Morgunblaðið - 06.02.2005, Qupperneq 36
36 SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
HUGVEKJA
Sú var tíðin, að varlafannst svo aumurhreppur í landinu aðekki væri þar starfandikvenfélag. Allt frá upp-
hafi einkenndi þau samhugur,
rausn og dugnaður. Þau sinntu al-
mennum framfaramálum, en æði
stór partur var jafnframt að hlúa
að brákaða reyrnum, þeim sem
orðið höfðu fyrir hvössum veðrum
í lífinu, eða bjuggu við sára fá-
tækt; í fáum orðum sagt veita
gleði inn í mannlíf líðandi stund-
ar. Flest byrjuðu þau raunar sem
líknarfélög og áðurnefnd þjón-
usta er enn og verður ávallt aðal
þessa félagsskapar.
Árið 1930 varð til Kvenfélaga-
samband Íslands og fagnaði það
75 ára afmæli sínu í nýliðinni
viku. Rúmlega 100 kvenfélög voru
starfandi hér þegar Kvenfélaga-
sambandið var stofnað, og mörg
þeirra orðin hálfrar aldar gömul.
Tilgangur sambandsins var að
efla persónuleg kynni og auka
samheldnina. Í því starfa nú um
200 kvenfélög í 19 héraðs- og
svæðasamböndum. Eru þetta
fjölmennustu líknar- og menning-
arsamtök á Íslandi og hafa félög-
in í gegnum tíðina safnað gríð-
arlegum fjármunum og látið
renna til heilbrigðisstofnana,
skóla og kirkna og víðar. En það
fer yfirleitt ekki hátt, enda ekki
gert til að sýnast eða miklast af
því.
Og í 55 ár hefur sambandið gef-
ið út tímaritið Húsfreyjuna og í
48 ár rekið Leiðbeiningarstöð
heimilanna. Og gert ótalmargt
fleira.
Nú eru breyttir tímar og kven-
félög þykja ekki lengur „inn“.
Sjaldan heyrist minnst á þau op-
inberlega. Sum eru líka fallin eða
í andarslitrunum, önnur liggja í
dvala. Það er grátlegt ef þetta
form kærleiksþjónustunnar er að
hverfa af sjónarsviðinu. Mörgum
held ég að brygði þá. En svona er
þetta.
Ástæðurnar eru af ýmsum
toga, s.s. að endurnýjun er lítil
sem engin, og að ungar konur
fást ekki til starfa. Enda svo
margt í boði, sem ekki var til áður
fyrr.
Árið 1999 sendi Byggðasafn
Skagfirðinga út spurningalista til
allra kvenfélaga landsins í því
skyni að kynnast starfsemi þeirra
nú á tímum, athuga hvað hefði
breyst og hver markmið og hlut-
verk væru í upphafi nýs árþús-
unds. Tilefnið var að 130 ár voru
liðin frá stofnun fyrstu kvenna-
samtaka á landinu, sem var Kven-
félag Rípurhrepps. Fjórðungur
svaraði og afraksturinn kom síðar
á árinu út í lítilli bók sem nefndist
„Kvenfélög við aldahvörf“. Höf-
undur var Sigríður Sigurð-
ardóttir. Á einum stað er þetta:
Gegnumgangandi gætir nokkurrar svart-
sýni á starfsemi kvenfélaganna, til fram-
tíðar litið. 26 af 55 svarendum eru svartsýn-
ar á framhaldið. Þar af tala 17 um að
félagsskapurinn leysist upp innan fárra ára.
Í því sambandi er rétt að geta þess að
Kvenfélag Engihlíðarhrepps lagði niður
starfsemi sína um áramótin 2000, sam-
kvæmt fundarsamþykkt frá 13. apríl 1999
… Samt búast 27 af 55 svarendum við að
haldið verði áfram sama nuddinu. Bjartsýni
gætir þó hjá 13 úr þeirra hópi. Skemmtilegt
var að tveir svarendur gátu sérstaklega um
uppgang og mikinn hug í sínum félögum og
tala um mikla virkni því alltaf bætist ungar
konur í hópinn, sem starfa af fullum krafti.
Þetta síðast nefnda eru
ánægjuleg tíðindi sem gefa von
um að e.t.v. takist á fleiri stöðum
að blása í glæðurnar og vekja upp
eld líkan þeim sem áður brann í
hjörtum og sinni þúsunda
kvenna, jafnt á landsbyggðinni
sem í þéttbýlinu. Eitt er víst, að
þörfin er jafnknýjandi sem fyrr,
því neyðin tekur sér aldrei frí. En
varðandi hinar áherslurnar þurfa
kvenfélögin e.t.v. ný markmið,
löguð að kröfum nútímans. Eða
eins og segir í áðurnefndu riti:
Væri ekki t.d. gaman að efla tengsl við
yngstu og elstu kynslóðina, heimsækja leik-
skólabörn og elliheimili? Kvenfélög styðja
víða við stofnanir eldri borgara, en er ekki
jafn brýnt að komast í beint samband við
yngstu kynslóðina sem virðist vera að tapa
tengslum við fullorðið fólk og raunveruleika
hversdagslífsins? Gæti ekki verið gagn og
gaman fyrir þau að fá gest sem segir þeim
sögur, reynslusögur eða þjóðsögur, kennir
þeim að hlusta og njóta nærveru mann-
eskju í stað skjás? Kvenfélögin gætu líka
tekið þjóðararfinn upp á sína arma, hverf-
andi handverk og þekkingu, haldið nám-
skeið, verið með fræðsluerindi og stutt við
skóla og söfn í formi vinnuframlags og hug-
mynda.
