Morgunblaðið - 16.02.2005, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
BORIST hefur eftirfarandi athuga-
semd frá Félagi íslenskra stór-
kaupmanna (FÍS), vegna ummæla
Geirs H. Haarde fjármálaráðherra
frá því 11. febrúar, um áfengisverð:
„Vegna ummæla Geirs H.
Haarde, fjármálaráðherra frá því
11. febrúar síðastliðinn þar sem
hann hvetur áfengisheildsala til „að
standa sig betur“ og lækka álagn-
ingu á áfengi, telur FÍS sig knúið
til að koma eftirfarandi á framfæri:
Það er ekkert launungarmál að
áfengisverð á Íslandi er það hæsta
sem þekkist í heiminum – lang-
hæsta. Hið háa áfengisverð er hins
vegar ekki tilkomið vegna hárrar
álagningar áfengisheildsalanna
heldur fyrst og fremst vegna of-
urskattlagningar áfengis hér á
landi.
Til nánari útskýringar skulu hér
tekin tvö dæmi um áfengistegundir
sem er að finna á vörulista ÁTVR
þar sem fram kemur hlutfall ríkis-
sjóðs af verði áfengis.
Dæmi 1 – Sterkt áfengi
Verð 2990 kr.
Vsk 588 kr.
Áfengisgjald 1982 kr.
Heildarskattur 2570 kr.
Heildarskattur 86%
Dæmi 2 – Rauðvín
Verð 990 kr.
Vsk 195 kr.
Áfengisgjald 465 kr.
Heildarskattur 660 kr.
Heildarskattur 67%
Af ofangreindu ætti að vera deg-
inum ljósara að það eru ekki áfeng-
isheildsalar sem stýra verðmyndun
áfengis hér á landi heldur þvert á
móti fjármálaráðuneytið. Þess ber
jafnframt að minnast að þrátt fyrir
að nágrannalönd okkar séu ann-
aðhvort búin eða í þann veginn að
lækka áfengisgjöld – hækka þau
enn á Íslandi. Í desember 2002
hækkuðu skattar á sterkt áfengi
um 15% og í nóvember 2004 hækk-
uðu þeir enn um 7%.
Á sama tíma og Geir H. Haarde
hvetur áfengisinnflytjendur til að
gera betur þá hvetja hinir síðar-
nefndu háttvirtan fjármálaráðherra
til að lækka skatta á áfengi veru-
lega. Ávinningurinn yrði ekki síst
ríkisins þar sem umfang heima-
bruggs og smygls myndi dragast
saman og fyrir vikið krónum fjölga
í kassa ríkisins.
Að lokum skal þess getið að
fæstir áfengisheildsalanna kaupa
nú orðið inn í dollurum, því vega
gengisbreytingar dollars lítið í
verðmyndun áfengis hér á landi.
Verðmyndunin stjórnast sem fyrr
segir af hárri skattlagningu áfeng-
is.“
Athugasemd frá Félagi
íslenskra stórkaupmanna
JÓN Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs Group og stjórnarformaður
Haga gerir eftirfarandi athugasemd-
ir við Reykjavíkurbréf Morgunblaðs-
ins sl. sunnudag:
„Það er grundvallarmunur á skil-
greiningu matvörumarkaðarins í
Bretlandi og á Íslandi. Í Bretlandi er
þægindavöruverslana/smáverslana
markaður skilgreindur sem sér-
markaður. Það er ekki gert hér á Ís-
landi, því markaðshlutdeild 10–11-
verslananna er talin sem hluti af
markaðshlutdeild Haga á matvöru-
markaði. En markaðshlutdeild Tesco
Metro og Tesco Express er ekki talin
sem hluti af markaðshlutdeild Tesco
á stórmarkaði. Markaðurinn á Ís-
landi er talinn saman í heild en ekki í
Bretlandi. Tesco segist vera með
28% hlutdeild í stórmörkuðum en að-
eins 7% í smáverslunum. Þar með
hefur Tesco verið leyft að kaupa
smærri verslanakeðjur. Ljóst er að
Hagar fengju ekki að kaupa 11–11-
keðjuna samkvæmt íslenskum sam-
keppnislögum eins og þau eru í dag.
Ef við færum eftir þeim bresku þá
fengju Hagar að kaupa keðjuna þar
sem 10–11 er ekki markaðsráðandi í
smærri verslunum. Niðurstaðan er
því sú að markaður er skilgreindur
sem tvískiptur í Bretlandi en ekki á
Íslandi. Þess vegna er það rangt hjá
Morgunblaðinu að það séu tvö sjón-
armið í gangi hjá Baugi.
Matvörumarkaðurinn á Íslandi er
að mörgu leyti svipaður mörkuðum á
Norðurlöndum. Það eru 3–4 keðjur
sem skipta með sér 90% af markaðn-
um.
Eftir því sem markaðir eru minni
því færri aðilar skipta þeim með sér.
Þannig er lögmál markaðarins. Sama
má t.d. segja um dagblaðaútgáfu.
