Morgunblaðið - 16.02.2005, Side 9

Morgunblaðið - 16.02.2005, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2005 9 FRÉTTIR Fermingarmyndartökur Óhefðbundnar myndatökur Fjölskyldumyndatökur Pantið tímanlega Ljósmyndastofa Kópavogs sími 554 3020 Mynd, Hafnarfirði s. 565 4207 www.ljósmynd.is Bjóðum nýtt kortatímabil 10% kynningarafsláttur af staðgreiðslu og fallegur kaupauki SKIN CAVIAR CONCEALER • FOUNDATION SPF15 Farði sem veitir húðinni létta andlitslyftingu. Stinnir og sléttir húðina og minnkar sýnileg þreytumerki. Gefur húðinni einstakan ljóma! Sjón er sögu ríkari... Tökum vel á móti þér eftirtalda kynningardaga: Miðvikud. 16. feb. í HYGEU Kringlunni s. 533 4533 Fimmtud. 17. feb. í HYGEU Laugavegi s. 511 4533 Föstud. 18. feb. í HYGEU Smáralind s. 554 3960 Alla dagana milli kl. 13 og 17 www.laprairie.com Hverafold 1-3 • Foldatorg Grafarvogi • Sími 577 4949 Opnunartími mán.-fös. kl. 11-18 & lau. kl. 11-14 Nýkomnir glæsilegir toppar Nýtt kortatímabil hefst á morgun iðunn tískuverslun Aðeins á Seltjarnarnesi Lagersala Lagersala Lágmark 50% afsláttur Gardeur, Mac, Momori, Jögro, Eterna, Baronia, Marcona, Polo teams i Polo, Ralph Lauren Hvaða áhrif hefur sala grunnnets Símans á fjarskiptamarkaði? Opinn fundur á vegum Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík Fimmtudaginn 17. febrúar kl. 17.15 í Valhöll, Háaleitisbraut 1 Frummælendur: Orri Hauksson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Símans Eiríkur Jóhannsson, forstjóri OgVodafone Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar Fundarstjóri: Arnbjörg Sveinsdóttir, alþingismaður, í samgöngunefnd Alþingis. Allir velkomnir MORGUNBLAÐINU hefur borist yfirlýsing frá sex konum vegna um- ræðna um kjör í stjórnir fyrirtækja og lífeyrissjóða. „Maður skyldi ætla að óþarfi væri á árinu 2005 að konur þyrftu að grípa til aðgerða vegna jafnréttisbaráttu. Svo er þó ekki og sýna það best þær tölur sem Félag kvenna í lög- mennsku, Félag kvenna í endur- skoðun, Félag kvenlækna og Félag kvenna í verkfræði hafa safnað sam- an. Við fögnum þeirri umræðu sem hefur komið í kjölfar blaðamanna- fundar sem áðurnefnd félög héldu á dögunum. Enn fremur fögnum við áskorun viðskiptaráðherra til félaga um að fjölga konum í stjórn þeirra. Fróðlegt verður að fylgjast með því þegar umrædd félög taka stöðuna á málinu eftir aðalfundahrinu fyrir- tækja og lífeyrissjóða. Alltof oft hefur heyrst að víst vilji menn fá konur í stjórnir fyrirtækja en það séu bara ekki til konur með þá reynslu og menntun sem þurfi til þeirra starfa. Slíkt er vitaskuld fjarri lagi enda hefur konum með góða menntun og reynslu fjölgað verulega. Í þessu sambandi skal bent á að und- anfarin 15 ár hafa fleiri konur en karl- ar útskrifast úr lagadeild Háskóla Ís- lands. Við undirritaðar lýsum því hér með yfir að við erum tilbúnar til þess að taka að okkur stjórnarstörf og að- stoða félög við það að leiðrétta það hróplega misvægi sem er á þessu sviði. Allar erum við lögmenn og höf- um talsverða reynslu á sviði fé- lagaréttar og eða framhaldsmenntun sem nýtast myndi vel í starfi stjórn- armanna félaga. Við rekum allar okk- ar eigið fyrirtæki og höfum víðtæka þekkingu á þörfum viðskiptalífsins. Verði til okkar leitað þá munum við að sjálfsögðu ekki skorast undan þeirri ábyrgð sem fylgir því að sitja í stjórn félaga eða lífeyrissjóða. Bjarnveig Eiríksdóttir hdl. Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir hdl. Guðrún Birgisdóttir hdl. Herdís Hallmarsdóttir hdl. Hulda Elsa Björgvins, hdl. Vala Valtýsdóttir, hdl.“ Tilbúnar í stjórnarstörf Morgunblaðið/Golli Þær eru reiðubúnar til stjórnunarstarfa. Frá vinstri: Vala Valtýsdóttir, Bjarnveig Eiríksdóttir, Herdís Hallmars- dóttir, Guðrún Birgisdóttir, Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir og Hulda Elsa Björgvinsdóttir.  HALLDÓR Narfi Stefánsson hef- ur varið doktorsritgerð sína í hag- nýtri stærðfræði við University of Wisconsin, Madison í Bandaríkj- unum. Ritgerðin nefnist „The Structure of Sparse Repre- sentations of Images Using Tight Frames“. Í ritgerðinni rann- sakar Narfi wavelet-kerfi sem hafa verið notuð til að finna einfalda framsetningu á myndum á tölvutæku formi. Í stað þess að nota hefðbundin wavelet-kerfi eru könnuð sérstök ofaukin wavelet-kerfi sem kallast þröngir rammar. Framsetning mynda í því kerfi er fundin með sér- hönnuðu reikniriti sem leysir lág- mörkunarvandamál. Ein helsta nið- urstaða ritgerðarinnar er að þessi ofauknu kerfi geta gefið rýra fram- setningu á náttúrulegum myndum og hár fjöldi ofaukinna kerfa gefur rýrari framsetningu en unnt er að ná með viðmiðunar-wavelet-kerfum. Þá er sýnt fram á að slík fram- setning er reiknanleg. Einnig eru orku og tíðni eiginleikar framsetn- inganna kannaðir. Loks er fram- setningarhæfileiki kerfanna borinn saman við ýmsa fræðilega eiginleika þeirra. Niðurstöðurnar sýna að rýra framsetningin hefur öðruvísi eig- inleika heldur en hægt er að finna í hefðbundnum wavelet-framsetn- ingnum eða í fræðum um ofauknar framsetningar, segir í frétt um dokt- orsvörnina. Narfi útskrifaðist frá Menntaskólanum í Reykjavík 1991 og lauk B.S. gráðu í stærðfræði frá Háskóla Íslands 1994. Hann lauk mastersgráðu í stærðfræði og tölv- unarfræði frá University of Wis- consin 1998. Hann hefur unnið hjá Hafrannsóknarstofnun, Taugagrein- ingu og við kennslu og rannsókn- arstörf hjá Wisconsin háskóla. Hann hefur verið ráðinn til starfa hjá Mat- hworks í Boston. Móðir Narfa er Ell- en Sætre, fyrrv. verslunarkona og faðir hans er Stefáns Aðalsteinsson, fyrrv. framkvæmdastjóri búfjár- deildar Norræna genabankans. Eig- inkona Narfa er Masako Atake og eiga þau eina dóttur. Doktor í hag- nýtri stærðfræði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.