Morgunblaðið - 16.02.2005, Síða 1

Morgunblaðið - 16.02.2005, Síða 1
STOFNAÐ 1913 45. TBL. 93. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Sáru ennin í salnum Arnar Eggert gagnrýnir fyrir- komulag tónlistarverðlauna | Listir Sjálfstæðari nemendur Nýir kennsluhættir í einstakl- ingsmiðuðu námi | Daglegt líf Íþróttir í dag Gauti bætti Íslandsmetið í 800 m hlaupi  Drífa fær ekki leikheimild með Val  Wallau býður Einari nýjan samning KOSNINGABANDALAG helstu flokka sjíta sem vann flest sæti á íraska þjóðþinginu í kosningum fyrir skömmu hefur ákveðið að til- nefna Ibrahim al-Jaafari sem forsætisráð- herraefni sitt. Þetta var haft eftir nokkrum heimildarmönnum í gær. Jaafari er leiðtogi Dawa- flokksins, eins stærsta stjórnmálaflokks í Írak. Heimildarmaður AFP- fréttastofunnar staðfesti, að Adel Abdel Mahdi, nú- verandi fjármálaráðherra í bráðabirgðastjórn Iyads Allawis, sæktist ekki leng- ur eftir forsætisráðherra- embættinu af hálfu kosn- ingabandalagsins. Sjíta-listinn nýtur stuðnings Ali al-Sistanis erkiklerks, helsta trúarleiðtoga sjíta í Írak, og hlaut 48,1% atkvæða í kosningunum 30. jan- úar. Kúrdar gera kröfu til forsetaembættisins og hefur Jalal Talabani, annar helstu leiðtoga þeirra, verið nefndur í því samhengi. Sjítar velja Al-Jaafari Ibrahim al-Jaafari Bagdad. AFP.  Leiðari/26 ÞEGAR gigtarlyfið Vioxx var tekið af markaði hér á landi sl. haust var sjúklingum sem það höfðu tekið áfram ávísað svokölluðum Cox-lyfj- um, sem Vioxx tilheyrir, þrátt fyrir að alþjóð- legar lyfjastofnanir hefðu einnig varað við notk- un þeirra. Greiðslur Tryggingastofnunar fyrir Vioxx færðust því yfir á önnur Cox-lyf en ekki aðra tegund gigtarlyfja. Þetta kom m.a. fram í erindi Ingu J. Arnardóttur, deildarstjóra lyfja- deildar Tryggingastofnunar, á ráðstefnu SÍBS um lyfjamál í gær. Stefán Már Gunnlaugsson, varaformaður ungliðahreyfingar Gigtarfélags- ins, sagði í erindi sínu á ráðstefnunni ótrúlegt að Vioxx skyldi hafa komist á markað. „Þegar Vioxxið var tekið út af markaði [vegna alvarlegra aukaverkana] færðust lyfin, þannig að ég tel að þetta sé dæmi um hvar hefði mátt spara miklar fjárhæðir og velja ódýrari lyf. Þessi nýju lyf eiga rétt á sér í sum- um tilfellum en alls ekki öllum.“ Hægt að spara 100 milljónir Inga tók í erindi sínu dæmi um magalyf og hvernig mætti draga úr útgjöldum með því að ávísa ódýrara sambærilegu lyfi. Þar kom fram að ef alltaf er notað ódýrasta magalyfið af fjór- um sambærilegum lyfjum má spara að hámarki um 100 milljónir króna á ári en heildarkostn- aður Tryggingastofnunar vegna lyfjaflokksins var um 600 milljónir í fyrra. greiðslur Tryggingastofnunar bara beint yfir í annað sambærilegt lyf,“ sagði Inga J. Arnar- dóttir í samtali við Morgunblaðið. Á hún þar við svokallaðan Cox-lyfjaflokk sem varað hefur verið við notkun á. „Ég hefði ekki trúað að læknar myndu snúa sér beint úr Vioxx-inu og í það næsta við hliðina sem væri sambærilegt, en það gerðist,“ segir Inga. „Mér finnst læknar ekki hafa verið nógu varkárir þarna. Þessi lyf eru 5–10 sinnum dýrari en eldri bólgueyðandi Áfram vísað á Cox-lyf þrátt fyrir aðvaranir Læknar ekki nógu var- kárir, segir deildarstjóri hjá Tryggingastofnun  Ótrúlegt/26 STÖÐVARHÚSSHELLIR Kárahnjúkavirkj- unar í Valþjófsstaðarfjalli í Fljótsdal er 120 m langur, 35 m hár og 14 m breiður. Mörg þjón- ustugöng, vatnsmiðlunargöng og ranghalar liggja að auki inni í fjallinu og er heildarlengd ganga um fimm kílómetrar. Stórum áfanga í byggingu virkjunarinnar var náð í gær þegar þýska fyrirtækið VA TECH hóf uppsetningu vélbúnaðar í stöðvar- húsinu. Er allri jarðvinnu þar lokið og ganga- vélasalinn eða sjálft stöðvarhúsið fyrir niður- setningu á vélbúnaði og erum m.a. að steypa sökkla og þjónusturými,“ segir Hermann. Hermann segir að efnið sem búið er að grafa úr Valþjófsstaðarfjalli sé svipað og grafið var út úr Fáskrúðsfjarðargöngum og Hvalfjarð- argöngum samanlagt, um þrjú hundruð þús- und rúmmetrar af bergi. Efnið verður lagt út á árbakka Jökulsár í Fljótsdal og mótað sem melur, lagt moldarlagi og grætt upp. gerð að langmestu leyti og hefst nú uppsetning véla og tækja. Margir verkhlutar hjá Fosskrafti hf., sem hefur séð um alla vinnu inni í Valþjófsstaðar- fjalli hingað til, eru vel á undan áætlun. Her- mann Sigurðsson, aðstoðarstaðarstjóri Foss- krafts, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að nú væri allri jarðvinnu lokið og búið að sprengja út hvelfingar og gera öll göng. „Núna erum við í steypuvinnu, erum að undirbúa Hafist handa við að koma vélbúnaði fyrir í stöðvarhúsi Kárahnjúkavirkjunar Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Fimm kílómetrar af göngum í fjallinu Fljótsdal. Morgunblaðið. ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna for- dæmdi í gær morðið á Rafik Hariri, fyrrver- andi forsætisráðherra Líbanons, og krafðist þess að fá sem fyrst í hendur skýrslu um at- burðinn. Í samþykkt öryggisráðsins er lýst yfir áhyggjum og ótta við, að stöðugleikinn í Líb- anon fari út um þúfur, en þar geisaði blóðugt borgarastríð frá 1975 til 1990. Anne Patter- son, aðstoðarsendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ, sagði, að inntakið í samþykktinni í gær væri, að önnur ríki skyldu hætta afskiptum af Líbanon. Bandaríkjastjórn kallaði í gær heim til skrafs og ráðagerða sendiherra sinn í Sýr- landi, Margaret Scobey. Fordæma morðið á Rafik Hariri  Myrtu/14 Sameinuðu þjóðunum. AFP. NORÐMENN hyggjast senda sérsveitir til Afganistan og er þeim ætlað að aðstoða Banda- ríkjamenn við að leita uppi vígamenn talibana og félaga í Al-Qaeda- hryðjuverkanetinu. Jan Petersen, utanríkis- ráðherra Noregs, greindi frá þessu á þingi í gær. Sérsveitarmennirnir munu lúta bandarískri stjórn. Norðmenn halda úti liðs- afla í Afganistan en sér- sveitarmennirnir munu ekki tengjast honum. Kristin Halvorsen, leiðtogi Sósíalíska vinstriflokksins, sagði í gær, að Norðmenn ættu aðeins að starfa á vegum NATO, ástæðu- laust væri að taka beinan þátt í „hryðjuverka- stríðinu“ sem Bandaríkjaforseti hefði lýst yfir. Thorbjørn Jagland sagði nánari upplýsingar skorta en dagblaðið VG sagði að Verkamanna- flokkurinn myndi styðja ákvörðunina. Sérsveitir frá Noregi til Afganistan ♦♦♦ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.