Það er rangt hjá Morgunblaðinu
að það hafi verið mistök að sam-
þykkja samruna 10–11 við Haga. Það
var einfaldlega farið að lögum. Ég
fullyrði að vöruverð væri ekki jafn-
lágt í dag á Íslandi og það er, hefði
það ekki gerst.
Lesa má úr orðum Morgunblaðs-
ins að verið sé að hvetja viðskiptaráð-
herra til að skipta upp fyrirtækjum.
Ég vil benda Morgunblaðinu á að
eina skýringin á því að markaðshlut-
deild Haga hefur vaxið á Íslandi sl. 4
ár, eru Bónusverslanirnar. Til dæmis
heyrast ekki lengur kvartanir á
landsbyggðinni um hátt vöruverð,
eftir að Bónus opnaði verslanir á
helstu þéttbýlisstöðum úti á landi.
Bónus hefur vaxið og dafnað og á
stóran hóp ánægðra viðskiptavina.
Er Morgunblaðið að hvetja til þess
að Bónus verði skipt upp eða loka
beri verslunum Bónuss til að minnka
markaðshlutdeild okkar?
Skilaboð okkar til fyrirtækja í okk-
ar eigu eru einföld: Ekki kvarta yfir
samkeppni. Hafið gaman af sam-
keppni og gerið betur.
Morgunblaðið vitnar ítrekað í að
Bill Grimsey kvarti yfir samkeppni
við Tesco. Þessi sjónarmið eru hans
og eru sett fram áður en félagið kom
undir stjórn Baugs. Eina samkeppn-
in sem vert er að vekja athygli á að er
ekki sanngjörn er þegar hún kemur
frá ríkinu. Það er fráleitt að ríkið
standi í samkeppnisrekstri árið 2005.
Baugur Group kemur víða að í at-
vinnurekstri á Íslandi og er óhætt að
fullyrða að hvergi á íslenskum neyt-
endamarkaði er eins hart barist og í
matvöruverslun.
Síðan við hófum afskipti af rekstri
matvöruverslana á Íslandi hefur
hlutfall matvöru lækkað úr 21% í
16% sé horft til ráðstöfunartekna hjá
vísitölufjölskyldunni. Það er árangur
sem við erum stolt af.“
Grundvallarmunur á skilgreiningu
TANKAR nýrrar stöðvar Atlants-
olíu á Sprengisandi í Reykjavík
hafa nú verið fylltir af eldsneyti og
er nú unnið að því að samhæfa
tölvubúnað stöðvarinnar og því
ekki nema fáir dagar í að hægt
verði að opna hana ef ekkert óvænt
kemur upp á.
Að sögn Huga Hreiðarssonar,
markaðsstjóra Atlantsolíu, er allt
annað klárt fyrir opnun. Hann segir
framkvæmdir hafa gengið mjög
vel, fyrsta skóflustungan hafi verið
tekin 17. nóvember og því sé verið
að ljúka framkvæmdum á um 85
dögum. „Það hefur allt gengið sam-
kvæmt áætlun og hlýindakaflinn
um miðjan janúar var sem lottó-
vinningur fyrir okkur. Þá gátum
við steypt og malbikað en malbik-
uninni hefði þurft að fresta til vors-
ins ef þessi hlýindavika hefði ekki
komið. Við erum mjög ánægðir með
hvað þetta hefur gengið vel,“ segir
Hugi.
Hann segir fjóra bíla geta tekið
bensín í einu á stöðinni á Sprengi-
sandi en hún sé búin fullkomnasta
búnaði sem völ sé á. „Þetta er
fyrsta stöðin okkar í Reykjavík og
þar með eru borgarmúrarnir að
rofna í samkeppnislegu tilliti. Við
væntum þess að nokkrar þúsundir
Reykvíkinga verði fastagestir á
stöðinni, við væntum þeirra stuðn-
ings við að halda uppi samkeppn-
inni. Ég minni á að ef við værum
ekki á markaðinum væri dísilolían
sex krónum dýrari.“
Morgunblaðið/Þorkell
Ný bensínstöð Atlantsolíu að rísa í Reykjavík
Stutt í opnun á Sprengisandi
! "# $
%#%!
& %"' ("
) ("
)#"
*"' (" & %"'
+!%
+!'
! %#
,#
-./!
-. ! "#($
0
. & %"'
1 "'
1. "
1 2 $ 34 / " 5 6("
*7 8" 4 ""
9:/!
-&
-% ;%# -%"'
-%. / 2 /$
<2## "#. "
= "" % "
3.4 .. 5-8(!#
!"
(
!%' >2
*"' 7. & %"' <8 8
! #$ %&
?@>A
-7
$!
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
!2 "#
2 $!
