Morgunblaðið - 16.02.2005, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 16.02.2005, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2005 7 FRÉTTIR Hagstæðari Evrópa www.icelandair.is/afangastadir Hafið samband við söluskrifstofur Icelandair eða við Fjarsölu Icelandair í síma 50 50 100 (svarað mánud. - föstud. kl. 9-17, laugard. kl. 9-17 og á sunnudögum kl. 10-16).Icelandair tekur við ferðaávísun MasterCard og orlofsávísunum VR í pakkaferðir. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 27 42 6 0 2/ 20 05 Kaupmannahöfn – flug og gisting á mann í tvíbýli, 14.-16. okt. Innifalið: Flug, gisting með morgunverði á Hotel Selandia í 2 nætur, flugvallarskattar og þjónustugjöld. Verð frá 29.930 kr. Helsinki – flug og gisting á mann í tvíbýli, 16.-19. september Innifalið: Flug, gisting með morgunverði á Sokos Hotel Helsinki í 3 nætur, flugvallar- skattar og þjónustugjöld. Verð frá 39.970 kr. Glasgow – flug og gisting á mann í tvíbýli, 3.-5. júní og 9.-11. sept. Innifalið: Flug, gisting með morgunverði á Jurys Inn í 2 nætur, flugvallarskattar og þjónustugjöld. Verð frá 34.020 kr. London – flug og gisting á mann í tvíbýli, 4.-6. júní og 28.-30. okt. Innifalið: Flug, gisting með morgunverði á K-West í 2 nætur, flugvallarskattar og þjónustugjöld. Verð frá 34.400 kr. Amsterdam – flug og gisting á mann í tvíbýli, 1.-3. júlí og 19.-21. ágúst Innifalið: Flug, gisting með morgunverði á Avenue í 2 nætur, flugvallarskattar og þjónustu- gjöld. Verð frá 41.170 kr. París – flug og gisting á mann í tvíbýli, 8.-10. apríl og 2.-4. sept. Innifalið: Flug, gisting með morgunverði á Hotel Mercure Ronceray í 2 nætur, flugvallar- skattar og þjónustugjöld. Verð frá 41.540 kr. Frankfurt – flug og bíll á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn, bíl í A- flokki í eina viku, 23.-30. maí og 09.-16. sept. Innifalið: Flug til Frankfurt, bíll í 7 daga, flugvallarskattar og þjónustugjöld. Verð frá 29.900 kr. Berlín – flug og bíll á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn, bíl í A-flokki í eina viku, 6.-13. júní. Innifalið: Flug, bíll í 7 daga, flugvallarskattar og þjónustugjöld. Verð frá 29.900 kr. Barcelona – flug og bíll m.v 2 fullorðna og 2 börn, bíl í A-flokki í eina viku 18.–25. júní og 20.-27. ágúst. Innifalið: Flug, bíll í 7 daga, flugvallarskattar og þjónustugjöld. Verð frá 29.560 kr. VR orlofsávísun Munið ferða- ávísunina STURTUR & BLÖNDUNARTÆKI Fosshálsi 1 • 110 Reykjavík Sími 525 0800 • www.badheimar.is FJÁRFESTINGASKEIÐIÐ sem hefur einkennt íslenska hagkerfið á undanförnum misserum er nú að ná hámarki að mati Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD). Í skýrslu stofnunarinnar um stöðu efnahagsmála á Íslandi segir að há- mark þessa skeiðs einkennist af aukinni verðbólgu og viðskiptahalla og í kjölfarið sé hætta á ójafnvægi sem leitt geti til ofhitnunar líkt og í upphafi aldarinnar. Í skýrslunni segir ennfremur að íslenska hagkerfið sé orðið stöðugra í kjölfar skipulagsbreytinga sem orðið hafa síðan á 10. áratug síðustu aldar, þar á meðal upptaka fljótandi gengis og verðbólgumarkmiðs. Engu að síður þarf hagkerfið að glíma við ýmsar áskoranir. Sú helsta, til