Og eftirfarandi texta þaðan
ætla ég að gera að lokaorðum
mínum í dag. En þar segir:
Margt athyglivert kom fram í svörum kven-
félaganna og af þeim má glöggt lesa hvern-
ig félögin hafa, með mikilli ósérhlífni fé-
lagskvenna, beitt sér fyrir aukinni menntun
og sjálfstæði kvenna og að efla samvinnu
milli karla og kvenna, með hag samfélags,
sveita, heimila, barna og bágstaddra að
leiðarljósi. Markmiðin eru sígild en fram-
kvæmdir mótast af aðstæðum á hverjum
stað. Baráttumál kvenfélaganna fyrst á 20.
öld að koma á fót skólum fyrir konur og
börn hafa orðið að veruleika og þroskast og
þróast í nýjar áttir. Enn eru kvenfélögin á
vegamótum. Eiga þau að fara eða vera og
hvaða kosti hafa þau á nýrri öld ef þau velja
að vera?
Kvenfélögin styðja við öll góð málefni hvort
sem þau eru innan sveitar eða á landsvísu.
Þau eru „hlýja höndin“ í samfélagi okkar
sem við veltum sjaldan fyrir okkur en
myndum sannarlega verða þess vör ef þau
hættu starfsemi sinni. Þau eru í vandasöm-
um þjónustuhlutverkum sem léttir starf-
semi samfélagsins, en hafa ekki fengið
mikla umbun fyrir.
Þau verða að lifa áfram.
Hlýja höndin
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
Orð Krists um að
okkur beri að líta til
og aðstoða þá sem
eru í nauðum staddir
hafa víða um heim
fallið í góðan jarðveg
og borið ríkulegan
ávöxt. Sigurður
Ægisson fjallar í dag
um kvenfélög á Ís-
landi, sem löngum
hafa miðlað þessum
boðskap hans í verki.
ÞÓTT eingöngu átta umferðum af
níu sé lokið á Skákþingi Reykjavík-
ur þegar línur þessar eru ritaðar þá
liggur fyrir að alþjóðlegi meistar-
inn Jón Viktor Gunnarsson (2380)
hefur tryggt sér sigur á mótinu og
titilinn Skákmeistari Reykjavíkur
árið 2005. Alls hefur Jón hlotið 7½
vinning fyrir síðustu umferðina en
keppinautar hans hafa 6 vinninga.
Sigurinn á mótinu var aldrei í
hættu og var slíkt viðbúið áður en
keppni hófst. Alls hefur Jón sigrað
á mótinu í fjögur skipti og fer senn
að skipa sér í flokk þeirra sem hafa
unnið keppnina oftast. Hafnfirð-
ingurinn Sigurbjörn Björnsson
hefur oft náð sér mjög vel á strik á
Skákþinginu og hefur m.a. tvívegis
orðið efstur á því með Jóni. Vegna
búsetu sinnar hefur hann aldrei
haft færi á að vinna titilinn en í ár
mætti hann ofjarli sínum.
Hvítt: Sigurbjörn Björnsson
(2328)
Svart: Jón Viktor Gunnarsson
(2380)
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be2 e5 7.
Rb3 Be7 8. g4?!
Sjaldgæfur leikur sem virðist
ekki eiga vel við í stöðunni. 8. 0-0
var leikið áður fyrr án undantekn-
ingar í Boleslavsky-afbrigðinu en
einnig hefur hugmynd Kramniks
að leika 8. Bg5 og svara 8....Be6
með 9. Bxf6 Bxf6 10. Dd3!? rutt sér
til rúms en svona tefldi hann gegn
Vishy Anand á Corus mótinu fyrir
ári.
8... h6 9. h4 Be6 10. Bf3 Rbd7 11.
Hg1
Í skák með Friðriki Ólafssyni frá
skákmóti á Las Palmas lék and-
stæðingur hans 11. Be3 en lenti
fljótlega í vandræðum eftir
11...Rb6. Það sama er upp á ten-
ingnum í þessari skák.
11... Rh7!? 12. h5?!
Svörtu reitirnir á kóngsvæng
verða nú algjörlega undir stjórn
svarts. Áður hefur verið leikið 12.
g5 og virðist það vera skynsamlegri
tilraun til að halda jafnvæginu.
