Morgunblaðið - 16.02.2005, Page 4

Morgunblaðið - 16.02.2005, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR edda.is Jóhanna Kristjónsdóttir Á tilboði 2.990 kr. Fullt verð 4.690 kr. Jóhanna Kristjónsdóttir hlaut Viðurkenningu Hagþenkis - félags höfunda fræðirita og kennslugagna. Til hamingju Jóhanna Viðurkenning Hagþenkis 2004 „Aðdáunarvert framtak í þá átt að reyna að stemma stigu við fordómum og arabahatri.“ Sigríður Albertsdóttir, DV „Afar skemmtileg bók sem óhætt er að mæla með ... lóð á vogarskál umburðarlyndis og réttlætis í heiminum.“ Birna Karlsdóttir, Félagstíðindi SFR „Skemmtileg bók, lifandi frásögn og umfram allt einstaklega fróðleg lesning.“ Guðný Halldórsdóttir, kistan.is VALGERÐUR Magnúsdóttir fagn- aði hundrað ára afmæli sínu í gær á Klausturhólum á Kirkjubæj- arklaustri. Að sögn Katrínar Þórarinsdóttur, bróðurdóttur Valgerðar, er Valgerður fædd og uppalin í Há- túnum, dóttir Magnúsar Þór- arinssonar og Katrínar Hreið- arsdóttur, ábú- enda þar. Valgerður var um skeið vinnu- kona á Breiðabólstað og starfaði auk þess um tíma á Landspít- alanum áður en hún sneri aftur austur, en að sögn Katrínar vann Valgerður við búskap í Hátúni öll sín bestu ár þar sem hún deildi búinu ásamt bróður sínum að for- eldrum þeirra gengnum. Aðspurð segir Katrín fordæmi fyrir langlífi í ættinni. Raunar hafi foreldrar Valgerðar ekki náð háum aldri sökum veikinda, en Katrín rifjar upp að ein móður- systir Valgerðar hafi orðið hundr- að ára, sem hafi þótt allmerkilegt á sínum tíma. Fagnaði 100 ára afmæli Valgerður Magnúsdóttir ÖLL tölublöð Morgunblaðsins frá upphafi útgáfunnar og fram undir lok ársins 1975 hafa nú verið mynduð hjá Landsbókasafni Íslands og eru aðgengileg á Netinu í gegnum gagnasafn Morgunblaðsins á mbl.is og á vefjunum hvar.is og timarit.is. Nú er hægt með auðveldari hætti en áður að kalla fram Morgunblað ákveðins dags. Vinstra megin á vef- síðunni er komin tenging sem nefnist Hraðfletting. Þegar smellt er á hana opnast gluggi þar sem hægt er að velja ákveðinn árgang, mánuð, dag og blaðsíðu. Einnig er er hægt að framkvæmda orðaleit í blöðunum. Árgangar Morgunblaðsins á Netinu Hraðfletting auð- veldar aðganginn Með hraðflettingu er unnt að velja með skjótvirkum hætti árgang, mánuð, útgáfudag og jafnvel ákveðna blaðsíðu í Morgunblaðinu. „FRÁ mínum sjónarhóli séð er mál Bobbys Fischers fyrst og fremst mannúðarmál, sem við Íslendingar eigum að leggja áherzlu á að reyna allt sem unnt er til þess að leysa far- sællega,“ sagði Friðrik Ólafsson stórmeistari í samtali við Morgun- blaðið, en allsherjarnefnd Alþingis fjallar nú um beiðni Fischers um ís- lenzkan ríkisborgararétt. „Það fer ekki milli mála að Bobby Fischer er í vanda staddur. Í sjálfu sér má segja að ekkert hafi á það reynt hver framvindan yrði ef Bobby yrði framseldur til Bandaríkjanna, en hans nánustu hafa bersýnilega ekki talið á það hættandi. Það hefur ekki farið fram hjá nein- um að Bobby beinir nú mjög augum sínum til okkar Íslendinga í von um hjálp. Ég er ekki að segja, að ég trúi því að að til slíks þurfi að koma í stærsta lýðræðisríki heims þar sem Bobby Fischer var eitt sinn dáður sem þjóð- hetja. En því miður virðast nú bandarísk yfirvöld taka allt sem hann segir í fullri alvöru og því eru líkindi til þess að enn hallaði undan fæti, ef hannyrði framseldur