Morgunblaðið - 06.02.2005, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2005 27
Veiðihornið - Hafnarstræti 5 - sími 551 6760 • www.veidihornid.is • Veiðihornið - Síðumúla 8 - sími 568 8410
Sendum samdægursMunið gjafabréfin
SÍÐUSTU DAGAR
VETRARÚTSÖLU VEIÐIHORNSINS
Ron Thompson Outback. Vatnsheldur
jakki með útöndun. Fullt verð 12.800.
Nú á vetrarútsölu aðeins 8.995.
Allar útsöluvörur Veiðihornsins eru líka í veiðibúðinni
þinni á netinu - veidihornid.is
OPIÐ Í DAG FRÁ KL. 12 TIL 17
Ron Thompson Dakota
vöðlur. Fullt verð 16.995.
Nú á vetrarútsölu aðeins
10.995. ATH.: Margar
stærðir að seljast upp!
Ron Thompson Lagoon
neopren vöðlur.
Fullt verð 10.995.
Nú aðeins 8.995.
Ron Thompson Classic Pro
vöðlur ásamt vöðlutösku.
Fullt verð kr. 12.995.
Nú aðeins 9.995.
Scierra Aquatex
öndunarvöðlur og jakki.
Fullt verð 28.900. Nú á
vetrarútsölu aðeins
19.900. ATH.: Margar
stærðir að seljast upp!
Ron Thompson fluguveiðisett. Grafitstöng, diskabremsuhjól, uppsett Scierra XDA
skotlína með baklínu og taumatengi. Magnað vetrartilboðsverð aðeins 11.495 fyrir
allt þetta. Sjá nánar í veiðibúðinni á netinu. Veidihornid.is
Scierra tvíhendusett. 4ra hluta stöng, large arbour
hjól, skotlína, runninglína, baklína, kastkennsla á dvd.
Verð aðeins 29.900 fyrir allan pakkann.
Norinco QJ12 pumpa. 28" hlaup. Ólarfestingar og 3 þrengingar fylgja. Fullt verð 28.900.
Nú á vetrarútsöluverði aðeins 23.920. Aðeins örfá stykki til á lager.
Stoeger pumpa. 26" hlaup. Ólarfestngar og 5 þrengingar fylgja. Byssan er með stillanlegu
sigti. Fullt verð 32.500. Nú á vetrarútsöluverði aðeins 26.800.
Aðeins örfá stykki til á lager.
Scierra Norðurá veiðijakki. Vatnsheldur
3ja laga jakki með útöndun.
Fullt verð 29.900
Nú á vetrarútsölu aðeins 15.900.
Simms Freestone jakki.
Vatnsheldur með útöndun.
Fullt verð kr. 26.800.
Nú aðeins 18.895.
verjum kemur og síður í hug að
draga dám af málleysingjum dýra-
ríkisins, sem að vísu lifa margfalt
skemur en manndýrið en að sama
skapi hraðar, lífssumman þannig
sú sama, lifa í raun jafnlengi en
eyðast hraðar, hverfa hraðar! Hitt
virðist lengstum hafa verið keppi-
kefli Vesturálfubúa því í stað þess
að njóta yfirburða vitsmuna sinna
draga þeir dám af lífverum stjórn-
leysi og grimmdar sem eru skemur
á veg komnar í þróunarkeðjunni,
afleiðingarnar blasa við …
– Af öðru ofarlega á baugi í nýj-
ustu eintökum ARTnewsletter má
nefna að málverk Þjóðverjans
Theo Rauch sem ég tvívegis hef
vikið að í skrifum mínum síðustu
misserin er á hraðri uppleið á
markaðinum. Samkvæmt upplýs-
ingum frá David Zwirner Gallery,
umboðslisthúsi hans í New York,
hefur það fjórfaldast vestra síðan
1999. Lítur vissulega út fyrir að
málverkið sé enn á borðinu þrátt
fyrir allt.
Síðasti Sjónspegill var helgaðurVín og uppgangi sjónlista þarí borg á undanförnum árum.
En við samantekt skrifanna var
mér ekki kunnugt um enduropnun
Liechtenstein-hallarinnar í Rossau,
einu úthverfanna, um að ræða
næststærsta einkasafn í heimi sem
erfst hefur og enn í einkaeign.
Rennur mér blóðið til skyldunnar
að vekja athygli hér á, en seinni
tíma bíður að gera því nánari skil.
Safnið á sér langa sögu, heitið í
höfuðið á hinum mikla listhöfðingja
og víðförula húsameistara sem
byggði höllina; Johan Adam Andr-
eas Liechtenstein (1657–1712).
Hann var af einni elstu hástétt
Evrópu og má rekja slóð ætt-
arinnar allt aftur til 1136. Með tíð
og tíma eignaðist hún miklar jarð-
eignir í Bæheimi Mæri með til-
heyrandi höllum og gersemum.
Svæðið liggur að landamærum
Austurríkis og Tékkalands og eftir
seinni heimsstyrjöldina hafa verið í
gangi viðvarandi deilur milli Tékka
og furstafjölskyldunnar um yfir-
ráðaréttinn. Hið viðamikla safn var
næstum gleymt og tröllum gefið
allt frá innlimun nazista 1938, en
hefur nú verið opnað almenningi í
sinni réttu mynd ytra sem innra,
gerðist þó ekki fyrr en eftir gagn-
gera endurnýjun. Nefna má að
nær 300 af mikilvægustu verkum
safnsins komu frá Vaduz, höf-
uðborg furstaríkisins Lichtenstein
austan Rínar á milli Sviss og Aust-
urríkis. Fyrstu áratugina eftir stríð
skiptust á skin og skúrir í fjár-
málum fjölskyldunnar og 1967
neyddist hún til að selja málverk
Leonardos af Ginervu da ’Benci til
Þjóðlistasafnsins í Washington,
þangað sem þúsundir listunnenda
frá öllum heimshornum koma ár-
lega til að berja perluna augum.
En samfara velgengni ættarbank-
ans á undangengnum áratugum;
LGT Bank Lichtenstein AG, Vad-
uz, var ráðist í endurnýjun hall-
arinnar með enduropnun safnsins í
huga, og munu þær hafa kostað 25
milljónir evra. Höllin hýsti áður
Nútímalistasafn Vínarborgar sem
flutt hefur verið á annan stað.
Margra grasa kennir í safneigninni
og fjarri því að eingöngu sé um
myndlistarverk að ræða, höllin
sjálf í rókókóstíl, þó ekki hinu
glaða og yndisþokkafulla afbrigði
stílbragðanna, hefur öllu fremur
yfirbragð styrks og strangleika
sem leiðir hugann að seinni tíma
nýklassík. Að öðru leyti er Vín
borg barrokksins þótt Stefánsdóm-
urinn sé gotneskt meistaraverk,
loks módernismans eftir heims-
styrjöldina síðari. Ferðalangurinn
rekst hvorki á lifandi miðaldir né
leifar frá tímaskeiði endurreisnar.
Það var fyrst eftir að tekist hafði
að stöðva framrás Tyrkja árið
1683, að mikil vakning varð um
framgang borgarinnar. Barokkið
var þá leiðandi byggingarstíll tím-
anna. Hvert af öðru risu upp Hof-
burg, Schönbrunn og Belvedere.
Hin tilkomumikla Liechtenstein-höll í Vínarborg, uppljómuð að næturlagi.
Niu Wen: Regnbogi 64x110 cm. Túsk, vatnslitir.