5
5 5
5
5
5
5 5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
B CD
5
B CD
B CD
B CD
B 5 CD
B CD
B CD
B CD
B CD
5
B CD
5
B CD
5
5
B 5CD
5
5
5
5
5
B CD
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
1! %'
'# "
< %( 7 % '# E
) -%
$ $
$
$ $ $
$
$
$ $ $
5
$ $ $ 5
5
$ 5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
= 7 FG $ $
<1$ H /#"% %'
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
<1$5 I . ./%'"' % /% $ <1$5 -2%' % %!## . 2 %( /! " $
BILL Grimsey, sem verið hefur for-
stjóri Big Food Group undanfarin
fjögur ár, eða síðan í ársbyrjun 2001,
hefur ákveðið að taka ekki við starfi
forstjóra Booker, eins og ákveðið
hafði verið að hann myndi gera. Hann
mun þó starfa hjá fyrirtækinu til
næstu mánaðamóta og aðstoða starf-
andi stjórnarformann, Hans Kristian
Hustad, við að komast inn í málefni
Booker.
Grimsey fullyrðir að hann hafi tek-
ið þessa ákvörðun í sátt og samlyndi
við hina nýju eigendur Booker.
„Þetta er allt í góðu á milli mín og
hinna nýju eigenda Booker,“ sagði
Grimsey í samtali við Morgunblaðið í
gær. Morgunblaðið hefur heimildir
fyrir því, að Grimsey hafi ekki verið
sáttur við það, að nýir eigendur að
Booker, skuli hafa ákveðið að setja
inn í fyrirtækið starfandi stjórnarfor-
mann, sem Grimsey hefði þá heyrt
undir, ef hann hefði tekið við starfi
forstjóra Booker.
„Ég hef einfald-
lega tekið þessa
ákvörðun, vegna
þess að ég er mjög
þreyttur eftir
átakamikil og
krefjandi fjögur
ár, sem forstjóri
Big Food Group.
Ég tilkynnti
Jóni Ásgeiri þessa
ákvörðun mína nú um helgina.
Ég verð hér hjá Booker til 1. mars,
að aðstoða Hans Kristian Hustad,
starfandi stjórnarformann Booker,
við að komast inn í starfið og kynnast
innri málefnum Booker,“ sagði
Grimsey jafnframt.
Aðspurður hvað tæki nú við hjá
honum, svaraði Grimsey: „Ég ætla
bara að taka það rólega til að byrja
með, hvíla mig, fara í nokkurra mán-
aða frí. Eftir það, þegar ég hef end-
urhlaðið batteríin, fer ég að líta í
kringum mig, eftir spennandi starfi.“
Bill Grimsey
hættir hjá Booker
Bill Grimsey
HAGNAÐUR af rekstri Marel hf. í
fyrra nam 6,6 milljónum evra eftir
skatta eða um 575 milljónum króna
miðað við meðalgengi ársins. Þetta er
nálega 74% meiri hagnaður en árið
áður en þá var hann tæpar 3,8 millj-
ónir evra. Hagnaður fyrir afskriftir,
fjármagnsliði og skatta, EBITDA,
jókst um 40% milli ára, úr 10,1 í 14,1
milljón evra. Sala jókst um 6% í evr-
um en um 9% mælt á föstu gengi.
Engu að síður er hagnaður félags-
ins árið 2004 nokkru undir spám við-
skiptabankanna sem gerðu að með-
altali ráð fyrir um 654 milljóna króna
hagnaði. Munar þarna mestu um að
hagnaður á fjórða ársfjórðungi virðist
hafa orðið umtalsvert minni en menn
höfðu ætlað; þannig gerði Lands-
bankinn t.d. ráð fyrir 2,4 milljóna evra
hagnaði á síðasta fjórðungi ársins en
hagnaðurinn reyndist hins vegar vera
1,4 milljónir evra.
Af hálfu Marel er á það bent að
pantanir á fjórða ársfjórðungi hafi
einkum komið til á síðara hluta hans
og hafi því ekki verið framleiddar og
tekjufærðar nema að hluta. Verk-
efnastaðan sé á móti um 3 milljónum
evra betri í lok fjórðungsins en í upp-
hafi hans.
Þá er og á það bent að ytri skilyrði
hafi að mörgu leyti verið félaginu
óhagstæð, einkum þróun gengis
krónunnar og gengiskrossinn milli
evru og dals; því verði umskiptin í
rekstrinum að teljast mjög viðunandi.
Í Vegvísi Landsbankans segir að
afkoman hafi verið viðunandi hjá
Marel en aftur á móti hafi gengið illa í
rekstri dótturfélagsins Carnitech í
Danmörku á síðasta fjórðungi og sal-
an þá dregist saman um 18% milli ára.
Hagnaður Marel
undir væntingum
0
(
1 !
%
++%,-+
.+/&0
12&
+/+21
./1.
2+01
)+&.2
)%+-%
#
3
%2,12
0++2%
3 (
4
!(
+-11&
%05
+-0+-/
.+/&.
+,%1
+,10,
.+2,
&0+&
)+01&
)++0+
%1+0.
10+0.
/.%/
+.5
4
!
6
7
!
8!(
234562
3789-962 ,++%
#$
:
Uppgjör
Marel
arnorg@mbl.is