Morgunblaðið - 06.02.2005, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 06.02.2005, Qupperneq 26
26 SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ Döngun lífs og listarlætur ekki að sérhæða og spyr ekki aðleikslokum, séu þaunokkur til. Hvort lífið sé sú eilífa framrás sem menn hafa til skamms tíma gefið sér eða lúti öðrum lögmálum er ekki lengur öruggt Bæði afstæðiskenningin og seinna kalda atómið hnykkja þeim viðteknu staðreyndum, ekki bæta svo ný sannindi um eðli lífsins úr skák. Hvað sé fram og hvað aftur er hin stóra lífsgáta, eitt má þó vera víst að aflið að baki sem hið heila knýr er hreyfingin í sjálfri sér, jafnt í örveikum andblænum sem skýjastróknum. Tilraunir manna til að stýra líf- inu á jörðu niðri virðast jafn- aðarlega unnar fyrir gíg, náttúran fer sínu fram hvað sem raular og tautar og eins gott að biðja guðina vægðar þegar reginöflin taka að ræskja sig. Og alltaf eitthvað að koma á óvart í mannheimi sem lá ekki ljóst fyrir, hvern skyldi svo sem hafa grunað að efnahags- kerfi Bandaríkjanna væri háð kínversku lánsfé eins og nú virðist komið á daginn. Eða hitt að í Kína, þessu landi skelfilegra menningarbylt- inga sem kostuðu milljónatugi lífið eyðileggingu og upptöku menning- arverðmæta, megi í kjölfar viðvar- andi framþróunar búast við hvað mestri uppstokkun á listasviði á næstu áratugum. Ævintýralegur arkitektúr hefur þegar skotið rót- um víðar en í Hong Kong, ekki síst í Peking og Sanghai, Kína keis- aranna, seinna kommúnismans að hverfa og hvað við tekur má guð vita, hér brestur mig sem fleiri getspeki. Kímið að öllu samanlögðu hlýtur að vera hin skapandi (fram) rás að baki öllu lífi, sem jafnt má greina í hinu smæsta og því stærsta. Ógn- arkraftar sem öllu stýra eru svo gegnumgangandi í reginöflum him- ingeimsins. Svo gripið sé til sam- líkingar mun afl vetnissprengju sem springur á jörðu niðri vart meira í þeim leik en eldsneisti sem hrökk af tinnu frummannsins í ár- daga, var þó stærsta framfaraspor í sögu mannkynsins. Í sjálfhverfu sinni og grunn- hyggni hefur mannskepnunni til þessa treglega gengið að koma auga á annað en eina hlið á öllum framförum. Og komi sá dagur að henni takist að ná þeim áfanga að leysa lífsgátuna má samkvæmt nýjustu upplýsingum allt eins gera ráð fyrir að það inniberi endalok vegferðar hennar um leið. Á því virðist mikil hætta ef trúa skal vís- indamönnum sem hallast að þeirri skoðun þá aðrir virðast standa á þröskuldi þess að ráða hana. Vilja meina að verði ekki umskipti á lífs- háttum mannkynsins á næstu tíu árum, stjórnlausri ágengni á auð- lindir náttúrunnar, boði það upphaf niðurtalningar, lífinu á jörðinni ekki bjargað. Ýmsir fjarstæðukenndir orða- leikir vakna að svo komnu og hreyfa við heilasellum skrifara, eins og til að mynda; að læknavís- indin séu komin svo langt að það fyrirfinnist yfirhöfuð ekki lengur heilbrigðar manneskjur á jörðinni! Eða sá gjörningur að taka pissskál af klósetti og setja á safn þýðir ekki að hún sé um leið orðin að list, frekar en að málverk tekið af safni og farið með á klósett verði sjálfkrafa að pissskál! Og sögðu ekki módernistar: „Þar sem orðinu sleppir byrjar myndlistin“, en svo komið virðast menn á fullu við að snúa þessum framslætti við, meint- ur fáránleiki afstæðisins enn á ferð … Þegar menn hugleiða gang lífs-ins sækja spurningar að lík-ast örvadrífu, aðeins eitt virðist öruggt, að sá sem heldur sig hafa komist að endanlegri nið- urstöðu hefur rangt fyrir sér. Í öllu falli á það greinilega við um listina sé litið til síðustu aldar og enn lengra aftur í tímann. Hvert þróunarstig sem tók við átti að vera því næstliðna betra og um aldamótin 1900 álitu menn sig komna að endamörkum málara- listarinnar, reyndist sem betur fer alrangt en bergmál fullyrðing- arinnar ómaði og stigmagnaðist alla öldina. Jafnframt var þeim Pi- casso, Matisse og fleiri höfuðmeist- urum reglulega rutt út af borðinu af listpáfum og bendiprikum, leigu- morðingjum markaðsafla og póli- tískum tindátum. Fagurfræðinni jafnframt troðið í svaðið, hand- verkinu og öllu frábæru háleitu og skynrænu um leið. Hver er svo raunin þegar fyrsti áratugur nýrrar stóraldar er rétt hálfnaður? Vegur Picasso og Mat- isse aldrei meiri og málverkið í ríf- andi sókn beggja vegna Atlantsála. Í Kína menningarbyltingarinnar og einum höfuðóvini einstaklings- hyggjunnar starfa nú þegar 200 uppboðshús, og 11. desember sl. tóku ný lög gildi sem heimila er- lendum að koma á fót útibúum í landinu. Risarnir Sotheby’s og Christie’s halda þó að sér höndum, ennþá munu ýmis ljón á veginum. Menn þó bjartsýnir á mikinn upp- gang, í öllu falli er fullyrt að Kína sé á þröskuldi fjölþætts listmark- aðar. Feitletruð fyrirsögn á forsíðu ARTnewsletter 4. jan. hljóðaði þannig: „China On the Verge of a Vibrant Art Market“ Þar næst segir með öðru, að eftir þýðuna sem hófst 1990 hafi hlutirnir farið á hreyfingu og að baki hennar séu synir og dætur kommúnistaleið- toga sem hafi farið að selja list- gripi sem gerðir hefðu verið upp- tækir í menningarbyltingunum 1960 og ’70. Ennfremur að á ein- ungis áratug hafi markaðssetningin dreifst um allt meginland Kína og á sumum stöðum sé hún meiri háttar. Eitt aðalfyrirtækið, China Guardian, halaði hvorki meira né minna en 57 milljónir dollara inn á fjögurra daga uppboði í nóvember (!), boðin voru upp málverk, hús- gögn, bækur, postulín og frímerki. Þá vita menn það, en kannski færri hitt, að Kínverjar líta öðrum aug- um á tímann en Vesturlandabúar þegar lífið og listin er annars veg- ar, flýta sér hægt. Íbúar elsta menningarríkis jarðar kunna þann eðla lífsins leyndardóm sem felst í hinni fornu speki „festina lente“ sem við í vestrinu forsómum en kjósum að vaða nær stjórnlaust áfram í blindni og trylling. Kín- Af lífi og list SJÓNSPEGILL Bragi Ásgeirsson bragi@internet.is Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050 VOR 2005 Sölustaðir: sjá www.bergis.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.