Morgunblaðið - 06.02.2005, Síða 48

Morgunblaðið - 06.02.2005, Síða 48
48 SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MYRKUM músíkdögum lýkur í dag með þrennum tónleikum. Fyrstu tónleikar dagsins verða í Listasafni Reykjavíkur – Hafn- arhúsi kl. 15. Pétur Jónasson gít- arleikari leikur. Á efnisskrá eru m.a. þrjú verk eftir Svein Lúðvík Björnsson, Með tunglið í fanginu (2005), Að skila skugga (1991) og Egophonic (2003). Um fyrstnefnda verkið, sem er frumflutt, segir tónskáldið: „Með tunglið í fanginu varð til eftir sam- tal við Guðrúnu Birgisdóttur þar sem m.a. tunglið bar á góma – áhrif þess á fólk, hvernig það rís og minnkar o.fl. o.fl. Sama kvöld fór ég í sund – það var dimmt, frost, og allt í einu dró ský frá tunglinu, það speglaðist á vatnsfletinum og fyrr en varði var eins og ég sæti með það í fanginu – þetta var mjög sterk upplifun og mér fannst eins og hún endurspeglaði allt sem ég var að pæla í þá stundina …“ Einnig eru á efnisskrá Péturs Sonata XIV eftir Jónas Tómasson (1980), Eguilibrium eftir Huga Guðmundsson (2000), In the Mood of Spades eftir Per Nörgaard (1985), Monologues of the Unicorn eftir Einojuhani Rautavaara (1980) og Spegeln eftir Anders Nilsson (1980). Kór Langholtskirkju og Grad- uale Nobili halda tónleika í Lang- holtskirkju undir stjórn Jóns Stef- ánssonar kl. 17. Flutt verða verk eftir Jón Þórarinsson, Tryggva M. Baldvinsson og Hreiðar Inga Þor- steinsson. Te Deum eftir Jón Þórarinsson var samið að beiðni kirkjukóra Reykjavíkurprófastsdæmis eystra árið 2000 og frumflutt í janúar 2001 undir stjórn Jóns Ólafs Sig- urðssonar. Verkið var upphafsverk á opnunartónleikum Norrænu kirkjutónlistarhátíðarinnar í Dan- mörku í september sl. og þar flutt af danska kammerkórnum Camer- ata undir stjórn Michael Bojesen. Textinn á rætur að rekja til forn- kirkjunnar, elstu hlutarnir til aust- urkirkjunnar á 3. öld en endanlega gerðin á 5. öld. Lofsöngurinn til- heyrir morguntíðagjörðinni á sunnudögum og öðrum helgidögum og er fluttur í lok hennar. Einsöngvarar eru Þórunn Vala Valdimarsdóttir og Vilhjálmur Þór Sigurjónsson. Vesper eftir Tryggva M. Bald- vinsson var samið í fyrra að beiðni Jóns Stefánssonar fyrir Graduale Nobili. Verkið er samið við söngliði hins forna aftansöngs með org- elhugleiðingum á milli, sérsniðið fyrir kórinn og Láru Bryndísi Egg- ertsdóttur organleikara sem er kórfélagi. Einsöngvarar eru Regína Unnur Ólafsdóttir, Lára Bryndís Eggerts- dóttir og Steinunn Soffía Skjen- stad. Requiem Hreiðars Inga Þor- steinssonar endurspeglar tilfinn- ingar ungs drengs í þremur draumum sem hann dreymir eftir að faðir hans deyr. Einsöngvarar í verkinu eru Ísak Ríkharðsson og Jón Helgi Þór- arinsson. Caput í Listasafni Íslands Síðustu tónleikar dagsins og um leið lokatónleikar Myrkra mús- íkdaga að þessu sinni verða haldnir í Listasafni Íslands kl. 20. Caput- hópurinn frumflytur þar verk