þangað. Mér finnst hafa verið vel að verki staðið hjá þeim hópi, sem hefur barizt fyrir málstað Fischers og drengilegt hjá Davíð Oddssyni utanríkisráðherra að bjóða Bobby dvalarleyfi hér á landi. Að veita Bobby íslenzkan ríkis- borgarrétt til að koma þessu til leiðar er að sjálfsögðu þrautarúrræði en en hér er vissulega mikið undir. Og þess eru raunar nokkur dæmiað Alþingi hafi veitt undanþágur í undantekn- ingartilvikum. Mér skilst að Japanir hafi látið að því liggja, að ef Fischer hefði annan ríkisborgararétt auk hins bandaríska kynnu þeir að leyfa honum að fara en allt eru þetta frekar óljósar fréttir. Kynni mín af Bobby Fischer hafa verið ágæt frá upphafi vegar – ég kynntist honum fyrst þegar hann var 15 ára gamall - ég hef alla tíð haft mjög gott persónulegt samband við hann. Ef ég hefði nokkuð umkvörtunar- efni væri það helst það að eg hef orð- ið þó nokkrum sinnum fyrir barðinu á skáksnilld hans – hann hefur jú unnið mig oftar en ég hann! Við eigum að geta horft fram hjá sérlund hans og undarlegheitum í skoðunum og reynt að sjá til þess að þessi mesti skáksnillingur allratíma fái að njóta þess sem eftir er ævidag- anna í frið og ró.“ Friðrik Ólafsson stórmeistari hugs- ar djúpt í einvíginu við Bent Larsen á Hótel Loftleiðum í gærkvöldi. Ekki hægt að horfa upp á Fischer veslast upp í fangelsi Morgunblaðið/Ómar Reuters Bobby Fischer að setjast að tafli við Spasskí í hinu umdeilda einvígi í Júgóslavíu árið 1992. ÚRELTAR upplýsingar í tölvukerfi Neyðarlínunnar 112 ollu því að sjúkrabíll var kallaður frá Ísafirði til Bolungarvíkur í stað þess að kalla út sjúkrabílinn á Bolungarvík. Þórhallur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Neyðarlínunnar, seg- ir um mannleg mistök að ræða sem komi ekki fyrir aftur. Í fyrra hafi útköll verið 167 þúsund og þetta séu einu mistökin. Útkallið barst sl. sunnudag eftir að eldri maður hneig niður á Bol- ungarvík. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafði hann verið veikur og átti að baki langa sögu um hjartveiki. Fljótt var byrjað að gera tilraunir til endurlífgunar sem ekki tókust. Það tekur sjúkrabíl um 15 mín- útur að fara frá Ísafirði til Bolung- arvíkur. Á Bolungarvík eru sjúkra- flutningamenn ekki á starfsstöð og því ekki tiltækir strax eins og á Ísa- firði. Rangur sjúkrabíll kallaður út HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær karlmann á þrítugs- aldri í 10 mánaða fangelsi fyrir mikinn fjölda þjófnaða, tilrauna til þjófnaða, innbrota, nytjastuldi, umferðarlagabrot, fjársvik og skjalafals. Ákærði var vegna brota sinna dæmdur til að greiða Listasafni Reykjavíkur 440 þúsund krónur í skaðabætur, Sjóvá-Almennum tryggingum 82 þúsund krónur, Vá- tryggingafélagi Íslands 308 þús- und krónur, auk alls sakarkostn- aðar, þar með talin 250 þúsund króna málsvarnarlaun og réttar- gæsluþóknun skipaðs verjanda síns. Ákærði var einnig sviptur öku- rétti í eitt ár en í málinu var hann sakfelldur fyrir að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti í sjö skipti, einu sinni undir áhrifum áfengis. Ók hann svo óvarlega í það skiptið að hann ók á hús. Í dóminum segir að brotavilji ákærða hafi verið einbeittur. Um hafi verið að ræða mörg brot fram- in á tiltölulega stuttum tíma í fyrra og voru flest þeirra hegningarlaga- brot. Arnfríður Einarsdóttir héraðs- dómari dæmdi málið. Verjandi var Bjarni Hauksson hdl. og sækjandi Egill Stephensen frá lögreglustjór- anum í Reykjavík. 