Morgunblaðið - 07.02.2005, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.02.2005, Blaðsíða 16
16 MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. E fni málþingsins, sem boðað var til af Fjölmiðlamiðstöð Reykjavíkuraka- demíunnar, var umfjöllun fjölmiðla um innflytjendur, hælisleitendur og málefni útlendinga á Íslandi al- mennt. Auk Georgs fluttu framsöguerindi Atli Viðar Thorstensen, verkefnisstjóri hjá Rauða krossinum, og Tatjana Latinovic, formaður Sam- taka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi og stjórnarmaður í Alþjóðahúsinu. Óhætt er að segja að erindi Georgs hafi vakið mesta athygli. Brotakennd fjölmiðlaumfjöllun Georg sagði að Íslendingar stæðu sig alls ekki vel í útlendingamálum og það ætti líka við um fjöl- miðla. Fólk yrði að átta sig á að tæplega 5% íbúa landsins væru útlendingar í skilningi útlendinga- laga, þ.e.a.s. ekki með íslenskan ríkisborgararétt og tæplega 7% íbúanna væru af erlendu bergi brotnir. Í sumum sveitarfélögum væri hlutfallið miklu hærra, jafnvel 21%. „Í ljósi þessa held ég held að við þurfum að taka okkur verulega á og gefa þessum málaflokki meiri gaum en við gerum í dag. Fjölmiðlaumfjöllun um þessi mál hefur ver- ið ákaflega tilviljanakennd og brotakennd,“ sagði hann. Sumir fjölmiðlar hefðu þó tekið á þessum mála- flokki af meiri reglu og festu en aðrir. Nefndi hann Morgunblaðið sérstaklega en vildi samt ekki hæla því um of. Fjölmiðlaumfjöllun hefði að mestu ráðist af því sem færi hæst í umræðunni á hverj- um tíma en engin heildstæð úttekt hefði verið gerð á stöðu útlendingamála. Fjölmiðlar hefðu mikilvægu hlutverki að gegna, þeirra mikilvægast væri að gæta hagsmuna útlendinga sem væru að mestu leyti þögull hópur. Ekkert væri fjallað um atvinnuleysi í þeirra hópi, hvort þeir væru á lág- um launum eða væru að einangrast í samfélaginu. Georg sagði að það hefði verið talsvert gagn- rýnt í fjölmiðlum að flestum hælisleitendum væri synjað um hæli og að hugsanlega ætti sú gagnrýni við einhver rök að styðjast. Á hinn bóginn væri staðreyndin sú að flestallir hælisleitendur sem hingað kæmu hefðu áður farið vítt og breitt um Evrópu og þeir ættu hælisumsóknir til meðferðar í öðrum löndum, stundum mörgum. Þetta væru í raun ekki „alvöru“ hælisleitendur. Umfjöllun um málefni einstakra hælisleitenda hefði oft ein- kennst af miklum tilfinningum og farið um víðan völl en útlendingastofnun væri sá vandi á höndum að hún gæti ekki upplýst um einstök mál. Fjöl- miðlar yrðu að setja einhverjar skorður við um- fjöllun af þessu tagi. Útlendingar sem hagstjórnartæki Gagnrýni Georgs á stjórnvöld var óvægin. Hann sagði að stjórnvöld hefðu látið þennan málaflokk reka á reiðanum og hefðu í raun enga heildarstefnu í málefnum útlendinga. Innflutning- ur á fólki hefði einkum verið notaður sem hags- tjórnartæki og þarfir atvinnulífsins ráðið mestu. Mönnum þætti gott að fá ódýrt vinnuafl til að vinna í fiski eða við virkjun við Kárahnjúka, ekki þyrfti að borga of há laun og þar með væri hamlað gegn þenslu. Georg var forstjóri Útlendingastofnunar í rúm- lega fimm ár. Samkvæmt lögum ber stofnuninni að framfylgja stefnu stjórnvalda í málefnum út- lendinga. Hann sagði að sú stefna væri alls ekki til staðar. „Það má segja að stefnan sé sú að bjarga og redda fyrir horn af því að það vantar starfsfólk til vinnu hér og þar. Því þarf bara að bjarga í ein- um grænum hvelli og það er ekkert hugsað út í hvaða fólk er að koma, hvaðan það er að koma og hvernig eigi að taka að móti því,“ sagði hann. Eng- ar rannsóknir hefðu heldur farið fram um hvað hefði gerst í þessum málaflokki og hvernig líklegt væri að hann myndi þróast á næstu árum en brýn nauðsyn væri á slíkum rannsóknum. Georg sagði að mikilvægasti þáttur útlendinga- mála væri hvernig útlendingar aðlöguðust hér á landi og hvaða möguleika þeir hefðu til aðlögunar. Þessi þáttur væri „algjörlega skipulagslaus.