hjá skaðlegum afleiðingum áfengis- neyzlunnar og því tókst að koma saman ályktun, sem allir gátu fellt sig við. Orðalag hennar er að vísu nokkuð almennt; talað er um að styrkja og styðja allt það sem dreg- ið getur úr skaðlegri neyzlu áfengis. En þarna er þó komin ákveðin viljayfirlýsing, sem menn geta svo tekið til handargagns heima fyrir.“ Fátæktin er stærsta heilbrigðisvandamálið – Malaría og eyðni hafa væntan- lega verið á dagskrá? „Malaría hefur alltaf verið stór- mál á fundum innan Alþjóðaheil- brigðismálastofnunarinnar, en nú var hún ekkert hitamál. Menn eru einhuga í baráttunni gegn henni; það er talið að milljón manns, sem mætti bjarga, deyi af hennar völd- um, einkum í Afríku og einkum börn. Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unin hefur sett það mark, að dregið verði úr malaríutilfellum um helm- ing árið 2010 og um 75% fimm árum þaðan í frá. Eyðni er einn stærsti heilbrigð- isvandinn, sem við glímum við; 250 milljónir manna eru sýktar og um 3 milljónir látast úr sjúkdómnum á ári hverju. Það hefur verið vandi, hversu dýr þau lyf eru, sem notuð eru gegn eyðniveirunni og til að halda í skefj- um afleiðingum smits. Þetta hefur valdið því að lyfin hafa ekki verið notuð í fátækustu löndunum þar sem þörfin er mest. Nú hefur Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunin mælt með notkun ódýrs, samsetts eyðnilyfs. Vandinn við þá meðferð er að henni þarf að fylgja fast eftir, því viðkomandi verður að taka lyfið daglega alla ævi.“ -Er ekki erfitt að horfa upp á það að fjármálin skuli leika svona stórt hlutverk í málum, sem fyrst og fremst snúast um heilsu fólks? „Þetta er auðvitað stórmál. Það eru milljónir manna í heiminum sem verða að láta sér nægja 50–60 krónur eða minna á dag til lífsvið- urværis. Á þessum stjórnarfundum sitja fulltrúar nokkurra slíkra þjóða. Það verður að segjast, að maður finnur mikið til með þessum þjóð- um, þegar maður hlustar á lýsingar þeirra á þeim vanda sem menn standa frammi fyrir. Auðvitað erum við íbúar ríkra þjóða allt of seinir að taka við okkur hvað varðar aðstoð við fátækar þjóðir. Það sama gildir einnig um lyfjaframleiðendur, sem hafa verið býsna tregir í taumi við lækkun lyfjaverðs til þessara þjóða. Það má heldur ekki gleyma því að innan sumra fátækra landa ríkir líka mikið misrétti og bilið milli ríkra og fátækra er miklu meira en við þekkjum. Það er rétt að minna á, að fátækt er í raun stærsta heilbrigðisvanda- málið sem við glímum við. Þúsald- armarkmið Sameinuðu þjóðanna snúa helzt að þessum þáttum. Það má líka leiða að því líkur, að hætta á heimsfaraldri myndi minnka veru- lega, ef drægi úr fátækt og breyt- ingar yrðu á búsetuháttum í þeim löndum sem algengast er að smit verði milli manna og dýra.“ „Skynsamleg“ neyzla sýklalyfja – Nú er mönnum líka tíðrætt um vandann af völdum ofneyzlu sýkla- lyfja. „Sýkingar og vandamál tengd sýklalyfjum eru orðin mikið heil- brigðisvandmál. Nú er reynt að draga sem mest úr notkun sýkla- lyfja og hafa menn talað um „skyn- samlega“ neyzlu í því sambandi. Óhófleg neyzla sýklalyfja býr til ónæmi og kallar fram bakteríur, sem sýklalyfin duga ekki gegn. Því ber brýna nauðsyn til þess að koma böndum á neyzlu sýklalyfja. Sam- þykkt Genfarfundarins gengur út á aðgerðir til þess, meðal annars með því að halda betur utan um aðgengi fólks að þess um lyfjum.“ – Hefur Alþjóðaheilbrigðisstofn- unin tekið á offituvandanum? „Offita er að verða eitt af stóru heilsufarsvandamálunum í heimin- um. Á síðasta Alþjóðaheilbrigðis- þingi var samþykkt áætlun um heil- brigða lífshætti, þar á meðal um mataræði, þjálfun og heilsu.“ – Nú hefur vegur óhefðbundinna meðferða farið vaxandi og hér heima er verið að móta lagaramma fyrir slíka starfsemi. Á hún upp á pallborðið hjá Alþjóðaheilbrigðis- málastofnuninni? „Á þingi Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar í maí 2003 var sam- þykkt ályktun um óhefðbundnar lækningar; „traditional medicine.“ Þar eru aðildarlöndin meðal annars hvött til að styðja við rétta notkun óhefðbundinna lækninga í heil- brigðiskerfum sínum, þar sem þau telja það eiga við. Um leið eru þau hvött til þess að efla rannsóknir, eftirlit með gæðum, virkni og ör- yggi þessa þáttar ásamt því að bæta upplýsingar, kennslu og skráningu þeirra efna og aðferða sem við þetta eru notuð. Mikil áherzla er lögð á að löndin séu sjálfráð hvert um sig í mati sínu á því, hvort óhefðbundnar lækningar eigi við í heilbrigðisþjón- ustunni.