skamms tíma, að mati OECD er að viðhalda efnahagsleg- um stöðugleika þrátt fyrir fjárfest- ingabólu þá sem hér ríkir, með þröngri efnahagsstefnu og viðeig- andi stefnumörkun. Til langs tíma litið þarf að auka framleiðni enn frekar, að mati stofnunarinnar, enda er verg lands- framleiðsla fyrir hvern klukkutíma hér á landi undir meðaltali OECD. Ástæður þess eru, meðal annars, óhagkvæmni stærðar, mikil nýting vinnuafls auk fábreyttrar samsetn- ingar hagkerfisins. Einnig telur OECD að auka þurfi vægi þekk- ingariðnaðar í hagkerfinu, meðal annars með því að fjarlægja hindr- anir svo sem styrki og niður- greiðslur til raforkuiðnaðarins. Þörf á frekari vaxtahækkunum Að mati OECD hafa stýrivaxta- hækkanir Seðlabankans á síðasta ári ekki skilað árangri og telja sér- fræðingar stofnunarinnar að hætta sé á enn meiri verðbólgu, meðal annars í kjölfar batnandi atvinnu- ástands. Því sé þörf á frekari vaxta- hækkunum á þessu ári og telur stofnunin að Seðlabankinn ætti að endurskoða stýrivexti oftar en á þriggja mánaða fresti til þess að bæta samskipti sín við fjármála- markaðinn. Hvað varðar fjármálastefnuna telur OECD að fyrirhugaðar skattalækkanir muni draga úr krafti stýrivaxta. Til þess að bæta fyrir það leggur stofnunin til að dregið verði úr útgjöldum ríkis- sjóðs. Greiður aðgangur að vinnuafli Minnkandi atvinnuleysi hér á landi er talið geta stuðlað að enn meiri verðbólgu á næstu misserum. Til þess að draga úr þessari áhættu telur OECD æskilegt að tryggður verði greiður aðgangur að erlendu vinnuafli, að minnsta kosti uns eftirspurn eftir vinnuafli nær há- marki. Áskoranir blasa við íslenskum efnahag HÉRAÐSDÓMUR Reykjavík- ur hefur dæmt þrítugan mann í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að stela þremur DVD-diska- söfnum að verðmæti rúmlega 14 þúsund krónur í verslun í Kringlunni í september í fyrra. Þjófavarnakerfi fór í gang er maðurinn fór í gegnum örygg- ishlið á leið út úr versluninni. Við hljóðið sneri hann við og gekk aftur inn í verslunina þar sem öryggisverðir höfðu af- skipti af honum. Var hann þá með diskasöfnin framan á sér undir úlpu og var búið að rífa þjófavörn af hluta diskanna. Viðurkenndi hann þjófnaðinn fyrir lögreglu en fyrir dómi neitaði hann hins vegar sök. Hélt hann því fram að hann hafi verið í versluninni að skoða fatnað og DVD-diska og verið með diskasöfn í hendi er hann hafi farið áleiðis að ör- yggishliði verslunarinnar í þeim tilgangi að ræða við félaga sinn utan verslunina. Kvaðst hann hafa farið of nærri þjófa- varnarkerfinu sem hafi farið í gang. Við svo búið hafi hann gengið aftur inn í verslunina. Þá hafi öryggisvörður komið og borið á hann að hafa ætlað að stela diskasöfnunum en því hafi hann neitað. Héraðsdómur hafnaði þess- um viðbárum mannsins en hann á að baki sakaferil frá árinu 1992. Símon Sigvaldason héraðs- dómari dæmdi málið. Verjandi var Kristján Stefánsson hrl. og sækjandi Kolbrún Ólafsdóttir, fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík. Fjögurra mánaða fangelsi fyrir þjófnað ❖ Opið virka daga 10-18 ❖ Laugardaga 10-16 Nýbýlavegi 12 Kópavogi s. 554 4433 Föt fyrir allar konur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.