“ Þó t o s e á r „ i m Í o h t k r E l R h R h s a v s f i R t s m a v s s hefðu sum sveitarfélög tekið á þessum málum og einstaka fyrirtæki stæði sig mjög vel. Georg sagði að ýmsum starfshópum væri ætlað að koma með tillögur varðandi útlendingamál og hann sæti raunar í einum þeirra. Á endanum ylti það á vilja æðstu ráðamanna þjóðarinnar og þeim fjármunum sem væri varið til málaflokksins, hvort eitthvað yrði gert eða ekki. Hann sagði út- lendingamál snerta fjölmörg ráðuneyti og væru í raun á ábyrgð ríkisstjórnarinnar allrar. Ef eitt- hvert ráðuneyti hefði staðið sig þá væri það dóms- málaráðuneytið. Georg benti á að útlendingar hefðu byrjað að flytjast hingað að einhverju marki fyrir um ára- Fyrrverandi forstjóri Útlendingastofnunar g harðlega fyrir stefnuleysi í málefnum „Getum ekki bara s Guð og lukkuna öllu Á málfundi á laugardag gagn- rýndi Georg Kr. Lárusson, fyrr- um forstjóri Útlendingastofn- unar og núverandi forstjóri Landhelgisgæslunnar, stefnu stjórnvalda í málefnum útlend- inga harðlega. Hann sagði einn- ig að umfjöllun fjölmiðla um þeirra málefni væri tilvilj- anakennd og brotakennd. Georg Kr. Lárusson og Tatjana Latinovic voru samm efnum útlendinga. Fjær er Þorfinnur Ómarsson fun Á málþinginu var rætt um stefnuleysi stjórnvalda og ÚTLENDINGAR sem hafa sest hér að eru um 7% þj nánast ekkert um þennan hóp í fjölmiðlum. Þegar fjal hælisleitendum eða flóttamönnum en meirihlutinn gle Samtaka kvenna af erlendum uppruna, í framsögu sin Hún sagði að innflytjendur væru ekki einsleitur hóp heimum en umfjöllun í fjölmiðlum um þá endurspegla að finna hjá fjölmiðlunum heldur væru innflytjendur o ingunni að fæstir fylgdust með samfélagsmálum á Ísl gerast í þeirra upprunalöndum. Þorri þeirra væri því landi. Tatjana sagði að fjölmiðlar hefðu hlutverki að g kannaður yrði möguleiki á útvarpsþætti á ensku þar s ana sagði að umfjöllun fjölmiðla hefði breyst til batna hælisleitendum sem væri hverfandi hluti útlendinga s fyrsta flóttafólkið kom frá löndum fyrrum Júgóslavíu inn alla leið frá Keflavík til Ísafjarðar. Þegar komið va myndavélar inn í íbúðirnar til að fylgjast með viðbrög leikasjónvarpsins þannig að í dag þætti þetta kannski maganum vegna smekkleysis og virðingarleysis gagn lendinga sem hefðu misst allt sitt í snjóflóðum? Ég he Vandamálið ekki eingön EFTIR framsögur hófust fjörugar pall- borðsumræður. Sigurður Þór Salvars- son, upplýsingafulltrúi Alþjóðahússins, tók undir það með Georg og Tatjönu að fjalla þyrfti meira um útlendinga. Anna G. Ólafsdóttir, blaðamaður á Morg- unblaðinu, benti á að fjölmiðlar væru mismunandi og ekki sanngjarnt að setja þá alla undir einn hatt eins og gjarnan hefði verið gert. Hún sagði að Morgunblaðið hefði mikið fjallað um málefni útlendinga hér á landi. Það væri þó ekki alltaf auðvelt að fá þá til að tala við blaðamenn og þrátt fyrir ítrekaðir tilraunir hefði ekki tekist að fá útlending til starfa á ritstjórn eins og æskilegt væri. Fjölmiðlar eru mismunandi MÖGULEIKAR JARÐVARMA Hvert eigum við að sækjaorku framtíðarinnar? Íupphafi raforkuframleiðslu á Íslandi réðu mjög einföld sjón- armið hagkvæmni að mestu leyti ferðinni. Nú er hefur hins vegar verið gengið svo nærri óbyggðum landsins að öllu lengra verður ekki gengið. Því er nauðsynlegt að nýir möguleikar verði kannaðir og áhersla lögð á að nýta þá kosti sem valda sem minnstum spjöllum á umhverfinu og náttúrunni. Þar gæti jarðvarmi leikið stórt hlut- verk. Bendir margt til þess að auð- veldara verði að ná sátt um virkjun jarðvarma en vatnsaflsvirkjanir, sem hafa valdið hörðum deilum á undanförnum árum. Í umfjöllun Aðalheiðar Þorsteins- dóttur um möguleika jarðvarma- virkjana í Morgunblaðinu í gær kemur fram að virkjun jarðvarma var ekki nema 16,6% af heildar- framleiðslunni árið 2003, en nýting vatnsafls 83,4%. Í niðurstöðum skýrslu um fyrsta áfanga ramma- áætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma kemur fram að vænta megi að heildarorkugeta orkulinda landsins sé um 67 þúsund gígavatt- stundir á ári. Þar af sé nýtanleg geta vatnsorku um 37 þúsund gíga- vattstundir á ári og tæknilega hag- kvæm orkugeta jarðhita til raf- orkuframleiðslu talin vera að lágmarki um 30 þúsund gígavatt- stundir á ári. Sveinbjörn Björnsson, formaður verkefnisstjórnar um gerð ramma- áætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma, segir í viðtali í úttekt- inni að niðurstöður fyrsta áfanga í vinnu nefndarinnar bendi til þess að umhverfisáhrif af nýtingu jarð- hita til að framleiða rafmagn séu vægari en af vatnsaflsvirkjunum. Hann bendir þó á að ekki liggi jafn- mikil þekking og reynsla að baki virkjun jarðvarma og vatnsafls. Tryggvi Felixson, framkvæmda- stjóri Landverndar, segir að margt bendi til þess að margir kostir séu í jarðhita, sem hægt væri að virkja án þess að ógna verulegum nátt- úruverndarhagsmunum. „Það ræðst að verulegu leyti af því að mörg þessara jarðvarmasvæða liggja nærri byggð og á svæðum, sem hefur þegar verið raskað að einhverju leyti. Eins af því að framkvæmdasvæðið, beint áhrifa- svæði virkjunarinnar, er talsvert minna en þegar virkjaðar eru jök- ulár og búa þarf til stór uppistöðu- lón til þess að miðla,“ segir hann. Þorkell Helgason orkumálastjóri segir í greininni fyrirsjáanlegt að jarðvarmi muni gegna stórauknu hlutverki. Hann dregur fram kosti og galla þeirra, en kveðst þó telja að fyrir utan nokkra fagra staði á borð við Mývatn og Landmanna- laugar þar sem engin áform séu um að virkja telji hann að „við munum ekki lenda í jafnmiklum deilum um jarðvarmavirkjanir og um þær vatnsaflsvirkjanir, sem valda mestu deilunum“. Hann bætir við: „Einn kosturinn við jarðvarmavirkjanir umfram vatnsaflsvirkjanir er sá að þær eru afturkræfar, það er að segja að hægt er að fjarlægja þær og ganga þannig frá umhverfinu að það líti nánast eins út og það var áður.“ Eins og fram kemur í greininni er margt órannsakað í sambandi við nýtingu jarðhita til framleiðslu raforku. Langan tíma tekur að átta sig á getu ákveðins svæðis og sömuleiðis getur tekið nokkur ár að ná hámarksafköstum. Hins vegar er alveg ljóst að sú tíð er liðin að í virkjunarmálum gangi að fara ein- faldlega stystu og ódýrustu leiðina. Þess vegna ber að leggja mikla áherslu á rannsóknir og tilraunir á nýtingu jarðvarma á næstunni og verður í þeim efnum reyndar mjög forvitnilegt að fylgjast með niður- stöðum rannsókna á möguleikum djúpborana í virkjun jarðvarma. Virkjanir og náttúruvernd þurfa ekki og eiga ekki að vera andstæðir pólar. Auðlindir Íslands eru bæði fólgnar í þeirri ólgandi orku, sem hér er að finna, og óviðjafnanlegum náttúruperlum sem þarf að um- gangast með virðingu. ER HÁLENDIÐ KLUKKUSTUNDAR VIRÐI? Í málflutningi þeirra, sem nú hafastofnað félag til að vinna að því að lagður verði vegur yfir hálendið til að stytta leiðina milli Reykjavíkur og Akureyrar, hefur komið fram að stytta megi leiðina um a.m.k. 40 kíló- metra, jafnvel allt að 80 kílómetra ef lagður verði vegur um Kaldadal. Bent hefur verið á að núverandi veg- ur, þjóðvegur 1, þarfnist endurbóta og sé m.a. ekki hannaður fyrir þunga- flutninga. Við 80 kílómetra styttingu sparist klukkustund í akstri milli Reykjavíkur og Akureyrar og við það geti sparazt vel á annan milljarð á ári vegna minni eldsneytiseyðslu. Þá muni mengun minnka sem stytting- unni nemi. Allt eru þetta gild rök. Þau þarf hins vegar að vega á móti áhrifum vegarlagningarinnar á hálendi Ís- lands. Það er deginum ljósara að upp- byggður heilsársvegur, hannaður fyrir þungaflutninga og gerður fyrir hraðan akstur mun gerbreyta ásýnd stórs hluta hálendis Íslands. Náttúr- an á þessu svæði verður aldrei söm; upplifun þeirra sem heimsækja það mun breytast til langframa. Hvaða verðmæti felast í hinni ósnortnu náttúru, m.a. fyrir ferða- þjónustuna og ímynd landsins og sér- stöðu út á við? Verðmæti hálendisins felst nefnilega ekki aðeins í fegurð þess, heldur einnig hinu takmarkaða aðgengi að því. Spurningin, sem þarf að svara, er þessi: Er stórum hluta hálendisins fórnandi fyrir klukkustundar stytt- ingu ferðalagsins milli Reykjavíkur og Akureyrar – jafnvel aðeins hálf- tíma styttingu?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.