10 mánaða fangelsi fyrir fjölda afbrota ÁFRÝJUNARNEFND samkeppnismála hefur staðfest ákvörðun samkeppniráðs þess efnis að Bensínorkan ehf. hafi brotið gegn 20. gr. a og 21. gr. samkeppnislaga með almennum fullyrðingum um að fyrirtækið bjóði almennt lægra verð en keppi- nautar, þar sem fyrirtækinu er jafnframt bannað að fullyrða í auglýsingum eða með öðrum hætti að það bjóði almennt lægra eldsneytisverð en keppinaut- arnir þegar sú væri ekki raunin. Fram kemur í úrskurði áfrýjunarnefndarinnar að Bensínorkunni hafi ekki tekist að sanna að hún bjóði almennt lægra verð en keppinautar hennar eins og haldið hafi verið fram í auglýsingum. Ofan- greindar greinar samkeppnislaga séu skýrðar svo, eins og komið hafi fram í fyrri úrskurðum áfrýj- unarnefndarinnar, að í þeim felist að sönnunarbyrði hvíli á viðkomandi varðandi það að fullyrðingar í auglýsingum séu sannar. Meðal fullyrðinganna sem um er að ræða má nefna: „Orkan alltaf ódýrust“; „Alls staðar ódýr- ast“; „Ódýrast í Reykjavík“; „Ódýrast á Seltjarn- arnesi“; „Orkan bensín er ódýrast í Kópavogi. Ork- an bensín er alls staðar ódýrast.“ o.fl. Bensínorkan taldi fyrir áfrýjunarnefndinni að ekki væri hægt að beita nefndum greinum sam- keppnislaga óháð markaðsskilgreiningu. Hefði fyrirtækið skilgreint markaðinn út frá þeim sjón- armiðum hve langt kaupandi eldsneytis væri tilbú- inn til þess að aka til að fylla á bílinn. Niðurstaðan væri sú „að Reykjavík skiptist niður í nokkra land- fræðilega markaði í eldsneytissölu. Hægt sé að hafa póstnúmer borgarinnar til grundvallar og líta þann- ig á að hvert póstnúmerssvæði sé sjálfstæður land- fræðilegur markaður. Þá séu t.d. Seltjarnarnes og Selfoss sjálfstæðir landfræðilegir markaðir. Á þeim mörkuðum sem áfrýjandi starfi bjóði hann lægsta verðið. Áfrýjandi sé þannig með ódýrasta eldsneyt- ið á Selfossi, í Hafnarfirði, í Reykjanesbæ, á Sel- tjarnarnesi o.s.frv. og megi því auglýsa það, þannig að bíleigandi sem vill kaupa ódýrustu vöruna geti gengið að því vísu hvar ódýrasta eldsneytið á hans markaðssvæði sé að finna“. Þarf ekki að skilgreina markað Samkeppnisráð telur aftur á móti að ekki þurfi að skilgreina markaði við beitingu þessara tilteknu greina samkeppnislaga. Það sem skipti máli við beitingu þeirra sé að leggja á það mat hvort viðkom- andi auglýsingar séu efnislega sannar og sann- gjarnar gagnvart neytendum og fyrirtækjum. „Samkeppnisráð ítrekar að áfrýjandi gefi neyt- endum til kynna með almennum fullyrðingum að eldsneytisverð hans sé almennt lægra en verð keppinauta hans þegar í raun eigi það eingöngu við um eina sölustöð. Auglýsingar sem innihalda full- yrðingar sem ekki standist brjóti í bága við ákvæði 20. gr. a og 21. gr. samkeppnislaga. Jafnframt ítrek- ar samkeppnisráð að þess sé ekki krafist í hinni kærðu ákvörðun að söluverð sé það sama á öllum sölustöðum áfrýjanda heldur að ef nota eigi svo al- mennar yfirlýsingar sem áfrýjandi hafi gert þá verði verð allra sölustaða að vera undir verði keppi- nautanna. Ella sé verið að blekkja neytendur.“ Áfrýjunarnefnd samkeppnismála úrskurðar í máli Bensínorkunnar Bannað að auglýsa lægra verð ef það er ekki raunin Morgunblaðið/Þorkell

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.