eftir Atla Heimi Sveinsson, Kjartan Ólafsson, Þuríði Jónsdóttur, Áskel Másson og Jesper Koch. Einleikari í verkum Þuríðar og Kochs er harmónikuleikarinn Geir Draugs- voll og einsöngvari í verki Áskels Ásgerður Júníusdóttir mezzósópr- an. Stjórnandi er Guðni Franzson. Um verk sitt, Ymni, segir Áskell Másson: Þetta verk er n.k. lof- söngur til vorsins og kviknandi lífs. Verkið er samið á Fjóni í Dan- mörku vorið 2000. Apríl og maí voru þarna sérstaklega veðursælir og áhrifamikið var að fylgjast með því hvernig bæði dýr og gróður á öllum stigum spruttu fram. Upp- haflega ætlaði ég mér að nota texta eftir danskan höfund en fann eng- an sem mér fannst hæfa þannig að verkið var frumflutt án söngvara og textalaust. Verkið er nú frum- flutt með söngvara og textinn er lítið brot úr Sonnettusveig Gunn- ars Gunnarssonar skálds. Hér eru því saman komin orð og tónar samdir af Íslendingum á danskri grund.“ Um verk sitt, Impressionen opus 1, segir Atli Heimir: „Þetta verk samdi ég á námsárum mínum í Köln í Þýskalandi hjá prófessor Petzold. Það var fyrsta verkið sem flutt var eftir mig á skólatónleikum 1961 og einnig á tónleikum Félags um nýja tónlist í Köln. Ég stjórn- aði flutningnum. Verkinu var hælt mjög mikið í blöðunum og var þar fremstur í flokki dr. Herbert Eim- ert. Þetta þótti mikil upphefð. Fað- ir minn sýndi Jóni Leifs blaðaskrif- in og lét hann snara því öllu á íslensku og var það birt í Morg- unblaðinu.“ Um verk sitt, Sextett II, segir Kjartan Ólafsson: „Verkið var sam- ið árið 2003 og er lokaverk í tón- verkaflokki sem inniheldur meðal annars Mónettu fyrir fiðlu og pí- anó, Þríþraut fyrir klarínettutríó, Nónettu fyrir kammersveit, Son- ettu fyrir hljómsveit og Víólu kons- ert. Í öllum þessum verkum er tón- efniviðurinn unninn og þróaður með tónsmíðakerfinu CALMUS.“ Tónlist | Þrennir tónleikar á lokadegi Myrkra músíkdaga Guðni Franzson Jón Stefánsson Pétur Jónasson Gítarleikur, kórsöng- ur og Caput-hópurinn Stóra svið Nýja svið og Litla svið HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar eftir vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar Í kvöld kl 20 - UPPSELT Fim 10/2 kl 20 - UPPSELT Fö 11/2 kl 20, Lau 12/2 kl 20 - UPPSELT Fi 17/2 kl 20, Fö 18/2 kl 20, - UPPSELT Lau 19/2 kl 20, - UPPSELT Fö 25/2 kl 20, Lau 26/2 kl 20 Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Í dag kl 14, Su 13/2 kl 14, Su 20/2 kl 14 - AUKASÝNING, Su 27/2 kl 14 - AUKASÝNING SÍÐUSTU SÝNINGAR HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Su 13/2 kl 20 SÍÐASTA SÝNING AUSA eftir Lee Hall - Í samstarfi við LA Í kvöld kl 20, Fö 11/2 kl 20, Lau 19/2 kl 20, Lau 26/2 kl 20 Ath: Miðaverð kr. 1.500 HÉRI HÉRASON Fyndið - ferskt - fjörugt - farsakennt NÁMSKEIÐ UM VESTURFARANA STENDUR YFIR Í BORGARLEIKHÚSINU Kennarar: Gísli Sigurðsson, 9/2 Sagnalist Vestur Íslendinga Helga Ögmundardóttir, 16/2 Lífskjör og aðstæður frumbyggjanna Böðvar Guðmundsson, 23/2 Bréfin frá Vestur-Íslendingum Skráning hjá Mími Símenntun á www.mimi.is eða í síma 5801800 Þátttakendum verður boðið á sýningu á Híbýlum vindanna BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki Lau 12/2 kl 20, - UPPSELT Su 13/2 kl 20, - UPPSELT Fi 17/2 kl 20, Su 20/2 kl 20, Fi 24/2 kl 20, Fö 25/2 kl 20 SÝNINGUM LÝKUR Í FEBRÚAR BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA - gildir ekki á barnasýningar! SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR eftir Agnar Jón Egilsson, Í samstarfi við TÓBÍAS Lau 12/2 kl 20, Fö 18/2 kl 20 ATH: Bönnuð yngri en 12 ára Íslenski dansflokkurinn sýnir: VIÐ ERUM ÖLL MARLENE DIETRICH FOR eftir Ernu Ómarsdóttur og Emil Hrvatin Hátíðarsýning í kvöld kl 20, Mi 9/2 kl 20, Fi 10/2 kl 20 Fö 11/2 kl 20 - Lokasýning SVIK eftir Harold Pinter Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA. Su 13/2 kl 20, Su 27/2 kl 20 HOUDINI SNÝR AFTUR Fjölskyldusýning um páskana Forsala aðgöngumiða hafin Í Borgarleikhúsinu Sýning í kvöld Aðrar sýningar: Mið. 9 feb. kl. 20:00 Fim. 10 feb. kl. 20:00 Fös. 11 feb. kl.20:00 sími 568 8000 eða midasala@borgarleikhus.is Eftir Ernu Ómarsdóttir og Emil Hrvatin Við erum öll Marlene Dietrich FOR Í KVÖLD. 6. FEB. KL. 20 ALLRA SÍÐASTA SÝNING MIÐAPANTANIR Í SÍMA 562 9700 2. sýning 13.feb. kl. 19.00 – ÖRFÁ SÆTI LAUS 3. sýning 18.feb. kl 20.00 - ÖRFÁ SÆTI LAUS 4. sýning 20. feb. kl. 19.00 – 5. sýning 25. febrúar kl. 20.00 – 6. sýning 27. febrúar kl. 19.00 – 7. sýning 4. mars kl. 20.00 8. sýning 6. mars kl. 19.00 – 9. sýning 12. mars kl. 19.00 Miðasala á netinu: www. opera.is Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala frá kl. 10 virka daga. Frumsýning 11. febrúar kl. 20 – UPPSELT Þú veist hverni g þetta er Pöntunarsími 659 3483 studentaleikhusid@hotmail.com Aukasýningar mið. 9. feb. kl. 20 fim. 10. feb. kl. 20 fös. 11. feb. kl. 20 sun. 13. feb. kl. 20 Sýningar hefjast kl. 20 leikstjóri Jón Páll Eyjólfsson Sýnt í TÞM, Hólmaslóð 2 sýnir „Ágeng, ofsafengin, falleg“ (HÓ Mbl.) „Löðrandi í kómík“ (KE Mbl.) „Verulega ósvífin sýning“ (IJ DV)                                                !   "   #     $%  $#   Sun. 6. feb. kl. 20.30 Fös. 11. feb. kl. 20.30 Sun. 13. feb. kl. 20.30 Fös. 18. feb. kl. 20.30 í Gerðubergi sunnudaginn 6. febrúar kl. 15. Grímuföndur hefst kl. 14. Miðapantanir í síma 5757700 Strengjaleikhúsið sýnir barnaóperuna Undir drekavæng 4 600 200 leikfelag.is Miðasölusími „Glæsileg útkoma – frábær fjölskyldu- skemmtun” SS RÚV Óliver! Eftir Lionel Bart Sun. 06.2 kl 14 aukasýn. UPPSELT Fös. 11.2 kl 20 UPPSELT Lau. 12.2 kl 20 Örfá sæti Sun. 13.2 kl 14 aukasýn. Nokkur sæti Fös. 18.2 kl 20 Nokkur sæti Lau. 19.2 kl 20 Nokkur sæti Ath: Ósóttar pantanir seldar daglega! Tilboð til Visa-vildarkorthafa: Fljúgðu á Óliver á punktum til 6. feb

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.