12... Rb6 13. Be2 Hc8 14. Be3
Rg5 15. Rd5 Bxd5 16. exd5 Rc4 17.
Bxc4 Hxc4 18. De2 Ha4!?
Hugmyndin með þessum leik var
að þvinga fram a2-a3 og ýta svo b-
peðinu áfram. Næsti leikur hvíts
ýtir undir að endalok hans séu ráð-
in.
19. O-O-O? Hxa2 20. f4 exf4 21.
Bxf4 O-O 22. Kb1 Ha4 23. Hd4
Hxd4 24. Rxd4 Rh3 25. Hf1 Rxf4
26. Hxf4 Bf6 27. Rf5 He8 28. Df3
He1+ 29. Ka2 Da5+ 30. Kb3 Hb1
31. c3 Db5+ 32. Hb4
32... Hxb2+!
Lýkur skákinni með einfaldri
fléttu þó að hvítur hafi ekki játað
sig sigraðan fyrr en nokkru síðar.
33. Kxb2 Dxb4+ 34. Kc2 Da4+
35. Kb2 Kh7 36. Rg3 Kh8 37. Rf5
Da5 38. Kc2 Da2+ 39. Kd3 Db2 40.
Ke4 Bxc3 41. Rxd6 Db4+ 42. Kd3
Dxd6 43. Kxc3 Da3+ og hvítur
gafst upp.
Á síðasta Haustmóti Taflfélags
Reykjavíkur veitti Dagur Arn-
grímsson (2304) Jóni harða keppni
og urðu þeir jafnir og efstir á því. Í
einvígi um meistaratitil félagsins
vann Jón örugglega og átti það
sama við um skák þeirra á Skák-
þinginu.
Hvítt: Jón Viktor Gunnarsson
(2380)
Svart: Dagur Arngrímsson
(2304)
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Bxc6 dxc6 5. O-O Dd6 6. Ra3 De6
7. b3 Re7 8. Rc4 Rg6 9. d4 exd4 10.
Rxd4 Dg4 11. Bb2 f6 12. He1 Bb4
13. c3 Dxd1?
Dagur virðist hafa mun byrjun-
arfræðin vel fram að þessu en hér
bregst honum bogalistin þar eð
textaleikurinn gefur hvítum of mik-
ið frumkvæði í tíma. Gamla brýnið
og stórmeistarinn frá Úkraínu
Oleg Romanischin hefur leikið
a.m.k. tvívegis 13... Bc5 með góðum
árangri.
14. Haxd1 Be7
15. Rf5!
Tryggir hvítum frumkvæðið þar
sem ekki má drepa riddarann þar
eð þá myndi svartreiti biskupinn
verða leppaður.
15... Kf7 16. Rxe7 Kxe7 17. Bc1!?
Be6 18. Ra5! Hab8 19. f4 Bd7 20.
Ba3+ Ke8
21. e5!
Þetta gegnumbrot tryggir hvít-
um sigurinn.
21... fxe5 22. Rc4 Rxf4
22... Be6 hefði ekki gengið upp
vegna 23. f5! og hvítur vinnur
mann.
23. Rxe5 Be6 24. Rd3 og svartur
gafst upp enda er hann að verða
manni undir.
Fyrir lokaumferð mótsins voru
Sigurbjörn Björnsson (2328),
Lenka Ptácníková (2280), Sævar
Bjarnason (2288) og Stefán Freyr
Guðmundsson (2008) jöfn í öðru
sæti með 6 vinninga.
Skrykkjótt gengi
á Gíbraltar
Öflugu opnu alþjóðlegu móti
lauk 3. febrúar sl. á Gíbraltar sem
lauk með sigri stórmeistaranna
Levon Aronjan (2684), Zahar Efi-
menko (2601), Kiril Georgiev
(2654), Alexey Shirov (2713) og
Emil Sutovsky (2669) en þeir fengu
allir 7½ vinning af tíu mögulegum.
Fimm íslenskir skákmenn tóku
þátt í mótinu og fékk Bragi Þor-
finnsson flesta vinninga af þeim en
hann varð í 17.–38. sæti með sex
vinninga. Stefán Kristjánsson
(2438) fékk 5½ vinning og lenti í
39.–51. sæti en Björn Þorfinnsson
(2356) og Ingvar Þór Jóhannesson
(2315) fengu 5 vinninga og lentu í
52.–68. sæti. Stefán Bergsson end-
aði keppni með 4½ vinning og lenti
69.–88. sæti. Bragi var sá eini
þeirra sem græddi alþjóðleg stig
með frammistöðu sinni en fyrir alla
hefur þetta sjálfsagt verið mikil-
væg og góð reynsla.
SKÁK
Taflfélag Reykjavíkur
16. janúar – 4. febrúar 2005
daggi@internet.is
Jón Viktor Gunnarsson Bragi Þorfinnsson
Helgi Áss Grétarsson
Skákþing Reykjavíkur
Fjórði sigur Jóns
Viktors Gunnars-
sonar í höfn
Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn