Morgunblaðið - 16.02.2005, Síða 10

Morgunblaðið - 16.02.2005, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR  Hverjar voru athyglisverðustu auglýsingarnar árið 2004? Máttur auglýsinga á morgun STARFSHÆTTIR Hafrannsókna- stofnunar voru gagnrýndir í utandag- skrárumræðu sem fram fór á Alþingi í gær um vöxt og viðgang þorsks í Breiðafirðinum. Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, var málshefjandi umræðunnar. Hann vís- aði í ræðu sinni til reglugerðarlokun- ar frá liðnu hausti á grunnslóð við sunnanverðan Breiðafjörð og sagði að hún hefði bitnað harkalega á sjávar- byggðum Snæfellsness. Þingmaðurinn sagði að æpandi staðreyndir blöstu við um árangurs- leysi fiskveiðistjórnunarinnar. Þorsk- veiðin væri einungis helmingurinn af því sem hún hefði verið fyrir daga kvótakerfisins. „Það blasir við öllum að ráðgjöf Hafró skilar ekki árangri,“ sagði hann. Sigurjón sagði að einn liður í ráð- gjöf stofnunarinnar væri að loka svæðum. „Regla [hennar] er sú,“ sagði hann, „að þegar fjórðungur þorsks í afla er minni en 55 sentimetr- ar er einfaldlega lokað.“ Hann sagði hægt að fallast á verndun smáfiska væri æti ekki af skornum skammti. En þannig væri því ekki farið í nátt- úrunni; æti væri takmarkað og það hamlaði vexti dýrastofna. Hafró tæki ekki mið af því. Hún miðaði við lengd en ekki aldur fisksins. Þingmaðurinn vitnaði að lokum í rannsóknir Jóns Kristjánssonar fiskifræðings á vexti þorsks á Breiðafirði. Meginniður- staða Jóns er sú að vöxtur þorsks sé eðlilegur og nokkuð góður fyrstu þrjú ár ævinnar eða þar til hann nær 1 til 1½ kg þyngd en þá hægi verulega á vextinum og hann nánast stöðvist. Efast ekki um ákvörðunina Árni M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra sagði í andsvari að ekki þyrfti að efast um réttmæti lokunar- innar í Breiðafirði. Hann sagði að fjögurra ára þorskur í þar virtist að meðaltali þyngri en þorskur á sama aldri annars staðar. „Hins vegar er um ungan fisk að ræða í Breiðafirð- inum og þess vegna fellur hann – eins og kom fram í haust – undir 25% mörkin miðað við 55 sentimetra. Það gerði hann á öllum mælistöðvum, en þar fór mjög ítarleg mæling fram. Þannig að það þarf ekkert að efast um réttmæti þeirrar lokunar.“ Ráðherra sagði á hinn bóginn dálít- ið erfitt að ræða þessi mál þegar vitn- að væri í vísindamenn eins og Jón Kristjánsson. „Það verður að segjast eins og er að hans vinnubrögð eru mjög gagnrýnisverð,“ sagði ráðherra. Sýnataka Jóns væri sérstaklega gagnrýnisverð. „Sýni eru ekki tekin miðað við rétta dreifingu á aflanum og það er ekki um tilviljunarúrtak að ræða. Þannig að undirmálsfiskur er miklum mun stærra hlutfall í sýninu hjá vísindamanninum en hann er úr vegnum tilviljanakenndum sýnum sem tekin eru. Það þýðir að mæling á vaxtarhraða er óhjákvæmilega skert vegna þessa mikla magns af minni fiski […].“ Hugsi ekki í ferningum Fleiri þingmenn tóku þátt í um- ræðunni. Jón Gunnarsson, þingmað- ur Samfylkingarinnar, sagðist hissa á svörum ráðherra. Þau bæru vott um það hvernig menn brygðust við gagn- rýni á störf Hafrannsóknastofnunar. „Auðvitað þroskast fiskur mismun- andi eftir búsvæðum,“ sagði þingmað- urinn. Það væri því full ástæða til þess að menn hættu að hugsa í ferningum eða rúðustrikuðum hugsunum. Kristinn H. Gunnarsson, þingmað- ur Framsóknarflokks, sagði þetta mál kenna okkur ákveðna lexíu. Til að mynda þyrfti að vanda vel rannsóknir áður en gripið væri til þess að loka svæðum með afdrifaríkum hætti, eins og gert var í Breiðafirði. Þá sagði Jón Bjarnason, þingmað- ur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, að það hlyti að vera lág- mark, þegar gripið væri til lokunar, að gera það í nánu samráði við heima- menn. Starfshættir Hafrannsóknastofnunar gagnrýndir á Alþingi Sigurjón Þórðarson Árni M. Mathiesen Full ástæða til að hætta að hugsa í ferningum ÞINGFLOKKUR Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs mun á yfirstandandi vorþingi leggja fram frumvarp til fjáraukalaga þar sem gert er ráð fyrir 1,5 milljörðum króna til efl- ingar nýsköpun og atvinnuuppbyggingu. Samkvæmt frumvarpinu fengi Nýsköpunar- sjóður stofnfjáraukningu upp á einn milljarð króna úr ríkissjóði og atvinnuþróunarfélög 400 milljónir króna vegna styrkja og hlutafjár- kaupa. Þá er gert ráð fyrir 100 milljónum króna til atvinnuráðgjafa á landsbyggðinni. Í greinargerð með frumvarpinu kemur m.a. fram að allt fé Nýsköpunarsjóðs sé bundið í fyr- irtækjum sem sjóðurinn hefur stutt við bakið á og ekkert svigrúm til að liðsinna nýjum fyr- irtækjum nema með því takmarkaða fé sem eft- ir atvikum losnar við sölu á eignarhlut sjóðsins í fyrirtækjum sem fjárfest hefur verið í. Þau fyr- irtæki séu hins vegar ung og ótímabært að sjóð- urinn hverfi þar á braut. Almenn fjárfesting sé mjög lítil innanlands og flestir stærri fjárfest- ingaraðilar rói nú fyrst og fremst á erlend mið. Afleiðingin sé sú að myndast hafi svokallað fjárfestingargat, hlekkur hafi slitnað í þeirri keðju sem sprotafyrirtækin þurfi að fikra sig upp eftir á leið sinni til vaxtar og fulls þroska. Nýsköpunarsjóður sem áður brúaði bilið á milli upphafsfjár stofnenda, styrkja og minni opin- berra sjóða, s.s. Rannsóknasjóðs og Tækniþró- unarsjóðs, og stærri fjárfesta, sé ekki lengur í færum til að gegna því hlutverki. Jafnframt sé brýnt að efla þann hluta ný- sköpunar sem fram fer svæðisbundið á vett- vangi atvinnuþróunarfélaganna. Ljóst sé að það fé sem varið er til atvinnuþróunar og at- vinnuráðgjafar, og kemur að stærstum hluta í gegnum Byggðastofnun en að öðru leyti í gegnum framlög sveitarfélaga og fleiri aðila í heimabyggð, rétt dugi fyrir rekstri þeirrar starfsemi. Vilja 1,5 milljarða til að styrkja nýsköpun og atvinnu Morgunblaðið/Brynjar Gauti Þingmenn VG kynntu frumvarpið, frá vinstri: Kolbrún Halldórsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Jón Bjarnason. ÞINGFUNDUR hefst kl. 12 í dag með þrettán fyrirspurnum til ráð- herra. Meðal annars verður spurt um flutning bandaríska sendiráðs- ins í Reykjavík, trúnaðarstörf sendiherra fyrir stjórnmálaflokka og rétt foreldra vegna veikinda barna. ÖNNUR umræða um frumvarp menntamálaráðherra um að lög um Tækniháskóla Íslands verði felld úr gildi, vegna sameiningar skólans við Háskólann í Reykjavík, hófst á Al- þingi í gær. Áður höfðu þingmenn stjórnarandstöðunnar krafist þess að umræðunni yrði frestað vegna fjarveru Þorgerðar K. Gunnarsdótt- ur. Ráðherra er erlendis og tók vara- maður hennar, Sigurrós Þorgríms- dóttir, sæti á Alþingi í gær. Halldór Blöndal, forseti þingsins, tók fram að staðgengill menntamálaráðherra, Sigríður Anna Þórðardóttir um- hverfisráðherra, yrði viðstödd um- ræðuna. Hún gæti vonandi leyst úr þeim spurningum sem þingmenn myndu beina til hennar. Þingmenn stjórnarandstöðunnar sögðu fráleitt að Þorgerður væri ekki við umræðuna. Hún bæri póli- tíska ábyrgð á frumvarpinu. Lúðvík Bergvinsson, Samfylkingu, sagði m.a. að orð ráðherra skiptu miklu máli í umræðum af þessum toga og Steingrímur J. Sigfússon, Vinstri grænum, sagði að kæruleysi ráð- herra almennt gagnvart því að sinna þingskyldum sínum færi vaxandi. Forseti þingsins ítrekaði að ekki væri ástæða til að fresta umræðunni. Gunnar Birgisson, formaður menntamálanefndar, sagði skrípa- leik stjórnarandstöðunnar með ólík- indum. Kynnti hann síðan nefndar- álit menntamálanefndar. Þar kemur m.a. fram að nefndin telji að fyrir- huguð sameining Tækniháskóla Ís- lands og Háskólans í Reykjavík muni efla verkfræði- og tæknifræði- nám enn frekar hér á landi. Leggur meirihlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu það hins vegar að reka ætti sameinaðan háskóla sem einka- hlutafélag. Átöldu þeir hve skammur tími hefði verið gefinn til umfjöllunar en gert er ráð fyrir því að nýr háskóli taki til starfa eftir fjóra mánuði. Vildu að umræðu yrði frestað JÓHANNA Sigurðardóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram á Alþingi þingsályktunar- tillögu um siðareglur fyrir alþingis- menn. Meginefni tillögunnar er eft- irfarandi: „Alþingi ályktar að fela forsætis- nefnd að móta siðareglur fyrir al- þingismenn. Nefndin hafi til hlið- sjónar siðareglur annarra þjóðþinga. Reglurnar verði lagðar fram í formi þingsályktunartillögu í upphafi nýs þings næsta haust.“ Meðflutningsmenn Jóhönnu eru Margrét Frímannsdóttir, Samfylk- ingu, Jónína Bjartmarz, Framsókn- arflokki, Ögmundur Jónasson, Vinstri grænum og Guðjón A. Krist- jánsson, Frjálslynda flokknum. Í greinargerð segir m.a. að rétt og eðlilegt sé að þingmenn setji sér siðareglur líkt og ýmsar aðrar starfsstéttir Setji sér siðareglur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.