“ – Ykkur tókst ekki að afgreiða aukningu fjárframlaga til stofnun- arinnar á janúarfundinum í Genf. „Nei. Þau voru eina málið á dag- skránni, sem ekki náðist samkomu- lag um. En fjármálin hafa verið að þróast þannig, að fyrir nokkrum ár- um voru 60% af fé stofnunarinnar á föstum fjárlögum, sem aðildarríkin greiða samkvæmt alþjóðlegum reglum, og 40% frjáls framlög. Nú stefnir í að 70% verði frjáls framlög. Á janúarfundinum var ætlunin að fá samþykki fyrir því að auka föst framlög þjóðanna um 12% á næsta ári og 9% að meðaltali á tveimur ár- um. Það tókst ekki að afgreiða slíka hækkun, en ég vona að sátt náist um 3% til 4,5% hækkun á næsta ári.“ – Hvert stefnir þá með starfsemi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar- innar? „Ef hlutfall frjálsu framlaganna eykst þýðir það að stofnunin verður sífellt háðari frjálsum framlögum ríkra þjóða, stofnana og fyrirtækja. Hættan við það er að þeir, sem leggja fram féð, vilja hafa puttann í því, hvernig fénu er varið. Það gerir stofnuninni erfiðara fyrir um að stýra sjálf starfsemi sinni og tryggja það að hún sé samt sjálfstæð og óháð. Það var því rætt hvort nú væri svo komið að setja þyrfti reglur um með hvaða hætti stofnunin geti þegið frjáls framlög þannig að tryggt yrði að þeir sem leggja fram fé gætu ekki haft óeðli- lega mikil áhrif á störf stofnunar- innar.“ ættunnar freysteinn@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2005 21 Prima Embla Stangarhyl 1 110 Reykjavík Sími 511 4080 Fax 511 4081 www.embla.is „HÚLLUMHÆ OG DIDGERIDOO“ OPIÐ HÚS FÖGNUM HÆKKANDI SÓL OG NÝJUM FERÐABÆKLINGI Á FERÐAHÁTÍÐ PRIMA EMBLU Í DAG KL. 14.00 TIL 17.00 AÐ STANGARHYLI 1 Taktu forskot á ferðasæluna og eigðu stefnumót við heiminn í dag á skrifstofu okkar að Stangarhyl. Fararstjórar og starfsfólk kynna spennandi sérferðir í máli og myndum og hressandi veitingar verða í boði. Buzby Birch frá Ástralíu leikur á Yidaki eða „didgeridoo“ hið heilaga hljóðfæri frumbyggja Ástralíu og Yapi Achou frá Fílabeinsströndinni og Ryan Gordo Wade frá Suður Afríku berja bongótrommur að hætti Afríkubúa. Ingólfur Guðbrandsson frumkvöðull og ferðamálafrömuður er nýkominn frá Taílandi og flytur okkur pistil um uppbyggingu ferðaþjónustu á Phuket-eyju eftir hörmungarnar miklu. Happadrætti og glæsilegir ferðavinningar. Febrúar Madeira (uppselt) Fararstjóri: Jón Örn Kristleifsson. Mars Madeira – páskaferð. Fararstjóri: Jón Örn Kristleifsson. Brasilía – páskaferð. Fararstjóri: Ingiveig Gunnarsdóttir. Suður Afríka. Fararstjórar: Sigmundur Andrésson og Steinunn Jónsdóttir. Apríl Skemmtisigling um Karíbahaf (síðustu sætin) Fararstjóri: Ívar Halldórsson. Sigling um Karíbahaf – aukaferð 16. apríl. Fararstjóri: Steindór Ólafsson. Maí Perú – Macchu Picchu og Titikaka vatn. Fararstjórar: Ingiveig Gunnarsdóttir og Robby Delgado. Kína. Fararstjórar: Steindór Ólafsson og Hulda Johansen. Dubai – ævintýri í eyðimörkinni. Júní Lista-þríhyrningur Þýskalands (fá sæti laus) Skipulagning og leiðsögn: Ingólfur Guðbrandsson. Ágúst Listatöfrar Ítalíu. Skipulagning og leiðsögn: Ingólfur Guðbrandsson. Fyrstu 20 sem bóka fá 20.000 kr. afslátt. September Kína. Fararstjórar: Sigmundur Andrésson og Steinunn Jónsdóttir. Dubai – ævintýri í eyðimörkinni. Fararstjórar: Steindór Ólafsson og Hulda Jóhansen. Október Taíland. Fararstjóri: Pétur Karlsson. Ekvador – Amasón og Galapagos (nokkur sæti) Fararstjóri: Guðmundur Páll Ólafsson náttúrufræðingur og rithöfundur. Lúxussigling um Miðjarðarhaf (síðustu sætin) Fararstjórar: Steindór Ólafsson og Hulda Jóhansen. Hnattreisan – sunnan miðbaugs. Skipulagning og fararstjórn: Ingólfur Guðbrandsson. Nóvember Ævintýri í Ástralíu, Nýja Sjálandi og Fiji (fá sæti) Fararstjóri: Ingiveig Gunnarsdóttir. FERÐADAGATAL PRIMA EMBLU Máritíus – áfangastaður elskenda allt árið um kring. Sértilboð fyrir brúðkaupsferðir og brúðkaupsafmælisferðir Ferðagleði M IX A • fí t • 0 4 9 0 5

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.