Morgunblaðið - 06.02.2005, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2005 47
MENNING
Viðamikil útgáfa á ljóðumTeds Hughes hefur vakiðmikla athygli og gefið
mönnum tilefni til að meta skáldið
að verðleikum.
Bókin, sem er 1.333 síður, nefnist
Collected Poems, er ritstýrt af Paul
Keegan og gefin út hjá Faber and
Faber í London, verð bókarinnar
er 40 pund.
Menn hafa
einblínt á að
Ted Hughes
var eiginmaður
Sylviu Plath og einnig að hann
varð lárviðarskáld 1984.
Skáldið sjálft hefur fallið í
skuggann af þessu, en segja má að
með síðustu bókunum hafi hann
náð til fleiri en áður; Tales from
Ovid (1997) og Birthday Letters
(1998).
Hughes, sem fæddur var 1930,
lést 1998.
Menn hafa komist svo að orði að
tvennt muni halda minningu Teds
Hughes á lofti; hjónaband hans og
Sylviu Plath og að hann hafi verið
eitt af mestu skáldum Bretlands á
tuttugustu öld.
Birthday Letters, sem fjallar umhann og Plath, seldist í 90.000
eintökum sem er fátítt um ljóða-
bækur.
Frá fyrstu bók sinni, Hawk in the
Rain (1957), yrkir Hughes um dýr,
einkum fugla. Hið mannlega birtist
í dýrunum, einkum lostinn og
grimmdin, eyðingin og dauðinn,
ekki síst í einni af bestu bókum
hans, Crow (1970).
Þessi myrka bók sem ekki er
auðveld aflestrar sýnir ýmsar
bestu hliðar Hughes. Má nefna
stranga byggingu ljóðanna, mark-
vissa hrynjandi og það margræði
sem ljóð hans vitna um. Þetta er
bók sem lesa þarf aftur og aftur áð-
ur en hún lýkst upp.
Og vel að merkja:
hún getur vakið
óhugnað. En bókin er
sannur skáldskapur.
Birthday Letters er
ólík Crow. Birthday
Letters er opin bók,
stundum líkt og frá-
sögn um daglegt líf og
ferðalög skáldanna
Hughes og Plath. Það
var fyrst í þessari bók
sem Hughes tjáði sig
um samband þeirra en
hann hafði verið að
mestu þögull um það
síðan Plath framdi
sjálfsmorð 1963.
Með lýsingum sínum á Plath sýn-
ir hann inn í hugskot hennar á
óvæginn hátt en með þeim hætti að
lesandinn trúir.
Bókin er nokkuð ójöfn en bestuhlutar hennar afburðagóðir.
Þeir sem höfðu hugsað sér að
minnast Hughes aðeins sem eig-
inmanns neyðast til að
taka aðra afstöðu.
Collected Poems
leiðir í ljós sérstöðu
Teds Hughes meðal
helstu enskumælandi
skálda.
Kannski má segja að
hann sé nokkuð ein-
hæfur en það gildir
um fleiri góð skáld.
Sérstaklega í Birthday
Letters sýndi hann á
sér nýjar hliðar. Crow
og fleiri skyldar bæk-
ur sýna þó best skáld-
lega dýpt hans og hve
honum lét vel að birta
hið óvænta. Myrkur tónninn hefur í
sér vissa „hreinsun“ að dæmi
Grikkjanna.
Þetta gildir einnig um Lupercal
(1960) og Gaudete (1977) og þannig
mætti lengi telja þegar Collected
Poems er flett.
Hughes orti ljóð og skrifaði sög-
ur fyrir börn og er frægust og sí-
gildust sagan The Iron Man.
Á Hughes er litið fremur sem
náttúruskáld en samfélagsskáld.
Hann fékkst við að spegla það sem
bjó innra með honum og öðrum
þótt félagslegur skáldskapur gerð-
ist áberandi.
Líkt og T.S. Eliot var hann góður
flytjandi ljóða og las m.a. eigin ljóð
og verk eftir Eliot. Kannski má
segja að þesir tveir séu skyldir og
er freistandi að líta á þá sem bestu
skáldin á Bretlandi á liðinni öld.
Ted Hughes var meira en eig-
inmaður frægrar skáldkonu og lár-
viðarskáld.
Ljóðasafn Teds Hughes
’Bókin er nokkuð ójöfn en bestu hlutar
hennar afburðagóðir.
Þeir sem höfðu hugsað
sér að minnast Hughes
aðeins sem eiginmanns
neyðast til að taka
aðra afstöðu.‘
AF LISTUM
Jóhann Hjálmarsson
johj@mbl.is
Ted Hughes
MARTIN Boisvert og Jennifer
Kimberly Haight svífa hér um loftið
í nýrri sýningu Cirque du Soleil
„KA“ í MGM Grand í Las Vegas í
vikunni. „KA“ sameinar bardaga-
listir, loftfimleika, brúðuleik,
myndbandslist og fleira en verkið
segir sögu tvíbura, drengs og
stúlku, sem leggja upp í æv-
intýralegt ferðalag til að uppfylla
örlög sín.
Reuters
Ævintýri
í lofti
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið