Morgunblaðið - 16.02.2005, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 16.02.2005, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR STÓRUM ÁFANGA NÁÐ Stórum áfanga í byggingu Kára- hnjúkavirkjunar var náð í gær þegar þýska fyrirtækið VA TECH hóf upp- setningu vélbúnaðar í stöðvarhúsi virkjunarinnar í Valþjófsstaðarfjalli í Fljótsdal. Er allri jarðvinnu þar lokið og gangagerð að langmestu leyti og hefst nú uppsetning véla og tækja sem Fosskraft annast. Tvöfalt fleiri Tvöfalt fleiri hafa sótt um leyfi til hreindýraveiða fyrir þetta ár en í boði eru. Hefur orðið sprenging í fjölda umsækjenda um hreindýraveiðileyfin á seinustu árum en aldrei hafa þó borist jafn margar umsóknir og nú. Áfram ávísað á Cox-lyf Þegar gigtarlyfið Vioxx var tekið af markaði hér á landi sl. haust var sjúk- lingum sem það höfðu tekið áfram ávísað svokölluðum Cox-lyfjum, sem Vioxx tilheyrir, þrátt fyrir að alþjóð- legar lyfjastofnanir hafi einnig varað við notkun þeirra. Greiðslur Trygg- ingastofnunar fyrir Vioxx færðust því yfir á önnur Cox-lyf en ekki aðra teg- und gigtarlyfja. SÞ fordæma Öryggisráð SÞ samþykkti í gær að fordæma morðið á Rafik Hariri, fyrr- verandi forsætisráðherra Líbanons, og lýsti jafnframt yfir áhyggjum og ótta við, að stöðugleikinn í landinu gæti farið út um þúfur. Hefur Banda- ríkjastjórn kallað heim sendiherra sinn í Sýrlandi og telur nýjar refsiað- gerðir líklegar kalli Sýrlandsstjórn ekki heim her sinn í Líbanon. Y f i r l i t Morgunblaðinu í dag fylgir kynningar- blað Vetrarhátíðar í Reykjavík. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarp- héðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " #           $         %&' ( )***                        FRÆÐSLUVIKA um geðraskanir stendur nú yfir í félagsmiðstöðvum innan Samfés. Fræðsluvikunni, sem ber yfirskriftina „Geðveikir dagar“, lýkur um næstu helgi með sölu arm- banda til styrktar byggingarsjóði barna- og unglingageðdeildar Land- spítalans. Á armböndin er greypt orðið „Geðveikt“ sem hefur öðlast nýja og jákvæða merkingu í málfari ungs fólks í dag að sögn Hrafnhildar Ástþórsdóttur, verkefnisstýru fræðsluverkefnisins. Hún segir markmið verkefnisins að kynna geð- raskanir fyrir unglingum á hlut- lausan og fræðandi hátt og að ung- lingarnir leggi sitt af mörkum til aðstoðar börnum og unglingum sem haldin eru geðröskunum. „Við erum með þessu að stuðla að aukinni þekkingu og fordómaleysi og hins vegar að þau sýni samhygð og jafningjahjálp í verki með því að selja þessi sérstöku armbönd sem við létum búa til,“ segir Hrafnhildur. Hún segist eiga von á að það togni á verkefninu fram í næstu viku, enda munu margar minni fé- lagsmiðstöðvar víða um land taka þátt í fræðsluverkefninu. Alls eru 87 félagsmiðstöðvar innan Samfés. Selja armbönd um næstu helgi Unglingarnir í félagsmiðstöðvum Samfés munu leggja sitt af mörkum með því að selja armböndin um næstu helgi. Í gær var fyrsta arm- bandið hins vegar afhent Dorrit Mo- ussaieff forsetafrú á blaðamanna- fundi í Hinu húsinu í Reykjavík, en hún hefur sýnt velferð barna mikinn áhuga. Sagðist hún vonast til þess að söfnunin næstu helgi gengi vel. Hrafnhildur segir mikla þörf vera á verkefni sem þessu, enda hafi geð- sjúkdómar verið mikið bannorð í gegnum tíðina. „Unglingar vita að vissu leyti mjög lítið um geðrask- anir,“ segir Hrafnhildur og bætir því við að hlutir eins og þunglyndi, kvíðaraskanir, ofvirkni, athygl- isbrestur o.fl. hafi verið mikið í um- ræðunni að undanförnu. Hún bendir á að það sé jafnmikið hlutverk fé- lagsmiðstöðvanna að fræða ung- lingana og að vera afþreyingarvett- vangur. Í tilefni vikunnar hafa unglingar og starfsmenn félagsmiðstöðvanna skipulagt tónleika, fræðslufyr- irlestra, kvikmyndasýningar, böll og margt fleira. Vilja auka þekkingu og draga úr fordómum Morgunblaðið/Jim Smart Sigríður Eyþórsdóttir, yfiriðjuþjálfi BUGL, Linda Udengård, formaður Samfés, Dorrit Moussaieff forsetafrú, Oddrún Magnúsdóttir, sem kom fram fyrir hönd unglinga, og Hrafnhildur Ástþórsdóttir, verkefnisstýra. Fræðsluvikan „Geðveikir dagar“ haldin í félagsmiðstöðvum HÁ álagning á vínveitingahúsum hef- ur veruleg áhrif á hátt áfengisverð hér á landi og áfengisgjaldi, sem rennur í ríkissjóð, er ekki hægt að kenna einu um. Þannig kemur 60% af útsöluverði bjórs á vínveitingahúsi í hlut seljandans, en innkaupsverðið er aðeins 6% af verðinu og áfengisgjald- ið 11%. Með sama hætti kemur 51% af útsöluverði rauðvíns í hlut vínveit- ingahússins, en innkaupsverðið er 14% af verðinu og áfengisgjaldið 12%. Þetta kemur fram í skýrslu sem samgönguráðuneytið hefur látið vinna í þessum efnum, þar sem könn- uð er samsetning á útsöluverði á áfengi hér á landi í Áfengis- og tób- aksverslun ríkisins og í veitingahús- um. Fram kemur að áfengisgjald hér á landi er það hæsta í Evrópu og hvergi nema í Noregi er áfengisgjald svipað og hér á landi. Ef horft er til útsölu- verðs áfengis í ÁTVR er áfengis- gjaldið 43% af bjór sem kostar 159 kr., eða 69 kr. Innkaupsverðið er tæpar 37 krónur eða 23% af verðinu. Þá er þriðjungur af verði rauðvíns- flösku sem kostar 1.390 kr. eða 465 krónur, áfengisgjald og 540 kr. eða 39% er innkaupsverðið. Innkaupsverð 37 kr. af 600 kr. Þegar útsöluverð á vínveitingahús- um er hins vegar skoðað kemur í ljós að af bjór sem kostar þar 600 kr. er 354 kr. eða 60% álagning vínveitinga- hússins, innkaupsverðið er tæpar 37 kr. eða 6% og áfengisgjaldið 69 kr. eða 11%. Af rauðvíni sem kostar 3.890 kr. er álagning vínveitingahússins 2.008 kr. eða 51%, innkaupsverðið er 540 kr. eða 14% og áfengisgjaldið er 465 kr. eða 12%. Útsöluverð á vodkaflösku er á vín- veitingahúsi 10.500 kr. Þar af fer 5.927 kr. eða 56% í hlut vínveitinga- hússins, áfengisgjaldið er 1.982 kr. eða 19% og innkaupsverðið er 480 kr. eða einungis 5% af endanlegu verði. „Hægt er að fullyrða að hátt áfeng- isverð á Íslandi er ekki aðeins áfeng- isgjaldinu að kenna. Há álagning á vínveitingahúsum hefur hér veruleg áhrif. Engin afstaða er tekin til þess hvort sú álagning sé eitthvað óeðlileg. Á Íslandi er frjáls samkeppni og frjáls álagning þannig að verðlagning áfengis hlýtur að taka mið af mark- aðnum á hverjum tíma. Ef lækka á áfengisverðið á Íslandi verða hags- munaaðilar, bæði ríkið og handhafar vínveitingaleyfa, að taka höndum saman í þeim efnum með því að lækka bæði áfengisgjaldið og álagn- ingu hjá veitingahúsunum,“ segir meðal annars í niðurstöðuorðum skýrslunnar. Hluti álagningar er 60% af bjórverði á veitingahúsi Innkaupsverð bjórs er 6% af endanlegu verði         !   !" #$ %# % &%  " !' '! ( )   *# !& +,    )        *!  (,    -!  !# &   (     ! # !& ,      +   (   , !  "!  %# % &%  " !' '! ( )  +  *# !& (     )  ,      *!  (    -!  !# &        .  !   " %/          ( RÍKISSAKSÓKNARI hefur ákært sjö manns, fimm karlmenn og tvær konur, vegna innflutnings á 1.000 e-töflum og 130 grömmum af kók- aíni í ársbyrjun 2004. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í gærmorgun. Karlmennirnir fimm eru ákærðir fyrir að standa saman að innflutn- ingnum, önnur konan fyrir að taka við sendingu sem hún taldi að inni- héldi fíkniefnin og fyrir pen- ingaþvætti og hin fyrir að taka við 90.000 krónum úr hendi eins ákærða, unnusta síns, sem hún vissi að var afrakstur af fíkniefna- viðskiptum hans. Í ákærunni kemur fram að lög- regla lagði hald á fíkniefnin í af- greiðslu Íslandspósts í Keflavík hinn 5. febrúar. Þangað sótti konan sendinguna með fíkniefnunum og fór með hana á heimili sitt þangað sem einn karlmannanna sótti hana síðar sama dag. Hann fór þaðan með sendinguna á heimili sitt og varð þess þá var að fíkniefnin höfðu verið fjarlægð úr sendingunni. Auk fíkniefnanna sem voru í sendingunni var lagt hald á ýmis önnur fíkniefni sem fundust á heim- ilum eða í bifreiðum fjögurra hinna ákærðu, m.a. amfetamín og kókaín auk 8,40 ml af vökva og 78½ töflu af karlhormónum með anabólískri verkun. Ákært fyrir inn- flutning á um 1.000 e-töflum GÆSLUVARÐHALD tæplega þrí- tugs manns sem játaði að hafa orðið eiginkonu sinni að bana í íbúð þeirra í Hamraborg í Kópavogi aðfaranótt 1. nóvember sl. var í gær framlengt til 15. apríl næstkomandi. Gæsluvarðhald mannsins rann út í gær en lögreglan í Kópavogi fór fram á framlengingu þess og féllst Héraðsdómur Reykjaness á kröfuna í gærmorgun. Rannsókn málsins er ólokið hjá lögreglu. Gæsla fram- lengd vegna manndráps ÍSLENDINGURINN og Norðmenn- irnir tveir sem björguðust þegar fiskiskip sökk úti fyrir strönd Sóm- alíu á austurströnd Afríku sl. mið- vikudag eru væntanlegir með fyrsta flugi frá landinu, væntanlega á fimmtudag. Að sögn Geirs Solvåg, fram- kvæmdastjóra hjá Ervik Havfiske, útgerðarfélagi skipsins, varð mis- skilningur þess valdandi að mönn- unum varð haldið lengur í Sómalíu en efni stóðu til. Geir sagði í samtali við Morgunblaðið að gert hefði ver- ið ráð fyrir að mennirnir héldu heim í fyrradag en vegna misskiln- ings eða seinagangs hjá stjórnvöld- um í Puntlandi, sem er í norður- hluta Sómalíu, hefði ekkert orðið af því. Nú væri gert ráð fyrir að menn- irnir kæmust frá landinu á fimmtu- dag eða með fyrsta flugi þaðan. Geir kvaðst ekki hafa öruggar upplýsingar um orsök þess að fiski- skipið Marie sökk. Hann vissi þó að vélarrúmið hefði fyllst af sjó en ekki væri vitað hvað olli því. Í fyrstu fréttum af slysinu var sagt að 15 manns hefði verið bjargað en Geir sagði að síðar hefði komið í ljós að þeir voru 16. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær var öll- um um borð bjargað. Íslenska sendiráðið í Osló hefur verið í sambandi við norsku utan- ríkisþjónustuna. Samkvæmt upp- lýsingum frá utanríkisráðuneytinu þykir Norðmönnum engin ástæða til þess að blanda sér í málið. Fer með fyrsta flugi frá Sómalíu Í dag Sigmund 8 Viðhorf 28 Viðskipti 12/13 Umræðan 24/25 Erlent 14/15 Minningar 28/36 Höfuðborgin 17 Hestar 25 Akureyri 18 Dagbók 40/43 Suðurnes 19 Kvikmyndir 44 Landið 18/19 Fólk 44/49 Daglegt líf 20/21 Bíó 46/49 Listir 22 Ljósvakar 50 Forystugrein 26 Veður 51 * * *

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.