Morgunblaðið - 06.02.2005, Side 25

Morgunblaðið - 06.02.2005, Side 25
klukkutíma, sumir voru stundum óánægðir með matinn, sætin eða eitthvað annað og það var ekki hægt að vísa vandamálunum eitt- hvað annað. Þau varð að leysa, bæði vegna þess sem kvartaði og hinna farþeganna, þannig að allir yrðu sáttir.“ Fólk á að hafa skoðun Hildur telur umræðu um útlend- ingamál í raun á byrjunarstigi hérlendis. „Maður sér oft að þegar einhver tjáir sig um þessi mál er fljótt að hitna í kolunum og farið að saka menn um kynþáttahatur. Það er ekki óeðlilegt að fólk hafi skoðun; segja má að það sé hlut- verk okkar borgaranna að hafa skoðun á þessu málefni vegna þess að það, hvernig málum er háttað, hefur mikið með það að segja hvernig samfélagið verður sem við búum í.“ Hildur segir Ísland ekki eins- dæmi í þessu efni. „Víða í Evrópu er ástandið þannig að tjái sig ein- hver um útlendingamál á þann veg að vilja takmarka fjölda útlend- inga er sá hinn sami sakaður um hatur.“ Undanfarið hefur nokkuð borið á umræðu hér á landi um „ólög- legt vinnuafl“ sem svo er kallað. Hildur segir m.a. að Samiðn hafi áhyggjur af þróun mála og fram- undan er samstarf Samiðnar og Útlendingastofnunar af þessum sökum. „Þeir hafa eðlilega áhyggj- ur af þessu; óttast jafnvel að ólög- legt vinnuafl haldi niðri launum. Og ef til dæmis byggingaverka- menn njóta ekki þeirrar þenslu sem er í byggingariðnaðinum get- ur það haft áhrif á laun allra í þjóðfélaginu,“ segir Hildur. Fegurð og karate Hildur varð í öðru sæti í keppn- inni Ungfrú Ísland árið 1989 og tók í framhaldi þess þátt í Ungfrú Skandinavía og keppninni Ungfrú alheimur, Miss Universe, í Los Angeles. „Það var mjög skemmti- leg upplifun. Maður var eins og kvikmyndastjarna í Hollywood í nokkra daga – en skildi aldrei hvers vegna ég var beðin um eig- inhandaráritun út um allt!“ Hildur var 18 ára þegar þetta var og segist, eftir á að hyggja, hafa verið fullung. „Þá fannst mér ég auðvitað geta höndlað þetta allt, en þegar ég hugsa til baka var ég ekki nógu þroskuð til að takast á við allt það áreiti sem fylgir slíkri keppni, sérstaklega Miss Universe. En á móti kemur að ef ég hefði verið orðin tvítug hefði ég örugglega ekki tekið þátt.“ Hún segist samt sem áður búa að góðri reynslu, en spyr: „Hvern- ig er hægt að keppa í því að vera sætur?“ Segist hugsa málið æ meira út frá því sjónarhorni sem tíminn líður. En dregur enga dul á það að þátttaka í slíkri keppni sé mikið tækifæri. „Maður kynnist mjög mörgum, fær reynslu í því að koma fram og verður sjálfs- öruggari. Það finnst mér mjög já- kvætt og þetta situr eftir, en eftir á að hyggja skiptir inntak keppn- innar minna máli.“ Hildur er gift Halldóri Þorkels- syni, sviðsstjóra fjármálaráðgjafar PriceWaterhouseCoopers, og eiga þau tvö börn, sex og þriggja ára. Ung var Hildur íþróttakona og var í unglingalandsliðinu í körfu- bolta, sem fyrr segir. Hún lagði þá skó á hilluna fyrir löngu síðan en leggur nú stund á karate þrisvar í viku. „Ég byrjaði að æfa karate fljótlega eftir að ég byrjaði að starfa í Útlendingastofnun og æf- ingarnar eru mjög gott mótvægi við vinnuna og heimilið. Það er satt að segja ofsalega gott að æfa karate; ég fæ góða útrás og kemst í mjög gott andlegt jafnvægi við að æfa þá íþrótt.“ Hún segir mikið lagt upp úr aga í karateíþróttinni og það skili sér í daglega lífinu. Hún er með appels- ínugula beltið, átti að reyna við það rauða um jólin en ferðalag vegna vinnunnar kom í veg fyrir það. „Ég þarf svolítið að vera erlend- is vegna vinnunnar og hef því mið- ur ekki haft tíma til þess að mæta nógu vel á æfingar undanfarið, en vona að þjálfararnir fyrirgefi mér það og leyfi mér að fara í belta- prófið. Ég verð að aga mig til og fara að mæta betur á æfingar!“ Morgunblaðið/Árni Sæberg skapti@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2005 25 Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn Skógarhlíð 18, sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Páskaferðir Heimsferða Costa del Sol 20. mars – 3. apríl Verð frá kr. 63.400 Verð á mann m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, Castle Beach, 14 nætur. Netverð með 10.000 kr. afslætti. Innifalið í verði: Flug, gisting, skattar. Benidorm 18. mars – 31. mars Verð frá kr. 43.400 Verð á mann m.v. hjón með 2 börn, 2- 11ára á Montecarlo/Vacanza, 13 nætur. Netverð með 10.000 kr. afslætti. Innifalið í verði: Flug, gisting, skattar. Prag 21. mars – 28. mars Verð frá kr. 57.890 Verð á mann m.v. gistingu í tvíbýli á Hotel ILF, 7 nætur. Netverð. Innifalið í verði: Flug, gisting, skattar og morgunverður. Kanaríeyjar 22. mars – 29. mars Verð frá kr. 43.330 Verð á mann m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, Los Salmones, 7 nætur. Netverð. Innifalið í verði: Flug, gisting, skattar. 21. mars – 28. mars Verð frá kr. 69.900 Verð á mann m.v. gistingu í tvíbýli, 7 nætur. Netverð. Innifalið í verði: Flug, skattar, gisting í 6 nætur í Dresden og 1 nótt í Prag á 4* hótelum, morgunverður, ferðir milli staða og til og frá flugvelli auk fararstjórnar. Dresden í Þýskalandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.